Morgunblaðið - 23.12.1958, Qupperneq 23
Þriðiudágur 23. des. 1958
MORCVNBLAÐIÐ
23
Jólakveöja
Á JÓLUNUM senda menn vinum
og kunningjum kort og kveðjur
eða þeir sem telja sig hafa efni
eða ástaeður til gefa fagrar gjafir.
Ekki fer það ætíð eftir efnum og
ástæðum hvort gjafirnar eru
smáar eða stórar, heldur miklu
fremur eftir skapgerð og tilfinn-
ingalífi gefandans. Það er nú svo
að flestir þeir sem jólin hafa ein-
hverja merkingu fyrir munu vera
tilfinninganæmari, bljúgari í
hugsun og þá einm. við slík tíma-
mót hafa löngun til þess að láta
eitthvað gott af sér leiða í orði
eða verki. Sumir hafa það fyrir
venju að færa kunningjum einnig
áramótaósk á jólakortinu, þakka
fyrir gamla árið og óska heilla og
velfarnaðar á komandi ári og svo
verður gert hér.
Það verður aldrei um það deilt
að í okkar þjóðfélagi er það öðr-
um fremur ein stétt manna, sem
fer á mis við jólahelgina, en það
er sjómannastéttin. Sjómannin-
um verður hvorki með kortum,
skrifum eða skeytum bættur sá
söknuður og sársauki, sem hann
líður við að geta ekki verið meðal
ástvina og kunningja, er jólahelg
in gágntekur hugi manna. Enda
þótt þetta eigi að heita jóla og
áramótakveðja til allra sjó-
manna, var þó að gefnu tilefni
ætlunin að minnast sérstaklega
einnar deildar innan sjómanna-
stéttarinnar, varðskipsmann-
annna. Við sem höfum verið á
sjónum undanfarna áratugi,
þekkjum þá sorgarsögu, sem
gerzt hefur í varðskipsmálum
okkar. Við eigum að vísu varð-
skip, en afar óíullkomin. Að
sjálfsögðu ræður þar mestu um
fjárhagslegur vanmáttur okkar.
En einnig fyrirhyggju, og skiln-
ingsleysi á hinu mikilvæga hlut-
verki landhelgisgæzlunnar, og
það er hollast að viðurkenna þá
staðreynd hreinskilnislega, að
af miklum fjölda íslenzkra þegna
hefur til skamms tíma verið litið
á störf varðskipsmanna sem lítt
nauðsynleg. Ég hefi oft orðið þess
var í tali manna, að þetta væri
eiginlega mest til þesss að sýnast,
að vera að hafa þessi varðskip
og þann hóp manna, sem þar eru
launaðir af ríkinu til lítils gagns.
Þetta verður þó að fyrirgefa að
nokkru, því við höfum annan og
ónæmari skilning á þessu en
hernaðarþjóðir sem alast upp við
þá trú að vald þjóðanna út
á við og inn á við byggist á fall-
byssukúlum og byssustingjum.
Eftir þá atburði, sem gerzt hafa
við strendur landsins, á líðandi
ári hljótum við að skipta um skoð
un. Við höfum áþreifanlega feng
ið að finna fyrir því að varðskip-
in eru þjóðamauðsyn. Við höfum
einnig fengið áþreifanlega sönn-
un fyrir því að á þessum skipum
starfar hópur manna, sem er sómi
íslenzku sjómannastéttarinnar. í
orði og athöfn hafa þeir sýnt og
sannað, að þeir eru hvers manns
virðingar verðir. Við dáumst oft
að hörku og harðfylgi víkinga
fornaldar okkar. Oss hefur fund-
izt það lýsa kappi og skiljanlegu
áræði að berjast með vopnum, en
hvað megum við þá segja um
sálarþrek, skapfestu og stillingu
þeirra manna, sem eiga hlaðna
skammbyssu í vasanum, en
skjóta ekki þótt þjófurinn reki
rýting í bak þeim, vegna þess að
þeir vita að heiður þjóðar þeirra
er í veði.
Þessum mönnum vildi ég alveg
sérstaklega senda jóla og nýárs-
kveðjur. Þakka þeim dáðríkt og
drengilegt starf á liðnu ári og
óska þeim gæfuríks komandi árs.
Ég óska þess af heilum hug, að
þeir megi á komandi ári sjá upp-
rísa sól réttlætisins og að þeir
megi allir lifa það að njóta verm
andi geisla þeirrar sólar. Hafið
þjóðarþökk og virðing fyrir starf
ykkar.
Hallfreður Guðmundsson.
77/ jólagjafa
Skíöi
Skaular
Körfuboltaspil
Hringjaköst
„Stúdentinn44
Manntöfl
Taflsyrpur
Lúdó
Borðtennis-sett
Badmintonspaðar
Aflraunagormar
Atlaskerfi
Sunabolir
Sundskýlur
Svefnpokar
Ferðaprímusar
Gúmmíknetti r
Skíðaskór
Knattspxmuðkór
íítiæfingaföt
Ailt til íþróttaiðkana
HELLAS
Skólavörðustíg 17.
Sími 1-51-98.
Rússar œtla að auka
verulega framlög til vís-
inda og mennta
MOSKVU, 22. des. — NTB —
Sovétstjórnin lagði í dag
fram fjárlagafrumvarp fyrir
næsta ár. Mesta athygli vek-
ur, að framlög til vísinda og
kennslumála eru stórkostlega
aukin. Þótt rússnesk fjárlög
séu óglögg og framlög til
vopnaframleiðslu séu falin
undir framlögum til vísinda,
er þó enginn vafi talinn á því,
að Rússar hafa í hyggju að
auka verulega framlög til vís-
indalegra rannsókna.
Æðstaráð Sovétríkjanna, sem
er eins konar þjóðþing Rússlands,
kom saman í dag. Á fyrsta degi
þingsins lagði ríkisstjórnin fram
fjárlagafrumvarpið. Það kemur í
ljós af frumvarpinu, að framlög
til landvarna og yfirstjórnár rík-
isins lækka nokkuð. Þrátt fyrir
það eru niðurstöðutölur fjárlag-
anna 722 milljarðar rúblna, um
80 milljörðum rúblna hærri en á
þessu ári. Stafar hækkunin mest
N ámu verkamenn
fyrir rétt
MADRID, 22. des. (Reuter). —
32 námuverkamenn á Norður-
Spáni hafa verið leiddir fyrir rétt
sakaðir um ólöglega kommúníska
starfsemi. Er því haldið fram að
þeir hafi haft samband við út-
sendara alþjóðakommúnismans,
skipulagt sellur í námunum á
Norður-Spáni og safnað fé til
kommúnískrar flokksstarfsemi.
Hinn opinberi ákærandi krefst
þess að mennirnir verði dæmdir
í þungar fangelsisrefsingar.
6^
Glœsilegt úrval
Verð frá kr. 320,00
^flíjófjœra u. JJlc^r. ^Jfe lcja dó ttar
af auknu framlagi til vísinda og
menntamála.
Áætlað er að verja 94 milljörð-
um rúblna á næsta ári til mennta
mála, eða 34 milljörðum rúblna
meira en í ár. Er það hér um bil
sama fjárhæð og ganga skal til
landvarna. Útgjöld til landvarna
hafa lítið breytzt að rúblnatölu
á síðustu árum, en þar sem flest-
ir aðrir liðir hafa hækkað, hafa
þau hlutfallslega lækkað úr 15%
árið 1957 í 13% á fjárlagafrum-
varpinu.
Æðsta ráðið mun að þessu
sinni taka til meðferðar ýmis
fleiri stjórnarfrumvörp, sem
þykja tíðindum sæta. Þar er
fyrst að nefna hið víðtæka skóla-
lagafrumvarp, sem Krúsjeff hef-
ur sjálfur samið og felur í sér
róttækar breytingar á skólakerf-
inu. Verður m. a. stórlega aukið
verklegt nám. Þá er breyting á
refsilögum, sem ætlað er að
tryggja almenning gegn réttar-
ofsóknum, en dauðadómur ekki
afnuminn, og nokkrar breytingar
á stjórnarskrá Sovétríkjanna.
— íslandsferðin
Framhaid af bls. 17.
og þangað sti'eymdi landsfólkið
þúsundum saman. — Minnist ég
þess vel er afi minn og amma riðu
af stað á sólskinsbjörtum morgni,
ásamt fjölda fólks úr Lunda-
reykjadal, en ég baulaði hástöfum
yfir því að fá ekki að fara með
til Þingvalla. — Þjóðhátíðin var
haldin þar 2. ágúst og fór hið
bezta fram. Var konungur hinn
glaðasti og hrifning gestanna al-
menn. Síðan var farið tíl Geysis
og Gullfoss og víða komið við. —
Reið konungur hvítum hesti, mikl-
um kostagrip. Dáðust Danir-mjög
að íslenzku hestunum, svo og
frjálsmannlegri framkomu bænda
fólksins, er þeir hittu á leið sinni.
Frá Reykjavík var svo haldið
vestur og norður um land tíl Seyð-
isfjarðar, með víðkomu á ísafirði
og Akureyri. Voru móttökuhátíðir
á öllum þessum stöðum. En þann
fimmtánda ágúsit sigldi konungs
flotinn frá landinu áleiðis til Dan-
merkur.
Bókin hefur feikna mikinn fróð
leik að geyma um ástand og horf-
ur á Islandi það herrans ár 1907.
Hún hef ur auk þess þann öndvegia
kost að vera skemmtileg aflestr-
ar, eins og fyrr er getið. Fjöldi
ágætra mynda prýðir hana, og
þýðingin má teljast góð. Frá-
gangur allur er hinn glæsilegasti
og bókin eiguleg mjög.
Hjartans þakkir færi ég öllum íbúum Gerðahrepps fyrir
höfðinglega peningagjöf sem þeir færðu mér nýlega. Sér-
staklega þakka ég frú Ástu Guðmundsdóttur fyrir for-
göngu hennar við söfnunina.
Gleðileg jól — gott ár.
Ágúst H. Matthíasson,
Laufási Garði.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem sýndu mér vin-
áttu sína á 75 ára afmæli mínu 17. desember s.L, með
heimsóknum, gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðilega jólahátíð.
Stefán Jónsson, Eyvindarstöðum.
VESTURVERI
Bróðir minn
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON
húsameistari.
lézt sunnudaginn 21. desember.
Jenný Guðmundsdóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu
okkur samúð við andlát og jarðarför dóttur okkar og
systur
DANlELlNU JÓNSDÓTTUR
Einnig viljum við þakka öllum þeim sem glöddu hana
og gerðu henni gott í veikindum hennar.
Sigríður Guðmundsdóttir, Jón Sigurðsson,
Sigríður Jónsdóttir, Kristinn Sigurðsson.
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför föður okkar og tengdaföður
VILMUNDAR ÁSMUNDSSONAR
Fyrir hönd dætra og tengdasona hins látna.
Jón Árni Vilmundarson.
Þökkum sýnda samúð við andlát og útför móður okkar
GUÐRtJNAR GRlMSDÓTTUR
frá Ásgarði.
Börnin.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa
MAGNÚSAR VILHELMS JÓHANNESSONAR
yfirframfærslufulltrúa.
Fríða Jóhannsdóttir, Svala Magnúsdóttir,
Jóhann Ágústsson, Magnús Valur Jóhannsson.
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við
útför
MARGRÚTAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Ingibjörg Þórðardóttir, Guðm. Guðjónsson.