Morgunblaðið - 02.11.1958, Síða 10
10
MORGZJNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 2. nóv. 1958
í fréttunum
Gracie, furstaynja í Monaco,
hefir fengið heitustu ósk sína
uppfyllta: Furstahjónin hafa lát-
ið byggja lítið sveitasetur —
reyndar eru í húsinu 30 herbergi
— skammt norður af Monaco.
Sveitasetrið stendur á „lokuðu"
svæði, ef svo mætti segja, þar
sem Frakkar eiga mikilvægar rat
sjárstöðvar á þessum slóðum,
enda var tilgangur furstahjón-
anna með byggingu þessa húss
að fá tækifæri til að lifa rósömu
fjölskyldulífi annað veifið. Sveita
setrið stendur í hlíðum Mont-
Agel, sem er 1100 m hátt.
íslenzkri hjúkrunarkonu, Hlín
Gunnarsdóttur, voru nýlega veitt
heiðursverðlaun fyrir góða hjúkr
un á sjúkrahúsi í Birmingham í
Englandi. Hlín er 24 ára að aldri.
Stærsta dagblaðið í Birmingham
skýrði frá þessari verðlaunaveit-
ingu og segir þar, að hún hafi
starfað við sjúkrahúsið þrjú und-
anfarin ár. Einnig er frá því
skýrt, að tvær aðrar íslenzkar
hjúkrunarkonur starfi við þetta
sjúkrahús. Á myndinni sést Hlín
vera að sinna einum sjúklinga
sinna.
Óperusöngkonan fræga, Maria
Meneghini Callas, tilkynnti ný-
lega, er hún fór um Orlyflugvöll-
inn við París, að hún myndi inn-
an skamms syngja fyrir Parísar-
búa. Mun hún syngja 19. des. n.k.
á hátíðasýningu í Óperunni. For-
seti franska lýðveldisins verður
að öllum likindum viðstaddur,
og mun hún syngja fyrir hann
sem Norma úr samnefdri óperu
Bellinis. — Eins og menn munu
| minnast, olli Maria Callas miklu
hneyksli, er hún neitaði að halda
as hefir aldrei sungið í París, og
í þetta sinn munu Parísarbúar
aðeins fá tækifæri til að hylla
hana þetta eina kvöld.
áfram að syngja á hátíðasýningu
í söngleikahúsinu í Rómaborg.
Gronchi, forseti Ítalíu, var við-
staddur þá sýningu. María Call-
Ekki verður betur séð, en
Paulette Goddard sé mjög ánægð
með lífið. Á myndinni með henni
er eiginmaður hennar rithöfund-
urinn Erich Maria Remarque, og
kvað hjónaband þeirra vera með
ágætum. Remarque er fjórði eig-
inmaður Paulette, og hún er önn-
ur eiginkona hans. Þau kynnt-
ust í Bandaríkjunum árið 1950,
voru um margra ára skeið góðir
vinir og harðneituðu því, að
nokkur hjónabandsáform væru á
döfinni þeirra í milli. Þau búa
í Porto Ronco við Maggiorevatn-
ið. Þó að hjónabandið sé með
ágætum — a. m. k. enn sem kom-
ið er — eru áhugamál þeirra
mjög ólík. Þegar Paulette stígur
á sjóskíði og brunar út á vatn-
ið, fer Remarque í fótabað. Með-
an hann sinnir leirmunasafni sínu
af mikilli natni, fæst hún við
blómin sín á þeim forsendum,
að hún kunni ekki að meta gamla
leirmuni. Paulette Goddard var
á sínum tíma gift Charlie Chapl-
in. Hann sagði um hana, að
engin kona í heiminum hefði eins
falleg augu og hún. Remarque
er ekki eins skáldlegur. Þegar
hann fer til móts við hana á
járnbrautarstöðina, hefir hann
jafnan meðferðis körfu með góð-
gæti í. Paulgtte er alltaf svöng,
segir hann. Raunsæið reynist
sennilega betur í hjónabandinu
en rómantíkin.
Fylgist með tímanum ^
Notið Cardaglugga
Helztu kostir Cardagiugga eru:
erii þéttir bæði gegn vatni ’og vindi. Fylgja
þeim sérstakir ofnir þéttilistar, sem setjast
í er gluggi hefur verið málaður.
Hægt er að snúa grindunum alveg við og
hreinsa allan gluggann innan frá. Er þetta
mikið atriði í íbúðum á efri hæðum húsa.
Hægt er að hafa gluggann opinn í hvaða
stöðu sem er upp í 30°.
Einangrun ágæt, þar sem tvöfaldar grindur
eru í gluggunum og nægir því að hafa 2 ein-
faldar rúður. Engin móða eða frostrósir
safnast innan á rúðurnar.
Loftræsting mun fullkomnari en við venju-
lega glugga. Verkar hér líkt og loftræsting
um reykháf.
Útsýni nýtur sín vel, þar sem hér er aðeins
1 rúða, og skyggja því ekki sprossar eða
póstar á.
Hægt er að koma rimlagluggatjöldum fyrir
milli rúðanna.
Hægt er að fara frá gluggum opnum án þess
að hætta sé á, að það rigni inn um þá.
Gluggarnir eru seldi með öllum lömum og laesingum áfestum.
'ít Glugqana skal ekki steypa i, heldur setja i á eftir
Timburverzlunin Völundur h.f.
Klapoarstíg I — Sími 18430