Morgunblaðið - 15.03.1958, Side 13

Morgunblaðið - 15.03.1958, Side 13
Laugardagur 15. marz 1958 MORGUNBLAÐ19 13 Jón J. Maron — minning HINN 10. jan. s. 1. var jarðsung- inn frá Bíldudalskirkju Jón Jónsson Maron, gjaldkeri Raf- veitu Suðurfj.hr. Jón Jónsson Maron var fædd- ur 24. október 1883. Foreldrar hans voru hjónin Jón Hallgríms- son og Guðný Jónsdóttir. Jón fluttist með foreldrum sínum að Bakka í Arnarfirði árið 1901. Stundaði hann þar aðallega sjó- mennsku eins og títt var í þá daga. Jón giftist þar árið 1904 Margréti Gísladóttur og stofn- uðu þau þá sitt eigið heimili á Bakka. Þaðan fluttust þau til Bíldudals árið 1910 og átti Jón þar heima síðan til dauðadags. Þau Jón og Margrét eignuðust tvo drengi. Jón varð fyrir þeirri þungu raun að sjá á bak fjöl- skyldu sinni með fárra ára milli- bili. Guðbjartur, yngri sonur þeirra hjóna andaðist árið 1915, Margréti konu sína missti Jón árið 1918 og Jón sonur þeirra andaðist á heilsuhæli í Kaup- mannahöfn 1922. Jón varð þannig að sjá á bak fjölskyldu sinni á fáum árum og má geta nærri hvílíkt spor slíkt hefur markað í huga hins unga eiginmanns. Jón kvæntist aftur árið 1922, Bjarnfríði Sigurðardóttur Maron, er lifir mann sinn, nær 77 ára að aldri. Jón hafði árum sarnan ekki gengið heill til skógar sjálfur, sökum langvarandi magaveiki. Varð hann oftar en einu sinni að fara í sjúkrahús í Reykjavík. án þess þó að fá verulega bót rneina sinna. Um áramótin 1956—1957 fór Jón enn til Reykjavíkur þungt haldinn af sjúkdómi sínum. Gekk hann þá undir uppskurð og dvaldist í sjúkrahúsi um þriggja mánaða skeið. Náði hann aldrei heilsu eftir það og mátti heita að hann væri sjúklingur óslitið þar til hann lézt að heim- ili sínu 2. janúar sl. I þessum langvarandi veikind- um Jóns var það honum rnikil gæfa að hafa sér við hlið slíkan lífsförunaut sem Bjarnfríður kona hans var. Hún dvaldi hjá honum í Reykjavík í veikindum hans og var hún þó um hríð sjúklingur sjálf veturinn 1957 í Landspítalánum ásamt honum en náði sér þó furðu vel eftir það. Eins og fyrr segir var Jón að mestu sjúklingur eftir heim- komu sina veturinn 1957 og má geta nærri hvílík þrekraun það hefur verið Bjarnfríði að annast hann að rnestu leyti ein allan þann tima eða þar til yfir lauk. Það er ekki ætlun mín að rekja hér hin margþættu störf, er Jón Maron hafði ,á höndum fyrir sveit sína og samfélag. Slík störf eru oft vanmetin og dóm- ur sögunnar óhlutdrægastur. En ég hygg að eigi verði um það deilt að Jón gegndi hverju sínu starfi af fullum ti'únaði og hrein- skilni. Hann var gjaldkeri Rafveitu Suðurfjarðarhrepps frá 1933 og til dauðadags, átti sæti i hrepps- nefnd og kjörstjórn árum sam- an og gjaldkeri og meðhjálpari Bíldudalskirkju var hann, svo nokkuð sé nefnt. Það er gæfa sumra manna að flest störf fara þeirn farsællega úr hendi. Einn þeirra manna var Jón Maron, enda helgaði hann þeim trúnað sinn, og krafta óskerta. Jón var hreinn og hisp- urslaus í skoðunum og hélt fast á sínu máli, hver sem í hlut átti, enda mun hann oft og tíð- um hafa borið hita og þunga af ýmsum þeim málefnum, er hon- um og öðrum voru falin í þágu sveitar sinnar og samfélags. Jón var einn þeirra manna er hafa sýnt og sannað á síðasta manns- aldri, hve traustur og góður efni- viður var ' í íslenzkri aldamóta- æsku, þrátt fyrir örðugleika og óblíð lífskjör þeirra tíma. Jón Maron var trúmaður og unni kix'kju sinni og kristindómi og þrátt fyrir margþætta lífsreynslu, veikindi og ástvinamissi mun hugur hans aldrei hafa leitað inn á villugjarnar brautir efa- semdanna í þeim efnum. Trú hans var slerk og hrein af hin- um góða og gamla skóla, eins og hann hafði numið hana sem barn við móður- og föðurkné. Á kveðjustundum er oft rnargs að minnast. Liðnir atburðir, sem grafnir eru eða gleymdir, korna upp í hugann. En það er eitt sem ekki gleymist, það er minn- ingin um traustan vin og sam- verkamann. Þær minningar lifa þótt hann hverfi sjónum okkar. Þær minningar hygg ég að Jón Maron hafi skilið eftir í ríkum mæli hjá þeim, er þekktu hann bezt og er slíkt aðall góðra manna. Með Jóni Maron er horfinn einn af hinum gömlu og góðu Bílddælingum. Hér innti hann af höndum meginhluta síns ævistarfs. Hér lágu spor hans í blíðu og stríðu um áratugabil. Með honum er fallinn í valinn einn af hinum merku fulltrúum sérstæðs tímabils í sögu Bíldu- dals. Kynslóðir koma og fara og við vonum að arfur þeirra eldri ávaxtist í sjóði hinna yngri. Ég þakka Jóni J. Maron störf hans fyrir sveit sína og sam- félag. Ég flyt honum einnig sér- stalcar þakkir mínar og fjöl- skyldu minnar fyrir margháttað- an velvilja og vináttu. Ég læt þessum fáu og fátæk- legu oiðum lokið og vil segja að endingu. Hvíl þú sæll í faðmi friðar, fallni vinur, góða nótt. Jón P. Jónsson. Þróttur og þrek tilstarfa og leiksí SÓL GRJÓNUM Unglr og aldnir fá krafta og þol með neyzlu heilsusamlegra og nærandi SÓL GRJÓNA, hafragrjó- na sem eru glóðuð og smásöxuð. Borðið þau á hyerjum morgni og þér fáið eggjahvítuefni.kalk.fosfór og járn, auk B-fjörefna, allt nauð- synleg efni líkamanum, þýðingar* mikil fyrir heil- suna og fyrir starfsþrekið og starfsgleðina. borðið ÍÍVl. SOL: I -X GRJÓN ; scm auka þrótt l og þr*k, * t-------J Framleidd af »OTA« kíí;:;; S’élagslíi SkíðaferSir um hclgiiui veröa laugardag' kl. 2 og sunnu dag kl. 10 og lVi. Farið vei'ður að Vífilsfelli. Búið ykkur vel og hafið nesti meðferðis. — Kepp- endur og starfsfóllc fyrir stór- svigsmótið í Marardalnum. Mæt- ið kl. 2 á laugardag og kl. 9 á sunnudag. — Ferðir í Marardal báða daga. Keppni byrjar kl. 14,30. Allar ferðir ferðir frá B. S.: R. — Skíðoráð Reykjavíkur. Búðarpláss ca. 30 ferm. ásamt 2 litlum geymslum við aðalgötu í miðbænum, til leigu. Tilboð er greini frá til hvers nota skal, sendist afgr. Morgunblaðsins merkt: Miðbær — 8881. BUICK-Super fjögra dyra, sjálfskipting, model 1951, mjög lítið keyrður og aðeins á góðum vegum erlendis, til söiu. Tilboð sendist til Morgunblaðsins fyrir 19. þ.m. merkt: „Buick-Super — 100 — 8867“. Skrifstofur okkar eru fluttar á Laugaveg 176. Tékkneska bifreiðaumboðið á íslandi hf. R. Jóhaniiesson h.f. Sími 17 18 1 Góður rennismiður óskast Upplýsingar hjá yfirverkstjctranum LAftlDSSMIÐJAN Selfossbíó Dansleikur í kvöld kl. 9 Hljómsveit Andrésar Ingólfssonar leikur (áður Orion Quintett) Einsöngvairi Þórir Roff SELFOSSBÍé Meistarafélag húsasmiða Tilkynning Vegna margítrekaöra tilmæla hefur félagið skipað Þórð Jasonarson, Háteigsveg 18, Reykjavík, til þess að annast útreikninga á uppmælingarvinnu húsa- smiða. Þeir húsbyggjendur, sem óska aðstoðar í þessu efni, snúi sér til Þórðar á Háteigsveg 18, sími 16362. Stjórnin. Sníðum drengjaföt og fermingarföt — ensk fataefni ICIæðaverzlun Braga Brynfólfsscaiar Laugaveg 46 1 Hallamál | ® sr Sporjárn 1 Sími 15300 Tréiím | Æg.sgötu 4 Tréborar Bifrei&askattur Athygli bifreiðaeigenda í Reykjavík skal vakin á því, að í gjalddaga er fallinn bifx-eiðaskattur, skoðunargjald og vátryggingariðgjöld ökumanna fyrir árið 1957. Skattinn ber að greiða í tollst jóra- skrifstofunni, Arnarhvoli. Við bifreiðaskoðun ber að sýna kvittun fyrir greiðslu gjaldanna. Reykjavik, 12. marz 1958. | Tollstjóraskrifstofan, Arnarhvoli. 1 Af mælisf ag naður Kvenfélags Hallgrímskirkju verður í Silíurtunglinu þriðjudaginn 18. marz M. 8 síðdegis. Skemmtiatriði: Einsöngur: Tenór Árni Jónsson. Upplestur — Dans. Konur mega taka með sér gesti. Upplýsingar í símum 14457, 22573, 13293. Skemmtinefndin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.