Morgunblaðið - 02.11.1958, Side 24
V EORIO
Norð-austan kaldi, skýjað
251, tbl. — Sunnudagur 2. nóvember 1958
Reykjavíkurbréf
er á bls. 13. )
Almennur fundur Heimdallar:
„Andleg kúgun
austan járntjalds —
Pasternakmálið"
Frummœlandi Gunnar Gunnarsson skáld
Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLD kl.
20.30 efnir Heimdallur, FUS,
til almenns fundar í Sjálf-
stæðishúsinu. — Umræðuefni
fundarins verður: „Andleg
kúgun austan járntjalds —
Pasternaksmálið“. Frummæl-
andi verður Gunnar Gunn-
arsson, rithöfundur.
Það mál, sem nú er efst á
baugi meðal alls almennings
um allan hinn vestræna
heim, eru þeir atburðir, sem
gerzt hafa í sambandi við út-
hlutun bókmenntaverðlauna
Nóbels og hin ruddalegu við-
brögð kommúnískra ráða-
manna gegn hinu mikla ljóð-
skáldi og rithöfundi, Boris
Pasternak.
Heimdallur, FUS, hefur því
ókveðið að efna til fundar um
þessa atburði nk, þriðjudags-
kvöld kl. 20,30 í Sjálfstæðishús-
inu. Frummælandinn, Gunnar
Gunnarsson, er sem kunnugt er
einn fremsti rithöfundur íslend-
inga á þessari öld. öllum er
heimill aðgangur að fundinum
meðan húsrúm leyfir.
Verk sr. Sigurðar Ein-
arssonar kynnt í dag
I gær hellirigndi í Reykjavík. Flóðgáttir himins opnuðust, og regnið streymdi niður í stríðum
straumum. Ekki var þurr þráður á þeim, sem hö fðu verið svo óhyggnir að voga sér út fyrir dyr,
án þess að klæðast góðum hlífðarfötum. Regnhlífar eru þarfaþing, þegar veðurguðirnir komast í
þennan ham, enda er unga, fallega stúlkan á my ndinni í bezta skapi, þó að rigningin dynji á regn
hlífinni hennar. Þeir munu þó hafa verið margir, sem voru í fúlu skapi, og ekki er ólíklegt, að
þeim hafi hrotið af munni nokkur ókvæðisorð. Þá er gott að minnast þess, að oft kemur skin eftir
skúr, og sakar ekki að geta þess, að Veðurstofan taldi í gær allar horfur á, að úrkomulaust yrði
í dag. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Það vantar menn í stað-
inn fyrir 200 Fœreyinga
í DAG verða kynnt í hátíðasal
Háskólans verk séra Sigurðar
Einarssonar í Holti í tilefni af
sextugsafmæli skáldsins. Kynn-
ingin er á vegum Almenna bóka-
félagsins.
Hefst kynningin með því að
Guðmundur Daníelsson, rithöf-
undur, flytur erindi um skáldið.
Guðbjörg Þorbjarnardóttir og (
Lárus Pálsson lesa kvæði, Bald-
vin Halldórsson les eina af rit-
gerðum séra Sigurðar og Þor-
steinn Hannesson syngur einsöng, j
lög við Ijóð eftir skáldið. Dr. Páil |
ísólfsson annast undirleik. Síðan
T ónlistark vimiiig
í DAG, sunnudag 2. nóv., verður
tónlistarkynning í hátíðasal Há-
skólans. Flutt verður af hljóm-
plötutækjum skólans sjötta sin-
fónía Beethovens (Pastoralsin-
fónían). Dr. Páll ísólfsson mun
skýra verkið fyrir áheyrendum.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
verður samlestur úr leikritinu
Fyrir kóngsins mekt. Haraldur
Björnsson og Ævar Kvaran lesa.
Að lokum flytur skáldið sjálft
kvæði.
Þeim er það ekki
kunimgt ístjórnar-
ráðinu
Á FÖSTUDAGINN birti Þjóð-
viljinn sem aðalforsíðufrétt, að
nú væri hætt við áformin, sem
undirbúin hafa verið í samráði
við Efnahagssamvinnustofnunina
í París, um þungavatnsvinnslu
hér á landi og sagði blaðið að
hér væri um að ræða hefndarráð-
stafanir af hendi Breta vegna
landhelgismálsins.
Morgunblaðið hefur spurzt fyr-
ir í stjórnarráðinu um sannleiks-
gildi þessarar fréttar og segja
þeir, sem gerst mega vita, að
þeim sé með öllu ókunnugt um að
málum sé svo komið sem Þjóðvilj
inn segir.
Fulltrúaráðið
i Keflavik
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðis-
félaganna i Keflavík heldur
fund í Sjálfstæðishúsinu í
Keflavík kl. 2 e.h. í dag.
Rætt verður um bæjarmál
og félagsmál.
Áríðandi að fulltrúar fjöl-
menni á fundinn.
STÖÐUGT er unnið að aukningu
Hitaveitunnar fyrir Reykjavík.
Sem kunnugt er, hafa miklar
VESTMANNAEYJUM, 1. nóv. —
Útgerðarmenn hér í Vestmanna-
eyjum hafa gert stjórnarvöldun-
um grein fyrir því, að mjög óvæn
lega horfi um ráðningu manna á
hinn mikla bátaflota á komandi
vertíð. — Þannig er ástandið í
dag, að menn sjá ekki hvernig
takast megi að fylla í skarðið, en
hér voru á síðustu vetrarvertíð
rúmlega 200 Færeyingar.
framkvæmdir staðið yfir í sam-
bandi við smíði dælustöðvar við
svonefnda Fúlutjörn. Þar var
borað eftir vatni og varð mikill
og góður árangur af því. Er nú
búið að fullgera dælustöðina og
byrjað að dæla frá henni inn
á hitaveitukerfi borgarinnar.
1 dælustöð þessa liggur einnig
æð frá holu við Nóatún. Er búið
að leggja sjálfa æðina, og
næstu daga mun verða lokið við
að tengja hana dælustöðinni.
Þegar því verki er lokið, dælir
Fúlutjarnarstöðin um 15 sek-
úndulítrum alls inn á bæjarkerf-
ið. —
Þá er verið að leggja æð frá
vatnsholunni í Flókagötu, sem
djúpborinn mikli boraði nú í sum
ar. Verður æð lögð frá þessari
holu, sem venjulega gengur und-
ir nafninu Klambratúnshola, og
niður í aðalæðina í Snorrabraut.
Vatnið í þessari holu er svo heitt
að ekki er mögulegt að beina
því rakleiðis í næstu götuæð,
en hitastigið er 110 stig og magn-
ið 5,5 seklítr. Verður byggð lítil
dælustöð við holuna og standa
vonir til að hún verði komin í
notkun um næstu áramót.
Um þessar mundir er verið að
bora eftir vatni við Sigtún og er
þar þegar komið upp dálítið
vatn, einnig er verið að bora við
Þvottalaugaveginn, en ekkert
vatn er enn í þeirri holu.
sjómaður hafi verið á hverjum
báti og flestir voru þeir 6 á skipi.
Þegar „bjargráðin" komu til
framkvæmda, var sýnt að hverju
stefndi varðandi Færeyingana,
og svo fór, að þeir hættu hér
allir og gerði enginn ráð fyrir
að koma aftur, þar eð kjörin
væru með öllu óaðgengileg.
Útgerðarmenn hér hafa gert
allt sem í þeirra valdi stendur
til að útvega menn á bátana, og
eru fyrir löngu byrjaðir að reyna
að tryggja sér menn í skiprúm.
En þrátt fyrir svo tímanlegan
undirbúning er ástandið afar
ískyggilegt.
Hér áður fyrr var mikill
straumur vertíðarfólks úr öllum
landsfjórðungum hingað til
Eyja, en ýmsar ástæður valda
því að þessi straumur fer óðum
minnkandi. Það er af þeirn sök-
um m. a. að ráða varð Færey-
ingana.
Lúðvík Jósefsson, sjávarút-
vegsmálaráðherra, var hér á
fundi um daginn með útgerðar-
mönnum, er lögðu á það sérstaka
áherzlu að hér væri um stór-
alvarlegt mál að ræða fyrir út-
gerð landsmanna, ef í ljós kem-
ur að útgerð frá Vestmannaeyj-
um kunni verulega að dragast
saman af fyrrgreindum sökum.
Ekki gaf ráðherrann neina yfir-
lýsingu varðandi lausn þessa
vandamáls á fundinum.
— Bj . Guðm.
Fjöltefli í Valhöll
kl. 2 í dag
f DAG kl. 2 e. h. hefjast að nýju
hin vinsælu fjöltefli á vegum
Heimdallar. Mun Ingi R. Jóhanns
son tefla við Heimdellinga að
þessu sinni. Teflt verður í Val-
höll við Suðurgötu. Þátttakendur
mæti stundvíslega og hafi með
sér töfl ef hægt er.
Hlutu verðlaun fyrir snyrtimennsku í búskap
Hinn 30. ágúst sl. var úthlutað verðlaunum úr Minningarsjóði séra Sigurðar Stefánssonar í Vigur
og frú Þórunnar Bjarnadóttur, konu hans. Verðlaunin, 1200 kr., hlutu Æðeyjarbændur, systkin-
in Sigríður, Halldór og Ásgeir Guðmundssynir. Verðlaunin voru veitt fyrir snyrtimennsku í bú-
skap, utanhúss og innan. — Tilgangur Minningarsjóðsins er að verðlauna bændur í Norður-fsa-
fjarðarsýslu fyrir góða umgengni utanhúss og innan, myndarskap í ræktun og byggingum, ásamt
framkvæmdum á sviði garðræktar og skógræktar. Er þetta í fyrsta skipti sem verðlaunum er
úthlutað úr sjóðnum. — Myndin hér að ofan er af byggingum í Æðey og höfn eyjarinnar. Er hún
meðal fegurstu bújarða við ísafjarðardjúp. Búa þar þrjú systkini við rausn og myndarskap.
Það má heita að færeyskur
Heitu vafni dœlt frá
stöðinni við Fúlutjörn