Morgunblaðið - 03.06.1958, Síða 8
ö
MOROViyilLAOIL
Þriðjudagur 3. júní 1958
í*» ****** ítsiitt
^fp^!
Frá íslenzku deildinni
Islenzka deildin á kaupstefnunni
Gautaborg vekur athygli
Haukur Snorrason, ritstj.
Minning
GAUTABORG, 21. maí. — Al-
þjóðavörusýningunni, Svenska
Massan, í Gautaborg lauk síðast-
liðinn sunnudag. Gestir voru
fleiri í ár en nokkru sinni fyrr,
eða um 160000 að tölu. ísland tók
þátt í sýningunni í ár sem nokk-
ur undanfarin ár. Leit þó ílla út
um tíma aö það mætti takast, þar
* KVIKMYNDIR +
Demetrius og
skylmingamennirnir
-MYNDIN, sem Nýja bíó sýnir um
þessar mundir, hlýtur að hafa
kostaJ drjúgan skilding. Hvort
menningarlegt gildi hennar fari
eftir dýrleikanum, er svo annað
mál: hún er eiginlega hvorki betri
né verri en þessi Holliwood-sagn-
fræði, sem við eigum að venjast,
bæði hvað snertir list og áreiðan-
leik. Efnið er sótt úr einum stór-
brotnustu tímamótum sögunnar,
þegar fyrsta bjarma af dagrenn
ing kristinnar trúar slær á hið
volduga og gerspillta rómverska
ríki, tímum hinnar mestu upp-
hefðar og dýpstu niðurlægingar.
Keisararnir, sem tóku við hinum
mikla arfi Sesars og Ágústusar,
reyndust ýmist meðalmenni eða
geðbilaðir, enda holgróf hið röm-
verska ríki Ört, þótt það ætti eft-
ir að hefjast úr niðurlægingunni
um all-langt skeið fyrir tilstilli
nokkurra dugandi keisara, áður
en það lognaðist alveg útaf. Sag-
an gerizt á dögum Kaligúlu, en
hann var geðbilaður með öllu, sbr.
hinn rauða kirtil Krists — sem
jafnframt er rauður þráður sög-
unnar — hvern Kaligúla girntist
mjög, sem ekki var óeðlilegt, þar
eð hann hélt sig myndu öðlazt
eilíft líf á jörðu, ef hann klæddist
honum, — og væntanlega fá myrt
alla íbúa hennar. Kaligúlu leik-
ur Jay xtobinson af mikilli tækni,
geðveiki hans kom betur fram í
látbragði, sem var stílfært á hár-
fínan og háskólaðan hátt, en sjálf
um svipbrigðunum sem segja ekki
tiltakanlega mikið um sálarástand
mannsins. Leikur hans naut sín
því einna bezt í nokkurri fjar-
lægð. Annars er ekki ástæða til að
rekja efnið hér, efiaust munu
margir hafa gaman af myndinni,
enda mörg þrekvirki unnin af
Yictor Mature, en ekki þótti mér
hin mikilhæfa Susan Hayward
líkjast þeirri Messalínu sem Da-
víð Stefánsson lýsir, — mér er
nær að halda að svona „týpa“
hafi varla þekkzt fyrir fyrri heims
Styrjöld, hvað þá í grárri forn-
eskju. Það gekk óvenju vel að
krýna Kládíus gamla í lokin, og
Messalína lofaði bót og betrun!
— EGO.
eð nefnd sú er sjá á um sýningar
sem þessa er í molum, og ekki
hefur verið skipuð önnur í henn-
ar stað. Þetta heppnaðist þó að
lokum fyrir miiligöngu Sænsk-
íslenzka félagsins í Gautaborg,
sem síðan sá um sýninguna.
Fyrir hönd félagsins var sýning-
in skipulögð af þeim Guðmun-ti
Pálssyni og Bjarna Sigurðssym
arkitekt. Sýningin hefur vakið
mikla eftirtekt og fengið góða
dóma í blöðum.
Göteborgs Tidningen segir m.
a.: hinni stílhreinu deiid ís-
lands hefur verið byggð upp göm
ul íslenzk baðstofa með breiðu
rúmi, sem á er ekta íslenzk heima
ofin ábreiða. Vefnaðinum er ann
ars mikið haldið á lofti í íslenzku
deildinni, sem er vel staðsett
neðsta sal nýja hússins ásamt
deildum Norðurlandanna. Hér
gefur á að líta fallega leirmuni,
sem skreyttir eru mjög smekk-
legu munstri, er líkist rúnum.
Undurlétt og hlý sjöl, sem fá
kvenþjóðina til að staldra við og
láta aðdáun sína I ljós. Á veggjun
um eru fallegar myndir frá ís-
landi í dag, iðnaði þess og lands-
lagi ásamt lífi fólksins. Myndirn-
ar seiða þangað fleiri og fleiri
ferðamenn.“
Ennfremur má geta þess að ís-
lenzka deildin var kvikmynduð
og kom sú mynd síðan fram í
sjónvarpi.
Mikil hjálp var í því að ís-
lenzkar konur, sem eru búsettar
hér í Gautaborg stóðu í deildinni
og svöruðu hinum mörgu og oft
einkennilegu spurningum sýning
argesta. Er eftirspurninni eftir
mjólk fullnægt á íslandi? Eru
sjölin hekluð með hárnálum?
konurnar sögðu við mig í viðtali,
að eftirtektarvert hafi verið hve
margir Svíar ráðgeri ferðalög til
íslands á næstunni.
Óhætt er að segja að deildin
hafi vakið óskipta athygii og fair
hafa þeir gestir kaupstefnunnar
verið, sem ekki litu inn í bað-
stofuna og notuðu þá tækifærið
til þess að skoða hinar fallegu
myndabækur frá Almenna bóka-
, félaginu.
Hinar fallegu myndir sem á
sýningunni voru, hafði Ijósmynd-
ari Loftleíða í Svíþjóð, Lennart
Carlén, tekið. Einnig ber að
þakka Loftleiðum hf. fyrir mikla
og góða aðstoð við flutmng á
sýningarmunum og fleiru.
MIG setti hljóðan við þá hörmu-
legu frétt að Haukur vinur minn
Snorrason væri látinn. Var hann
á ferðalagi í Þýzkalandi og
veiktist þar, og hné skyndilega í
valinn.
Mér varð fyrst hugsað til hinn-
ar góðu konu hans og barnanna
þriggja, föður hans og systkina,
sem svo skyndilega urðu að sjá
af ástríkum eiginmanni, föður,
syni og bróður. Þeir, sem þekktu
Hauk bezt, vita gjörla hversu
mikið þau hafa misst.
Ég kynntist Hauk Snorrasyni
fyrst úti í New York fyrir 20
árum. Var hann þá aðeins 21 árs
gamall. Vilhjálmur Þór forstjóri
íslandsdeildar. heimssýningarinn-
ar hafði kvatt hann sér til að-
stoðar, og kom brátt í ljós, að
það var vel valið, og að þar var
réttur maður á réttum stað. Mér
var falið það starf að sjá um
skreytingar á sýningunni, og
hafði ég því mikið saman við
Hauk að sælda. Hann var óvenju-
lega giæsilegur ungur maður,
fluggáfaður,. vel menntaður og
hið mesta ljúfmenni. Var hann
og mikill starfsmaður og sívökull
um allt sem þurfti að gera, og
kom sér þá oft vel, hversu skjót-
ráður og viljugur hann var til
allra úrræða. Meðal annars
annaðist hann allt bókhald og
vélritaði öll bréf, svo fátt eitt sé
nefnt, og var hann á ferð og
flugi um allar trissur þar sem
einhvers þurfti með. Ég hugsaði
oft um það þá, að margt myndi
ÚR LANDEYJU
Spánskur slyrkur
Ríkistjórn Spánar hefur heitið
íslenzkum stúdent eða kandidat
styrk til háskólanáms á Spáni frá
1. október 1958 til 30. júní 1959.
Styrkurinn nemur 18000 peset-
um nefnt tímabil. Ef námsmaður
æskir. mun honum verða útvegað
húsnæði og fæð' í stúdentagarði
gegn venjulegu gjaldi. Styrkþegi
þarf hvorki að greiða innritunar-
né skólagjald.
Þeir, sem kynnu að hafa hug á
að hljóta styrk þennan, sæki um
hann til menntamálaráðuneytis-
ins fyrir 1. júlí næstkomandi. —
Landeyjum, 20. mai.
Tíðarfar. — Síðan snemma í
maí hefur verið norðan- og norð-
austanátt og óvenj'ukalt. Frost
hefur komizt í 5 stig í lágsveit-
um og allt að 8 stigum efrs>. Úr
koma aðeins síðustu daga og þa
jafnvel slydda eða él. Var farúi
1 að grænka, þegar brá til norðan-
áttar, en síðan hefur gróðri farið
mjög hægt fram. Sauðburður
stendur yfir, og er fé víða á gjöf
að meira eða mmna leyti. Vor-
kuldinn er bændum alltaf þung-
ur í skauti, enda er sums staðar
orðið lítið um hey eftir gjafa-
frekan vetur. í slíku tíðarfavi
sem þessu er fóðurbætisnotkun
bænda mjög mikil, og kemur sér
vel, að fóðurbætir er enn fáan-
legur með skaplegu verði. Von-
andi fer að hlýna, svo' að fénað-
ur geti dreift sér um græna haga
Afmæli. — Nýlega átti Sigur-
jón Guðmundsson bóndi á Gríms
stöðum í Vestur-Landeyjum, sex-
tugsafmæli. Hann hefur búið á
Grímsstöðum um þrjátíu ár
miklu myndarbúi, stórvirkur um
framkvæmdir, bæði ræktun og
byggingar. Sigurjón er drengur
góður og félagslyndur. Var hann
einn bezti starfskraftur ung-
mennafélagsins Njáls í V-Land-
eyjum og formaður þess lengi.
A sæti í hreppsnefnd og skatta-
nefnd. Kona hans er Ingileif
Auðunsdóttir.
Búnaðarfélag Vestur-Landeyja
átti sjötíu ára afmæli á síðast-
liðnu ári. Þess var minnzt með
veglegu hófi í félagsheimili sveit-
arinnar, Njálsbúð, ekki alls fyrir
löngu. Félagið er talið stofnað
1887 og hefur verið starfandi að
mestu óslitið síðan. Það hefur
jafnan beitt sér fyrir hvers kon-
ar framfaramálum sveitarinnar
og komið ýmsu góðu til leiðar
Aðalhvatamaður að stofnun þess
var ísak Sigurðsson, bóndi í Mið
koti. Var hann og fyrsti formað-
ur þess. Lengst hefur verið for-
maður Valdimar Jónsson, bóndi
að Álfhólum, eða frá 1921—46.
Formaður frá 1946 séra Sigurður
S. Haukdal, Bergþórshvoli, og
meðstjórnendur nú Guðjón Ein-
arsson, Berjanesi, og Jón M
Jónsson, Hvítanesi.
Óboðnir gestir. — Það er
gjarna svo í sveitinni, þegar gesn
ber að garði, að þeim er vel fagn-
að. Svo er og um þá gesti, er
koma um hávegu loftsins, lífga
umhverfið með söng sínum og
byggja hreiður undir verndar-
væng mannanna. En það er alloft
svo, að í kjölfar þessara aufúsu
gesta koma aðrir gestir, óboðmr
og óvelkomnir, flestir þeirra alla
leið sunnan úr höfuðstaðnum.
Þeir koma hlaðnir morðvopnum,
til að skjóta þá fugla, er mink-
arnir hafa ekki enn grandað. Svo
ófyrirleitnir eru þessir óboðnu
gestir, að þeir iðka skotfimi sína
heim undir bæjum. Mildi að ekki
skuli slys hafa orðið á mönnum
Komið hefur fyrir, að kinduv
hafa orðið fyrir skotum þessara
kappa. Nýlega voru slíkir óhappa
menn á ferð í Vestur-Landeyjum
og skutu fugla á túnum. Á einum
bænum skutu þeir andahjón, sen
voru búin að vera á bæ þessum
nokkur ár og verpa þar í túninu,
fólkinu til yndisauka. Að vísu náð
ist númerið á bifreið þessara skot
manna, og málið er í rannsókn.
En slík mál hafa oft átt erfitt
uppdráttar. Frá þessu er sagt ti!
viðvörunar hinum óvelkomnu
skotmönnum. Þeir mega ekki
halda, að þeim leyfist allt, þegar
þeir eru komnir upp í sveit.
Bjargráðin. — Nú er mikið tal-
að um þær ráðstafanir, er stjórn
in hyggst gera til að bjarga þjóð-
inni, og ekki eru allir á einu
máli. Og þó er öllum ljóst, að
miklar verða álögur og þungar.
Bændur eru almennt mjög undr-
andi yfir þeirri yfirlýsingu stjórn
ar Stéttarfélags bænda, að þessar
ráðstafanir komi sízt þyngra nið-
ur á bændum en öðrum stéttum
Að vísu á mjólkin að hækka lítils
háttar, en reynslan á þessum svo-
kölluðu mjólkurhækkunum hef-
ur oftast verið sú,. að þær hafa
ekki komið í hlut bændanna, en
lent í hít aukins rekstrarkostnað-
ar, og stundum verið gefnar eftir
Það eitt, að gífurleg hækkun verð
ur á fóðurbæti og tilbúnum
áburði, verður stórkostlegt áfall
fyrir bændastéttina og skapar
stórum versnandi afkomuskil
yrði. En það er margt fleira en
þetta, sem leggst með miklum
þunga á bændur, þó að ekki verði
upp talið í þetta sinn. Með hvaða
rétti og í umboði hverra gefur
stjórn Stéttarsambands bænda
út fyrrnefnda yfirlýsingu? Og
hvað gera bændafulltrúarnir á
Alþingi?
öðru vísi, ef Hauks nyti ekki við.
Að eðlisfari var Haukur mjög
félagslyndur og hjálpsamur. Sí-
kátur og glaðvær var hann í
vinahóp, hrókur alls fagnaðar, og
kunni þá list að skemmta sér og
öðrum, enda vann hann hylli
allra sem kynntust honum. Frá
sex mánaða samveru á framandi
grund, rifjast upp í huga mér
margar ánægjustundir, sem ég
átti með honum í margháttuðu
samstarfi, oft við erfið skilyrði.
Hann var fjölhæfur og vakandi
starfsmaður, sem var sér þess
meðvitandi, að allt þurfti að gera
á réttum tíma, ef ekki átti að
hlaupa snurða á þráðinn. En þeg-
ar einhver stund var til hvíldar,
gengum við saman á listasöfn,
sóttum leikhús, eða annað til
andlegrar uppbyggingar. Haukur
var opinn fyrir öllu fögru, og
vildi læra af því, og var hann í
því sem öðru, enginn yfirborðs-
maður, en naut þess innilega að
komast í snertingu við hámenn-
ingu fagurra lista, í hverri mynd
sem var. Þess vegna var svo
frjóvgandi að vera í návist hans.
Hið mikla sálarfjör hans snart
mann innilega.
Að lokinni heimssýningunni
var hann gerður að heiðursborg-
ara New York-borgar, þá aðeins
22 ára gamall, og mun slíkt fá-
títt, en sýnir að starf hans var
vel metið.
Nú er Haukur horfinn sjón-
um vorum, — fluttur á æðra svið.
Eftir eru góðar endurminningar
um ljúfan og góðan félaga og
vin, þar sem hvergi ber skugga
á, en einungis ríkir björt heið-
ríkja og hlýja sumarsólar sem
vermir inn að hjartarótum.
Þegar góður vinur kveður þessa
jörð, er söknuðurinn sár. Sann-
leikurinn er samt sá, að hug-
stæður vinur deyr ekki. Endur-
minningarnar um hann halda
áfram að lifa í brjóstum vorum,
þróast þar og vaxa, og auka á
þroska okkar og lífsreynslu.
„Deyr fé,
deyja frændr
deyr sjalfr it sama ;
en orðstírr
deyr aldregi
hveim er sér góðan getr“.
J. P.
Bolvíkingafélagið
í Reykjavík
BOLVÍKINGAFÉL. í Reykjavík
hélt nýlega aðalfund sinn i
Skátaheimilinu við Snorrabraut.
Stjórn félagsins var endurkjör-
in, en hana skipa: Jóhannes
Magnússon, sem er formaður.
Ingibjörg Jónsdóttir, Jens E.
Níelsson, Hafliði Bjarnason og
Ólafur Tímótheusson.
Félagið ætlar að efna til hóp-
ferðar til Bolungavíkur í sumar
og var kosin sérstök nefnd til
þess að annast undirbúning henn-
ar. Þeir sem eiga sæti í henm
eru: Hafliði Bjarnason, Einar ÓI-
afsson, Steinn Ingi Jóhannesson
og Steingrímur Bjarnason.
Þeir Bolvíkingar í Reykjavík,
sem áhuga hafa á því að fara
þessa ferð með félaginu, eru beðn
ir að hafa samband við undir-
búningsnefndina eða einhvern úr
stjórn félagsins.
Rætt var um Orgelsjóð Hóls-
kirkju, sem verður 50 ára á þessu
ári og með hvaða hætti félagið
gæti styrkt hann.
Konur innan félagsins ætla að
hafa bazar 4. júní í þeim tilgangi.
Þeir, sem hugsa sér að styrkja
þessa starfsemi félagsins, eru vin-
samlegast beðnir að hafa sarn-
band við einhvern úr stjórn fé-
lagsins eða bazarnefnd þess, sem
skipuð er þessum konum: Ingi
björgu Jónsdóttur, Halldóru Ein-
arsdóttur, Elínu Guðmundsdótt-
ur, Salóme Pálmadóttur, Gunn-
jónu Jónsdóttur, Klöru Rögn-
valdsdóttur, Sigríði Beck og
Benný Finnbogadóttur.