Morgunblaðið - 02.11.1958, Síða 8
Þjóðleikhúsið í Vin.
Aöeins það bezta er
nógu goit í Vín
Stutf samfal við Cuðlaug Rósinkranz
þjóðleikhússtjára
Bezta hljómsveit
heimsins
Ég var svo heppinn að geta ver
ið viðstaddur sýningu á óperunni
Fidelio eftir Beethoven. Var hún
sungin og leikin af frábærum
söngvurum undir stjórn snillings-
ins Karajans, sem stjórnaði án
þess að hafa nótnablað fyrir fram
an sig. Mun það mjög sjaldgæft
um hljómsveitarstjóra. Hundrað
manna hljómsveit lék. Man ég
ekki eftir að hafa heyrt fegurra
tónverk en þegar hljómsveitin
lék forleikinn á undan síðasta
atriði óperunnar ,enda stóðu
fagnaðarlætin. og húrrahrópin
upp undir hálftíma að sýning-
unni lokinni. Svo mikil og al-
menn var hrifning áheyrenda.
Þegar ég hafði orð á því við
nokkra Vínarbúa, hvað ég hefði
verið hrifinn af þessari sýningu,
kváðu þeir það ekki sæta neinni
furðu. Þarna hefði bezta hljóm-
sveit heimsins leikið eitt fegursta
tónverk, sem nokkru sinni hefði
verið samið og stjórnandinn hefði
verið bezti núlifandi nljómsveit-
arstjóri heimsins.
Svona er Vín. Aðeins það bezta
er nógu gott þar.
Leikhús gefiur ekki
sparað
Þegar ég ræddi við þjóðleik-
hússtjórann þar, um kostn-
að við rekstur leikhússins komst
hann m.a. að orði á þessa leið:
Kostnaðurinn er mikill, en leik
hús getur ekki sparað, ef það á
að vera fyrsta flokks. Við þurf-
um um 40 millj. shillinga styrk á
ári til rekstrar þjóðleikhússins og
óperunnar.
Það eru rúmlega 40 millj. ísl.
króna. Um 1500 manns eru starf-
andi við óperuna, þar af um 70
söngvarar.
Þjóðleikhúsið í Vín kemst hins
vegar af með 650 manna starfs-
lið. Þar sá ég glæsilega sýningu
á Faust eftir Göethe. Var þetta
mikla listaverk sett á svið af
hinum hugkvæma leikstjóra,
Þ E G A R ég átti þess kost að
dveljast nokkra daga í Vín og
Berlín á ferðlagi mínu um dag-
inn virtist mér leiklistar- og
menningarlíf í þessum fornu
menningarborgum standa með
blóma.
Þann' g komst Guðlaugur Rós-
inkranz þjóðleikhússtjóri m.a. að
orði, er Mbl. hitti hann snöggv-
ast að n.' í gær og spurði hann
tíðinda af för hans.
Há^arg listanna
Vín hefur oft verið kölluð há-
borg listanna, segir þjóðleikhús-
stjóri. Hún ber það nafn ennþá
með réttu. Einkanlega eru það
tónlistin . og leiklistin, sem sitja
þar í hásæti. Þar svífur andi
hinna gömlu meistara, Schu-
berts, Mozarts, Beethovens,
Strauss, Göthes og Schillers enn- f SJÖTTU umferð í úrslitum þarf að fá skjól fyrir Bd3 á bl
þá yfir vötnunum. Þótt stórveld- j tefldum við gegn Pólverjum. Ég en til þess þarf hann að koma
a .í 1ixinn Hal á framfæri. 22. — Db6 Svart-
ur reynir að auka þrýstinginn á
d4 eftir mætti. 23. Hadl, b4; 24.
langan skákferil að baki. Meðal a4
annars hefur hann komist í svo-
nefnt ,,millisvæðamót“.
Vínaróperan.
SKAK
mætti skákmeistara Pólverja
istími Austurríkis sé liðinn a
stjórnmálasviðinu, er það ennþá j
stórveldi á sviði fagurra lista og j Sliwa, en hann er nú með all-
menningarmála. Það finnur mað-
ur greinilega við að heimsækja
óperu og leikhús Vínarborgar.
Er endurreisn óperunnar full-
lokið?
Já, bæði Borgarleikhúsið, sem
er þjóðleikhús Austurríkismanna
og Ríkisóperan eyðilögðust að
miklu leyti í síðustu heimsstyrj-
öld. Veggir allir stóðu þó, en
allt hið innra varð að byggja
upp að nýju. Bæði þessi leikhús
hafa nú verið endurbyggð og
hafið starfsemi sína. Ekk-
ert hefur verið sparað til þess að
gera þau sem glæsilegust og full-
komnust. Má segja að tekizt hafi
að gera Vínaróperuna að einni
eftirsóttustu óperu heimsins, bæði
fyrir listafólkið, og áheyrend-
urna. Síðan hún var opnuð að
nýju liggur þangað stöðugur
straumur af fólki hvaðanæva
úr heiminum til þess að sækja
óperusýningar hennar. Hefur
óperan á að skipa mörgum beztu
óperusöngvurum heimsins, sem
syngja þar ýmist sem gestir eða
eru þar fastráðnir. Þar að auki
hefur hún frægasta hljómsveitar
stjóra heimsins, sem óperustjóra.
Er það Herbert von Karajan. En
hann er jafnframt aðal-hljóm-
sveitarstjóri Berlinar filharmon-
isku hljómsveitarinnar.
Vínaróperan hefur um 2 þús.
sæti. Finnst mér aðalsalur henn-
ar fegursti söngleikasalur sem ég
hefi séð. Er hann endurbyggður
í gömlum stíl með sætaröðum á
sex hæðum. Sætin eru rauð en
svalir eru hvítar með gylltu
skrauti, framúrskarandi fögru og
smekklegu. Veggir eru fóðraðir
rauðu silki.
Hvaða óperu var verið að
flytja þarna um þessar mundir?
Hvítt: Ingí R.
Svart: Sliwa.
Nimzo-indversk vörn.
1. c4, Rf6; 2. d4, e6; 3. Rc3, Bb4;
4. e3, c5; 5. Bd3, o-o; 6. Rf3, d5
7. o-o, dxc4; 8. Bxc4, Rbd7; 9. Bd3,
b6; 10. De2, Bb7; 11. Hdl Fram
til þessa hafa leikirnir verið
nokkuð auðskildir. Hvítur hótar
nú dxc5 og leika síðan e4. 11. —
cxd4; 12. exd4. Ef hvítur léki 12.
Rxd4. Þá á svartur I engum erf-
iðleikum lengur, því hann getur
þá stilt mönnum á c5 og e5.
12. — Hc8; 13. Bd2, 1»6; 14. Rb5?
Leikur sem lítur mjög vel út, en
gerir heldur ekki meira. Betra
var 14. Re5! 14. — Bxd2; 15.Hxd2
a6! 16. Rd6, Bxf3; 17. Dxf3, Hc7!
'Sliwa hefur leyst vandan og hvít-
ur stendur eftir með stakt peð á
d4 en að vísu hefur hvítum tek-
izt, að ná báðum biskupum svarts
og sjálfur haldið kóngsbiskup
sínum og verður því að aiíta að
hvítur standi ívið skár 18. Ilddl!
Hvítur verður að tryggja sér
fyrstu línuna svo svartur geti
ekki náð hættulegri sókn á drottn
ingarvæng áður en hvítur hefur
undirbúið kóngssókn sína, sem
hann er þvingaður til að hefja
fyrr eða síðar. Ekki kom til
greina að leika 18. Bxa6 vegna
Rb8 og vinna mann. 18. — Rd5
19. a3. Hvítur má ekki leyfa Rb4
og sízt af öllu má ha*n leika
Hacl. 19. — Rd7-f6; 20. Rc4!
Riddarinn á heima á e5 20. — b5;
21. Re5, Dd6; 22. Hel! Hvítur
ABCDEFGH
Fórnar a-peðinu til þess að halda
stöðunni lokaðri, því að öðrum
kosti er ekki hægt að hefja
kóngssókn með árangri. 24. —
Kh8 Hótar Dxd4 25. Bbl, Da5;
26. h4, Dxa4?; Sliwa er kominn
í mikla tímaþröng og kemur
ekki auga á beztu leiðina 26. —h5,
sem hvítur yrði sennilesga að
svara með Hd3, Dg3, g5, og Hg3.
27. g4, g5 Eina vörnin 28. hxg5,
hxg5; 29. Rd3! Hótar He5, sem
svartur getur tæpast komið í veg
fyrir. 29. — Kg7. Ekki 29. — Rd7
vegna Rc3 30. He5, Hh8; 31.
Hxg5f, Kf8; 32. Rc5? Mun sterk-
ara var Re5. 32. — Dc6 33. Re4
Svartur hótaði Rf4 33. — Hd7??
Sliwa hefði aldrei lokið leikum
sínum á þeim tíma sem hann átti,
en síðasti leikur hans er alvar-
legur fingurbrjótur. Betra var
33. — Ke7. 34. Rxf6 og svartur
gaf.
Eftirfarandi staða kom upp í
skákinni Rojahn (Norcgi.J Angos
(Grikklandi.).
Hvítt: Kgl, Dh6, Hal Hd5, Be6,
Re3. peð: h2, g3, f2, e2, c4, b3, a2.
Svart: Kg8, Dc3, Rf7, Re8, Ha8.
peð: h7, g6, f6, e7, d6, b7, a7.
Angos lék 21. — Da5-c3 og nú
kom Rojahan með skemmtileg-
ustu leikfléttu mótsins. 22. Hh5!!
Dxalf; 23. Kg2, gxh5. Þvingað.
24. Rf5 og svartur gaf því hann
getur ekki varið hótunina Rxe7t
og Df8 mát.
IRJóh.
prófessor Adolf Rott. Hann er
frægur um alla Evrópu fyrir
óperettusýningar sínar.
Hvað sáuð þér svo athyglisvert
í Berlín?
Ég sótti þar m.a. sýningu í
óperu Vestur-Berlínar, sem er til
húsa í gömlu leikhúsi, þar til nýtt
óperuhús, sem er í byggingu
verður fullgert, er líklega verður
árið 1960. Þar sá ég óperuna
Medea eftir Cherubini, sem byggð
er á samnefndum grískum sorg-
arleik. Meðal söngvara þar var
Stina Britta Melander, sem við
þekkjum að góðu héðan að heim-
an, frá því er hún söng hér í
Þjóðleikhúsinu. Söng hún þarna
annað aðalkvenhlutverkið og var
ágætlega fagnað. Hún er nú fast-
ráðin við Berlínaróperuna til
tveggja ára.
Medea er falleg ópera en myndi
eflaust þykja of þung hér.
Tólfskildingaóperan
í Berlín
í öðru leikhúsi í Vestur-Berlín
sá ég hina heimsfrægu óperu Die
Dreigroschenoper eða Tólfskild-
ingaóperuna, eins og hún hefur
oft verið kölluð, eftir Bertolt
Brecht og Kurt Weill. Þetta er að
vísu ekki ópera í venjulegri
merkingu heldur gamanleikur
með músik. Fjallar leikritið um
líf og ýmis tiltæki flökkulýðs
og „róna“ Lundúnaborgar. Er
það allt mjög „tragikomiskt",
bráðsnjallt og skemmtilega gert.
Músikin er líka mjög létt og
skemmtileg.
Þessi sérkennilega épera virð-
ist nú eiga miklum vinsældum
að fagna. Er einnig verið að sýna
hana í Kaupmannahöfn um þess-
ar mundir, Stokkhólmi og New
York, alls staðar við feikna-að-
sókn. Hefi ég mikinn hug á að
koma henni upp hér heima áður
en langt um líður, sagði Guð-
laugur Rósinkranz þjóðleikhús-
Btjóri að lokum.
Vér bjóðum
allar tegundir
trygginga
með beztu
fáanlegum
kjörum.
AlMMNAn
TWM'WMr
5xmi 1 00
CGGERT CLAESSEN og
GÚSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmenn.
Þórshamn við Templarasund
Þungavinnuvélar
Sími 34-3-33
ATVIN N A
Okkur vantar stúlku til saumastarfa og einnig stúlku
í frágang. Upplýsingar hjá verkstjóranum.
VERKSIHIÐJAN DtJKUR H.F.
Brautarholti 22.
Kvennadeild Slysavarnafélagsins
i Reykjavik
heldur fund mánudaginn 3. nóv. kl. 8,30 í Sjálfstæðis-
húsinu.
Til skemmtunar:
Kvikmynd frá síðasta Landsþinginu.
Dans.
FJÖLMENNIÐ STJÓRNIN.
Sunnudagur 2. nóv. 1958