Morgunblaðið - 07.03.1958, Page 2
2
MORcrnvnr 4ðið
Fostudaerur 7. marz 1958 v.
Almenna
25
bókafélagið
kr. verblaun
þús.
íslenzk verk
Fyrsta mánaðarbók íé-
lagsins er skáldsaga
eftir Jón Dan
veitir
fyrir
í NÝÚTKOMNU hefti Félags-
bréfs tilkynnir Almenna
bókafélagið, að það hafi
ákveðið að efna til bókmennra
verðlauna, að upphæð krónur
25.000,00, sem veita megi einu
sinni á ári fyrir frumsamið ís-
lenzkt verk, sem út komi á ár-
inu. Segir svo orðrétt í til-
kynningunni:
„Heimilt er að hækka upp-
hæðina allt að kr. 50.000,00, ef
um afburðaverk er að ræða.
Verðlauna má hverja þá
bók, sem félagið gefur út eða
því er send til samkeppni um
verðlaunin, enda sé félaginu
þá jafnframt gefinn kostur á
að kaupa hluta upplagsins cg
bjóða félagsmönnum í Al-
menna bókaféiaginu eintak af
bókiimi.
Verðlaunin eru óháð rit-
launum fyrir birtingu verks-
ins.
Við veitingu verðlaunanr.a
skulu ungir höfundar sitja
fyrir að öðru jöfnu, þ. e. þeir,
sem yngri eru en 35 ára eða
senda frá sér fyrstu bók sína.
Ákvörðun um veitineu
verðlaunanna tekur bók-
menntaráð Almenna bókafé-
lagsins.“
Þess má geta, að í bókmennta-
ráðinu eiga nú sæti þeir Gunnar
Gunnarsson, Birgir Kjaran, Davíð
Stefánsson, Guðmundur Gíslason
Hagalín, Jóhannes Nordal, Krist-
ján Albertsson, Kristmann Guð-
mundsson, Tómas Guðmundsson
og Þorkell Jóhannesson.
Bókmenntaverðlaun sem þessi
eru alger nýjung á íslandi, en
tíðkast mjög víða erlendis. Er
reynsla fyrir því, þar sem siík
verðlaun eru veitt, að þau orka
mjög örvandi á alla bókmennta-
Frá kvikmynda-
klúbbum Æsku-
íýðsráðs
f VETUR hafa starfað þrír kvik-
myndaklúbbar á vegum Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur, og eru í
þeim um 800 börn og unglingar.
Klúbbarnir hafa starfað á þremur
stöðum, í Háagerðisskóla á laug-
ardögum kl. 4 og 5:30, í sýningar-
sal Austurbæjarskólans á sunnu-
dögum kl. 4 og 5:30 og í Trípólí-
bíói á sunnudögum kl. 3. Sýndar
eru ýmsar fræðslu- ög skemmti-
myndir við hæfi barna og ung-
linga.
Sýningar þriðja tímabilsins
hefjast nú um helgina. Félagsmið
ar verða seldir sem hér segir: X
Háagerðisskóla í dag kl. 5—7,
fyrir klúbbinn í Austurbæar
skólanum að I.indargötu 50 kl.
5—7 í dag og í Hrípólíbíói á
sunnudag kl. 1—3. Miðarnir gilda
á fimm sýningar, og munu sýn-
ingar verða á venjulegum tíma
á þessum þremur stöðum.
starfsemi, hvetja skáld og rithöf-
unda til dáða. Er eigi ástæða til
annars en ætla, að svo verði
einnig hér á landi.
Fyrsta mánaðarbók Bókafé-
lagsins er skáldsaga eftir
Jón Dan
í desember sl. tilkynnti Al-
menna bókafélagið, að það hefði
í hyggju að hverfa frá fyrri ú".-
gáfuháttum, en þeir voru þannig,
eins og hjá öðrum íslenzkum út-
gáfufélögum, að félagsmenn
fengu ákveðnar bækur árlega
fyrir tilskilið félagsgjald. í stað
þess hygðist félagið gefa út eina
bók mánaðarlega, a. m. k. 10
bækur á ári, og yrðu það allt
valbækur. Þyrftu félagsmenn
ekki að taka nema 4 þeirra bóka
á ári til þess að halda fullum
félagsréttindum.
Þetta nýja fyrirkomulag kem-
ur til framkvæmda í apríl nk. og
sendir félagið út fyrstu mánaðar-
bók sína í byrjun mánaðarins.
Jafnframt tilkynnir félagið,
hverjar tvær fyrstu mánaðar-
bækurnar séu, aprílbókin og
maíbókin. Er aprílbókin ný
skáldsaga eftir Jón Dan, Sjáv-
arföll, um 150 bls. saga um
ungan mann og baráttu hans
við örlög sín. Er mönnum án
efa mikil forvitni á að kynn-
ast þessari sögu. Jón Dan er
í fremstu röð yngri smásagna-
höfunda, en þetta er lengsta
sagan, sem frá honum hefur
komið.
Maíbókin heitir Gráklæddi
maðurinn eftir ameríska rithof-
undin Sloan Wilson. Þýðinguna
gerði Páll Skúlason ritstjóri. Seg-
ir í tilkynningunni um þá bók,
að hún fjalli um ungan heimihs-
föður og str.j ins og fjölskyldu
hans fyrir brettum kjörum.
„Bókin er bæði gamansöm og
spennandi og þarna er iýst ung-
um hjónum eftir striðið og lifs-
baráttu þeirra betur en í nokk-
urri annarri bók, sem við höfum
kynnzt.“
Nýútkomið hefti Félagsbréfs er
þannig útbúið, að á aftari kápu-
síðu þess eru prentuð 2 spjöld,
Af hverju er viðskipta-
ráðherrann ekki svndur?
ÞAÐ vekur alveg sérstaka at-
hy&l*, að viðskiptamálaráðherr-
ann, Lúðvík Jósefsson, skuli ekki
vera hér á landi, þegar svo stend-
ur á, að sjálfur framkvæmda-
stjóri Efnahagsmálastofnunar
Evrópu kemur hingað til íslands
og heldur hér fyrirlestur og ræðir
við íslenzka valdamenn.
Það vekur einnig athygli, að
einmitt í fjarveru viðskiptamála-
Hélt áfram að
bvo slösuð
AKRANESI, 6. marz. — Hér
liggur í sjúkrahúsinu í slæmu
lærbroti frú Margrét Ólafsdóttir,
Skagabraut 15, hér í bænum. —
Hún var fyrir nokkru við þvotta
í þvottahúsi sínu, sem er kipp-
korn frá húsi hennar. Hún þuríti
sem snöggvast út, en þar var gler
hálka og skall frú Margrét á hálk
unni. Hún er orðin roskin kona.
Margréti tókst að standa hjálpar-
laust á fætur og gekk aftur að
þvotti sínum, en eftir að hafa
staðið nokkra stund við þvotta-
pottinn fann hún til þrauta í
mjöðm. Hætti hún þá að þvo og
var flutt beint í sjúkrahús. Þar
kom í ljós að lærleggurinn var
brotinn upp við mjaðmarskálina.
Er þetta slæmt brot, en frú Mar-
gréti líður eftir vonum. — O.
0. J. Malmberg
ara
ATTRÆÐUR' er í dag O. J.
Malmberg, sem uim margra ára
skeið var forstjóri Hamars hf. —
eða á árunum 1918—31. Fyrst
kom Malmberg hingað til lands
1914 og var þá forstöðumaður
Hafnarsmiðjunnar, sem vai>n
mikið verk við byggingu Reykja-
vikurhafnar. Síðan tók hann við
forstjórastarfi Hamars hf. — og
var unnið margt stórvirkið hér
undir hans stjórn á þeim árurn.
Má t. d. nefna kolakranan og
olíustöð Shell. Nú er Malmberg
til heimilis að Danhaven 12 í
Kaupmannahöfn, Valby.
ráðherrans skuli bankastjóri
Seðlabankans Vilhjálmur Þór
halda ræðii þá, sem hann hélt
um daginn um efnahagsmálin. Þá
er einnig vitað að viðskiptaörðug
leikar eru nú meiri heldur en
þeir hafa verið oftast áður,
eins og gjaldeyriskreppan og yfir
færslustöðvunin sýnir.
En meðan á öllu þessu gengur
er viðskiptamálaráðherrann víðs
fjarri og er engu líkara en að
ekki sé talið heppilegt að sýna
hann í sambandi við slíka atburði.
Það hefði þó vafalaust verið auð-
velt að haga því þannig
að heimsókn framkvæmdastjóra
Efnahagssamvinnustofnunarinn-
ar bæri ekki upp á þann
tíma, sem sjálfur viðskipta-
málaráðherra landsins væri
víðs fjarri og ennfremur að
bankastjóri Seðlabankans gæfi
ekki slíkar yfirlýsingar, sem hann
gerði, nema viðskiptamálaráð-
herra væri nærstaddur.
Vaknar í þessu sambandi sú
spurning, hvort það þyki nú
orðið heppilegast í sambandi
við viðskiptamál okkar, að ráð
herra sá, sem með þau fer sé
hvergi nærstaddur, þegar þýð
ingarmiklir atburðir gerast
í sambandi við þau mál og
þegar viðskiptaörðugleikarnir
kreppa sem harðast að.
Jón Dan
sitt fyrir hvora „mánaðarbók",
og eru þeir, sem eigi óska að fá
mánaðarbókina senda, beðnir að
klippa út viðkomandi spjald og
senda félaginu með óletruðu
nafni sinu. Ef félagsmenn óska
að fá einhverj a af fyrri útgáfu-
bókum félagsins í staðinn fyrir
mánaðarbókina, eru þeir beðnir
að rita nafn hennar á þetta
spjald. Eru jafnframt 1 heftinu
nákvæmar upplýsingar um fyrri
útgáfubækur félagsins.
Akranesbálarnir
AKRANSSI 5. marz—Sigrún kom
að kl. 5 í morgun. Var hún með
33 lestir úr fjórum þorskaneta-
trossum. Sveinn Guðmundsson
fékk um 15 lestir í nokkru færri
net. Fylkir var með 7,5 lestir og
Ver með 3,5 lestir. Hjá Sigurfara
bilaði vélin svo að hann gat ekki
dregið net sín.
Sigurvon lagði net sín í gær,
Ólafur Magnússon í morgun og
Hrefna ætlar að fara að leggja
netin. Keilir kom hlaðinn rétt fyr
ir hádegi frá Reykjavík með fulla
lest og hlaða á þiljum af þorska-
netjaslöngum, kúlum og efni 1
teina og færi. Er ekki annað sjá-
anlegt en að allir bátar hér séu
að hefja þorskanetjaveiðar.
Togarinn Bjarni Ölafsson land-
aði hér í gær 250 lestum af fiski.
Af því voru 140 lestir þorskur,
hitt karfi og ýsa. Fór togarinn
aftur út á miðnætti í gærkvöldi,
■—Oddur.
FRUMVARPIÐ til farsóttarlaga
var afgreitt sem lög frá Alþingi
á fundi neðri deildar í gær.
Frumv. hefur áður verið lýst i
Mbl.
lætt um hruðfrystihús
baeiarúigerðarinnur
Á FUNDI bæjarstjórnar Reykja-
víkur í gær var rætt um tillögu
er Guffmundur J. Guffmundsson
(K) lagði fram og var svohljóð-
andi: „Bæjarstjórnin skorar ein-
dregið á fjárfestingaryfirvöldin
að veita nú þegar nauðsynleg
leyfi til þess að unnt sé að hefj-
ast handa við byggingu hrað-
frystihúss bæjarútgerðarinnar.
Jafnframt felur bæjarstjórnin
útgerðarráði og framkvæmda-
stjórum bæjarútgerðarinnar að
hraða undirbúningi að fram-
kvæmdum, þar á meðal fjáröfl-
un til byggingarinnar".
Guffmundur J. Guffmundsson
fylgdi tillögu sinni úr hlaði og
sagði m.a.:
Tillaga þessi er fyrst og
fremst flutt í því skyni að reyna
að skapa aukinn þrýsting á fram
kvæmdir í þessu máli. Málið hef-
ur lengi verið á döfinni, en í
fyrra var samþykkt, að bæjar-
útgarðin byggði hraðfrystihús,
staður ákveðinn og beiðni um
fjárfestingarleyfi send. Það leyfi
er ókomið enn. En fáist það, má
ekki standa á undirbúnings-
vinnu frá bæjarins hendi.
í þessu sambandi má benda á
það með réttu, að hraðfrystihús-
in, sem nú eru í borginni, geta
annað aðgerð á þeim fiski, sem
hér berst á land. Hitt er jafnvíst
að það hefur háð bæjarútgerð-
inni fjárhagslega, að hún á ekki
eigið hraðfi’ystihús. Það mun við
urkennt af öllum, sem til þekkja
að vonlítið sé að r*ka togaraút-
gerð hér á landi, nema eiga jafn
framt frystihús. Ef hraðfrystihús
um fjölgar í Reykjavík, myndi
það einnig knýja þá, sem nú
reka slík iðjuver, til að hefjast
Eftirlit með happdrættum
og aimennri fiársöfnun
PÉTUR Pétursson flytur í neðri
deild Alþingis frumv. til laga um
eftirlit með happdrættum og a'l-
mennum fjársöfnunum.
í frumv. segir, að einstaklingar
og félög, sem efna til happdrætta,
merkjasölu eða samskota, þar
sem leitað er til almennings, skun
strax að fjáröflun lokinni birta
skýrslu um árangurinn í Lögbirt-
ingablaði. Þar skal vera vinninga
skrá, ef því er að skipta, heildar-
upphæð fjáröflunar og Ifostnaður,
og einnig skal sagt, hvert féð
rennur eða á að renna.
Raönerra skal skipa 3 manna
nefnd til að hafa eftirlit með því,
að lögum þessum sé fylgt. Hún
á að tilkynna dómsmálaráðuneyt-
inu misbresti, sem hún telur á því
vera, og getur það svipt hlutað-
eigandi leyfi til fjársafnana. Brot
gegn lögunum á að varða sektum,
allt að kr. 100.000,—.
í greinargerð segir, að nú sé
milljónatugum safnað árlega með
þeim hætti, er um ræðir í frum-
varpinu. Telur flutningsmaður,
að opinbert eftirlit sé sjálfsagt á
þessu sviði.
handa um útgerð. Ber og nauS-
syn til þess, þar sem nú eru aS-
eins gerðir út 16 togarar frá
Reykjavík. Þeir voru hing vegar
29 árið 1930, og hefur Ibúum þ4
fjölgað síðan um meira en helm
ing. Þess er þó að geta, að tvö
skip munu bætast í togaraflota
Reykvíkinga á næstunni.
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri: Á sínum tíma var aSallega
rætt um 2 leiðir til aS skapa bæj
arútgerðinni bætta aðstöSu tii
frystingar: að hún eða allsherj-
arsamtök togaraeigenda i bæiv-
um' keyptu Fiskiðjuver ríkisina.
Það strandaði á andstöðu Fram-
sóknarmanna í ríkisstjórn. Hin
leiðin var sú, að byggja eigiS
hraðfrystihús. Tekin var ákvörg
un um að fara þá leið og unnig
hefur verið að málinu aS undan-
förnu. Sótt hefur verið um fjár-
festingarleyfi og útgerðarráð og
f ramkvæmdarst j órar bæjarút-
gerðarinnar hafa starfað að ým-
iss konar undirbúningi. Virð-
ist sjálfsagt að leita álits þessar*
aðila á tillögunni, sem hér ligg-
ur fyrir.
Flutningsmaður tillögunnar
ræddi um, að nauðsynlegt væri
að auka þrýsting á framkvæmd.
ir í málinu. Hann veit betur en
ég, hvort auka þarf þrýsting á
fj árfestingaryfirvöldin og hann
virtist hafa nokkrar áhyggjur
af, að málið fengi ekkl greiða af-
greiðslu í þeina herbúðum.
Guffmundur J. Guffmundsson:
Ég get vel fallizt á, að leitað
sé umsagnar útgerðarráðs og
framkvæmdastjóra bæjarútgerð
arinnar, og aukinn þrýsingur á
fjárfestingaryfirvöldin ætti engu
að spilla.
Óskar Hallgrímsson (A): Ég
er sammála Guðmundl J. Guð-
mundssyni um nauðsyn þess að
hraða framkvæmdum í þessu
máli. Hann virðist þó ekki vera
kunnugur gangi þess hingað til.
Bæjarstjórnin samþykkti tillögu
frá mér á sínum tíma um að
hraða því og nú í haust sam-
þykkti hún einróma, að skora á
yfirvöldin að greiða fyrir því,
að leyfi væru veitt. Get ég líká
frætt Guðmund á því, að málið
mun nú komið frá innflutnings-
skrifstofunni, svo að helzt mun
þörf á að ýta við þeim öflum í
ríkisstjóminni, sem halda, að
lausn efnahagsvandamólanna sé
í því fólgin að »aða síldarverk-
smiðjum á hvern fjörð á Austur-
landi.
Tillögunni var síðan vísað til
umsagnar útgerðarráðs og fram-
kv.stj. bæjarútgerða»innar.