Morgunblaðið - 24.01.1958, Page 2
MOnCTlW BT. ATilTi
Föstudagur 24. jan. 1958
Lítil telpa úr Reykjavík á
næturferð í Keflavik
Barnaverndarnefnd hefur tekið að sér
mál hennar
I GÆRDAC, í öllum kosningahitanum hér í bænum, kom nýtt,
óvenjulegt umræðuefni til sögunnar: Lítil telpa, sem tilkynnt var
um í hádegisútvarpinu, að verið hefði í vörzlu lögreglunnar í
Keflavík í fyrrinótt. I gærkvöldi var Barnaverndarnefnd Reykja-
vikur búin að taka mál telpunnar til athugunar, en hún er héðan
úr bænum.
Á Kópavogshálsi
Fréttaritari Mbl. í Keflavík
sagði þannig frá því er telpan
kom í lögreglustöðina þar í bæn-
um í fyrrinótt:
í>að var um klukkan 2,40 að-
faranótt fimmtudagsins að leigu-
bílstjóri úr Reykjavík kom í lög-
reglustöðina og var hann með
litla telpu, sem sagðist heita Jó-
hanna Finnbogadóttir.
Leigubílstjórinn kvaðst hafa
tekið telpuna upp í bíl sinn á
Kópavogshálsi um nóttina. Hefði
hún beðið sig að aka sér suður
til Keflavíkur. Bílstjórinn mun
hafa talið að hún ætti þar heima
og ók af stað. Þegar til Kefla-
víkur kom vissi telpan ekki hvar
hún ætlaði úr bílnum og varð
bílstjórinn að lokum að snúa sér
til lögreglunnar.
í lögreglustöðinni borgaði telp-
an bilinn, kr. 260.00. Ekki tókst
telpunni að átti sig í lögreglu-
stöðinni hvert ferðinni væri heit-
ið. Ekið var með hana um bæ-
inn, en allt kom fyrir ekki. Það
sem eftir var nætur, var telpan
á heimilum lögreglumanna
í Keflavík.
Jóhanna litla gaf þær upplýs-
ingar að hún hefði verið hjá
frænku sinni, sem býr suður i
Kópavogi. Að öðru leyti mun
ekki um nóttina hafa tekizt að
fá botn í þetta næturferðalag
telpunnar og var ákveðið að bíða
morguns (fimmtudags).
Skömmu eftir að tilkynnt
hafði verið um telpuna í hádegis-
útvarpinu, gaf faðir hennar sig
Auðvitað
shröksugu
t ALGJÖRRI málefnalegri
uppgjöf breiða Tímamenn nú
út gróusögur um andstæðinga
sína. Glöggt dsémi þess er í
Tímanum í gær og er full
ástæða til að virða það fyrir
sér, svo vel sem það lýsir
vinnubrögðum þessara „um-
bótamanna".
í feitletraðri grein varpar
blaðið m. a. fram þessari
spurningu: „Hver greiðir laun
fulltrúans í fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur, sem hcfur að-
setur í kosningaskrifstofu
SjálfstæðisfIokksins?“ í fram-
haldi af því koma ýmsar
dylgjur svo sem að það hafi
„vakið athygli að lögfræðing
ur nokkur . . ., sem er fastur
starfsmaður Reykjavíkurbæj-
ar og tekur laun hjá bæjar-
sjóði, hefur á undanförnum
mánuðum ekki sézt á skrif
stofu sinni“.
Vegna þessa tilefnis er sjálf-
sagt að upplýsa eftirfarandi'
Orð blaðsins eiga við lög-
fræðing í þjónustu fræðslu-
stjóra Reykjavíkurbæjar. Á
bæjarráðsfundi 22. okt. sl. var
samþykkt með samhljóða at-
kvæöum allra bæjarráðs-
manna að veita lögfræðingn-
um „3—4 mánaða orlof frá 1.
nóv. að telja án launa“. (10.
liður fundargerðar). Þessi
samþykkt var síðan staðfest í
bæjarstjórn 31. október sl.
með samhljóða atkvæðum
bæjarfulltrúa, þar á meðal
Þórðar Björnssonar.
Á þessu tímabili eru öll
störf lögfræðingsms alls óvið
komandi bæjarstofnunum.
fram. Hann starfar á Keflavíkur-
flugvelli. Um klukkan 2 í gær-
dag kom hann í lögreglustöðina
í Keflavík og sótti telpuna. Faðir
hennar er úr Reykjavík.
Það var ekki fyrr en síðari-
hluta dags í gær að starfsfóik
Barnaverndarnefndar fékk mál
telpunnar til meðferðar, en
nefndin mun hafa haft nokkur
kynni af högum hennar. Kvaðst
fulltrúi nefndarinnar, Þorkeli
Kristjánsson, vonast til þess að
athugun á máli þessu yrði lokið
í gærkvöldi og myndi nefndin
reyna að leysa það á þann hátt,
sem barninu væri fyrir beztu.
Jóhanna litla var komin heim
til sín aftur í gærkvöldi.
við bæja- og sveifastjóraakosningar 26. Janúar 1958
VIÐ síðustu kosningar gaf Heim-
dallur út kosningahandbók, kjós-
endahandbókina, sem þá hlaut
góðar undirtektir fyrir fróðlegar
og vandaðar upplýsingar. Heim-
dallur hefur nú gefið út kjós-
endahandbók fyrir bæjarstjórnar
kosningarnar, sem er ómissandi
fyrir hvern þann, er vill fylgjast
með kosningunum. f bókinni er
mikill fjöldi upplýsinga m. a. úr-
slit alþingis- og bæjarstjórnar-
kosninga frá 1942, ásamt hlut-
fallatölum um kjörfylgi flokka
og atkvæðatölum, eins og þær
voru lesnar í útvarp við talningu
úr síðustu bæjarstjórnarkosning-
Yfirburðir Sjálfstæðis-
Hafnarfirði
manna ■
H AFN ARFIRÐI — Málefna-
yfirburðir Sjálfstæðismanna í
útvarpsumræðunum í gær-
kvöldi um bæjarmálin voru
miklir. Deildu þeir að vonum
mjög hart á hina óheyrilegu
óstjórn kommúnista og Al-
þýðuflokksmanna á liðnu kjör
timabili, og flettu rækilega of-
an af því f jársukki og óreiðu,
sem ríkjandi er hjá bæjar-
sjóði og bæjarfyrirtækjum. —
Lögðu þeir mikla áherzlu á,
að höfðnauðsyn væri að koma
þessum stofnunum á fjárhags
lega sjálfstæðan grundvöll. —
Lögðu fulltrúar D-listans
áherzlu á nauðsyn þróttmik-
‘ illar forystu Sjálfstæðismanna
svo að hér í Hafnarfirði mættí
Kjorgogn i
sendiráðunum
FRÁ utanríkisráðuneytinu barst
blaðinu eftirfarandi yfirlýsing í
gær:
„í tilefni af grein í blaðinu
Frjálsri þjóð 23. janúar 1958 í
sambandi við atkvæðagreiðslu
hjá sendiráðum og ræðismönn-
um erlendis tekur utanríkisráðu-
neytið þetta fram:
Strax og kjörgögn vegna kosn-
inga erlendis höfðu borist utan-
ríkisráðuneytinu voru þau send
öllum sendiráðum fslands er-
lendis, ásamt bréfi, þar sem
meðal annars var skýrt frá þvi,
að framboðslistar hefðu enn ekki
verið auglýstir. Var jafnframt í
sama bréfi tekið fram, að sendi-
ráðunum yrði tilkynnt nánar um
listabókstafi flokkanna, er þeir
hefðu verið auglýstir. Var það
og gert, og sérstaklega bent á,
að listabókstafur Þjóðvarnar-
flokksins væri F en ekki E, eins
og gert hafði verið ráð fyrir i
bréfi ráðuneytisins að hann yrði.
Nú liggja fyrir upplýsingar frá
sendiráðunum, að 9 menn hafi
kosið í sendiráðum og ræðis-
mannsskrifstofum erlendis, áður
en tilkynning um auglýsta lista-
bókstafi lá fyrir. Öllum þessum
mönnum var gefinn kostur á að
kjósa aftur eftir að endanlegar
upplýsingar bárust um listabók-
stafina. Aðeins einn þeirra (sem
kosið hafði í París) óskaði að
kjósa á ný.
Af ofanrituðu er Ijóst, að um-
ræddur misskilningur var leið-
réttur í tæka tíð og kemux hann
því ekki að sök“.
verða blómlegt athafnalíf og
framkvæmdir gætu hafizt á
hinum ýmsu sviðum, sem van
rækt hafa verið.
Hafnfirðingar kunna vel að
meta hinar málefnalegu ræð-
ur þeirra fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, sem töluöu í út-
varpsumræðunum í gær-
kvöldi, og munu vissulega
tryggja bænum sterka meiri-
hlutastjórn Sjálfstæðismanna
næsta kjörtímabil. — G. E.
um. Þá er í bókinni kaflar úr
grein Gunnars Thoroddsen um
sjálfræði bæjar- og sveitarfélaga,
sem er mjög fróðleg. Bókin er
að vanda í hinu handhæga þver-
broti og fæst í flestum bóka- og
blaðsölustöðum.
Frú
ijáröflunarnelnd
ALMENN fjársöfnun í kosn-
ingasjóðinn stendur nú yfir.
Öll framlög, stór og smá, eru
þegin með þökkum, og er
fólk vinsamlegast beðið að
koma þeim í skrifstofuna í
Sjálfstæðishúsinu við Austur-
völl. Einnig má hringja í
síma 17100 og verða framlög-
in þá sótt.
I»eir, sem fengið hafa áskor
un um að taka þátt í „25
króna veltunni“ eru vinsam-
legast beðnir að greiða fram-
lag sitt nú þegar.
Þeir, sem hafa merki flokks
ins til sölu, þurfa að gera skil
strax.
ÞorsSeinn þorskabílur kom ti!
Sfykkishóims í fyrrinótf
STYKKISHÓLMI, 23. jan. —
Eins og áður hefir verið getið um
í fréttum, hafa Stykkishólms-
hreppur og fiskvinnslustöðvarn-
ar í Stykkishólmi stofnað togara-
útgerðarfélag, sem er hlutafélag
og heitir Þórólfur Mostrarskegg,
og fest kaup á togaranum Jörundi
frá Akureyri, sem heitir nú Þorst
einn þorskabítur, og verður
heimilisfang hans í Stykkishólmi.
Oddviti ávarpaði mannfjöldann
Gengið var endanlega frá kaup
samningunum 20. þ. m., og kom
togarinn hingað til Stykkishólms
í nótt kl. 2. Þó að kalt væri í
veðri, hafði nokkur mannfjöldi
safnazt saman á bryggjunni við
komu skipsins, og ávarpaði odd-
viti mannfjöldann.
í dag bauð svo hreppsnefnd
Stykkishólms áhöfn togarans og
stjórn útgerðarfélagsins til há-
degisverðar á hóteli Siguvðar
Skúlasonar. Sveitarstjórinn Ol-
afur Guðmundsson stýrði hófinu,
og bauð hann gesti velkomna.
★ ★ ★
Ræður við þetta tækifæri fluttu
Jóhann Rafnsson, formaður
stjórnarinnar, Kristinn B. Gísla-
Afli tregur á
Sandgerðisbátitm
SANDGERÐI, 23. jan. — Fjórtán
bátar hafa róið frá Sandgerði á
hverjum degi undanfarið, en afli
hefur verið fremur tregur. Hef-
ur aflinn verið frá 3 upp í 7
lestir. —Axel.
son, oddviti, alþingismennirnir
Sigurður Ágústsson og Pétur Pét
ursson og kaupfélagsstjórinn
Kristján Hallsson.
Áhöfnin að mestu sú sama
Skipstjórinn á togaranum Ein-
ar Sigurjónsson þakkaði fyrir
hönd skipshafnarinnar. Einar
verður skipstjóri áfram á skipinu
og flytzt nú búferlum til Stykkis-
hólms. Áhöfnin verður að mestu
sú sama og á Jörundi, en nokkrir
Stykkishólmsbúar verða þó á
skipinu, sem heldur á veiðar í
kvöld og mun í fyrstu veiðiför-
inni fiska fyrir innanlandsmark-
að.
— Fréttaritari.
Hjólpoibeiðni
FYRIR fáum árum brauzt ungur
maður héðan úr bænum í það að
ná sér í jörð vestur á landi.
Þangað fór hann með unnustu
sinni og þau tóku til óspilltra
málanna að búa sér þarna fram-
tíð.
En erfiðleikarnir urðu meiri
en þau e. t. v. hafa gjört sér í
hugarlund, ekki sízt vegna þess
að hann var ekki fyllilega heilsu-
hraustur.
Börnin urðu fimm, og það 6.
nú í vændum, á aldrinum 1—9
ára.
Smátt og smátt urðu erfiðleik-
arnir honum ofurefli. Næstum
hver dagur varð heilsu hans ofur
efli og síðastliðið sumar gat
hann ekki staðið uppréttur við
sláttinn, en stóð þar samt.
I haust seldi hann jörðina,
keypti af vanefnum litla íbúð í
þorpi og þau fluttust þangað öll,
en eftir stóð allhá greiðsla til
þess að íbúðin gæti orðið þeirra
virkilega eign.
En enn harðnaði á. í nóvember
var hann fluttur fárveikur hing-
að suður í sjúkrahús og andaðist
hér í desember, aðeins þrjátíu
ára gamall.
Hún fór ein til baka vestur
til barnanna, í íbúðina, sem enn
vantar allmikið á að þau ættu.
Svona standa málin fyrir þess-
ari ungu konu. Allt í óvissu, sér-
staklega vegna þess sem er ó-
goldið af kaupverði íbúðarinnar.
Ég hef verið beðinn að vekja
athygli á þessu, ef einhverjir
góðir menn og konur vildu rétta
hér fram hjálpandi hendur. —
Það gæti haft mikla þýðingu fyr-
ir framtíð þessarar konu og barn-
anna hennar.
Morgunblaðið hefur góðfúslega
lofað að taka við þeim gjöfum
til þeirra, sem kynnu að berast.
«*rðar Svavarsson.
Mesti landskjálfti
aldariimar f
í Mongólíu
MOSKVU, 23. jan. — EinhverJ-
ir mestu landskjálftar þessarar
aldar áttu sér staS við Altal-fjöll
in í Mongólíu 4. des. s. 1., sam-
kvæmt fréttum Moskvu-blaðs-
ins „Izvestia" í dag. Landskjálft-
inn bylti stórum f jölium og mynd
aði nýja árfarvegi, sem voru allt
upp í 15 km langir. Ekki er
getið um tjónið, en það mun hafa
verið talsvert, bæði á mönnum
og eignum.
Brezki landskjálftafræðingur-
inn Evelyn Pollard segir, að
ýmislegt bendi tii þess, að þessi
landskjálfti hafi verið kröftugri
en landskjálftinn í San Francisco
1906 og í Assam 1949.
Bændur vilja brua Horna
fjarðarfljót ffyrir 1960
HÖFN í HORNAFIRÐI, 22. jan.
— Fulltrúafundur bænda í Aust-
ur-Skaftafellssýslu var haldinn
að Hrollaugsstöðum í Suðursveit
dagana 18.—19. jan. Hafði fund-
urinn mörg mál til meðferðar,
einkanlega þó innanhéraðsmál og
í því sambandi sérstaklega sam-
göngumál.
Á bændafundinum kom fram
mikill áhugi fyrir því að Horna-
fjarðarfljót yrði brúað, en með
brú á þau myndi héraðið að miklu
leyti tengjast saman, einkanlega
sá hluti þess, sem er í verzlun-
arsambandi við Höfn. Lagði fund
urinn áherzlu á að verkið gæti
hafizt á þessu ári og yrði í sein-
asta lagi lokið 1960.
Þá bar á góma áætlun strand-
ferðaskipsins „Herðubreiðar“.
Taldi funduriwn nauðsyn bera
til að fá áætlun skipsins þannig
breytt að skipið hafi viðkomu á
þvínær öllum Austfjarðahöfnum,
en á þeim hefur Höfn mikilla
hagsmuna að gæta, þar eð nær
öll sala mjólkurafurða er til
bæja á Austfjörðum.
Séra Sváfnir Sveinbjörnsson
prófastur á Kálfafellsstað flutti
erindi á fundinum er hann
nefndi: fslenzk bændamenning í
fortíð, nútíð og framtíð.
—Gunnar.