Morgunblaðið - 24.01.1958, Síða 10

Morgunblaðið - 24.01.1958, Síða 10
 10 MORninVBT, AÐIÐ Fostudagur 24. jan. 1958 ► JMttpœM&MI) Utg.: H.í. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfus Jónsson. Aðairitstjorar: Valtýr Stetánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. UTAN UR HEIMI Olían veldur tortryggni milli þjóða Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Ola, simi 33045 Auglýsmgar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðaistræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftarg-iatri kr. 30.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 1.50 emtakið. BARÁTTAN STENDUR UM ÞAÐ „GLUNDROÐASTJÓRN „vinstri flokkanna" dæmir sig sjálf, hún hefur setið nógu lengi í stjórn- arráðinu til þess að sýna þjóð- inni hvað hún getur, hvað hún gerir og hvað hún mun gera. Ég kýs D-listann til þess að forða Reykjavík frá slíkri stjórn“. Þannig komst Gunnar Stein- þórsson sjómaður m.a. að orði hér í blaðinu í gær, í svari sínu við spurningunni um það, hvers vegna hann kysi Sjálfstæðisflokk inn í bæjarstjórnarkosningunum á sunnudaginni. Óhætt er að full- yrða að í þessu svari hins reyk- víska sjómanns komi einkar vel fram afstaða mikils meirihluta fólksins í Reykjavíkurbæ til bæjarstjórnarkosninganna. Al- menningur hefur átt þess kost að kynnast starfi og stefnu vinstri stjórnar á íslandi sl. eitt og hálft ár. Spor þessarar stjórnar hræða. Valdatímabil hennar hefur fyrst og fremst mótazt af tvennu: Ein- stæðum svikum við gefin loforð og glundroða og úrræðaleysi. Almenningrur í Reykjavík vill, eins og sjómaðurinn sagði, „forða Reykjavík frá . slikri stjórn“. Stjórnmálaflokkau-nir og konurnar. í hinni ágætu ræðu sinni í út- varpsumræðunum í fyrrakvöld komst frú Auður Auðuns, forseti bæjarstjórnar Reykjavíkur, m.a. að orði á þessa leið: „Nú eru eftir tvo daga liðin 50 ár síðan konur voru í fyrsta sinn kosnar í bæjarstjórn Reykjavík- ur. Þessa afmælis, þessa áfanga i baráttu íslenzkra kvenna fyrir pólitískum réttindum sínum minn ast andstæðingar okkar Sjálf- stæðismanna á þann hátt, að eng inn þeirra hefur konu í því sæti á lista sinum að nokkur von sé til að hún nái kosningu. Komm- únistar, sem hafa þó mest stát- að af því að hampa kvenfólkinu hafa ýtt konunni úr þriðja og niður í sjötta sæti á sínum lista. En reykvískum konum gefst tæki færi til að þakka þessum flokk- um hugulsemina á viðeigandi hátt í kjörklefanum á sunnudag- inn kernur", sagði frú Auður Auðuns að lokum. Það er vissulega eftirtektar- vert, að enginn hinna svokölluðu vinstri flokka skuli hafa konu í þeim sætum lista sinna, sem hefur minnstu vonir um að nái kosningu. Kemur það óneitanlega illa heima við raup þessara flokka af hollustu sinni við jafn- rétti karla og kvenna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt skilning sinn í þessum efn- um með þvi að gera vel mennt- aða og greinda konu að forseta bæjarstjórnar Reykjavíkur. Hef- ur frú Auður Auðuns skipað þann sess með sæmd, auk þess sem hún hefur haft margþætta forystu um framkvæmdir í skólamálum, heilbrigðis- og barnaverndarmál- um bæjarbúa. Er það reykvískum konum áreiðanlega fagnaðarefni að eiga kost á því að endurkjósa þessa merku og frjálslyndu konu i bæjarstjórn sína. Þá má á það benda að á Flat- eyri skipar dugandi og vei gefin kona efsta sætið á framboðslista Sjálfstæðismanna. Er það frú Guðrún Guðmundsdóttir, sem nýt ur trausts og vinsælda í byggðar- lagi sínu. Gögnin lögð á borðið. í hinni löngu og hörðu kosn- ingabaráttu, sem háð hefur verið undanfarnar vikur hér í Reykja- vík hafa Sjálfstæðismenn lagt gögnin á borðið fyrir kjósendur höfuðborgarinnar. Þeir hafa skýrt frá framkvæmdum þeim, sem unnar hafa verið og frá ástandi og horfum i hinum einstöku þátt- um bæjarmálanna. Jafnframt hef ur stefnan verið mörkuð gagn- vart framtíðinni. Almenningur í Reykjavík hef- ur því glöggar og góðar upplýs- ingar um það, hvernig Sjálfstæð- ismenn hafa stjórnað bæjarfélag- inu og hvernig þeir muni snúast við málunum í framtíðinni. Og fólkið finnur og veit, að hve. gi hefur verið unnið jafn markvíst að raunhæfum umbótum og ein- mitt undir stjórn Sjálfstæðis- manna í Reykjavík. En enginn veit, hvað við tæki ef Sjálfstæð- ismenn misstu hér meirihluta. Að eins eitt er víst: Kommúnistar yrðu þá forystuflokkur bæjar- stjórnarinnar og að því væri þjcð arsmán. Það er einnig víst, að sú forysta þýddi glundroða og upplausn í stjórn bæjarmálefn- anna. í ríkisstjórn standa hinir svokölluðu vinstri flokkar uppi ráðvilltir og sundraðir. Þeir eiga engin sjálfstæð úrræði í vanda- málum þjóðfélagsins. Þeir geta ekki komið sér saman um neitt, nema að sitja í ráðherrastólunum og vinna pólitísk hermdarverk gegn andstæðingum sínum. „Ég kýs D-listann til að forða Reykjavík frá slíkri stjórn“, sagði hinn reykvíski sjómaður. Undir þau orð taka allir hugsandi og ábyrgðir Reykvíkingar á sunnudaginn kemur. Baráttan stendur um það í lok síðustu ræðunnar, sem haldin var í útvarpsumræðunum um bæjarmál höfuðborgarinnar komst Gunnar Thoroddsen borg- arstjóri að' orði á þessa leið: „Baráttan stendur nú um þ. ð, hvort Sjálfstæðismenn eiga á- fram að fara með stjórn bæjar- mála og vinna áfram sem hing- að til að auknu atvinnulífi, vax- andi velmegun og lífsþægindum eða hvort nú á að steypa bæjarfé- laginu okkar út í óreiðu og á- byrgðarlausan leik með fjöregg bæjarins. Hvaða flokki sem þið Reykvíkingar áður hafið fylgt, þá verðið þið að skoða hug ykkar aftur nú. Hvaða lýðræðissinni vill vera valdur að þeirri þjóð- arsmán að gera kommúnista, samherja hinna blóði drifnu böðla Ungverj alands að forystu- flokki í höfuðborg íslands? Við skorum á ykkur Reyk- víkinga, að kynna ykkur sem bezt þær framkvæmdir og framfarir, sem gert hafa Reykjavík að eftirsóttasta verustað á íslandi. Tryggið ykk’ur, Reykvíkingar, trausta fjárstjórn, frjálslynda fram- kvæmdastefnu og þróttmiklar athafnir með því að veita Sjálfstæðismönnum öruggan meirihluta í bæjarstjórn Reykjavíkur". ÞAÐ er undarlegt við olíuna, þennan orkugjafa nútíma véla- þjóðfélags, að hún finnst yfir- leitt ekki þar í jörðu, sem mest þörf er íyrir hana. f þeim löndum, sem nota mestu olíuna, svo sem Evrópulönduni er sama og engin olía. Það er að- eins í Þýzkalandi og á Ítalíu, sem nýtilegar olíulindir hafa fundizt, en þær fullnægjæ ekki nema ör- litlu broti af olíuþörf þessara þjóða. Lítil olia hefur fundizt í Indlandi og í Ástralíu og Nýja Sjálandi er engin olía og ekki heldur í Japan. ar og afkastamiklar olíuleiðslur. ★ Með hverju ári sem líður eykst olíuvinnslan og olían fær sí- aukna þýðingu í atvinnu og efna hagslífi þjóðanna. Hér skulum við líta á svolitla töflu um heild- arvinnslu olíu í heimiixum. 1888 4 millj. smá). 1900 20 — 1918 69 — — 1938 281 — 1950 518 — — 1955 770 — — 1956 834 — — Aukning olíuvinnslunnar mun megin fjárins hafa farið til að bæta lífskjör þjóðanna, sem olíulöndin byggja, mennta þær og færa þeim í hendur fljótvirk og fullkomin tæki. Þessi ríki eru nú orðin svo vön því að styðjast við olíugróðann, að ef hann stöðv aðist skyndilega af einhverjum ófyrirsjáanlegum atvikum, myndi verða hjá þeim algert efnahags- legt hrun. Tortryggni í viðskiptum Neyzluþjóðirnar lifa einnig í stöðugum ótta um að skorið verði á æðar olíuflu.tninganna til þeirra. Er þess skemmst að minnast, hve mikinn ótta þjóðnýting Egypta á Súez-skurðinum vakti meðal Ev rópubúa, ótta sem leiddi jafnvel Breta og Frakka út í hernaðar- árásina á Egypta. í rauninni er það engin furða, þótt menn séu hræddir við þetta, því að ef hin- ir vélvæddú atvinnuvegir Evrópu fá ekki sína olíu og benzín hryn- ur atvinnulífið saman. Hinum löngu flutningaleiðum olíunnar fylgir jafnvægisleysi og öryggisleysi. Og það er óheppi- legt, að í viðskipti vinnsluþjóð- anna og neyzluþjóðanna hefur blandazt stöðug tortryggni. Má vera að ein helzta orsök þess sé hin skefjalausa samkeppni olíu- félaganna, sem beita öllum ráð- um í samkeppnisbaráttunni. Það væri mikilvægt, ef þjóðir ná- lægra Austurlanda og Evrópu- þjóðirnar skildu að báðum er nauðsynlegt að halda uppi þess- um viðskiptum og að milli þeirra ríki meiri eining. Rússar hafa einnig spilað á strengi tortryggninnar en þeir ágirnast völd yfir hinum smáu Arabaríkjum. Ekki er það þó af því að þeir þurfi ásælast olíuna frá þeim því að olíuvinnsla í Sovétríkjunum mun nægja þeim. Arabaríkin myndu ekki fá maik- að í Rússlandi fyrir sína olíu, þótt þau slitu samskiptum við Evrópu. Erópumenn una á ýmsan hátt illa við þetta ástand. Hafa þeir nú síðu«tu ár haldið uppi stöðugri leit að olíu, á landssvæðum sem nær þeim eru. Þar koma fyrst til greina olíulindirnar í Sahara- eyðimörkinni. ÁLASUNDI 22. jan. — Síldveiði- flotinn er nú allur kominn út. í dag varð mikillar síldar vart, en þegar síðast fréttist hafði enginn kastað. Hins vegar er líklegt tal- ið, að fyrstu síldarinnar megi vænta að landi með morgninum, því að mesta síldarmagnið hefur mælzt skammt undan landi, að- eins 20 mílur — og þar er megin- hluti flotans. Stærstu torfurnar standa þó enn djúpt, en grynna stöðugt á sér. Borað' cftir oiiu. Stærstu olíulindir heimsins hafa hins vegar fundizt í lítt þroskuðum fátækum ríkjum, jafn vel eyðimerkurlöndum, sem lítið hafa við hana að gera. Að þessu leyti hefur meðferð og hagsaga olíunnar, orðið mjög frábrugðin því sem er um kolin, sem voru og eru enn þýðingarmik ill orkugjafi. Sagnfræðingar, er skrifa um 19 .aldar sögu Evrópu og Ameríku segja gjarnan, að frumorsök hinn ar miklu iðnbyltingar í Evrópu og síðar í Pennsylvaniu hafi ver- ið. að kol fundust þar í jörðu. Kolin urðu undirstaða hins mikla stáliðnaðar og þar með upphaf vélaaldar. Það var ekki nema eðli legt að nýi tíminn hæfi fyrst innreið sína þar sem mest var um kol. svo stórfelld, að þar má heita að séu eintómar stökkbreytingar. Sú aukning heldur enn áfram, sem sjá má af þvi, að árleg aukn- ing mun nú vera um 70 rn’llj. smálestir. Olían hefur efnahagslega þýð- ingu bæði fyrir vinnslulandið, sem að jafnaði hlýtur um helm- ing af ágóða olíufélagsins, og fyr- ir neyzlulandið. Fyrir vinnslulandið hefur olían yfirleitt þá þýðingu að frum- stæðar þjóðir hafa allt í einu þotið inn í 20. öldina. Olíugróð- inn hefur verið geysilegur í lönd- um eins og Persxu, írak, Arabíu og Venezuela. Því ber ekki ieng- ur að neita að þessu fé hefur verið misjafrxlega varið, en þó Evrópuþjóðix-nar nýttu sjálfar sín eigin kol og lögðu með því gx’undvöll að stórveldatímabili sínu. En þjóðirnar sem búa í ríkustu olíulöndunum hafa hins vegar ekki getað fært sér þau auðæfi í nyt. Þvert á móti voru það einmitt evrópskir ferðalang- ar sem fundu olíulindirnar í Persíu, írak og Arabíu eða t.d. í Venezuela. Þjóðirnar sem þarna búa höfðu hvorki tæknilega þekkingu né fjárhagslegt bol- magn til að nýta þessar auðlinair sínar. Þar komu hin vestrænu milljónafélög til sögunnar. Síðan hefur það ætíð verið ein kenni olíunnar, þvert á móti því sem tíðkaðist um kolin, að megin hluti hennar hefur verið fluttur langar leiðir, svo skiptir þús- undum kílómetra frá vinnslustað til neyzluþjóðar. Þessir flutningar eru mjög áberandi. Við sjáum þúsundir olíuflutningaskipa á öllum heimsins höfum, olíubirgða stöðvar í öllum höfnum og breið- Kjósendahandbókin KJÓSENDAHANDBÓKIN við bæjar- og sveitarstjórnarkosningar 26. janúar 1958 er komin út. í bókinni eru listabókstafir og nöfn frambjóðenda, ásamt mjög fullkomnum tölfræðilegum upplýsing- um úr undanförnum bæjar- og sveitarstjórnarkosningum. í bókinni eru hlutfallstölur til samanburðar og tölur, eins og þær bárust við talningu í siðustu kosningum. Bókin er í handhægu broti, þver- broti, og fæst í öllum bókabúðum bæjarins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.