Morgunblaðið - 27.01.1959, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 27. janúar 1959
MORGVNBLAÐIÐ
13
Haraldur Bjarnason
múrarameist. — 50 ára
í dag á einn vel metinn borgari
bæjarins merkisafmæli. Þessi
maður er Haraldur Bjarni Bjarna
son forstjóri, Reynimel 28. Hann
er Árnesingur að ætt og upp-
runa og því kunnugur staðhátt-
um austur þar og þekkir marga
þúfuna milli fjalls og fjöru og
enda fjöruna og fjöllin líka. Har-
aldur er fæddur á Stokkseyri 27.
janúar 1909, sonur Bjarna Gríms-
sonar frá Óseyrarnesi og Jó-
hönnu Hróbjartsdóttur frá Graf-
arbakka í Hrunamannahreppi.
Foreldrar Haraldar bjuggu nota-
legu sveitabúi á hálfri heima-
jörð Stokkseyrar, auk þess stund
aði Bjarni verzlunarstörf á
Stokkseyri milli vertíða, en á
vertíðum var hann formaður í
Þorlákshöfn í marga áratugi. Var
Bjarni annálaður formaður og
aflasæll mjög. Páll bróðir hans
var einnig formaður í Þorláks-
höfn öll sín manndómsár, voru
þeir í daglegu tali nefndir Nes-
bræður. Var keppni milli bræðr-
anna á vertíðinni, en allt í góðu
þó, Útkoman var venjulega sú
í vertíðarlok, að áhöld voru um
hvor meira hefði fiskað. Harald-
ur B. Bjarnason er einn af sjö
börnum þeirra Stokkseyrarhjón-
anna Bjarna og Jóhönnu, en eitt
þeírra misstu þau. Rétt fyrir ára
mótin 1926—’27 flúttust þau
Bjarni og Jóhanna til Reykjavík-
ur með börn sín. Gerðist Bjarni
þá fiskimatsmaður hér í bæ, hann
er nú látinn fyrir all mörgum ár-
um, en Jóhanna býr á Reyrúmel
28 með tveimur sonum sinum.
Eftir að Haraldur komst á legg
og gat farið að vinna, vann hann
ýmiss konar störf, sem fyrir lágu
á búi foreldra sinna, aðallega
við heyskap og skepnuhirðingu,
en reri auk þess tvær vertíðir
hjá föður sínum í Þorlákshöfn.
Eftir að til Reykjavíkur kom,
vann Haraldur algenga vinnu,
eyrarvinnu o. fl., og var um tíma
háseti á togurum. Árið 1929 fór
hann að læra múraraiðn hjá
Ólafi Jónssyni, múrarameistara
og gekk jafnframt á Iðnskólann,
eins og lög stóðu til. 1933 tók
hann sveinspróf í múraraiðn,
tveimur árum seinna varð hann
múrarameistari. Strax upp úr
þessu fór Haraldur að taka að
sér húsbyggingar hér í bænum,
1941 var byggingarfélagið „Goði“
stofnað, gerðist hann þá yfir-
maður við verklegar framkvæmd
ir þess, nokkrum árum síðar varð
hann aðaleigandi fyrirtækisins
og hefur verið forstjóri þess síð-
an. Er byggingarfélagið „Goði“
með stærztu fyrirtækjum sinnar
tegundar hér í bænum, og hefur
Haraldur byggt íbúðir svo hundr
uðum skiptir. Þá er hann og aðal-
eigandi og forstjóri fyrirtækisins
„Möl og sandur“, sem selt hefur
efni í húsbyggingar. Árið 1943
var Stokkseyringafél. í Reykja-
vík stofnað, en árið 1946 varð
Haraldur formaður þess og hef-
ur verið það síðan. Af verkefn-
um, sem Stokkseyringafélagið
hefur haft með höndum, má
nefna byggingu sjóbúðar á
Stokkseyri, sem kennd er við Þur
íði formann, byggingu sumarhúss
dr. Páls ísólfssonar á Stokkseyri
og útgáfu á sögu Stokkseyrar,
sem dr. Guðni Jónsson hefur þeg-
ar samið eitt bindi af, þ.e. „Ból-
staðir og búendur í Stokkseyrar-
hreppi“. Tvö hin síðastnefndu
verkefni hafa komizt í fram-
kvæmd í formennskutíð Har-
aldar og stóð hann fyrir smíði
sumarbústaðar dr. Páls ísólfsson-
ar, er hús þetta einstakt í sinni
röð og mikið listasmíði. í átt-
högum móður sinnar hefur Har-
aldur haft nokkur umsvif, þar
hefur hann haslað sér völl á bökk
um Litlu-Laxár, rétt hjá bæn-
um Grafarbakka, er landsvæði
þetta eign Jóhönnu og barna
hennar allra. Þar hefur Haraldur
byggt rúmgott sumarhús og
fylgjaþvíýmis þægindi, rafmagn,
upphitun með hveravatni o. fl.
Er landsvæði þetta og sumarhús
miðsvæðis í Hrunamannahreppi,
en sú sveit er ein fegursta og
kostabesta sveitin á Suðurlandi.
Neðarlega í hreppnum, á bökk-
um Stóru-Laxár, er vildisjörðin
Sóleyjarbakki, þá jörð á Harald-
ur alla, með gögnum og gæðum,
í félagi við einn bróður sinn,
reka þeir þar sveitabú og veiða
sennilega lax, ef svo ber undir,
því áin er mikil veiðiá, a. m. k.
á vissum tímum árs.
Haraldur B. Bjarnason kann vel
við sig í Reykjavík og þykir gott
að eiga hér heima. En austur í
Árnessýslu fer hann oft um helg-
ar, til þess að hvíla sig og eyða
frítíma sínum. Mun hann þá eink
um halda austur í Hrepp, en renn
ir oft við á Stokkseyri, þar sem
foreldrar hans bjuggu í meira
en aldarfjórðung, og þar sem
hann sjálfur er fæddur og upp-
alinn. Þegar litið er yfir starfs-
feril Haraldar frá því hann lauk
múraranámi fyrir rúmum tutt-
ugu árum, verður ljóst, að hon-
um hefur farnazt mjög vel. Hann
byrjaði með tvær hendur tóm-
ar, en er nú með stærstu bygg-
ingarmönnum Reykjavíkur. Að-
spurður, hvernig hann hafi farið
að þessu, segir hann: „Þetta hef-
ur mest komið af sjálfu sér. En
ég hef reynt að fylgjast með
tímanum og tækninni og afla
hentugra tækja“.Fyrirtæki Har-
aldar ráða yfir hentugum bygg-
ingartækjúm, allt frá múrskeið-
um upp í ýtur og krana. En er
það nóg, ætli Haraldur hafi ekki
stundum orðið að stríða í
ströngu? Vissulega, en hann er
hörku duglegur, þar í liggur skýr
ingin. Með dugnaði hefur hann
unnið fyrirtæki sín upp, og hann
stýrir þeim af framsýni, stórhug
og festu. Haraldur hefur verið
þarfur maður í bæjarfélaginu,
ekki verður betur séð, það er og
verður þýðingarmikið starf að
byggja vönduð hús. Er þá eftir
að ræða það, sem mest er um
vert, en það er maðurinn sjálf-
ur. Til þeirra hugleiðinga þarf
ég ekki langan tíma. Ég veit, að
Haraldur er höfðingi, það er nóg.
Móður hansogsystkynum, semöll
eru búsett hér í bænum, sam-
gleðst ég á þessum degi, en hin-
um geðþekka frænda mínum, af-
mælisbarninu, óska ég langrar
og gæfuríkrar framtíðar.
Grimur Þorkelsson.
★
í DAG verður Haraldur Bjarna-
son múrarameistari, Reynimel 28
hér í bæ, fimmtugur. Hann er
borinn og barnfæddur á Stokks-
eyri, sonur merkishjónanna
Bjarna Grímssonar og konu hans,
Jóhönnu Hróbjartsdóttur. Har-
aldur fluttist til Reykjavíkur
með foreldrum sínum árið 1926 og
hefir átt hér heima síðan. Nam
hann múraraiðn og hefir í mörg
ár verið meistari í iðn sinni og
staðið fyrir fjölda bygginga hér í
Reykjavík, stærri og smærri. Er
hann viðurke*ndur dugnaðar-
maður í sinni grein, ötull og á-
hugasamur og hefir hinar beztu
forsagnir á öllu því, er gera skal,
stórhuga og óragur að ráðast í
framkvæmdir og taka upp nýj-
ungar, er til framfara horfa, þótt
áhætta nokkur fylgi. Hefir allt
slíkt lánast vel 1 höndum hans,
því að stórhug hans og fram-
kvæmdahug fylgir forsjálni og
glöggt skyn á hagræn efni.
Þó að Haraldur Bjarnason hafi
átt yfir 30 ár heima í Reykja-
vík og átt sinn þátt í sköpun
hennar og uppbyggingu, ber hann
í brjósti órofa tryggð við æsku-
stöðvarnar og hefir á margan
hátt sýnt það í verki. Hann hefir
í mörg ár verið formaður Stokks-
eyringafélagsins í Reykjavík og
gengizt þar fyrir framkvæmdum,
sem flestum stærri átthagafélög
um hafa reynzt ofviða. Hefir
hann hvorki sparað fé né fyrir-
höfn, ef hann hefir beitt sér fyr-
ir málefrium, sem hann telur
heimabyggð sinni til fremdar.
Er vísast, að Stokkseyringar
gleymi seint Haraldi Bjarnasyni
og starfi hans, er þeir minnast
margra burtfluttra sona byggð-
arlagsins, sem borið hafa uppi
nafn þess með heiðri og unnið
því gagn og sóma.
Með þessum fáu línum flyt ég
vini mínum Haraldi Bjarnasyni
þakkir fyrir drengskap hans og
vináttu á liðnum árum og beztu
heillaóskir á hálfrar aldar af-
mælinu.
Guðni Jónsson.
Samkomur
Fíladelfía
Biblíulestur fellur niður í
kvöld. En annað kvöld, miðviku-
dag, byrja vakningarsamkomur,
sem verða hvert kvöld fram yfir
helgi. Margir aðkomnir ræðu-
menn tala á samkomum þessum.
K.F.U.K. — Ad.
Fundur í kvöld kl. 8,30. Felix
Ólafsson kristniboði talar. Allt
kvenfólk velkomið.
ZION, Óðinsgötu 6A.
Vakningasamkoma í kvöld kl.
20.30. Allir velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna.
Skellinaðra
til sölu. — Upplýsingar á bif-
reiðaverkstæði
Sveins Egilssonar
w *
Hænungar
til sölu. Dagsgamlir, tveggja
mánaða og eldri. —
Kjartan Georgsson,
sími 14770
Skatí jframtöl
Reikningsskil
Pantið viðtalstíma í síma
33465.
Endurskoðunarskrifstofa
Konráðs Ó. Sævaldssonar
Danska — enska
— franska
fyrir dönskumælandi, einka-
tímar eða fáir saman.
Sýa Þorláksson
Eikjuvog 25, sími 34101
Nýir vandaðir
s\fefnsófar
á aðeins kr. 2900,00. — Athug-
ið greiðsluskilmála. Háir sóf-
ar á þessu einstaka tækifæris-
verði.
Grettisgötiu 69, kjallaranum
Opið kl. 2—9
2 herbergi og
eldhús
til leigu í 3 mánuði, sími 17358
Ungbarna-
fatnaður
Þýzkur og amerískur
í úrvali
© MÍ
Laugavegi 70
sími 14625.
að auglýsing í stærsta
og útbreiddasta blaðinu
— eykur söluna mest —
Nýkomiö
Skolprör
Skolphampur
Skolpfittings
Baðker m/ tilheyrandi
Vatnsvirkinn hf.
Skipholti 1 — Sími 19562.
Drengur eða telpa
óskast til sendiferða á bókhaldsskrif-
stofu blaðsins.
hylon net
" MEIRI VEIÐI,
MINNI KOSTNAÐUR.
Þetta geta Ainilan 100%
nælon net veitt yður —
• Þau spara yður þurrkun og kostnað. Þau geta
verið i sjó svo árum skip'cir án þess að fúna. Þér
getið veitt lengur, oftar og á fjarlægari miðum.
• Þau spara yður vinnuafl og olíu vegna þess að
þau eru létt og meðfærileg og drekka lítið í
sig af sjó.
• Þau spara yður viðgerðar- og endurnýjunar-
kostnað vegna þess að þau eru tvisvar sinnum
sterkari en bómullarnet, og hafa 10 sinnum
meiri endingu.
. • Þau veita yður meiri veiðimöguleika vegna
þess að þau eru gagnsæ og teygjanleg.
Öll Amilan brand 100% nælon-
net hafa ofanskráð til að bera.
Du Pont’s cinkalcyfi í Japan
TOYO RAYON COMPANY LTD.
MITSUI BLDG., OSAKA, JAPAN
Stofnsett: 1926 Simnefni: TOYO RAYON OSAKA