Morgunblaðið - 23.12.1958, Blaðsíða 24
VEÐRIO
A-kaldi, hiti um frostmark.
dagur
til jála
295 tbl. — Þriðjudagur 23. desember 1958
Tafsamt oð fara
landleiðina norður
Tarfpegar voru á sföðugu ferðalagi
i 33 klukkustundir
Bílalestir brunuðu inn Skúlagötuna í gærmorgun með háfermi af suðrænum ávöxtum, sem vænt-
anlega munu ná á jólaborð alls þorra fólks, þó það sé að vísu ekki öruggt. Hér var um að ræða
appelsínur og virðast þær ágætar. Það er um tv ær tegundir að ræða, Cardenas, á kr. 22,50 kg.
og Navel, á kr. 23,80 kg. — Þær komu með Fjallfossi, sem lestaði þær í Hull, en þær.eru spænsk-
ar. Einnig komu í gær í verzlanir perur vestan frá Bandaríkjunum með Dettifossi. Þær eru ekki
fullþroskaðar og þurfa dálitla geymslu við venjulegan húshita til þess að ná fullum þroska. Ekki
veit blaðið um verðið á perunum.
Handtekinn aftur eftir oð hafa
fengið oft frestun á afplánun
AKUREYRI, 22. des. —Stöðugt
þyngir nú færð hér norðanlands,
enda snjóar meira og minna dag
hvern. Veður er hins vegar frem-
ur milt og frostlítið. Hægviðri
eru i innsveitum, en hvasst hefir
verið með ströndum fram.
Mjólkurflutningar ganga nokk-
urn veginn reglulega enn sem
komið er. Framan úr Eyjafirði
ganga venjulegir vörubilar, enda
er færð þaðan ekki þung enn-
þá. Aftur á móti er illfært
eða ails ófært úr ýmsúm útsveit-
um Eyjafjarðar. Vegurinn til Dal-
víkur er alveg lokaður, og er
mjólk úr Svarfaðardai flutt sjó-
leiðis til Akureyrar. Úr Arnar-
neshreppj hafa trukkar brotizt til
Akureyrar og sömuleíðis af Sval-
barðsströnd. Ófært er út í Höfða-
hverfi. Ekki er að óttast um skort
á mjólk eða rjóma hér um jólin.
Heiðavegir eru sumir hverjir
enn sæmilega færir, en hins vegar
eru dalirnir, sem að þeim liggja
víðast ófærir. Svo háttar t. d. um
Öxnadalsheiði. Sjálf er hún fær,
en Öxnadalur alls ófær. Bifreiðar
Mikið um ölvun
í gærkvöldi
ALLERILSAMT var hjá lögregl-
unni í gærkvöldi. Höfðu lögreglu-
menn tíðum verið kallaðir og
beðnir að fjarlægja ölvaða menn.
Bar talsvert á ölvun á almanna
færi í gærkvöldi og um klukkan
10,30 var „kjallarinn" nær full-
ur orðinn. Er slíkt heldur sjald-
gæft á mánudögum, en óhætt
mun að setja þetta í samband við
stórhátíðina.
Kveikt í bálköstum
1 GÆRKVÖLDI var slökkviliðið
kallað út þrisvar sinnum. öll
þessi útköll stóðu í sambandi við
eld í bálköstum, sem búið var að
hlaða og brenna átti á gamlárs-
kvöld. Ekki höfðu það verið eig-
endur bálkastanna, sem hér voru
að verki, heldur utanaðkomandi.
Brann einn bálkösturinn alveg
upp og stóð sá vestur við íþrótta-
völl, annar hjá Neskirkju brann
að verulegu leyti, en hinn þriðji
hafði ekki brunnið til muna.
Átta Reykjavíkur-
togarar á hafi úti
1 GÆRDAG fékk Mbl. uppl. um
það hvaða togarar héðan frá
Reykjavík verði á hafi úti um
jólin, en það eru Ingólfur Arnar-
son, sem mun vera einn á heima
miðum, Neptúnus á leið frá
Þýzkalandi, á Fylkismiðum eða á
siglingu verða Jón Þorláksson,
Úranus, Jón forseti, Þormóður
goði, Þorkell máni og Egill
Skallagrímsson. Hér í Reykja-
víkurhöfn verða Askur, Hvalfell,
Geir, Marz, Hallveig Fróðadóttir,
Þorsteinn Ingólfsson, Skúli Magn
ússon, Pétur Halldórsson, Fylkir
og Karlsefni. Hér verða einnig
togararnir Vöttur og Guðmundur
Júní.
1 Allir Hafnarfjarðartogararnir
verða úti um jólin. Akranestog-
i ararnir verða báðir í höfn.
Norðurleiðar hf. hafa átt erfiða
ferð nú um helgina. Kl. 5 í dag
kom bifreið hingað til bæjarins
með 30 farþega, og höfðu sumir
þeirra verið á ferð sunnan úr
Reykjavik frá kl. 8 á laugardags-
morgun eða í 56 klst. Þeir gistu
þó á Blönduósi vegna óveðurs. Aft
ur á móti höfðu þeir farþegar,
sem lögðu upp frá Reykjavík í
gærmorgun, verið 33 klst. á stöð-
ugu ferðalagi. Erfiðasti hluti leið-
arinnar var frá Varmahlíð til
Akureyrar og tók hann 13 klst.
Ráðgert er, að síðasta ferðin
landleiðis héðan til Reykjavíkur
hefjist í kvöld kl. 7.30.
Vaðlaheiði var í gær farin á
jeppum, en í dag hefir færð þar
þyngzt að mun. Kinnavegur er
ófær orðinn, og Ljósavatnsskarð
að lokast.
Má því segja, að þeim, er vilja
komast heim til sín um jólin,
gangi skrykkjótt ferðalagið á
landi.
__ Flugferðir hafa einnig tafizt.
A laugardaginn var ekkert flogið
hingað til Akureyrar. í gær
heyrðu bæjarbúar í flugvél hér
yfir um hádegið, en hún varð
að snúa við og lenti á Sauðár-
króki. Um miðnætti í nótt komst
hún hingað til Akureyrar. — vig.
Nýtt skip
til Akureyrar
AKUREYRI, 22. des. — 1 gær
kom til hafnar hér á Akur-
eyri eitt hinna nýju austur-þýzku
fiskiskipa, sem nefnt hefir verið
Sigurður Bjarnason, og er eign
hlutafélagsins Súlur (Leó Sig-
urðsson o.fl.). Skip þetta er 248
lestir að brúttóstærð, en 79 lestir
nettó. Skipstjóri er Tryggvi
Gunnarsson, sem að undanförnu
hefir verið með Akraborgina.
Fyrsti stýrimaður er Steingrím-
ur Aðalsteinsson, en fyrsti vél-
stóri Þorsteinn Magnússon.
Skipið fékk gott veður á leið-
hingað til lands, nema hvað það
hreppti lítils háttar storm frá
Langanesi. Skipstjóri telur það
gott sjóskip. — vig.
MESTI annadagur ársins, Þor-
láksmessa, er í dag, en þá reyna
allir að Ijúka jólaundirbúningi
utan heimilisins. M.a. af þeim
sökum eru verzlanir opnar til
miðnættis í nótt. Horfur eru á á-
gætu veðri, austan kalda og frost
leysu. Búast má því við gífurlegri
umferð í bænum í dag.
í kvöld verða strætisvagnarn-
ir í ferðum á öllum leiðum fram
til klukkan 1. Þá má geta þess að
á aðfangadagskvöld verða vagn-
arnir í ferðum til kl. 5,30 síðd. Á
aðfangadagskvöld verður eins og
undanfarin ár, vagnar í ferðum á
átta helztu leiðunum, hraðferðar-
leiðunum. Munu þeir vagnar
fara 8 ferðir milli klukkan 6—
11,30. Farþegar aka ókeypis með
vögnunum það kvöld. Þá verða
einnig á jólakvöld farnar ferðir
vestur á Seltjarnarnes og suður
í Skerjafjörð. Einnig verður
Blésugrófar—Rafstöðvar-, Selás-
og Smálandavagnar í ferðum. í
Dagbók Morgunblaðsins á morg-
f GÆRDAG lét dómsmálaráðu-
neytið handtaka ungan mann
Halldór Hermannsson Skaftahlíð
29. Hafði hann komið að utan á
laugardaginn eftir að hafa smokr
að sér um borð í flugvél frá Loft-
leiðum í Kaupmannahöfn. Var
hann dæmdur í fyrravetur í rúm-
lega eins árs fangelsi, en hefur
fengið hvað eftir annað frest til
þess að afplána dóminn. Nú hefur
hann aftur brotið af sér og frest-
ur sá er hann fékk síðast til þess
að taka út dóm sinn, verið aftur-
kallaður og hann settur í varð-
hald.
í gærdag fékk sakadómaraem-
bættið fyrirskipun um það frá
dómsmálaráðuneytinu að hand-
taka Halldór Hermannsson. Síð-
degis var hann tekinn og fluttur
samstundis upp í „Stein“.
Halldór þessi sem er tæplega
28 ára gamall var fyrir réttu ári,
á aðfangadag, dæmdur í 15 mán-
aða fangelsi óskilorðsbundið.
Var hann dæmdur fyrir að hafa
svikið fé út úr mönnum á þann
hátt að bjóðast til þess að kaupa
fyrir þá Bandaríkjadali suður á
Keflavíkurflugvelli.
Halldór fékk frest hjá dóms-
málaráðuneytinu til að taka út
un, aðfangadag, verður greint ná
kvæmlega frá ferðum vagnanna
um hátíðarnar.
Einn af varðstjórum umferð-
arlögreglunnar, sagði tíðinda-
manni Mbl. í gærdag, að jóla-
umferðin hefði gengið mjög
greiðlega og væri það mest því
að þakka að allur þorri öku-
manna veit, að til þess að um-
ferðin gangi greiðlega, þá þurfa
menn að vera með hugann við
aksturinn, fara í einu og öllu eft-
ir akreinakerfinu, þar sem aka
ber samkv. því, og stöðva ekki
bíla sína þar sem bílastöður eru
bannaðar. En alltaf eru þó til
ökumenn sem gleyma þessu, og
það eru þeir sem valda því að
hnútar hlaupa á í hinni miklu
umferð á götum bæjarins um
þessar mundir. Loks er þess að
geta, að síðan götulögreglumenn
fengu hvítu kylfurnar til þess að
stjórna umferðinni með, þá er
eins og allt gangi miklu betur
og liðlegra, sagði lögregluvarð-
stjórinn að lokum.
dóminn. f ágústmánuði síðastl.
sat hann aðeins nokkra daga inni,
en var sleppt þar eð hann fékk enn
frest á afplánun dómsins fram til
1. nóvember. Þegar sá dagur
rann upp, var Halldóri enn á ný
veittur frestur, og skyldi hann
hefja afplánun hins uppkveðna
dóms um fangelsisvist í 15 mán-
uði, 1. febrúar 1959.
Fyrir um það bil viku síðan
Fengu ekki
„jólagjöfina44
HVERAGERÐI, 22. des. — Við
höfðum vonazt til þess að fá í
jólagjöf mikinn og góðan árang-
ur við borun þá eftir gufu og
vatni, sem staðið hefur yfir und-
anfarið. Er nú sú von úti, í bili
a. m. k., því borinn er kominn
niður á 70 m dýpi, en hvorki hef-
ur vatn né gufa komið upp úr
holunni. Hér hafa borholur
venjulega gosið vatni og gufu
þegar komið hefur verið niður á
40—50 m dýpi. — Fréttaritari.
Tíðar skipakomur
til Akraness
AKRANESI, 22. des. — Skipa-
komur hafa verið tíðar hér um
þessa helgi.
Á sunnudaginn kom Lagarfoss
hingað og lestaði um 500 tonn
af freðfiski, en áður hafði skipið
verið í Keflavík og lestað þar
1000 tonn. Héðan fer Lagarfoss á
Snæfellsnes-, Breiðafjarðar og
Vestfjarðahafnir en síðan siglir
skipið til Hamborgar. Á sunnu-
daginn kom Goðafoss. Hann lest-
aði hér hvalkjöt og borgfirzkt
kindakjöt og í dag er Reykjafoss
kominn með 100 tonn af ýmiss
konar vörum, en hér tekur skipið
skreið. Þá kom líka í dag vél-
skipið Helgi Helgason með 2800
síldartunnur að norðan, til sölt-
unarstöðvar Har. Böðvarssonar.
— Oddur.
HVERAGERÐI, 22. des. — Hér
hefur nú verið kveikt á tveim
jólatrjám, sem vinabæir Hvera-
gerðis hafa sent. Eru bæir þessir
Brande í Danmörku og Skoger
í Noregi. — Fréttaritari.
fór Halldór utan með flugvél.
Hann kom svo aftur á laugardag-
inn sem fyrr greinir. Lá þá fyrir
ákæra á hann vegna tékka, en
ekki er um háa fjárhæð að ræða.
Mun dómsmálaráðuneytinu hafa
þótt augljóst mál, er hann kom
nú heim aftur að hann hefði
brotið af sér og það væri í rétti
til að rifta ákvörðun sinni um
frestun á afplánun dómsins. Lét
það því handtaka manninn aftur
og setja hann í varðhald.
Þegar Halldór var dæmdur
fyrra, var hann jafnframt gjald-
þrota, en síðan hefur hann haft
með höndum smáverzlun, sem
hann hefur þó ekki sjálfur verið
skrifaður fyrir.
Sæmdir
fálkaorðum
í TILEFNI af vígslu Sements-
verksmiðju ríkisins, á sl. «sumri
hefur forseti íslands, að tillögu
orðunefndar, sæmt þessa menn
heiðursmerkjum hinnar íslenzku
fálkaorðu, fyrir störf þeirra að
framkvæmdum málsins:
Dr. ing. Jón Vestdal, formann
stjórnar sémentsverksmiðjunnar,
riddarakrossi.
Framkvstj. Helga Þorsteinsson,
meðlim í stjórn verksmiðjunnar,
riddarakrossi.
Múrarameistara Sigurð Símon-
arson, Akranesi, fyrrv. meðlim í
stjórn verksmiðjunnar, riddara-
krossi.
Þá hefur forseti íslands í dag
sæmt eftirtalda menn heiðurs-
merkjum fálkaorðunnar:
Elías Halldórsson, forstjóra
fiskveiðasjóðs, riddarakrossi, fyr-
ir störf í þágu sjávarútvegsins.
Einar Arnalds, borgardómara,
riddarakrossi, fyrir embættis-
störf.
Guðmund Erlendsson, bónda
og hreppstjóra, Núpi, Rangár-
vallasýslu, riddarakrossi, fyrir
störf að búnaðar- og félagsmál-
um.
Hafstein Pétursson, bónda og
oddvita, Gunnsteinsstöðum,
Laugadal, Austur-Húnavatns-
sýslu, riddarakrossi, fyrir störf
að búnaðar- og félagsmálum.
Jónas Kristjánsson, forstjóra
Mjólkursamlags Kaupfélags Ey-
firðinga, Akureyri, riddarakrossi,
fyrir störf í þágu íslenzks mjólk-
uriðnaðar.
Valdimar Stefánsson, sakadóm-
ara, riddarakrossi, fyrir embætt-
isstörf. — (Fréttatilkynning frá
orðuritara).
Búizt er við gífurlegri
umferð í bœnum í dag
\