Morgunblaðið - 17.10.1958, Síða 9
Föstudagur 17. okt. 1958
M OR G l l\ BL 4 fíl Ð
9
* KVIKMYNDIR *
Stórbrotln mynd
i Bæjarb'iói
EITT áhrifaríkasta og stórbrotn-
asta söguleikrit skáldjöfursins
brezka, Williams Shakespeares,
er Ríkharður III. Er það blóði-
drifinn harmleikur og voldug og
vægðarlaus ádeila á sjúklega og
taumlausa metnaðargirni manna,
er einskis svífast til þess að koma
áformum sinum fram.
Leikritið er framhald af leik-
riti Shakespares Hinriki VI. og
gerast atburðirnir á seinni hluta
15. aldar í lok hins svonefnda
Rósastríðs, hinnar blóðugu valda
baráttu er háð var milli Yorkætt-
arinnar og Lancasterættarinnar í
Englandi. — Höfuðpersóna
þessa mikla harmleiks er kropp-
inbakurinn og þrælmennið Rík-
harður hertogi af Gloucester,
síðar Ríkharður konungur III.,
gáfaður, ófyrirleitinn, undirför-
ull og grimmur maður, er myrðir
eða lætur myrða alla þá, sem
honum finnst að standi á ein-
hvern hátt í vegi fyrir honum í
baráttu hans til að öðlast kon-
ungstign í Englandi að bróður
sínum Eðvarði IV. látnum. Lýk-
ur hinum blóðuga æviferli hans,
er Henrik jarl af Richmond, síð-
ar Henrik VII. kemur frá Frakk-
landi og sigrar hann í orrustunni
við Bosworth Field í ágústmán-
uði 1485.
Kvikmynd sú, sem hér er um
að ræða er ensk og þræðir mjög
leikritið. Laurence Olivier, einn
frægasti Shakespeare-leikari
sem nú er uppi hefur haft leik-
stjómina á hendi og fer hann
jafnframt með hlutverk Rík-
harðs III. Er túlkun hans á þess-
ari óhugnanlegu persónu afburða
snjöll. Margir aðrir hinna mikil-
hæfustu leikara Englendinga
fara hér einnig með veigimikil
hlutverk svo sem Cedric Hard-
wick, er leikur Eðvarð IV. John
Gielgud, er leikur Georg hertoga
af Clarence, Ralph Richardson,
er leikur hertogann af Buckingh.
og Clarie Bloom, er leikur lady
Anne, síðar drottningu Ríkharðs
III., svo að nefndir séu þeir leik-
endur sem þekktastir eru, og eru
þá ótaldir margir ágætir leikar-
sr.
Ég hef ekki séð Ríkharð III. á
sviði og get því ekki um það
dæmt hversu tekizt hefur um
kvikmyndina miðað við sviðssýn
ingu en eins og myndm kemur
mér fyrir sjónir, get ég ekki
annað sagt, en að hún sé stór-
brotið listaverk, — irábærlega
vel unnin og vel tekin og leik-
stjórn og leikur með afbrigðum.
Sérstaklega athyglisvert er
hversu vel texti Shakespeares
nýtur sín í snillarlegri framsögn
leikaranna. Hygg ég að hver sá,
sem er slarkfær í enskri tungu,
geti fylgzt með hinu talaða orði
sér til fullra nota. Þess skal þó
getið að myndinni fylgir danskur
skýringartexti.
Mynd þessi sem tekin er í lit-
um og vistavision, er listrænn
viðburður, stem menn ættu ekki
að láta fara framhjá sér.
Ego.
Gólfslípunin
RarmahJið 33. — Simi 13657
Æ
I minningu
Magnúsar í
Leirvogstungu
Ég veit þú hefir ekki ætlazt til
að angur fyllti hugi vina þinna
á kveðjustund við þessi þáttaskil,
því þetta er gjald, sem allir
verða að inna
af hendi, fyrir líf sem lánað er
um litla stund í heimi jarðar-
barna.
En hugþekk minning birtu með
sér ber
og blikar eins og fögur leiðar-
stjarna.
Við minnumst þm, sem heils og
hugrakks manns,
með heiðríkjuna tæra í svip og
fasi.
Með hreina og sterka ást til
ljóðs og lands
til lífsins alls, sem vaxið fékk
úr grasi.
Að hverju starfi féll þín haga
hönd,
og hugur djarfur fylgdi málum
þínum.
Með hetjulund, af stórri og
sterkri önd
var stefnan tekin, mörkuð
skýrum línum.
Það er svo ljúft og gott að
minnast manns,
sem með oss jafnan vakti hlýja
gleði,
að hafa hlotið sess í samfylgd
hans
er sínum vinum einatt hollráð
léði.
Um samvist þína andar þýðum
þey,
þótt þræðir lífsins séu að skari
brunnir.
Þin minning verður geymd, en
gleymist ei,
þótt genginn sért til moldar sem
þú unnir.
Einar Gunnarsson.
Félagslíf
íþróttavöllurinn á Melunum
verður lokaður til æfingar eftir
15. þ.m.
Frar — handknattleiksdeild
Æfingar að Hálogalandi í vet-
ur verða sem hér segir: Sunnud.:
kl. 15,50—16,40, 2fl. kvenna. —
Þriðjud.: kl. 18,00—18,50 3. fl.
karla; þriðjud. kl. 21,20—22,10,
mfl. kvenna; þriðjud. kl. 22,10—
23,00 mfl., 1. og 2. fl. karla.
Föstudagar: kl. 18,00—18,50 3.
fl. karla; kl. 18,50—19,40 2. fl.
kvenna; kl. 19,40—20,30 mfl., 1.
og 2. fl. karla. Geymið töfluna.
— Nefndin.
Vetrarstarfsenii Í.R.
Fimleikadeild: — Allar æfingar
í l.R.-húsinu. — Karlaflokkur:
þriðjudaga kl. 8 til 9,40 og fimmtu
daga kl. 9,40—10,30. 1. flokkur
kvenna: þriðjud. kl. 9,40—10,30
og fimmtudaga kl. 8—-8,50. 2.
flokkur kvenna: fimmtudaga kl.
8,50—9,40, þriðjudaga kl. 7,10—
8,00. Frúarflokkur: Þeir verða
auglýstir strax eftir helgi.
Telpnaflokkur á fimmtudögum
kl. 7,10—8,00 og drengjaflokkur
á miðvikudögum kl. 6,20—7,10.
Skíðadeild: — Meðan snjóinn
vantar eru skíðamenn hvattir til
að mæta í fimleikatíma karla.
Glímndeild Ármanns
Æfingar eru hafnar í íþrótta-
húsi Jóns Þorsteinssonar við Lind
argötu, miðvikudaga og laugar-
daga kl. 7—8. Félagar eru beðnir
að athuga breyttan æfingartíma
og mæta vel og stundvíslega.
— Stjórnin.
Knattspyrnufélagið Þróttur ——
Handknattleiksdeild
Meistara-, 1. og 2. fl. karka. —
Æfing í kvöld kl. 10,10—11,00. —
Mætið stundvíslega. — Stjómin.
Guitarkennsla
Upplýsingar
í síma 24606.
Pianókennsla
Get bætt við mig nokkrum
byrjendum. — Upplýsingar í
síma 16676.
Keflavík — Njarðvík
Fjölbreytl ■ matinn: —
Kjötfas, hakk, saitkjöt, pylsur,
bjúgu, slátur o. fl. — Til helg-
arinnar. dilkalæri, hryggur,
hangikjöt, svið.
FAXABORG
Saumaklúbbur
Óskum eftir nokkrum ungum
og fjörugum stúlkum í sauma-
klúbb, helzt úr Laugarnesi og
Kleppsholti. Erum fimm, allar
giftar. Tilb. með nafni og
símanúmeri, sendist blaðinu
• fyrir miðvikudag n.k., merkt:
„Fimm — 7990“.
KONA
sem á bújörð á bezta stað á
1-andinu, óskar eftir sambandi
við miðaldra mann, sem hefði
staðgóða þekkingu á öllu er
búskap lítur og gæti lagt í bú-
stofn. Tilboð sendist Mbl., fyr-
ii" 25. þ.m., merkt: „Góð jörð
— 7995“.
Hjá
MARTEINI
Glugyatjaldaefni
Mikið úrval
nýkomið
ð ð ý
SPEJL-FLAUEL
6 litir
ð ð #
KJÓLAEFNI
Margir litir
Ný sending
ð ð #
FROTTÉ
SLOPPAEFNI
Gott úrval
ð ð í
Brengjafataefni
úr ull og
grillon
MARTEINI
Laugaveg 31
MARS TRADIMG COMPAMY
Klopparstíg 20 — Sími t/373 — Reykjavík