Morgunblaðið - 03.02.1959, Síða 1

Morgunblaðið - 03.02.1959, Síða 1
20 síður „Hans HedloH"-s!ysið við Grænland: Okennileg morsmerki heyrast á ný Gefa veika von Seint í gærkvöldi barst Mbl. svohljóðandi firétta- skeyti: „Loftskeytastöð- in í Lyngby (Dan- mörku) heyrði í kvöld á alþjóðlegu neyðarbylgj- unni á 8,364 kílóriðum (eða um 35 m) mors- merki, sem voru mjög sterk og komu úr loftnet- um, err höfðu stefnu á Grænland. Fjórir loft- skeytamenn heyrðu merkin, en vegna trufl- ana var ógerningur að þýða þau. Christiansen, fcirstjóri Grænlandsverzl unarinnar, sagði að erfitt væri að fullyrða að merki þessi kæmu frá björgunarbátum af „Hans Hedtoft“. En við skulum ekki útiloka þann möguleika, sagði hann. í slysum sem þessu halda menn í hálmstrá- Kaupmannahöfn, 2. febr. SKIPIN og flugvélarnar, er leitað hafa að „Hans Hed- toít“ höfðu ekki í kvöld fundið nein örug'g vegsum- merki um slysið né rekizt á neitt, sem henti til þess, að einhverjir hefðu komizt af. I nótt heyrðust veik mors- merki, sem menn héldu að væru frá sendistöð í ein- hverjum björgunarbátanna af „Hans Hedtoft“, en engin slík merki hafa heyrzt seinni partinn í dag. 30 sjómílur _,eitin í dag var mjög umfangs- mikil, einkum þegar á daginn leið, því að þá batnaði veðrið. En ekkert brak hefur fundizt. Banda ríska strandgæzlúskipið „Camp- bell“ og „Poseidon“, sem er þýzkt athugunarskip, fullyrtu, að þau hefðu heyrt veik neyðarskeyti frá óþekktri sendistöð og hefðu þau verið mjög ógreinileg. Benti allt til þess, að senditækið hafi verið ó stað um 30 sjómílur suð- ur af Hvarfi. Annars munu loft- skeytamennirnir á þessum skip- um hlusta vel, ef ske kynni, að frekari merki heyrðust. Vakin er athygli á, að í björgunarbátum „Hans Hedtoft“ hafi verið hand- snúin senditæki til öryggis. Danski katalínubáturinn, sem er á leið á slysstaðinn, er búinn sér stökum tækjum til að ná þess- um merkjum, en hann komst ekki lengra í dag en til Keflavíkur. Þar bíður hann betra veðurs. Þess má geta, að „Poseidon" hefur í dag leitað ó svæði, þar sem flugvél sagðist hafa séð eitt- hvað á floti, sem einna helzt líkt- ist björgunarbát á hvolfi, en leit- in hefur ekki borið neinn árang- ur ennþá. Þýzki togarinn „Jo- hannes Kruss“ sem fyrstur kom á slysstaðinn, hefur sagt, að hann hafi fundið eins metra langan planka, en Grænlandsverzlunin segir, að eftir lýsingunni að dæma, geti hann ekki verið úr „Hans Hedtoft". Það er „Campbell“, sem hefur stjórnað leitinni í dag og sagði hann skipunum hvar þau skyldu leita. „Umanak“ setti í dag á land í Grænlandi 82 farþega til að geta tekið þátt í leitinni, en ekki var vitað í gærkvöldi, hvert verkefni þess yrði. „Teistan“ og flóabáturinn „Ring“ voru send suðvestur af Nanortalik eftir að morsmerkin heyrðust í nótt. Loftskeytastöðin upp- tekin Annars voru heldur litlar frétt- ir af leitinni í kvöld, því að loft- skeytastöðin í Grönnedal hefur verið önnum kafin við að hlusta á leitarskip og flugvélar og því ekki getað sent skeyti til blaðanna. Skipin eru einnig önnum kafin við að hlusta á morsmerki, ef þau skyldu heyrast. Veðrið í kvöld var ólíkt hagstæðara til leitar en í gær, þó ekki gott. Skyggni um 7 mílur og veðurhæðin 7 vind- stig. Veik von Forstjóri Grænlandsverzl- unarinnar, Christiansen, sagði við fréttamenn í kvöld, að vel gæti verið, að ein- hverjir hefðu komizt af. Morsmerkin bentu heldur til þess, en þó skyldu menn ekki vera of bjartsýnir Vegna þessarar veiku vonar hefur enn verið hert á leit- inni. Þess má geta hér, að merkin, sem heyrðust í nótt, voru einna líkust því, sem einhver óvanur maður fikt- aði við senditæki, aðeins til að láta vita um tilvist sína. í allan dag hafa fimm leitar- vélar verið yfir slysstaðnum og á morgun er búizt við, að tveir danskir katalínubátar frá flug- hernum bætist i hópinn. Annar er í Keflavík, eins og fyrr segir, hinn veðurtepptur í Sola í Noregi. Hann mun sennilega leggja af stað til Keflavíkur í nótt. Bent er á, að hættulegt sé, að hafa svona margar flugvélar á lofti í einu yfir slysstaðnum, þar sem skyggni sé slæmt, en sú hugsun hefur þó verið látin víkja vegna ákafans að finna skipbrotsmenn, KAUPMANNAHÖFN — í Viborg er nú all sérstætt mál fyrir dóm- stólunum. Fráskilinn maður hef- ur krafizt þess, fyrir landsrétti, að staðfest verði niðurstaða und- irréttar þess efnis, að hann sé ekki faðir beggja tvíbura fyrr- um konu sinnar. I undirrétti var það sem sé staðfest, að hinn fráskildi væri faðir þriggja ára stúlku, en hins vegar neitaði rétturinn að stað- festa, að sami maður væri faðir tvíburabróður litlu stúlkunnar. Rétturinn kvaddi dóm sinn á grundvelli venjulegra aðferða, sem viðhafðar eru til prófunar í faðernismálum. Málið hefur nú vakið mikla athygli og er dóms- valdið í miklum vanda. Forsaga málsins er sú, að móð- ir tvíburanna hafði í janúar 1955 haft mök við mann sinn og annan mann, sama sólarhringinn. Þetta viðurkenndi hún og hlauzt af hjónaskilnaður. í því skilnaðar- máli komst rétturinn að hinni fyrrgreindu niðurstöðu. Hin venjulega blóðprufa, sem talin er béra öruggt vitni, sýndi, að eiginmaðurinn gæti ekki ver- ið faðir drengsins, en mjög senni- lega stúlkunnar. Réttarlæknar báru og, að hér hefði verið um tvíeggja tvíbura að ræða — og niðurstaða blóðrannsóknarinnar gæti því vel verið rétt. ef einhverjir skyldu vera. Þess má geta hér í lokin, að skæmast- er frá bandaríska flughernum á Keflavíkurflugvelli var meðal leitarvélanna í dag. 1000 fairþegar — í lofti? Slysið hefur vakið upp um- ræður um siglingar til Græn- ur á móti eru allmargar getgát- Frh. á bls. 3 En það jók erfiðleikana á rann- sókn málsins, að maðurinn, sem talinn var líklegur faðir drengs- ins, hafði látizt — og hafði ekki verið tekin af honum blóðprufa. Móðirin krefst þess, að bæði börnin verði úrskurðuð hjóna- bandsbörn, en hinn fráskildi eiginmaður vill ekki vera faðir stúlkunnar úr því að hann get- ur ekki verið faðir drengsins. Málið er enn ekki útkljáð, en það er orðið mikið hitamál í landsréttinum, lögfræðingar beggja aðila hafa hvorugir látið bugast enn sem komið er. ★--------------------------★ Þriðjudagurinn 3. febrúar Efni blaðsins er m.a.: Bls. 6: Á yztu höf (Leikrit Þjóðleik- hússins). — 8: Bakstur af vankunnáttu — og bruðl (kvennasíða). — 10: Forystugreinin: Framsókn valdi versta kostinn. Um sjóslys í sögu Dana (Utan úr heimi). — 11: Búizt við að Krúsjeff taki sér alræðisvald í Rússlandi. — 12: Þórunn Guðmundsdóttir og 10 þús. kr. verðlaunin. Húseignin var séreign konunn- ar. (Hæstaréttardómur.) — 13: Hlustað á útvarp. Sjúkradeild í Sjómannaskólan* um. *--------------------------★ Krosslnn sýnlr sTysstaðinn. Tvíburarnir voru reyndar hálfsystkyn #

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.