Morgunblaðið - 23.12.1958, Side 10
10
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 23. des. 1958
Steinn Emilsson, Bolungarvík 65 ára
Blöndal listmálara)
„HVAR skal byrja, hvar skal
standa?“.
Þannig kvað skáldið Matthías.
í dag stend ég í sporum skálds-
ins. Mér er það vandaverk á
höndum að skrifa um bezta vin
minn í Bolungarvik á merkum
tímamótum í ævi hans. Steinn
Emilsson er sérstæður persónu-
leiki í íslenzku þjóðlífi, en með
skáldinu skal undir það tekið,
að erfitt er að festa hendur á
verkefninu.
Auðvelt er svo sem að láta
staðreyndirnar tala. En hvort þær
segja nóg, er annað mál.
Steinn Emilsson er fæddur að
Kvíabekk í Ólafsfirði 23. des-
ember 1893. Foreldrar hans voru
Emil Guðmundsson, prestur þar,
og Jane Marie Margrét Steins-
dóttir Steinsen, bæði af gagn-
merkum ættum komin. Steinn
varð gagnfræðingur 1915, og hóf
síðan nám í Menntaskólanum i
Reykjavík, og lenti í skálda-
bekknum svokallaða, enda eitt
af þeim frægu skáldum.
Hann hvarf frá því námi. Séra
Árni Sigurðsson sálugi fríkirkju-
prestur segir eftirfarandi í grein
sinni í bókinni „Minningar úr
Menntaskóla":
„Um mína daga var allt yfirleitt
kyrrt milli kennara og nemenda,
og hirði ég ekki að telja þær
smávegis snurður, sem hlupu á
þráðinn þessa vetur, og varla
verður með öllu hjá komizt í
slíkum tilfellum. Helzt væri þá
að nefna úrsögn eins skólapilts
úr skólanum, sem varð fyrir þá
sök, að hann taldi sig hafa hlotið
áminningu að ósekju. Olli úr-
sögn hans óánægju allmargra
skólapilta, því að hann var dreng
ur góður og vel látinn af félög-
um sínum og kunningjum“.
Það var Steinn Emilsson, sem
þepnan vitnisburð fékk.
Eftir þetta lauk hann stúdents-
prófi í Noregi, stundaði síðan há-
skólanám um hríð í Þýzkalandi,
m.a. við háskólann í Jena.
Á útivistarárum sínum reynd-
ist hann íslendingum ytra hinn
bezti stuðningsmaður og kunna
margif honum miklar þakkir
síðan. Frá þeim tíma er og
mynd sú, sem með þessum lín-
um birtist, en hún er gerð af
herbergisfélaga hans í Ósló,
Gunnlaugi Blöndal listmálara.
Eftir heimkomuna ferðaðist
hann mikið um ísland og hefur
af óþrjótandi elju og elsku rann-
sakað náttúru þess. Lengi mun
nafni hans á loft haldið af þeim
mönnum, sem að þeim rannsókn-
um vinna, því að Steinn hefur
meðal annarra verka fundið elztu
menjar um líf á íslandi og eng-
inn mun honum nú fremri í leir-
fræði og steinafræði íslands hér
á landi, og þótt til annarra landa
væri leitað.
Snemma lá leið hans til Vest-
fjarða. Hann var efnafræðingur
Sólbakkaverksmiðjunnar í Ön-
undarfirði um tíma, og þann
tíma, sem hann var á ísafirði,
var hann ritstjóri Vesturlands,
blaðs vestfirzkra Sjálfstæðis-
manna.
Nokkrum árum fyrir 1930 kom
hann hingað til Bolungarvíkur,
og ekki hafa margir aðrir mark-
að dýpri spor í sögu þessa byggð-
arlags en Steinn.
Hann stofnaði hér unglinga-
skóla 1928, og var skólastjóri hér
um langa hríð. Nemendur hans
fjölmargir um ísland nú, vitna
um frábæra kennarahæfileika
hans. Hann hefur um langt ára-
bil verið hér sparisjóðsstjóri og
stýrt þeirri stofnun af einskær-
um áhuga og árvekni, og orðið
valdur að einhverri stórkostleg-
ustu byltingu í byggingarsögu
eins byggðarlags á fslandi, sem
um getur. Mun honum seint
gleymd sú þjónusta. Hann hef-
ur einnig starfað mikið að félags-
málum hér, verið um langt skeið
hreppsnefndarmaður og gegnt
fjölmörgum öðrum trúnaðarstörf-
um.
Mér persónulega er það einstak
lega ljúft að votta honum mikla
þökk fyrir 5 ára samstarf í skatta
nefnd Hólshrepps, þar sem hann
hefur af fyllstu skyldurækni
gegnt ábyrgðarmiklu starfi.
Hann kvæntist árið 1931 Guð-
rúnu Hjálmarsdóttur frá Meiri-
Hlíð í Bolungarvík, ágætri konu,
og hefur eignazt með henni 4
mannvænleg börn, Rún, Stein-
gerði, Vélaugu og Magna, sem
eru hvert öðru ágætara.
Þannig eru upptaldar í stór-
um dráttum staðreyndirnar í lífi
Steins Emilssonar, en þær lýsa
tæplega manninum. Svo ótal-
marga aðra kosti á hann til að
bera.
Mér og minni fjölskyldu hefur
hánn reynzt sannur vinur, og
kunnum við honum fyrir það
beztu þakkir.
Sjálfsagt munu margir segja,
að ekki sé Steinn laus við bresti
ýmiss konar, en hver er sá mað-
ur, sem af því getur hælt sér?
Fer enda bezt á því, að kostir
og gallar haldist í hendur í góðu
jafnvægi, og þá munu menn
mestir í íslandssögu bæði fyrr
og síðar, þar sem svo er.
Steinn Emilsson er maður, sem
fer sínar eigin leiðir, engum háð-
ur, alltaf glaður og reifur, víð-
feðma í þekkingu sinni og mann-
reynslu, og standa honum þar
fáir á sporði.
Skyldustörfum sínum við
Sparisjóð Bolungarvíkur, í skatta
nefnd og hreppsnefnd Hóls-
hrepps, og síðast en ekki sízt
við barna- og unglingaskólann í
Bolungarvík, hefur hann gegnt
af stakri prýði, svo að þar á hef-
ur enginn skuggi fallið.
Hann er í engu meðalmaður.
Hann fer þá vegi, sem þeim ein-
um hentar, sem góður guð hef-
ur gefið aflið góða, til að vera
ofar samferðamönnum sínum og
á þann veg vil ég minnast hans
á þessum tímamótum í ævi hans.
Ég veit að þessar línur mínar,
eru bæði fátæklegar og smáar.
Ég hefði kosið að geta lýst mann-
inum Steini Emilssyni eins og
hann raunverulega er, sérstæð-
um persónuleika, sem menn eiga
ekki kost á að kynnast nema einu
sinni á öld.
Ég bið Stein afsökunar, hafi ég
eitthvað missagt, en ég veit,
að ég hef í engu ofsagt, það geta
allir vinir hans vottað.
Leyfist mér svo að enda þessa
afmælisgrein á þeim vísum, sem
öldruð vinkona hans í Bolungar-
vík, Guðlaug Guðnadóttir, hef-
ur um hann ort, og sem máske
lýsa honum allra bezt:
íturvaxinn er og beinn
oft til greiða hraður.
Allir vita, að hann Steinn,
er elskulegur maður.
Lifnar gleði, líka mál,
leynist töfrakraftur.
Við skulum lyfta vinarskál,
ég verð að sjá þig aftur.
Er hér gestur ungur sveinn,
yrkir beztu ljóðin.
Öðrum mestur er hann
Steinn,
opnar flestum sjóðinn.
Að síðustu, Steinn minn góð-
ur! Beztu þakkir fyrir viðkynn-
inguna. Mættum við oft mætast
í „Inter nos“ í góðu tómi og
rabba um lífið og tilveruna.
Lanolin Plus
GJAFAKASSAR
með nytsömum snyrtivörum fyrirliggjandi.
Fást í flestum lyfjabúðum og víðar.
Heildsöiubirgðir:
qeséaf
ARNI GESTSSON
UMBOÐS OO HEILDVERZLUM
Hverfisgötu 50 — Sími 17148.
BÓK
jONAS JONSSON
y | H LAN O
H|0 GOO^
Aðalumboð: Bókaforlag Odds Björnssonar.
Eftir Jónas Jónsson frá Hriflu
Allir eru sammála um að Jónas Jónsson
frá Hriflu sé ritsnjallasti Islendingur sem nú
er uppi.
í þessari bók kennir margra grasa. Kafl-
inn „Vínland hið góða“ er upphaf að ferða-
þáttum um Ameríkuför Jónasar 1938.
1 þessari bók er ítarleg ritgerð um Halldór
Kiljan Laxness, þar sem leitast er við að móta
frumdrætti að nýju viðhorfi til skáldsins í
Gljúfrasteini, með því að tengja sögu hans
við umhverfi, ætterni og áhrif frá æskudög-
um.
Bókin er 268 bls. Verð kr. 150,00 í bandi.
Lifðu heill, góði vinur.
Friðrik Sigurbjörnsson.