Morgunblaðið - 21.03.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.03.1959, Blaðsíða 2
2 MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 21. marz 1959 Úr rœðu Vilhjálms Þórs aðalbankastjóra r gœr ,,V/ð reynum að mikið of fljótt" Nauðsynlegt að skapa meiri trú á gildi eigin peninga og skapa jafnvœgi milli verðlags hér og r nágrannalöndunum í GÆR staðfesti Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamálaráð- herra, reikninga Seðlabank- ans fyrir árið 1958. í tilefni þessa hélt framkvæmdastjórn Seðlabankans hádegisverðar- boð, þar sem m. a. voru boðn- ir forsætisráðherra, viðskipta- málaráðherra, forráðamenn banka og sparisjóða og fleiri gestir. — Voru reikningar bankans lagðir þar fram, og við þetta tækifæri flutti Vil- hjálmur Þór, aðalbankastjóri Seðlabankans, ræðu, þar sem hann gerði að umtalsefni rekstur bankans og efnahags- mál þjóðarinnar almennt. Gott ár Hóf hann mál sitt með að geta þess, að rekstrarafkoma Seðla- bankans hefði orðið allmiklu betri 1958 en árið áður. Væri nettóhagnaður nú kr. 17.389.547, 68. — Síðan sagði Vilhjálmur Þór, að árið 1958 hefði yfirleitt verið gott ár til lands og sjávar. Framleiðsla landbúnaðar- og sjávarafurða hefði aukizt mikið á árinu, sala erlendis verið greið og verðlag yfirleitt ekki óhag- stæðara en áður. En þrátt fyrir svo hagstæðar aðstæður hefði verið við erfiðleika að etja í efna hagsmálunum ekki síður en und- anfarin ár. — Útflutningssjóðs- lögin hefðu náð tilgangi sínum að nokkru, en í kjölfar þeirra hefði siglt „alda víxlhaekkana verðlags og kaupgjalds, sem þegar væri búin að éta upp mestallan ávinn- ing efnahagsráðstafananna, ef þessi óheillaþróun hefði ekki ver ið stöðvuð i byrjun þessa árs með víðtækum niðurgreiðsluráð- stöfunum“. Ú tlánaaukningin Þá ræddi aðalbankastjórinn ýt- arlega um útlánaaukningu banka og sparisjóða á árinu 1958 og kvað hana hafa numið fyrir bankakerfið í heild um 20%, sem væri miklu meira en aukning þjóðartekna. — Ræddi hann síð- an áfram um þessi mál í einstök- um atriðum og lagði fram marg ar tölur til glöggvunar og skýring ar, sem ekki verða raktar hér að sinni. Við lok þessa þáttar ræðu sinn ar sagði Vilhjálmur Þór síðan: „Þegar óhófleg aukning útlána Bókmenntakynn- ing í háskólanum SUNNUDAGINN 22. marz kl. 14,30 efnir Stúdentaráð Háskóla Islands til bókmenntakynningar í hátíðasal háskólans. Helgi Sæ- mundsson ritstjóri flytur erindi um íslenzkan sagnaskáldskap síð asta áratugs. Guðmundur Steins- son og Jónas Árnason lesa úr verkum sínum. Ennfremur mun Þórarinn Guðnason læknir lesa eftir Indriða G. Þorsteinsson og Bemharður Guðmundsson stud. theol. les eftir Geir Kristjánsson. Þetta er önnur bókmennta- kynningin, sem Stúdentaráð Há- skóla íslands efnir til á þessu skólaári. Hin fyrri var á verkum Þórbergs Þórðarsonar, og var hún mjög fjölsótt. Öllum er heimill aðgangur að bókmenn taky nnin g um heldur áfram ár eftir ár verður þetta til þess, að upp ganga all- ir gjaldeyrisvarasjóðir eða jafn- vel, að í stað þeirra komi þungar skuldabyrðar. Af þessu leiðir svo, að öll teygja hverfur úr fjár málakerfi þjóðarinnar, svo að hætt er við, að ekki verði nokkur leið að auka útlánin, þegar þess getur orðið brýn þörf síðar til að koma í veg fyrir atvinnukreppu. Allmörg síðustu ár hafa í raun- inni verið svo hagstæð íslend- ingum, að það verður að teljast raunalegt, að ekki skuli hafa tek izt að halda betur á gjaldeyris- forða þjóðarinnar en raun ber vitni“. Greiðsluhalli — erlendar skuldir Þá ræddi hann um greiðslu- hallann' við útlönd, sem væri „ein alvarlegasta afleiðing verð- bólgunnar og hins óhóflega kapp- hlaups um framkvæmdir og fjár festingu“, og skuldasöfnunina er* lendis. Kvað hann heildarskuldir lands ins um síðustu áramót hafa num- ið 861 milljón króna, en greiðsl- ur vaxta og afborgana af erlend- um lánum hefðu numið 89 millj. kr„ og útlit væri fyrir, að slíkar greiðslur færu á þessu ári upp í 129 milljónir, og væru þó ekki taldar þar með afborganir af E. P.U. skuld, sem enn væri ósam- ið um en þær greiðslur gætu numið 10—15 millj. kr. á árinu. Hann kvað enga von til þess, að unnt yrði „að fullnægja eftir- spurn eftir erlendum gjaldeyri j neitt nærri því til fulls að óbreytt um aðstæðum innanlands". Og sagði síðan: „Seðlabankinn hefur þess vegna beitt sér fyrir því, að gerð ar yrðu sem rækilegastar áætl- anir um úthlutun gjaldeyris á árinu til þess að forðast vand- ræði og tryggja sem bezta notkun þess gjaldeyris, sem til ráðstöf- unar getur orðið. Slík áætlun hef ur nú verið gerð af viðskipta- málaráðuneytinu í samvinnu við Kvcikjulásinn var ekld læstur BÍLEIGANDI einn lá heldur en ekki í því í fyrrinótt, er bilnum hans var stolið. Hélt maðurinn sig hafa örugglega læst kveikju- lásnum í bílnum, en það er Chevrolet 1950, en svo reyndist bára ekki vera. Þjófurinn gat því farið inn í bílinn sem var opinn og ekið honum á brott. Rn ökuförin mun ekki hafa orðið löng, því bíllinn fannst utan við Kleppsveginn allmikið skemmd- ur í gærmorgun, en hafði verið stolið á Rauðalæk. Hefur bílnum verið ekið út af veginum á ofsa hraða, því hann hefur skröngl- azt yfir stórgrýti og virðist hafa farið í loftinu yfir 1 m. breiðan skurð, síðan enn áfram yfir urð og grjót, 40 metra leið. Var bíll- inn mikið skemmdur að neðan eftir þessa þjösnalegu meðferð. Eigandinn hafði ekki athugað að kveikjulásinn á bílnum er þrí- skiptur og eigi læstur fyrr en búið er að snúa lyklinum kvart- snúning til vinstri frá lóðréttri stöðu. Kvað rannsóknarlögregl- an sér kunnugt um að menn sem ættu þessa árgerð Chevroletta, gerðu sér þetta ekki almennt Ijóst. Bílþjófurinn var ófundinn gera of Seðlabankann og aðra aðila, sem um framkvæmd þessara mála fjalla". Flýtum okkur of mikið I lok ræðu sinnar mælti svo Vilhjálmur Þór á þessa leið: „Að lokum þykir mér rétt enn einu sinni að benda á, að öll þessi vandræði okkar, verðbólga, of- þensla í efnahagskerfi, gjald- eyrisskortur og vaxandi skulda- byrði við útlönd, allt stafar þetta af því, að við flýtum okkur of mikið. — Við reynum að gera of mikið of fljótt. Til þess að draga úr kapp- hlaupinu um fjárfestingu, til þess að minnka eyðslu, til þess að auka sparnað er umfram allt nauðsynlegt að skapa meiri til- trú til gildis okkar eigin pen- inga og skapa jafnvægi milli verðlags hér á landi og í ná- grannalöndum okkar. Eins og framtekið var hér áð- ur, geta bankar og sparisjóðir ekki lánað, eins og þeir hafa gert fyrirfarandi, ekki lánað meira en orðið er, nema þeir fái aukna peninga til umráða, en það verð- ur vart nema sparisjóðsmnstæð- ur aukist. Það er því sérstök að- kallandi þörf að gera ráðstafanir til þess, að svo verði. Þær pen- ingalegu aðgerðir, sem hægt er að grípa til með það fyrir augum að bæta hag sparif járeigenda og til aukningar sparifjár, ætla ég að séu einkum líklegastar, önnur sú að verðtryggja spariféð, og sé verðtrygging bundin við gull eða annan verðmæli, sem telja verð- ur álíka öruggan, hin leiðin að hækka vexti verulega um stund- arsakir, meðan verið er að skapa jafnvægi í efnahagsmálum okkar, eða báðar leiðir séu farnar sam- tímis“. 1 HÆSTARÉTTI er genginn dóm- ur í máli sjö manna, sem heima eiga suður í Keflavík og á Kefla- víkurflugvelli. Það er ákæruvald- ið, sem málið höfðaði gegn mönnum þessum, ýmist fyrir að hafa selt áfengi eða látið kaupa fyrir sig áfengi, sem þeir hafa ætlað til sölu. Allir voru mennirnir dæmdir í fésektir, mis- munandi háar, eða frá 400 krón- um til kr. 32,850,00. Þá var mönnunum gert að greiða allan sakarkostnað fyrir Hæstarétti. Forsaga máls þessa er sú að 1. febrúar 1957 fór yfirlögreglu- þjónninn í Keflavík, Sigtryggur Árnason, til Reykjavíkur í bíl með þrjá fanga. Á leiðinni mætti hann bifreiðinni Ö-68. Hafði, að sögn yfirlögregluþjónsins, leikið grunur á því að bíll þessi hafi verið notaður til áfengisflutn- inga til Keflavíkur í stórum stíl. Yfirlögregluþjónninn hringdi á lögregluvarðstofuna í Keflavík og lagði fyrir lögreglumenn þar að stöðva bílinn og að farmur hans yrði athugaður. Þetta var svo gert. Auk ýmiss konar varnings fundu lögreglumenn 15 kassa af áfengi og einn áfengispakka, alls 165 flöskur, sem allar báru merki Á. V. R. Lagði lögreglan hald á þessar birgðir. Bílstjórinn á bíl þessum skýrði svo frá, að hann hefði keypt mest allt þetta áfengi fyrir bílstjóra í Keflavík. Við athugun kom í ljós að vín- birgðir þessar áttu þessir menn: Angantýr Agnar Áskelsson, bíl- stjóri, Daníel Þór Emilsson, bíl- Ingibjörg Iljartardóttir Líndal. I heimsókn ettir 30 ár MARGIR íslendingar, sem gist hafa New York á undanförnum árum, kannast við Ingibjörgu Hjartardóttur Líndal, eða Ingi- björgu Halldórsson, eins og hún heitir, þegar hún er heimsótt ytra. Ingibjörg hefur um margra ára skeið leigt löndum, sem heimsótt hafa heimsborgina, her- bergi fyrir lítinn pening. Ferða- menn eiga oft á tíðum ekki allt of mikið skotsilfur, en þeir, sem Ingibjörg hefur getað hýst, hafa komizt vel af. Þess vegna á Ingi- stjóri, Pétur Þórarinsson, bílstj. á Keflavíkurflugvelli. Hinir eru allir búsettir í Keflavík, sem fyrr greinir: Sigurbergur Sverrisson, vélstjóri, Vilhelm Sigmarsson, bíl stjóri, Eðvarð Helgason Vilmund- arson og Sigurvin Sveinsson, raf- virkjameistari. Hinir ákærðu áttu misjafnlega mikið af áfengisbirgðum þeim, sem í bílnum fundust. Sá, sem átti mest, var með 44 flöskur, en annar átti 40 flöskur og aðrir minna. í forsendum dóms undirréttar, er Hæstiréttur staðfesti, segir, að refsingar allra hinna ákærðu beri að ákveða samkvæmt 2. mgr. 42. gr. áfengislaga, svo og samkvæmt 1. mgr. 39. gr. þeirra laga, að því er varðar ákærðu Daníel Þór og Vilhelm Sigmarsson. Þeir höfðu báðir selt áfengi. Þau urðu úrslit málsins, að Sig- urbergur Sverrisson var dæmdur í 6,600 króna sekt, Angantýr Agn- ar Áskelsson í 7,125 kr. sekt, Daníel Þór Emilsson í 17,000 kr. sekt og Eðvarð Helgason ViL- mundarson var dæmdur í 32,850 kr. sekt. Hann átti 44 flöskur af áfengi í margnefndum farmi. Þá var Sigurvin Sveinsson dæmdur í 27,525 króna sekt. Sektimar renna allar til Menningarsjóðs. Áfengið var gert upptækt til ríkis sjóðs, en hér var um að ræða ákavíti, sem kostaði þá 120 kr. flaskan, gin, sem kostaði kr. 165 og koníak, sem kostaði 185 kr. flaskan. I héraði nam málskostnaður björg marga góða vini meðal landa sinna hér heima. f október í haust lagði Ingi- björg land undir fót til þess að heimsækja fsland eftir að hafa dvalizt í Ameríku samfleytt síð- an 1928. Hún ætlaði aðeins að vera tvo mánuði. En hún átti hér fleiri hollvini en hún hélt — og það var ekki fyrr en í síðustu viku að hún losnaði. Nú er hún á leiðinni vestur yfir hafið með einum Fossanna. Tíðindamaður Mbl. hitti Ingi- björgu skömmu fyrir brottförina á heimili gamallar vinkonu. — Ingibjörg var mjög hrifin og þakklát — en þó mest undrandi. Það hafði svo margt breytzt síð- an 1928, hún sagðist miklu frem- ur treysta sér til þeSs að rata um öngstræti New York en Aust urbæinn. Erfiðast á ég með að venjast peningunum, og er ekki búin að jafna mig á því enn. Að sjá börnin koma í strætisvagn eða búð með fullt af krónupeningum! Nei, krónupeningur var nú eitt- hvað meira en til að skoppa þeg- ar ég fór frá íslandi; sagði hún og brosti. Þá fór hún til Kanada, en í styrjaldarlokin fluttist hún til New York með syni sínum Birgi Halldórssyni. Hann stundaði þar söngnám og héldu þau saman. Þau komu undir sig fótunum, tóku stóra íbúð, —og Ingibjörg leigði löndum. Svo fór Birgir heim, gerðist bóndi á íslandi, en móðir hans býr enn á sama stað, Broadway 2643 — og hún hefur síma UN-43910. Það væri gott fyrir einhvem ferðalanginn að hripa það hjá sér. Ingibjörg er nú 75 ára. Hún er hressileg og skrafhreif. Hún er næstum því viss um að eiga eft- ir að koma aftur til íslands. Og á meðan biður hún alla vel að lifa, biður fyrir beztu kveðjur til kunningja og vina, þakkar fyrir óviðjafnanlegar við- tökur. alls 10,000 kr., en í Hæstarétti alls 24,000 krónum og urðu hinir ákærðu að greiða allan þennan kostnað. I Hæstarétti var gerð smávægi- leg breyting á dómi undirréttar og segir svo í forsendum dómsins: Eins og í héraðsdómi greinir, hafa ákærðu Eðvarð Helgason Vilmundarson og Sigurvin Sveins son, gengizt við kaupum þar greindra vínfanga, og verða þeir að bera ábyrgð samkvæmt þvL Þá ber og að fallast á það með héraðsdómara, að þeir hafi eigi fært rök að því, að vínföngin hafi ekki verið ætluð til sölu, enda er framburður þeirra tor- tryggilegur um ýmis atriði í sam- bandi við áfengiskaupin. Með þessum athugasemdum þykir mega staðfesta héraðsdóminn að öðru en því, að frestun til greiðslu sekta verði 4 vikur frá birtingu dóms þessa. KAIRO, 20. marz. — Við munum aldrei sætta okkur við þá vernd, sem Krúsjeff veitir kommúnist- um í löndunum fyrir botni Mið- jarðarhafsins, sagði Nasser í ræðu í dag. Við munum aldrei sam- þykkja neins konar vernd yfir kommúnistum í okkar ríki, þeirra erlenda vernd eru afskipti af innanríkismálum okkar, sagði Nasser. PARÍS, 20. marz. — ítalski for- sætisráðherrann Segni sagði í dag, að ítalska stjórnin væri and- víg afvopnun Mið-Evrópu. Hann ræddi .við de Gaulle í dag og hélt svo til Bonn til funda við Aden- auer. LONDON, 20. marz. — f dag var kosið í nýja ráðgjafasamkundu í N-Rhodesíu. Kjósa átti 14 hvíta menn og 8 svarta. þessum.í gær. S/o menn eiga að greiða Menn- ingarsjóði 120 þús. kr. í sekt Hæstiréttur dæmdi jbá fyrir áfengis- sölu og fyrir að hafa látið kaupa áfengi sem ætlað var til sölu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.