Morgunblaðið - 23.12.1958, Page 17
Þriðjudagur 23. des. 1958
MOttCTJNTtT, 4ÐIÐ
Kristmann Guðmundsson skrifar um
BÓKMENNTIR
íslandsferðin 1907
17
Gólfteppi
margar stærðir — fallegir litir
Gangadreglar
mjög fallegt úrval
TEPPAMOTTUR
GÚMMIMOTTUR
GEYSIR H.F.
Teppa- og Dregladeild
Islandsferðin 1907.
Eflir Svenn Poulsen og
Holger Rosenlierg.
ísafoldarprenlsniiðja.
Geir Jónasson þýddi.
ÞAÐ má merkilegt heita að þessi
bráðskemmtilega og fróðlega bók
skuli ekki fyrr hafa verið átlögð
á íslenzka tungu. En betra seint
en aldrei og víst er hún enn í fullu
gildi, sem menningarsögulegt
plagg og ferðasaga. Frásögnin er
511 létt og lifandi, hress og hlýleg,
vinsamleg í vorn garð og rituð af
einlægum vilja til skilnings á ísl.
þjóðinni.
, Tilefni ferðar þessarar var það,
að Friðrik VIII. bauð alþingis-
mönnum og ráðherrum íslands til
Danmerkur. Þetta gerðist 1906,
sama ár og hann kom til ríkis, að
látnum föður sínum, Kristjáni
IX., en konungur sá færði oss
stjórnarskrána á þjóðhátíðinni
1874, eins og kunnugt er. Var Is-
lendingunum forkwnnar vel tekið
á Danagrund, og mynduðust þá
tengsl vináttu og skilnings, er
vafalaust hafa haft mikla þýð-
ingu.
Árið eftir kom svo konungurinn
til íslands, ásamt syni sínum,
Haraldi og ýmsu öðru stórmenni
dönsku, m. a .fjörutíu þingmönn-
íim. Reyndu Islendingar að taka
vel á móti þeim, og virðast gest-
irnir hafa verið hinir ánægðustu.
Tveir merkir blaðamenn voru í
fylgd konungs, þeir Svenn
Poulsen og Holger Rosenberg. —
Hinn fyrrnefndi var bróðir leik-
aranna miklu og frægu, Jóhannes
ar og Adams Poulsen. Hann var
um langt skeið starfsmaður
Berlingslœ Tidende og um tíma
meðritstjóri þess blaðs. Varð hann
svo hrifinn af Islandi, að hann
keypti sér jörð hér, Bræðratungu,
og kom hingað mörgum sinnum.
Rosenberg var enn frægari sem
blaðamaður, enda fór hann víða
um lönd og ritaði ferðaþætti í
mjög útbreidd blöð_ svo sem
Familie Journal og fl.
Islandsferðin hófst 21. júlí og
var komið við í Færeyjum. Var
mikið um dýrðir við brottförina
og er henni vendilega lýst, svo og
herbergjaskipun konungs og kon-
ungssonar um borð í skipi þeirra,
Birmu. Gekk ferðin vel, nema
hvað ofurlítil ylgja spillti matar-
lystinni einn daginn. Er lýsingin
af skipunum og ferðafólkinu bæði
fróðleg og fyndin.
Þá er langur og fjörlega ritað-
ur kafli um Færeyjar og móttökur
þar. Má af honum fræðast um
fólk og landkosti í eyjum þessum
á öndverðri öldinni.
Þrítugasta júlí kom konungs-
skipið til Reykjavíkur. En þá
voru raunar önnur skip komin
þangað með fjölda farþega frá út-
löndum, einkum Danmörku. — En
l'ítið var um gistihús í höfuðstaðn-
um handa svo mörgu fólki. Hótel
Reykjavík og Hótel Island voru
þegar yfirfull, öll herbergi ieigð
meðlimum ríkisþingsins og öðru
fyrirfólki. En leyst var úr mesto
vandanum með því að koma gest-
um fyrir á reykvískum heimilum.
Reykjavík hafði þá stækkað ört að
undanförnu og voru íbúar hennar
orðnir tíu þúsund. Farið er jafn-
vel að tala um slíka dýrð sem mal-
bikaðar götur og rafmagnsljós.
Þess er getið, að fluttar séu út
vörur fyrir á að gizka fimm millj-
ónir króna árlega, en gestunum
þykir helzt til mikill blaðakostur
landsmanna í hlutfalli við íbúa-
tölu. Víðlesnasta blaðið er Isa-
fold_ „sem Björn gamli Jónsson
gefur út, aldraður og hjartahlýr
hugs jónamaður".
Fánastríðið er hafið: „Var þrátt
að um í ákafa, hvort stjórnarand-
staðan skyldi flagga hjá sér kon-
ungsdagana, með hinum bláhvíta
krossfána eða dönsku litunum“.
Nokkrir bláfánar blöktu á stöng-
um þegar fyrstu gestirnir komu,
en þegar konungur steig á Iand
sást enginn!
„Morguninn reis_ bjartur og
fagur, eins og danskur haustdag-
ur við sólax’upprás". Gestirnir
hrífast ákaflega af fegurð lands-
ins, og hvarvetna e.r fögnuður og
gleði. Lýsingin á Reykjavík þenn-
an fagra morgunn og móttökun-
um, er frábærlega lifandi og
fjörleg. öllu er tjaldað, sem til er,
einnig stórmenni því, er landið hef
ur á að skipa: Þar eru þeir
Lárus Sveinbjörnsson dómstjóri,
(bróðir tónskáldsins), Kristján
Jónsson og Jón Jensson yfirdóm-
arar_ Hallgrímur Sveinsson bisk-
up, Eiríkur Briem forseti sam-
einaðs Alþingis, Júlíus Havsteen
fyrrum amtmaður, Magnús Step-
hensen, fyrrum landshöfðingi,
Klemens Jónsson landritari, Jón
Magnússon — þá mikilvirkur
meðlimur móttökunefndar. Aðrir
meðlimir hennar voru: Jón
Jakobsson landsbókavörður, Guð-
mundur Björnsson landlæknir,
Skúli Thoroddsen ritstjóri, —
Tryggvi Gunnarsson bankastjóri,
Björn M. Ölsen Þórhallur Bjarna
son og Axel Túlinius.
Hannes Hafstein ráðherra tók
á móti konungi á Steinbryggjunni
fornu_ s«m allir gamlir Reykvík-
ingar kannast við. Heilsuðust þeir
með handabandi, en ráðherra var
lágmæltur, er hann sagði: „Vel-
kominn til þessa hluta ríkis yðar,
he.rra konungur!“ Heyrði enginn
þau orð greinilega nema Haraldur
prins.
Veizla var konungi og föru-
neyti hans haldin í Alþingishús-
inu, en mjög var mikið um dýrð-
ir hvarvetna í Reykjavík.
Síðar var haldið til Þingvalla,
Framh. á bls. 23.
J Ó L A B
Virkir dagar
Ævisaga Sæmundar
Sæmundssonar skipstjóra:
Með þessu stórmerka riti er
Guðmundur Hagalín að rita
nýjar íslendingasögur, aldar-
spegil þjóðarinnar á mótum
sérkennilegrar fortíðar og um-
svifamikillar nútíðar.
Enginn hefur reynzt Haga-
lín snjallari í þessari bók-
menntagrein.
Virkir dagar eru og munu
verða, sem hinar gömlu ís-
lendingasögur, hornsteinn að
varðveizlu íslenzkrar tungu
og íslenzks þjóðernis.
Vilhjálmur Finsen:
Hvað landinn
sagði erlendis
Vilhjálmur Finsen, jöfur og
öldungur íslenzkra blaða-
manna, var um lengri tíma
starfsmaður hinna stærstu
blaða Noregs. Fyrr og síðar
hefur hann kynnt land sitt og
þjóð á erlendum vettvangi
með fjölda viðtala við ýmsa
merkustu menn þjóðarinnar.
Mun lesandinn fá í bók þess-
ari glögga mynd af gangi
landsmálanna hér heima.
Æ K I) R
IMORÐRA
í bókinni birtast viðtöl m.a.
við eftirtalda menn:
Pétur Jónsson söngvara
Sigurð Eggerz
Svein Björnsson
Lárus Bjarnason
Sæm. Bjarnhéðinsson
Geir Zoega
Gunnar Egilsson
Knud Zimsen
Finn Jónsson prófessor
Bjarna frá Vogi
Jón Þorláksson
Þorstein Gíslason
Davíð Stefánsson
Jóh. Jóhannesson bæjarf.
Tryggva Gunnarsson
Pétur A. Ólafsson
Jón Árnason
Ólaf Johnson
Magnús Sigurðsson
Einar Benediktsson
Gunnar Ólafsson
Garðar Gíslason
Pál Eggert Ólason
Jón Laxdal 1
Guðm. Jónsson skipstjóra
Kristm. Guðmundsson rith.
Ágúst Kvaran
Ragnar Ólafsson
Gunnar Gunnarsson
Þórarinn Kristjánsson
Sigurð Nordal
Ben. G. Waage
Carl Sæmundsson
Lúðvík Guðmundsson
Sig. Sigurðsson
Klemenz Jónsson
Jón Sívertsen
Óskar Halldórsson \.
Guðm. Grímsson dómara 1
Ingvar Guðjónsson
Ásgeir Ásgeirsson forseta
Ólaf Proppé
Ólaf Thors
Steingr. Jónsson rafm.stj,
Árna Eylands ,
Magnús Jónsson
Jónas Þorbergsson
Hermann Jónasson
L. H. Múller
Agnar Kofoed-Hansen
Thor Jensen
Emil Nilsen
O. Tynæs
Ludvig Kaaber
Harald Faaberg.
Auk Viðtalanna er frásögn
af undirbúningi og fram-
kvæmd „Dönsku nýlendusýn-
ingarinnar 1905“, er vakti ó-
hemju gremju meðal íslend-
inga, en gerði um leið landan-
um Ijóst, hve mikill fjöldi
verðmætra forngripa hafði
farið úr landi á ólöglegan hátt.
Hygea ÍJj hefur
úrval af
ILMVÖTNUM
STEINKVÖTNUM
GJAFAKÖSSUM o. fl.
(Reykjavíkur Apóteki) Sími: 1 98 66.
Höfum aftur fengið hin hentugu
Ufvarpsborð
úr teaki með plötuspilara á kr. 3200. —
án plötuspilara á kr. 1900. —
Radiostofa
Vilbergs & Þorsteins
Laugaveg 72 — Sími 10259.
J