Morgunblaðið - 13.02.1959, Blaðsíða 20
VEDRID
Hægur með morgninum,
vaxandi suðaustan átt.
uttMá^Uí>
36. tbl. — Föstudagur 13. febrúar 1959
KV E N N ASÍO A
Sjá bis. 8.
Vonzkuveður á Suðvesturlandi
Ofsarok og sjór vestur at landinu
Hafði skipið hreppt storma mikla í hafi. Tvisvar hafði skiplð
orðið að andæfa mót fárviðri og stórsjó. Er Tungufoss var
kominn norður fyrir Færeyjar, kastaðist farmur skipsins til.
En Tungufoss er með járnplötur. Fyrst köstuðust plöturnar út
í bakborðshliðina og skemmdu tvö bönd, en síðar kastaðist
járnið yfir í stjórnborðssíðuna og skemmdi 3 bönd. Skips-
menn voru sendir niður til þess að laga farminn í lestinni,
svo sem kostur var á. En er skipið kom var það enn með dá-
litla slagsíðu, sennilega 6—7 gráður. Myndin er tekin af
Tungufossi hér við hafnarbakkann í gærdag.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Ekki á Nýfundnalands-
mið á næstunni
VONZKUVEÐUR á suðvestan var
um allt Suðvesturland í gær. Var
hávaðarok með ausandi rigningu
í Reykjavík og komst vindhrað-
inn upp í 11 vindstig. Úrkoman
mældist 18,5 millibar frá 8—17,
en búast má við því að eitthvað
hafi fokið frá mælunum í rokinu.
Um tíma var varla stætt á göt-
unum og voru vegfarendur, sem
börðust á móti rokinu, eins og
hundar af sundi dregnir. Talsvert
bar á bílaárekstrum og meiddist
kona lítilsháttar í einu þeirra.
Krakki fauk á bíl á Tjarnar-
götunni, en mun lítið eða ekkert
hafa meiðzt. Vekja má athygli á
því að búningur lögreglumanna,
sem standa á gatnamótum, oftast
mjög áveðurs, er mjög gamaldags
Og óhentugur í slíkum veðráham
og hæfir ekki lengur Reykjavík-
urlögreglunni.
Um 5 leytið síðdegis tók að
lægja á Reykjanesskaga og Snæ-
fellsnesi, og veðrið færðist aust-
ar. Var rokið víðast 8—9 vind-
stig um það leyti, og 4 vindstig
á Reykjanesvita. í Vestmannaeyj
Cffl voru þó enn 12 vindstig, og
norður á Sauðárkróki voru 11
vindstig í gærkvöldi.
með hvassviðri og rigningu í
Vestmannaeyjum. Voru allir bát-
ar á sjó, og urðu margir að fara
frá línunni. Þegar Mbl. átti tal
við fréttaritara sinn í Vest-
mannaeyjum í gærkvöldi voru
allir bátar komnir að landi nema
tveir, en þeir höfðu haft sam-
band við land og við gæzluskipið
Hermóð, svo ekki var ástæða til
að óttast um þá.
Um nóttina höfðu róið um 40
bátar, enda var veður og veður-
útlit þá sæmilegt. Er á morgun-
inn leið tók að hvessa, miklu
fyrr en búizt hafði verið við.
Sneru sumir bátanna við, en aðr-
ir lögðu línuna. — Lentu
bátarnir í erfiðleikum með
að draga vegna veðurs og
urðu sumir að hverfa frá lín-
unni. Náðu þeir allir landi, nema
þeir tveir sem áður eru nefndir,
en þeir voru komnir upp undir
Eyjar um kl. 9 í gærkvöldi og
þá var veðrið að lægja.
Keflavíkurbátar reru í gær-
KÓPAVOGUR
Næsta spilakvöld Sjálfstæðis-
félaganna í Kópavogi verður n.k.
þriðjudagskvöld.
SJÁLFSTÆÐISMENN A hellu
Sjálfstæðisflokkurinn boðar til
flokksfundar að Hellu nk. sunnu-
dag 15. þ.m. kl. 9,30 sd.
Ingólfur Jónsson alþm., hefur
framsögu um stjórnmálaviðhorf-
ið og fyrirhugaða breytingu á
kjördæmaskipun landsins. Kosn-
ir verða fulltrúar á Landsfund
Sjálfstæðisflokksins, sem hefst þ.
11. marz nk. Æskilegt er, að Sjálf
stæðismenn og aðrir stuðnings-
menn Sjálfstæðisflokksins fjöl-
menni á Oundinn.
rok á öllu Grænlandshafi. Frétta
ritari blaðsins á Keflavíkurflug-
velli hafði það eftir áhöfn flug-
vélar, sem þangað kom, að um
100 sjómílur vestur af Reykja-
nesi væri að sjá einna líkast ein-
um óslitnum brimgarði. Varð-
skipið Alfa, sem staðsett er miðja
vegu milli íslands og Hvarfs á
Grænlandi tilkynnti laust fyrir
ÓLAFSVÍK, 12. febr. — Bátarnir
héðan hrepptu hið versta veður
í róðri í dag, en allir komust þeir
þó hjálparlaust til hafnar. Nær
allir voru með aðeins lítinn hluta
af línunni.
í morgun eldsnemma, nokkru
eftir að síðasti báturinn af 12,
sem héðan róa var farinn, tók
að hvessa. Úti á miðunum,
sem hér eru kölluð „Hvítahafið“
og eru 20—30 sjóm. norðvestur
af öndverðarnesi, lögðu allir bát-
arnir línu sína, svo og bátar frá
Sandi, en þeir eru sex.
Um hádegisbilið var komið hér
fárviðri. Var þá ákveðið að biðja
morgun, en sneru við vegna veð-
urs. Voru því engir bátar á sjó
þaðan í gær.
Sandgerðisbátarnir ætluðu
einnig að róa og sneru líka við
og voru þeir allir í höfn í gær.
HÚSAVÍK og ÁRNESI, 12. febr.
— Sá fágæti atburður gerðist í
fyrrinótt að kýrin Krúna á
Öndólfsstöðum bar fjórum kálf-
um. Kýrin hafði ekki átt að bera
fyrr en eftir hálfan mánuð, en er
eigandi hennar, Árni Jónsson,
kom í f jósið í gærmorgun var kýr
in að bera fjórða kálfinum. Munu
allir kálfarnir hafa fæðzt lifandi,
en dóu allir, þar sem enginn var
nærstaddur er kýrin bar. Talið er
að kálfarnir hefðu getað lifað ef
hægt hefði verið að hjálpa kúnni
því þeir virtust eftir atvikum
stórir, ekki minni en kvígukálf-
ar eru oft.
Krúna er 3 vetra og fyrir um
ári bar hún tveim kálfum. Hún
er ættuð úr Reykjahverfi, sæmi-
lega góð mjólkurkýr, rauð að lit
með stjörnu í enni.
Mbl. átti í gær tal við Pál A.
Pálsson, yfirdýralækni, og stað-
festi hann að þetta væri einstak-
Veðurblíða
STAÐARHÓLI, S-Þing, 12. febr.
— Síðasta hálfan mánuðinn hafa
verið hér sífelldar sunnan hlákur.
Má heita að allt láglendið sé autt,
vegir snjólausir og næstum klaka
lausir, eins og að vori til. Góð
beitarjörð er nú fyrir sauðfé um
allt héraðið. Hafa því mikil og
góð umskipti orðið með veðrátt-
una síðan frosthörkurnar riiklu
voru í janúar, þegar oft varð
20—30 stigum kaldara í veðri en
nú hefur verið undanfarnar tvær
vikur. — H.S.
hádegi í gær, að ofsarok væri og
öldur 11 m. háar.
í óveðrinu í gær spilltust
mjög vegir í nágreni Reykjavík-
ur. Um allt Reykjanesið safnaðist
vatnið í stóra polla, þar sem víða
er klaki í jörðu og vatnið sígur
ekki niður. Var sums staðar
einna líkast yfirborði á stóru
vatni.
í gærkvöldi var búizt við að
veðrið mundi ganga niður þegar
kæmi fram á nóttina.
Slysavarnarfélagið að beina orð-
sendingu til stærri skipa um að
aðstoða bátana við að ná landi.
Þarna var mjög þungur sjór. Allt
fram til um klukkan 2 voru bát-
arnir að draga línuna. Almennt
munu bátarnir ekki hafa dregið
nema 8—12 bjóð, en þeir eru með
alls 38 bjóð.
Um nónbilið hafði verið haft
samband við alla bátana héðan,
en ekki hafði þá tekizt að ná
sambandi við einn bátinn af
Sandi, Völustein, en um klukkan
6 tókst það. Var hann á leið til
lands.
f þessu veðri urðu ekki slys á
mönnum, en hnútar komu á
báta er þeir voru að berja
til lands og höfðu einhverjir orð-
ið fyrir smávegis skemmdum. í
kvöld er hér sæmilegasta veður
og lítilsháttar snjókoma.
STYKKISHÓLMI, 12. febr. —
Allir bátarnir héðan eru komn-
ir að landi, en þeir hrepptu ægi-
legt veður. Urðu þeir fyrir miklu
veiðarfæratjóni, sumir urðu að
skilja eftir flestar lóðirnar, 12—
24 stampa. Aflinn var 2—5 tonn
á bát. — Fréttaritari.
ur viðburður. Ekki væri óal-
gengt að kýr bæru tveimur kálf-
um, það kæmi fyrir í um 5% til-
fellum, en hann kvaðst ekki hafa
það í skýrslum, að kýr hefði
verið fjórkelfd hér á landi fyrr.
MBL. HITTI Bjarna Ingimundar-
son, skipstjóra á Neptúnusi, að
máli í gær, en togarinn kom af
veiðum í gærmorgun. Blaðið
spurði skipstjóraan, hvernig veð
ur þeir hefðu fengið á leiðinni
heim og svaraði hann, að það
hefði verið heldur risjótt. Bjarni
sagði, að þeir hefðu fiskað á
Fylkismiðum við Nýfundnaland
og við þau, og þar hefði verið
mokfiskirí. Blaðið spurði síðan,
hvort þeir hefðu lent í stormin-
ium mikla við Nýfundnaland og
svaraði hann því neitandi: — Við
vorum farnir á stað heim, rúm-
um sólarhring áður en stormur-
inn skall á, sagði hann. Við lent-
um ekki í neinum frostum og
urðum ekki fyrir neinum áföll-
um.
Loks spurði Mbl. Bjarna skip-
stjóra, hvort þeir mundu fara á
Nýfundnalandsmið aftur: — Ég
geri ekki ráð fyrir, að við förum
þangað í bili, sagði hann, a. m. k.
ekki tvo til þrjá næstu túra.
Málrundur
ANNAR fundur verður í Valhöll
í kvöld og hefst kl. 20,30.
Umræðuefni: Er sanngjarnt að
konur fái sömu laun og karlar
fyrir sömu vinnu?
Frumælendur: Katrín Hákon-
ardóttir, Halldór Briem, Ólafur
Jensson, Pálmi Lórenzson Viggó
Oddsson, Gunnar Gunnarsson.
Ungir Sjálfstæðismenn eru
hvattir til þess að sækja fundinn
og mæta stundvíslega.
Tilmæli forsætisráðherra um lækk-
un útsvarsupphæða kaupstaðanna.
EINS og frá hefur verið skýrt hér í blaðinu, lýsti borgar-
stjóri því yfir á síðasta bæjarstjórnarfundi, að útsvars-
stiginn í Reykjavík mundi lækka á þessu ári þrátt fyrir
ýmislega útgjaldaaukningu á síðastliðnu ári, einkum vegna
grunnkaupshækkunar bæjarstarfsmanna. Ennfremur stæði
nú yfir athugun á því, að hve miklu leyti mætti færa niður
útgjöld bæjarins. Árangur .þeirrar athugunar yrði lagður
fyrir næsta bæjarstjórnarfund, er afgreiða mundi fjár-
hagsáætlunina.
Eftir að þessi yfirlýsing var gefin, barst bæjarstjórn
bréf forsætisráðherra eins og frá hefur verið skýrt hér í
blaðinu, og var bréfið lagt fram í bæjarráði á þriðjudaginn.
TILMÆLI TIL ALLRA BÆJARSTJÓRNA
Samhljóða bréf hefur forsætisráðherra sent öllum bæj-
arstjórnum á landinu. Efni bréfsins er á þá leið, að bæjar-
stjórnirnar eru beðnar að athuga, hvort eigi sé unnt án
tjóns að draga úr fjárfestingarframkvæmdum bæjanna og
beðnar að leitast við að lækka útsvarsupphæðirnar svo
sem föng eru á.
Mun það bráðlega koma í ljós, hversu bæjarstjórnunum
tekst að koma til móts við óskir forsætisráðherra, enda eru
fjárhagsáætlanir kaupstaðanna yfirleitt ekki afgreiddar
ennþá.
Ems og áður segir mun fjárhagsáætlun Reykjavíkur lögð
fyrir bæjarstjorn til síðari umræðu næstkomandi fimmtudag.
í gær og í fyrrinótt var mikið
Vifað um alla Vest
mannaeyjaháfa
Suðurnesjabátar allir í höfn
1 GÆRMORGUN rauk hann upp
Ólafsvíkur- og Sandsbát-
ar í stórsjó og fárviðri
Kýr ber fjórum kálfum
Hefur átt 6 kálfa á tveimur árum