Morgunblaðið - 23.12.1958, Blaðsíða 22
MORGrWBL AÐ1Ð
Þriðjudagur 23. des. 1958
22
Hafnarstræti 5.
Laugaveg 89.
Hafnarstræti 11.
Hafnarstræti 5.
Hvað er bak við myrkur lokaðra augna?
SJÁLFSÆVISAGA yogans Par-
amhansa Yogananda svarar þess-
ari spurningu. Slíku verður ekki
svarað með einni setningu. En
hitt er víst að lesandi þessarar
bókar verður furðu lostinn yfir
þeirri veröld andans, sem þar er
brugðið upp.
Við íslendingar erum undar-
legt sambland raunsæismanna og
dulfræðinga; eða hvaða önnur
þjóð gæti fóstrað í einum manni
yogalærisvein, dulfræðing, spirit
ista og kommúnista?
Ef til vill er ein ástæðan sú, að
í sálarlífi íslendings fer saman
sterk þrá til réttlætis og upp-
reisnar og djúp trúarþörf.
í lýsingunni á því, hvernig
meistari höfundar læknar hann
af megurð eftir langvarandi
veikindi, þannig að ættingjar
hans ætla ekki að trúa sínum
eigin augum, erum við minnt á
orð meistara kristinna manna:
„Fyrir því segi ég yður, hvers svo
sem þér biðjið og beiðist, þá trú-
ið, að þér hafið öðlazt það, og
þér munuð fá það“. (Mark. XI.,
24.).
„Sagan af Adam og Evu er
mér óskiljanleg", segir höfundur
dag nokkurn við meistara sinn.
Hann svarar:
„Fyrsta bók Móse er mjög
táknræn og hún verður ekki skil-
in eftir bókstafnum Lífsins tré
er mannlegur líkami. Mænan er
sem tré, er snýr öfugt og hár
mannsins er sem rætur þess, en
ytri og innri taugar greinar ....
Höggormurinn táknar upphring-
aða orku mænunnar, sem örvar
kyntaugarnar. Adam er skynsem
in. Eva er tilfinningarnar. Þegar
tilfinningarnar eða Evuvitundin
í manninum er borin ofurliði af
kynhvötinni, býður skynsemin
eða Adam lægra hlut .... Þann-
ig varð tvískiptingin eða and-
stæðurnar tvær, sem öll fyrir-
brigði heimsins eru grundvölluð
á. Vit og tilfinning sérhverrar
mannlegrar veru ríkir í himni
samræmisgleðinnar, svo lengi
sem hugur hans er ekki bundinn
spilltum öflum dýrslegra tilhneig
inga.
Líkami mannsins er þar af leið
andi ekki aðeins árangur í þró-
unarframrás dýranna, heldur er
hann fram kominn við ákveðna
skapandi ráðsályktun Guðs.
Gerfi dýranna var of gróft til
þess að opinbera guðdóminn að
fullu. Mannverunni var einnig
gefinn mikill andans máttur,
hinn þúsundblaðaði lótus heilans,
ásamt ósýnilegum vakandi og
skarpskyggnum miðstöðvum
mænunnar.
.... Fallinn í blekkingu vegna
misnotkunar tilfinninga sinna og
skynsemi, eða vegna Adams og
Evu vitundarinnar, hefur maður-
inn yfirgefið garð guðdómlegra
gnægða“.
Hvernig fóru hinir helgu menn
að ganga á vatni? Hvernig gat
Kristur vakið krossfestan líkama
sinn aftur til lífs? Þessum spurn
ingum og ótal fleiri er svarað í
þessari bók.
„Já“, segir nú kannske einhver
lesandi, „en við lifum á atóm-
öld. Hvað varðar okkur, upplýst
fólk, um svona hátrúarhjal?"
Alveg rétt, við lifum á atom-
öld. Öldinni, þegar orðið „ómögu
legt“ er að verða úrelt! Og þeg-
ar við horfum undrandi og van-
máttug á einkenni þyngdarlög-
máls og rafmagns, sem enginn
veit hvað er í rauninni, þá skul
um við minnast orða sjálfs Marc
onis: „Vanmáttur vísindanna til
þess að leysa gátu lífsins er al-
gjör. Þetta værii sannleika hræði
leg staðreynd, ef við hefðum ekki
trú. Leyndardómar lífsins eru
vissulega þrálátasta vandamál
mannlgrar hugsunar".
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undan-
gengnu lögtaki þann 11. des. s.l. verður bifreiðin
R-3792 seld á opinberu uppboði, sem haldið verður
við húsið Þinghólsbraut 14, Kópavogi, þriðjud. 30.
des. 1958 kl. 15. —
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
' Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Laugaveg 89.
Hafnarstræti 11.
Fallegasti jóla-
kjóllinn og falleg-
arsta jólakápan
fæst hjá okkur
Góður eiginmaður lætur ekki konuna fara í jóla-
köttinu. ■'
MARKADURIKM
• Laugaveg 89.
uuBUR-irm
Hafnarstræti 8 Kvk
Hafnarstræti 11 Bvk
Laugaveg 89 Rvk
Geislagötu 6 Akureyri
Lœknir
óskar eftir 2ja—4ra herbergja íbúð sem fyrst, helzt
í Austurbænum. Upplýsingar í síma 16887 í dag
kl. 14—19.
Krystall
Postulín
íslenzkur leir
T r é v a r a
Skartgripir
Silfurplett
Vefnaður
og margt fleira til jólagjafa
S T O F A N
Hafnarstræti 21, sími 10987.
Bólsturhúsgögn
og svefnsófar
Áklæði í mjög miklu úrvali. — Hagkvæmir greiðslu-
skilmálar.
Trésmiðjan V í ÐI R
Laugaveg 166.
Pakkhúsmaður
Reglusamur og duglegur maður getur fengið atvinnu
við verkstjórn.
Mjólkurfélag Reykjavlkur
Laugaveg 164.
Og hvað segir snillingurinn,
sem lagði grundvöllinn að því að
máttur atómsins var leystur úr
læðingi? (Kjarni afstæðiskenn-
ingarinnar er hraði ljóssins
(229.786 km. á sekúndu) og með
henni opnaðist stærðfræðilegur
vettvangur til að kanna frum-
eindina til fullnustu). Einstein
segir:
„Hið fegursta, sem hægt er að
kynnast, er hið dulræna. Upp-
spretta allrar sannrar listar og
vísinda. Sá, sem ekki þekkir
þessa tilfinningu og getur ekki
hvílt hugann og undrazt í lotn-
ingarfullri aðdáun, hann er sama
sem dauður". („Lifandi heim-
speki“).
Skáldin hafa lengst af verið
spámenn íslenzku þjóðarinnar.
Hér getum við einnig minnzt
orða Davíðs Stefánssonar um
hina indversku vitringa:
Fáir sjá það, sem fjöll og firnindi
hylja,
fræðast og skilja
lögmálsins leyndardóm.
Bak við allt sjá þeir voldugan
vilja,
sem verndar hvert lótusblóm.
Ég hygg, að hverju sem menn
trúa geti þeir notið þessarar bók-
ar. Maður, sem er höfundi algjör-
lega ósammála í öllum aðalatrið-
um hlýtur þó að skemmta sér
við lestur hennar, sökum al-
menns gildis hennar sem bók-
mennta. Stíllin er fjörugur, lit-
ríkur og lifandi. Það má venju-
lega skipta bókum í þrjá flokka.
Þær, sem maður les og gleymir
síðan fljótt; þær sem maður les
og minnist lengi, og þær sera
maður les og verður að lesa aft-
ur. Þessi bók tilheyrir síðasta
flokknum. ,
Ég vil færa frú Ingibjörgu
Thorarensen þakkir fyrir að hafa
íslenzkað þessa bók, en það er
vandaverk, sem hún hefur leyst
vel af hendi. Megi hún færa okk-
ur á íslenzku fleiri erlendar bæk
ur jafngóðar og göfgandi.
Ævar R. Kvaran.
\