Morgunblaðið - 23.12.1958, Blaðsíða 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 23. des. 1958
<
v
Felur frumvarp um skuldask.il út-
gerðarmanna í sér stjórnarskrárbrot}
FUNDUR var settur í neðri deild
Alþingis á venjulegum tíma í
gær. Eitt mál var á dagskrá. Frv.
til laga um ábyrgðir á skuldum
við skuldaskil útgerðarmanna
1951 frá sjávarútvegsnefnd. Er
lagt til í frv. þessu, að 26. gr.
laga nr. 120 frá 28. des. 1950 falli
xiður, en í þeirri grein er svo
kveðið á að skuldaskilasamning-
ur haggi ekki heimild lánardrott-
ins til að ganga að tryggingu eða
ábyrgð, sem þriðji maður hafði
sett fyrir kröfum á hendur út-
gerðarmanni eða útgerðarfyrir-
tæki, sem skuldaskil fékk. Þá seg-
ir ennfremur svo í frumvarpinu:
Skuldir, sem samið var um að
gefa eftir við skuldaskil, sam-
kvæmt II. kafla laga nr. 120 frá
28. des. 1950, má ekki innheimta
hjá ábyrgðarmönnum. nema þeir
við skuldaskilin hafi tekið að sér
að greiða þær. Skuldir, sem sam-
ið var um við skuldaskil að gefa
eftir, en hafa verið greiddar, svo
og vexti, sem greiddir hafa verið
af slíkum skuldum, má endur-
krefja, nema ábyrgðarmenn hafi
tekið að sér greiðslu.
Þar eð frumvarpi þessu hafði
verið útbýtt á þingfundinum,
Myndarlegt jóla-
blað Hamars
HAFNARFIRÐI. — Jólablað
Hamars er komið út mjög fjöl-
breytt að efni og prýtt fjölda
mynda. Á forsíðu er falleg jóla-
mynd; þá er greinin Kirkjan og
trúarlífið í Hafnarfirði, sem er
viðtöl við Jóel Ingvarsson, Krist-
in J. Magnússon og séra Boots;
þá er grein um Byggðasafn í
Hafnarfirði eftir Gísla Sigurðs-
son lögregluþjón, Ólafur Þor-
valdsson þingvörður skrifar
grein, er heitir Minningar af Möl-
unum; grein er, sem heitir Frá
Betlehemsvöllum eftir Jóhannes
Jörensen; Myndaopna erfrá 50ára
afmæli kaupstaðarins; einnig er
húsmæðraþáttur, barnasíða, þátt
ur úr gömlum blöðum, gaman-
sögur, verðlaunakrossgáta og
ýmislegt annað. — Er blaðið í alla
staði hið myndarlegasta. Er það
til sölu í bókabúðum og einnig
verður það selt á götum bæjarins.
Fyrir nokkru fóru fram rit-
stjóraskipti við Hamar, Árni Gret
ar Finnsson stud. jur. lét af því
starfi, en við tók Jóhann Ragn-
arsson stud. jur. Hefir hann tekið
virkan þátt í félagslífi Háskóla-
stúdenta, t.d. var hann formaður
Vöku, fél. lýðræðissinnaðra stú-
denta og einnig formaður Ora-
tors, félags laganema í Háskólan-
um. Binda Sjálfstæðismenn mikl-
ar vonir við Jóhann, sem sýnt hef
ir það með hinu glæsilega jóla-
blaði Hamars, að hann er starfinu
vaxinn. Einnig þakka Sjálfstæðis-
menn Árna Gretari fyrir gott
starf við blaðið, en hann varð að
láta af því sökum anna. G.E.
Framlögum og ið-
gjöldum almanna-
tryggínga verði
frestað
NOKKRUM nýjum þingskjölum
var útbýtt á Alþingi í gær. Auk
þeirra, sem annars staðar er get-
ið í blaðinu, má nefna frv. til
laga um breytingu á lögum um
almannatryggingar. Frv. þetta er
flutt af heilbrigðis- og félags-
málanefnd efri deildar sam-
kvæmt ósk ráðherra. Meginmáls-
grein þess hljóðar svo: Ráðherra
er heimilt að frest:. ákvörðun
framlaga og iðgjalda Lil almanna
trygginga á árinu 1°59 þar til
fjárlög fyrir árið 1959 hafa verið
sett
þurfti að leita afbrigða til að taka
það til umræðu. Áður en forseti
deildarinnar hafði leitað eftir af-
brigðum, kvaddi Emil Jónsson
sér hljóðs utan dagskrár. Kvaðst
hann hafa séð frumvarp þetta er
það var að fara í prentun og virt-
ist sér liggja opið fyrir, að í því
fælist stjórnarskrárbrot. Þar sem
frv. hefði verið útbýtt á fundin-
um, hefði þingmönnum ekki gef-
izt kostur á að kynna sér efni
þess og vildi hann þvi mælast til
þess við deildarforseta, að hann
taki það ekki til umræðu á þess-
um fundi með afbrigðum.
Forseti deildarinnar skýrði frá
því, að hann hefði ekki lesið frum
varpið, en Lúðvík Jósefsson
kvaddi sér hljóðs og sagði, að
frumvarp þetta væri samið af
nefnd, sem skipuð hefði verið
fyrir rúmu ári. Væri formaður
þeirrar nefndar kunnur hæsta-
réttarlögmaður hér í bænum.
Hefði verið rætt við hann og
fleiri, um það hvort nokkur vafi
gæti leikið á því að flytja þetta
frv. og hefðu þeir ekki talið að
svo væri. Aðspurður skýrði Lúð-
vík frá því, að formaður nefndar-
innar hefði verið Ragnar Ólafs-
son hrl, en hann mundi ekki
hverjir höfðu verið með honum
í nefndinni. Kvaðst Lúðvik ekki
álíta neinn vafa leika á því, að
frv ætti að takast fyrir.
Deildarforseti lýsti því yfir, að
komið hefði fram ósk um að mál-
ið yrði ekki afgreitt með afbrigð-
um og yrði það því tekið út af
dagskrá. Sleit hann síðan fundi,
en boðaði jafnframt til annars
fundar síðar um daginn.
Endurbætur
á Reykholtsskóla
AKRANESI, 22. des. — Undan-
farin sumur hefur verið unnið áð
miklum endurbótum á Reykholts
skóla. í sumar voru þar um skeið
15 menn, en yfirsmiður við verk-
ið og verktaki, er Guðmundur
Jónsson, húsasmiður hér á Akra-
nesi. — Er búið að endurnýja
glugga og þak, og endurnýjuð
hefur verið einangrun í % hkt-
um hússins og að utan heiur
skólinn verið málaður. Þá hefur
verið gerður nýr gafl í samkomu
húsið á Logalandi. I sumar hefur
einnig verið unnið að smíði
barnaskóla í Reykholtsdal. Hann
stendur á Kleppjárnsreykjavöll-
um og er hitaður við forhitun
úr hinum stóra hver þar. Er vatni
veitt úr hvernum í þró, þar sem
forhitunarkerfið er. — Þórður
Eyjólfsson hefur annazt lagningu
hitakerfisins, en bróðir hans,
Bjami, annazt smíði hússins.
— Oddur.
Gerd Kaempel
Jólatónleikar Tónlistar-
félagsins
UNGUR þýzkur píanósnillingur
Gerd Kaempel, verður hér um
jólin og mun halda tvo tónleika
fyrir meðlimi Tónlistarfélagsins,
29. og 30. des., í Austurbæjar-
bíói.
Gerd Kaempel er aðeins 27 ára
gamall, en er þegar frægur píanó
snillingur og hefur ferðazt um
víða veröld, ekki aðeins Evrópu
og Ameríku, heldur og endilanga
Afríku og í Asíu. Kaempel byrj-
aði ■ átta ára gamall að læra á
píanó í smábæ skammt frá Köln,
þar sem foreldrar hans búa og
stundaði hann nám þar allt til 18
ára aldurs, er hann spilaði fyrir
hinn heimsfræga píanósnilling,
Walter Gieseking, sem tók þá
strax við honum og hafði hann
hjá sér við nám í rúm þrjú ár,
en þá var Kaempel orðinn svo
fullkominn „tekniskt" að Giesek-
ing sendi hann í konsertferð til
Ameríku, og fór hann til New
York, Washington og Boston og
síðan til New Orleans og þá á
vesturströndina til Los Angeles
og San Fransisco og þaðan til
Kúbu, Mexico og um endilanga
Suður-Ameríku. Þá hélt hann
enn námi áfram í fjóra mánuði
hjá Gieseking, en síðastliðin 5
ár hefur hann verið á óslitnu
ferðalagi um Evrópu, Asíu og
Afríku og haldið rúma 400 tón-
leika.
Kaempel hélt tónleika í Lon-
don 15. des. og fer 3. jan. til
Ósló, Stokkhólms, Helsingfors og
Kaupmannahafnar og þaðan til
Ítalíu og Grikklands. Var tæki-
færið gripið að fá hann hingað
í jólafríinu. Mun hann heimsækja
Nóbelsskáldið í Gljúfrasteini um
jólin og leika fyrir hann.
Kaempel hefur valið fremur
aðgengilega efnisskrá á jólatón-
leika Tónlistarfélagsins. Spilar
hann eina fyrstu sónötu Beet-
hovens, Sinfónískar etýður eftir
Schumann, 5 smáverk eftir
Chopin og að lokum sónötu eftir
samtíðarmann Beethovens, Dus-
sek.
Kaempel hefur komið víða við
á sínum miklu ferðum. Hann hef-
ur meðal annars heimsótt Albert
Schweitzer í Lambarene, fór 4
km á eintrjáningi til að komast til
hans og dveljast hjá honum í tvo
daga. Schweitzer átti tvo píanó-
garma.
Af ritdómum frá öllum stór-
borgum Evrópu og Ameríku verð
ur það eitt lesið, að Kaempel sé
ekki aðeins fullkominn píanisti,
heldur háþroskaður listamaður.
Þorlákur Jónsson
70 ára í dag
ÞORLÁKUR Jónsson, starfsmað-
ur Ráðningastofu Reykjavíkur-
bæjar allt frá stofnun hennar,
árið 1934, er 70 ára í dag. Hann
er ekki staddur hér í bæ um þess
ar mundir.
Eggjaskorturinn
í FRÉTT Mbl. af eggjaskortinum
hér í Reykjavík í fyrradag, brá
prentvillupúkinn á leik, mis-
ritaðist t.d. er sagt var að varn-
arliðið hefði keypt alla offram-
leiðslu af eggjaframleiðendum í
lok septembermánaðar, en átti
að vera í lok nóvembermánaðar.
Sólfaxi hafði jólasveininn Kertasníki með sér austnr að Egils-
stöðum á laugardaginn og var þeim gamla vel fagnað af mikl-
um barnahópi. Fór hann með þeim til skólahússins, sagði þeim
sögur og söng með þeim. Efndi Flugfélagið til happdrættis í
tilefni af komu jólasveinsins þangað austur og meðal vinninga
voru reiðhjól, fiugfar að austan og til baka — auk 20 smærri
vinninga. Þegar jólasveinninn kvaddi, gaf hann öllum sælgætis-
poka. Myndin er tekin fyrir austan af þeim Kertasníki og
Sveini Jónssyni á Egilsstöðum. Sveinn er með barnabarn sitt,
Sigríði Fanneyju.
Bretar þátttakendur í
kjarnorkusamsteypu
BRUSSEL. 22. des. (Reuter) — f
dag náðist samkomulag um það
að Bretland gerðist aðili að
kjarnorkusamsteypu Evrópu. í
samsteypunni voru fyrir sömu
sex ríkin og myndað hafa með
sér Evrópumarkaðinn, þ. e.
Frakkland, Vestur-Þýzkaland, ít-
alía, Holland, Belgía og Lúxem-
burg.
Kjarnorkusamsteypan mun ein
göngu vinna að friðsamlegri not-
kun kjarnorkunnar. Er það mikil-
Vægt einkum fyrir minni ríkin áð
geta átt aðild að sameiginlegum
rannsóknum, sem yrðu þeim
Bráðabir gðast j órn
í Hollandi
HAAG, 22. des. (Reuter). — Ný
stjórn hefur verið mynduð í Hol-
landi eftir nær hálfsmánaðar
stjórnarkreppu. Það er foringi
kaþólska flokksins Beel sem
myndar stjórnina, en hún er
mjög veik, studd af kaþólska
flokknum og andbyltingarsam-
tökunum. Verður þetta bráða-
birðastjórn, sem mun hafa það
hlutverk aðallega að efna til
nýrra kosninga. Utanríkisráð-
herra er J.M. Tuns úr kaþólska
flokknum.
%gging
gagnfræðaskóla
Akraness
AKRANESI, 22. des. — Bygging
Gagnfræðaskóla Akraness hófst
haustið 1957. Þetta á að vera
stór skóli og er neðan við Vall-
holt, milli Brekkubrautar og
Vogabrautar. Sprengt var fyrir
grunni snemma í sumar og grunn
urinn steyptur. Var svo hlé á
framkvæmdum meðan lagning
gangstétta stóð sem hæst og
fleiri aðkallandi störf hjá bæn-
um. í byrjun desember hófst svo
vinna að nýju við skólahúsið og
er langt komið að slá upp mótum
fyrir 4 kennslustofum. Liggja nú
framkvæmdir niðri fram yfir,
áramót vegna fjárskorts. Yfir-
smiður er Halldór Bachmann.
— Oddur.
Leiðrétting
frá V.R.
Jólatrésskemmtanir Verzlun-
armannafélags Reykjavíkur
verða haldnar 2. og 3. janúar nk.,
en ekki annan jóladag eins og
auglýst hafði verið.
hverju fyrir sig ofviða. Þátttaka
Breta í kjarnorkusamsteypunni
mun mjög styrkja hana, enda eru
Bretar nú lengst komnir Evrópu-
þjóða í nýtingu kjarnorku.
Jólablað
Spegilsins
JÓLABLAÐ Spegilsins er nýlega
komið út. Af efni þess má nefna:
Faraldur atvinnulaus, Fyrir sunn
an Fríkirkjuna (vígsluljóð í 2
þáttum), Búsveltu- og bjargráða-
annáll anno MCMLVIII, Flat-
rímsþátturinn, Þegar jólastúlkan
kom, Stór eða lítill, Á góðra vina
fundi (kvæði), Frá Englum
ofanjarðar og neðan eftir Eir-
Ketil, Úr Eilífs sögu ræfils, eftir
Dúk og Disk (verðlaunasaga mán
aðarins).
Þá er og í þessu blaði þáttur
um daginn og veginn, Hollívúdd-
síða, Kvennasíða, Ruslakistan
o. fl., auk margra mynda af inn-
lendum og erlendum höfðingjum.
Gjafabók Norræna
félagsins og Nor-
ræn tíðindi
E IN S og undanfarin ár sendir
Norræna félagið félagsmönnum
sínum gjafabók. Að þessu sinni
er það fræðslurit um Skán, prýtt
rösklega 100 ljósmyndum. Ritið
er gefið út af Norrænu félögun-
um í Danmörku og Svíþjóð sam-
eiginlega, en í ár eru 300 ár liðin
síðan friðarsáttmálinn í Hróars-
keldu var undirritaður, þar sem
Danmörk lét Skán af hendi við
Svíþjóð. Bókin um Skán er not-
uð sem gjafabók allra Norrænu
félaganna í ár, en nú eru félags-
menn allra félaganna samtals
rösklega 125 þúsund.
Norræn tíðindi
Þá er desemberhefti „Nor-
rænna tíðinda" komið út. Hefst
það á ávarpi Gunnars Thorodd-
sens, formanns Norræna félags-
ins. Þá er sagt frá fulltrúafundi
Norrænu félaganna í Helsing-
fors, sjötta þingi Norðurlanda-
ráðs, störfum norrænu menning-
armálanefndarinnar, norrænu
söngmóti 1958 og vinabæjamót-
unum hér sl. sumar. Birt er þýtt
ljóð eftir Viktor Rydberg, Thor-
geirs Anderssen-Rysst er minnzt,
Lúðvík Guðmundsson segir frá
norrænu listiðnaðarsýningunni í
París og loks er frásögn af knatt-
spyrnuferð til vinabæja í Finn-
landi og Svíþjóð.
Ritstjóri „Norrænna tíðinda1*
er Magnús Gíslason.