Morgunblaðið - 24.01.1958, Side 13
Föstudagur 24. jan. 1958
MOKCUNBLAÐ1Ð
1S
X kcimj.xuai.uiui lijá isuiii Gudmundssyni. Ljósm. Ol. K. M.
100 málgölluð börn í barno-
skólum Rvíkur njóta talkennslu
Mikill meirihluti barnanna fær fulla
bót á einum vetri eöa skemmri tima
Benda má á, að þó þessi sér-
kennsla sé fyrst og fremst miðuð
við það, sem er afbrigðilegt eða
sjúklegt i málfari barnanna, þá
má nota sömu aðferðir eða líkar
til hvers konar þjálfunar á fram-
burði eða framsetningu fyrir
heilbrigð börn með heilbrigðar
raddir. Sannleikurinn er sá, að öll
börn hefðu mjög gott af því að
læra rétta öndun og raddbeitingu,
rétta myndun, lengd og áherzlu
hljóða og hljóðasambanda og
hæfilegan hraða, raddstyrk, radd
blæ og þagnir við tal og lestur
eða framsögn, segir Björn að
lokum.
★ ★ ★
Það var geysimikið framfara-
spor er talkennsla var tekin upp í
barnaskólunum. Ýmiss konar mál
gallar há börnum' og verða oft
til þess, að þau dragast aftur úr
til muna eða fá minnimáttar-
kennd og bíða þess ekki bætur
alla ævina. Talkennsla er því
tvímælalaust mjög mikilvægur
þáttur uppeldis og heilbrigðis-
I þjónustunnar í skólunum.
Guðrún Klahn — minnsng
OG nú skulum við lesa kafla í
sögunni um kóngulóna, segir
kennarinn. Drengurinn les ró-
lega og þó hiklaust með góðum
áherzlum og af þrótti. Kennar-
inn les fyrir, og drengurinn hefir
eftir hverja setningu. Síðan hefir
drengurinn yfir Vorið góða
grænt og hlýtt — og varla vottar
fyrir því, að hann eigi við tal-
örðugleika að etja.
★ ★ ★
Við erum stödd í kennslustund
hjá Birni Guðmundssyni, tal-
kennara. í kennslustofunni eru
m.a. myndir af öndunar- og tal-
færum, mikið af barnabókum og
segulbandstæki. Björn er að
kenna 11 ára gömlum dreng, sem
átt hefir mjög erfitt um lestur
og mál vegna þess, að hann stam
ar. Með hliðsjón af því, hvað þess
um dreng gekk illa að tala og
lesa, er hann byrjaði í talæfing-
um, verður árangurinn að teljast
mjög góður, segir Björn. Ofur-.
lítið örlar enn á örðugleikunum,
einkum er drengurinn talar frá
eigin brjósti..
Finnst þér erfitt að stunda æf-
ingarnar- spyr ég þennan jarp-
hærða myndarpilt. Hann kveður
nei við og segir. að það sé gaman
að finna, hvernig sér fari fram
með degi hverjum. Með auknutn
bata verði auðveldara að stunda
skólanámið.
★ ★ X
Þegar kennslustundin er á
enda, kveður drengurinn, en
Björn tekur fram segulband, sem
drengurinn hafði lesið inn á, áður
en hann byrjaði í talkennslunni.
Þar er rödd hans þróttlítil, og
stamið áberandi. Önnur upptaka
á segulband sýnir, að eftir 10—15
kennslustundir hefir drengnum
farið töluvert fram. Og nú er
hann í þann veginn að yfirstíga
stamið að fullu.
Nauðsynlegt að koma önduninni
í lag
Margs konar æfingum er beit.t
til að lækna stam, segir Björn.
Aðallega er um að ræða öndunar-
og afslöppunaræfingar, hátt-
bundnar raddæfingar, framburð
aræfingar og óundirbúna frarn-
sögn, þegar fram í sækir. Nauð-
synlegt er að koma önduninni í
lag, fá sjúklinginn til að anda
rétt, þ. e. beita þindinni við
öndunina, ekki brjóstkassanum.
Til þess að árangur náist er nauð
synlegt, að sjúklingurinn læri að
„slappa af“ og anda eðliiega.
Verður það bezt gert með því að
leggjast endilangur og slaka á
öllum vöðvum. Sjúklingurinn
getur þá sjálfur fylgzt með önd-
unarhreyfingunum.
★ ★ ★
Á þessum vetri munu m 100
börn í barnaskólum njóta tal-
kennslu — um 40 börn í Mið-
bæjar- og Austurbæjarskólan-
um, e'n um 60 í hinurn skólunum.
Nokkur börn hafa þegar fengið
fulla bót á þessum vetri. Tak-
markaður fjöldi barna nýtur
kennslu í senn. Nú eru innrituð
hjá mér 28 börn, en um 20 hjá
samkennara rnínum, Guðborgu
Þorsteinsdóttur, sem kennir við
Miðbæjar- og Austurbæjarskól-
ann. Á síðasta ári nutu um 100
börn kennslu í lengri eða
skemmri tíma eftir því, hversu
mikla málgalla var um að ræða,
segir Björn.
Stam er mjög algengt
Af talörðugleikum má í fyrsta
lagi nefna stamið, sem er mjög
algengt. Þau börn, sem stama,
eru oft verulega málhölt , jafn-
vel svo að þau eiga erfitt með
að fylgjast með í skólanum. í
öðru lagi nefmæli, opið og lokað.
Opið nefmæli stafar af hotgóm
eða lömun og slappleika í góm-
fillunni (lina gómnum), en lokað
nefmæli af þrengslum í nefgöng-
um eða ofvexti og bólgu í slím-
húð nefsins, bólgnum kokeitlum
eða ávana. Mjög algengt er kverk
mæli og rangur framburður á r-
hljóðinu, smámæli og hvers kon-
ar ágallar á framburði s-hljóðs-
ins. Þá er einnig um að ræða
margvíslega örðugleika við fram
burð annarra einstakra hljóða og
hljóða sambanda og hljóðvillu.
Talörðugleikar geta stafað af
veiklun eða skemmdum á radd-
böndunum og lömun í vöðvum
barkakýlisins. Röddin verður þá
mjög hás- og þróttlitil. Reyndar
geta orsakirnar fyrir veiklun og
skemmd raddarinnar verið marg-
víslegar. Eru ekki tök á að gera
grein fyrir þeim hér. f vetur
hefi ég fjallað um eitt mjög erfitt
tilfelli. Er það lítil telpa, sem
hefir um langt skeið verið hér um
bil raddlaus af hæsi, og því átt
mjög erfitt með lestur og nám.
Hún er nú á góðum batavegi.
Mismunandi aðferðum verður
að beita til að lækna hina ýmsu
málgalla. Þarf fyrst að greina
(dagnostisera) málgallann ná-
kvæmlega og haga aðgerðinni
eftir persónulegum vandkvæð-
um hvers einstaklings, segir
Björn.
Þáttur í margháttaðri
sérfræðilegri aðstoð
Talkennsla fyrir börn, sem eru
málhölt eða eiga við málgalla
að etja, er einn þáttur í marg-
háttaðri sérfræðilegri aðstoð,
sem nauðsynleg er fyrir þau börn
er á einn eða annan hátt þarfn-
ast sérhæfðari kennslu en allur
fjöldinn. Hefir slík sérkennsla
mjög rutt sér til rúms í nálæg-
um löndum á síðari tímum jafn-
hliða aukinni heilbrigðisþjón-
ustu. í þessu sambandi má nefna
sérkennslu fyrir treglæs og les-
blind, sjón- eða heyrnardauf,
vangefin eða á annan hátt fötluð
eða veikluð börn.
★ ★ ★
Talkennsla hófst í barnaskól-
unum 1953—54 að undangenginni
könnun á fjölda þeirra barna,
sem slíkrar sérkennslu þörfnuð-
ust. Öllum undirbúningi var lok-
ið í byrjun árs 1954, og nutu 22
börn kennslu það, sem eftir var
af þvi skólaári. Á öðrum vetri
kennslunnar var Guðborg Þor-
steinsdóttir ráðin, og hefir hún
haft fulla kennslu sl. tvö ár. Á
sl. ári höfðu alls 238 börn inn-
ritazt til kennslu, og liafa 178
börn fengið fulla eða svo til fulla
bót meina sinna á einum vetri
eða skemmri tíma. Hin 60 börnin
hafa orðið að vera fleiri en einn
vetur, og eru það þau, sem hafa
átt við mesta málgalla a# etja.
Ekkert barn hefir þurft að vera
l'rá upphafi kennslunnar og fram
til þessa, en þess eru dæmi, að
börn hafa notið talkennslu tvo
vetur og jafnvel lengur.
Kennslunni er þannig hagað,
að börnin eru hjá talkennaranum
í 15—20 mín. í senn. Leitazt er
er við að koma því svo fyrir, að
þau þurfi ekki að gera sér sér-
staka ferð í skólann vegna tal-
kennslunnar, þó hefir ekki alltaf
verið hægt að komast hjá því.
★ ★ ★
Með talkennslunni í barnaskól-
unum er stefnt að því, að náist
að laga framburð og málfar allra
þeirra barna, sem eitthvað er
verulega ábótavant í því efni.
Með aukinni og bættri almennri
framsagnarkennslu í skólunum
má stórum bæta og fegra fram-
burð móðurmálsins og útrýma
minni háttar göllum í tali og
lestri ,segir Björn.
Þess ber að minnast, að hinn
„hljómandi þáttur málsinsí* er
engu þýðingarminni í daglegu lífi
en stíll og stafsetning hins ritaða
máls
FRÚ Guðrún Klahn andaðist þ.
12. þ.m., og hefir nú maðurinn
með Ijáinn látið skammt stórra
högga í milli. Bróðir hennar var
kallaður héðan fyrir rúmu ári
síðan. Mikill dugnaðarmaður,
einnig á bezta aldursskeiði.
Guðrúnar er nú sárt saknað af
ástríkum eiginmanni, systkinum
og aldraðri móður. Þrátt fyrir
að við vitum vel að dauðinn fylg-
ir okkur frá upphafi lifsins, kem
ur hann okkur samt oft á óvart.
Hversu hugheilar óskir sém mað
ur ber í brjósti um að geta veitt
einhverja huggun þreyttum hjört
um, sem svo þungum harmi eru
slegin, þá segja því miður orðin
ekkert, og þær óskir verða eins
og viðurkenning á hinum mikla
vanmætti okkar litlu mannanna
Aðeins get ég nú áfríað til himn-
anna háu, í bæn til almættisins
um að senda hinni öldruðu syrgj
andi móður shi ijuj, ug oiyi k, til
að geta þrátt fyrir allt, litið bjart
fram á ævikvöldið, í samvistum
við ástrík börn sín sem enn
dvelja hjá ‘henni.
Guðrún Siðríður Guðmunds-
dóttir Klahn var fædd að Nesj-
um á Miðnesi þann 12. des. 1910.
Foreldrar hennar voru þau hjón-
in Þórunn Símonardóttir og Guð
mundur Guðmundsson útvegs-
bóndi d. 1941. Þar ólst Guðrún
upp í systkinahópi, en þau voru
5 þrjár systur og tveir bræður
Laust eftir fermingu fluttist
Guðrún til Reykjavíkur, og
dvaldi hér síðan. Hún gekk að
eiga Albert Klahn hljómsveit.ar-
stjóra þ. 13. apríl 1946. Hún bjó
manni sínum svo yndislegt heim-
ili sem hugsazt gat, enda var hon
um enginn blettur eins sólríkur
og heimili þeirra. Guðrún var
líka í orðsins bezta skilningi svo
mikil og góð húsmoðir að ég
hef vart þekkt aðra eins. Fyrir
utan gleðhlýju og yndisþokka
lék allt í höndum hennar, hvort
heldur sem það voru húsmóður-
störfin eða hannyrðir þá var það
allt með snilldarbrag.
Vinur minn Klahn hefir nú
misst mikið, já, svo mikið að
mér finnst að hann hafi misst allt
— en þótt skarð sé nú fyrir
skildi á heimili þerra, þá syrgja
þau ættingjarnir og eiginmaður-
inn ekki einsömul, nei Guðrún
mín, við öll söknum þína sáran,
allur vinahópurinn þinn, vlS
þökkum þér öll innilega fytir
samveruna, fyrir þitt ljúfa og
glaða viðmót sem ávallt brosti
á móti okkur á þínu fagra og
bjarta heimili, þar var sannar-
lega hlýtt og gott að vera Það
eru okkur öllum ógleymanlegar
yndisstundir, og sérstaklega ber
mér að þakka þér þína fölskva-
lausu vináttu við mig og mitt
heimili.
Kæra vina Guðrún Klahn! „Nú
vel í herrans nafni, fyrst nauð-
syn ber til slík“, að við verðum
nú að kveðjast um örstutta stund,
þá vil ég óska þér góðrar ferðar
til hinna miklu huliðsheima, þang
að sem ég vissi að þú hugsaðir
svo oft, og þú sem unnir svo
mjög fagurri tónlist. Ég veií að
á þessari leið fylgja þér mikil
fegurð og birta, því líf þitt hér
var allt bjart og fullt af hrein-
leika. Nú bíður þín birta geisl-
andi sólna eilífðarlandsins þar
sem kórar og hljómsveitir milljón
anna syngja lof og dýrð almætt-
inu um eilífar aldir. Þar veit ég
að þér líður vel. —
Þórh. Árnason.
★
FRÚ Guðrún Klahn er látin. Það
fer ekki hjá því að þar sakna
margir vinar í stað. Guðrún var
þannig að frá henni stafaði góð-
vild til alls og allra. Heimili
hennar og manns hennar var ailt
af ástúðlegt. Þar leið manni vel
og margar ánægjulegar minning-
ar eru við það tengdar. Vinátta
þeirra hjóna er og var mér ómet-
anleg, og munu fleiri geta sagt
hið sama.
Albert Klahn hefir mikið misst.
Það vita þeir bezt, er til þekkja.
Ég sendi honum mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Guð blessi
minningu hans ágætu konu. —
Á. H.
Kefk-
4 vík
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjáll-
stæðismanna á Suðurnesjum er
í Sjálfstæðishúsinu í Keflavík og
er hún opin dagiega frá kl. 10 til
10. — Sími 21.
Sjálfstæðismenn á Suðurnesj-
um er hvattir iil að hafa sam
band við skrifstofuna og gefa
henni upplýsingar varðandi kosn
ingarnar.
Styrkur
Menntamálaráðs
1. Styrkur til visinda- og
fræðimanna
Umsóknir um styrk til vísinda
og fræðimanna (sbr. fjárlög 1958,
15. gr. A XXXVII) skulu vera
j komnar til skrifstofu Mennta-
málaráðs, Hverfisgötu 21, fyrir 1.
marz nk. Umsóknareyðublöð fást
í skrifstofu ráðsins.
Umsóknir um styrk, sem
Menntamólaráð veitir til náttúru
fræðirannsókna á árinu 1958
skulu vera komnar til ráðsins fyr
ir 1. marz nk. Umsóknum fylgi
skýrslur um rannsóknarstörf um
sækjenda síðastliðið ár. Þess skal
og getið, hvaða rannsóknarstörí
þeir ætla að stunda á þessu ári.
Skýrslur eiga að vera í því
formi, að hægt sé að prenta þær.
Umsóknareyðublöð fást í skrií-
stofu Menntamálaráðs.