Morgunblaðið - 21.03.1959, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.03.1959, Blaðsíða 18
18 Sf O R C V y B L 4 Ð I Ð Laugardagur 21. man 1959 \Einn bezti skíðamaður Austur- ríkis kennir ísl. skíðamönnum I HINGAÐ til lands er kominn ) austurríski skíðakappinn Zimm- erman, en hann er hingað kom- inn á vegum Skíðasambands ís- j lands og mun þjálfa íslenzka j skíðamenn í fjallagreinum. — | Zimmerman er einn af beztu i skíðamönnum heims og hefur þegar verið valinn í Ólympíulið Austurríkis fyrir vetrarleikina 1960. Fréttamönnum gafst tækifæri til að hitta hann í gærdag og sagðist hann nú vera í sinni I fyrstu kennsluferð utan síns heimalands. Hann er 26 ára gam- ! aU og hefur keppt á skíðamótum síðan hann var 14 ára gamall, en verið meira eða minna á skíðum síðan hann var 5 ára patti, en slíkt er siður í heimahögum hans. Hann er frá Insbruck. 1 vetur hefur árangur Zimmer- mans verið framúrskarandi. Á fyrsta stórmóti Mið-Evrópu, Lauherhorn-mótinu svonefnda í Sviss, varð hann 3. í tvíkeppni. Hann varð í 2. sæti á Kistbyhel- mótinu og á nýafstöðnu Holmen- kollen-móti varð hann sigurveg- ari í bruni, 2. í svigkeppninni og í öðru sæti í samanlögðu. Hann keppti á heimsmeistara- mótinu í fyrra og varð þá 9. í stórvigi. Hann kvað austurrísku 'skíða- mennina, sem valdir hafa verið í Ólympíuliðið, myndu í sumar sefa þolæfingar. Síðan halda þeir i nóvember á fjallastað og æfa gvig og 5—6 vikum siðar á annan stað, þar sem brunskilyrði eru betri og æfa brun þar til er þeir fara til Bandaríkjanna á vetrar- leikana. Zimmerman kvaðst lítt þekkja til íslenzkra skíðamanna utan ör- fárra. Hann kvaðst hlakka til samvinnu við þá og sagði að bezt væri að geyma öll ummæli um þá unz hann hefði verið samvistum við þá við kennslu. Með sömu vél og Zimmerman komu íslenzku keppendurnir, sem voru á Holmenkollen-mót- inu. Meðal þeirra var Eysteinn Skákþing íslands sett í dag SKÁKÞING íslands verður sett í dag (laugardaginn 21. marz) kl. 3 í Breiðfirðingabúð. Meðal keppenda í Landsliði eru Ingi R. Jóhannsson, Ingvar Ásmundsson, Arinbjörn Guð- mundsson og Ingimar Jónsson frá Akureyri. f meistaraflokki eru 20 þátt- takendur og verða tefldar 9 um- ferðir eftir Monradskerfi. Meðal þeira skákmanna, sem þar tefla eru Stefán Briem, Þórð- ur Jörundsson, Sigurður Jónsson og Bragi Þorbergsson og Jón Ingimarsson frá Akureyri. VÍN, 20. marz. — Búdapest-út- varpið skýrði svo frá í dag, að ungverska stjórnin hefði afherit orðsendingu til Ráðstjórnarinn- ar þess efnis, að Ungverjar styddu tillögur Rússa í Berlínar- málinu í hvívetna. Þórðarson, sem varð 4. í saman- lögðu og náði með því betri ár- angri en íslendingur hefur náð á erlendri grund í skíðaíþrótt. — Viku eftir mótið meiddist Ey- steinn á æfingu í Svíþjóð svo illa að hann verður frá skíðaiðkun að minnsta kosti í tvær vikur. íslandsmót í badminton ÍSLANDSMEISTARAMÓT í bad minton árið 1959 fer fram í Reykjavík dagana 18. og 19. apríl n.k. Þátttaka tilkynnist til Pét- urs Georgssonar, sími 19140 og 32908. Listkynning Mbl. Sýning d bnrnn- teikningum BÖRNIN úr Kársnes- og Kópa- j vogsskóla hafa nú lokið sýningu sinni í glugga biaðsins, en viS hafa tekið börn úr Austurbæjar- skóla, sem sýna næstu viku. í glugganum getur að Iíta vatns- litamyndir, krítarmynd og ýms- ar klipptar myndir. Einnig eru þar allstórar myndir sem eru samvinna margra barna. Teiknikennarar Austurbæjar- skólans eru Valgerður Briem og Björn Birnir. Undirbúningur fjárlaganna og kjör- dœmamálsins er að komast á lokastig Þingmenn farnir í páskaleyfi Cuðmundur sigraði í 100 m skriðsundi Nilsson setti sœnskt met í 100 m bringusundi Á SUNDMÓTI KR í Sundhöll Hafnarfjarðar í gærkvöldi var Guðmundur Gíslason „maður dagsins". Hann sigraði nú Lenn- art Brock í 100 m skriðsundi og var á sama tíma og bringusunds- maðurinn Bernt Nilsson í 50 m ílugsundi. En afrek Bernt Nilssons í 100 m bringyundi er þó mest, en hann setti sænskt met á 1.13.9 sem er afburðagóður tími. — Gamla metið var 1.14.5 mín. Tími Guðmundar í skriðsund- inu var 59.5 sek., en tími Brock 1.00.9. í 100 m skriðsundi kvenna sigraði Britta Eriksen á 1.06.1, afbragðstíma, en Ágústu tókst illa upp, náði „aðeins“ 1.09.0. í 50 m flugsundi karla voru þeir jafnir að tíma Nilsson og Guðmundur 31.0 sek., en Nils- son var dæmdur sigurinn. f 3x50 m þrísundi syntu Birg- itta, Nilsson og Brock á 1.37.0 og Ágústa, Einar Kristjánsson og Guðmundur á 1.41.0. Skíðolonfismótlnu nilýst EINS OG KUNNUGT er, átti skíðalandsmótið að fara fram á Siglufirði nú um páskana. Það er líka kunnugt af fréttum, að inflúensufaraldur hefir gengið yfir Siglufjörð undanfarnar vik- ur, og mun það vera meginorsök þess að hætt hefir verið við að halda landsmótið þar. Fer þannig ekkert skíðalandsmót fram í ár. | Er Mbl. átti tal við fréttarit- ara sinn á Siglufirði í gær, sagði hann, að snjór væri að vísu lítill þar um slóðir nú, en þó hefði það varla verið látið standa í vegi fyrir því að halda mótið. Hitt mundi meginorsökin, að óráðlegt hefði þótt að stefna öllum þeim fjölda, sem ávallt sækir skíða- landsmótin um páskana, til Siglu tfjarðar ,eins og þar er nú í pott- inn búið. — Inflúensan mun að vísu heldur í rénun, en þó liggur enn fjöldi manns, einkum þó börn, og hefir verið frestað að hefja kennslu í barnaskólanum á ný fram yfir páska. Hins veg- ar er nú hafin kennsla í gagn- fræðaskólanum á nýjan leik en honum var einnig lokað um tíma vegna inflúensunnar. Mun hafa orðið samkomulag um það milli heilbrigðisyfirvald anna á viðkomandi stöðum og Skíðasambandsins, að ráðlegast væri að aflýsa skíðalandsmótinu, með tilliti til þessara aðstæðna. í ráði mun að halda mót í alpa- greinum á Akureyri um páskana, en endanleg ákvörðun um það hefir þó ekki verið tekin. Á FUNDI efri deilar Alþingis í gær, var haldið áfram fyrstu umræðu um frv. um bráðabirgða fjárgreiðslur úr ríl^issjóði 1959, en í blaðinu í gær var skýrt frá fyrri hluta þeirrar umræðu. G'uðmundur 1. Guðmundsson, fjármálaráðherra, kvaddi sér hljóðs um málið. Þakkaði hann forseta deildarinnar og fjárhags nefnd fljóta og góða afgreiðslu á þessu frumvarpi. Ilarmaði hann að hafa ekki gelað mætt á fundi deildarinnar daginn áð- ur, er málið var tekið til um- ræðu. Fjármálaráðherra skýrði svo frá, að er heimildin um bráða- birgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði á árinu 1959 var framlengd til marzloka, hefði hann gert sér vonir um, að fjárlagafrumvarpið yrði tilbúið til 2. umr. fyrir þann tíma. En allur undirbúningur í sambandi við fjárlögin hefði ver- ið tímafrekari og erfiðari en búizt hafði verið við. Fyrir tveimur vikum kvaðst fjármálaráðherra hafa tilkynnt formanni fjárveitinganefndar að hann hefði lokið bráðabirgða- uppgjöri ríkisreikninganna árið 1958 og hefði hann beðið for- mann fjárveitinganefndar að hlutast til um að nefndin at- hugaði erindi og athuganir, sem fyrir henni lægju. Þegar fjár- veitinganefnd hefði athugað hverjar greiðslur væru áætlaðar kvaðst fjármálaráðherra reiðu- búinn að leggja fram áætlun um tekjuliði fjárlagafrumvarpsins. Svo óheppilega hefði viljað til, að um þær mundir, sem hann hefði farið þessa á leit við for- mann fjárveitinganefndar, hefðu komið saman hér í bænum tvö flokksþing og hefðu margir þing manna tafizt vegna setu á þeim. Nú væri hins vegar ekkert því til fyrirstöðu að fjárveitinga- nefnd héldi áfram störfum. Guðmundur í. Guðmundsson kvaðst hafa sínar tillögur um tekjuáætlun tilbúnar og mundi leggja þær fyrir fjárveitinga- nefnd síðar um daginn ásamt bráðabirgðauppgjöri ríkisreikn- inganna 1958. Yrði fjárlaga- frumvarpið væntanlega lagt fram til annarrar umræðu fljót- lega eftir páska. Ekki urðu meiri umræður um þetta mál í efri deild og var það afgreitt frá deidinni á þrem- ur fundum í gær. Á síðasta fundi deildarinnar í gær gat Bernharff Stefánsson, forseti, þess, að yæntanlega yrði þetta síðasti fundur deildarinn- ar fyrir páska. Óskaði hann þing deildarmönnum góðs páskaleyfis og góðrar ferðar og afturkomu þeim, sem kynnu að fara heim til sín um páskahátíðina. Jóhann Þ. Jósefsson kvaddi sér hljóðs og þakkaði deildar- forseta góðrar páskaóskir og góðar óskir til þeirra er færu úr bænum. Óskaði hann forseta og fjölskyldu hans alls góðs og kvaðst vonast tií að þingdeild- armenn mættu allir hittast heilir eftir páska. Frv. um bráðabirgðafjárgreiðsl- ur úr ríkissjóði 1959 var tekið til fyrstu umræðu í neðri deild á fundi, sem hófst kl. 2,30 síð- degis í gær. Fylgdi fjármálaráð- herra því úr hlaði með nokkrum orðum. Gunnar Jóhannsson kvaddi sér hljóðs og kvaðst vilja spyrja fjármálaráðherra, hvað hefði tafið afgreiðslu fjárlaganna. — Hvort staðið hefði á fjármála- ráðherra eða fjárveitinganefnd Alþingis. Guffmundur í. Guffmundsson, fjármálaráðherra, kvað drátt þann, er orðið hefði á afgreiðslu fjárlaga, stafa af eðlilegum og óhjákvæmilegum ástæðum. Það sem hefði tafið hvað mest, hefði verið bráðabirgðauppgjör ríkis- reikninganna 1958 og uppgjör útf lutningss j óðs. En það væru ekki fyrst og fremst fjárlögin, sem hefðu tafið störf þingsins að undanförnu því mikil vinna hefði einnig farið í undirbúning frumvarpsins um væntanlega breytingu á stjórnar skránni. Hefði verið beðið eftir bæði fjárlögunum og stjórnár- skrármálinu, en væntanlega væru bæði þessi mál nú að kom- ast á lokastig. Var framlenging á greiðslu- heimildinni til fyrsta maí rædd á þremur fundum í neðri deild og afgreidd sem lög frá Alþingi í fí/er, í lok síðasta fundarins bar forseti deildarinnar, Einar Ol- geirsson, fram óskir til þingdeild armanna um gleðilega páskahá- tíð og góða ferð og afturkomu þeim til handa, sem færu úr bæn um. Bjami Benediktsson þakkaði •forseta góðar óskir fyrir hönd þingdeildarmanna og ágæta fundarstjórn í vetur og óskaði honum og fjölskyldu hans allra heilla. Hús skemmist af eldi í Stykkishólmi STYKKISHÓLMI, 20. marz. — Um kl. hálfsjö í morgun kom upp eldur í íbúðarhúsi við Skólastíg 16 hér í Stykkishólmi. Húsið er einlyft timburhús, með port- byggðu risi, múrhúðað utan — Öldruð kona og dótturdóttir hennar, sem er 12 ára gömul, voru einar heima, er þetta gerðist, báðar í svefni. — Telpan vakn- aði við það, að allmikill reykur var í herbergi hennar. Er hún gætti að hverju þetta sætti, sá hún, að talsverður eldur var í eldhúsinu, sem er á neðri hæð hússins. Telpan hraðaði sér þegar í næsta hús og sagði frá, hvernig komið væri. Var þar brugðið skjótt við til hjálpar og þegar kallað á slökkviliðið. Kom það skjótt á vettvang og tókst fljót- lega að slökkva eldinn, en áður hafði tekizt að hefta frekari út- breiðslu hans. Skammt mun hafa liðið frá því að eldurinn kom upp og þar til hans varð vart, en þar sem húsið er úr timbri, eins og fyrr segir, hafði eldurinn læst sig allmjög um eldhúsið á þessum stutta tíma. Eldhúsið er stórskemmt, og nokkur spjöll hafa orðið á hús- inu að öðru leyti af reyk. Talið er að kviknað hafi í út frá raf- magnsplötu. Eigandi hússins er Sigurður M. Jóhannsson, en hann var kominn til vinnu, er þetta gerðist. — Árni. Yfirlýsing VEGNA greinar Gunnars S. Magnússonar í Tímanum 19. þ. m. viljum við taka það fram, að aldrei hefur komið til mála að Félag íslenzkra myndlistarmanna vítti Menntamálaráð vegna Moskvusýningarinnar. Einnig, að gefnu tilefni, að félagsskapur sá er kallar sig Félag íslenzkra myndlistarnema er okkur að öllu óviðkomandi. Stjórn Féiags íslenzkra myndlistarmanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.