Morgunblaðið - 21.03.1959, Page 12

Morgunblaðið - 21.03.1959, Page 12
12 MORCVTSm 4Ð1Ð Laugardagur 21. marz 1959 Vortízkan 1959 m.a. kjólar ór „mohair“-efninu sem nú fer o^'rför um heim allann. — MARKABURIIUN Laugaveg 89. Réttiætíð mun sigra Hvenær mun hugsjónin „frelsi frá ótta“ rætast? Um ofanritað efni talar O.J.Olsen í Aðventkirkj- unni annað kvöld (sunnu- daginn 22. marz 1959). kl. 20:30. Einsöngur og kvartett. Allir velkomnir. Félag störeignaskattsgreiðenda Fundur verður haldinn í félaginu i Tjarnarcafé niðri), sunnudaginn 22. þ.m. og hefst kl. 2 síðdegis. Á fundinum verða m.a. veittar lögfræðilegar leið- beiningar víkjandi því, hvernig réttast er að bregðast við innheimtu hins svonefnda stóreignaskatts, eins og málið horfir nú við. Er öllum félagsmönnum, og einnig þeim, sem hugsa sér að ganga í félagið og vilja njóta aðstoðar þess, ráðlagt eindregið að sækja fundinn. Fundarhlé og sameiginleg kaffidrykkja verður kl. 4. Félagsstjórnin Nýtt símanúmer Vegna væntanlegs flutnings fyrirtækisins. Sími okkar nú 35-400 kl. 8—19. — 22-8-23 eftir kl. 19. Viðskiptamenn okkar eru vinsamlegast beðnir að skrifa hjá sér númerin. Rybhreinsun & Málmhuóun s.f. Görðum v/Ægisíðu. Bíllinn SIMI — 18-8-33. MERCURY '1957 Station. Mjög glæsilegur, til sölu og sýnis í dag. kjoíálinn Varðarhúsinu við Kalkofnsveg. Sjötugui í dag: Guðbjartur Ólafsson forseti SVFÍ ÞÓTT það sé alkunnugt, að ekkiT fara ávallt saman gæfa og gjörfu leiki, eru dæmin sem betur fer j miklu fleiri um hitt, að þeim, sem vel eru að heiman gerðir, auðn- ist að verða ætt sinni og sam- ferðamönnum til sóma og nyt- semdar. Einn þeirra manna er Guðbjartur Ólafsson, forseti Slysavarnafélags fslands, sem er sjötugur í dag. Má hiklaust telja hann einn af farsælustu forgöngu mönnum íslenzkrar sjómanna- stéttar. Guðbjartur er Barðstrending- ur að ætt og uppruna, fæddur að Kefiavík í Rauðasandshreppi, 21. marz 1889, sonur Ólafs Guðbjarts sonar og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur, sem þar bjuggu lengi. Á barnsaldri mun Guðbjartur hafa farið að stunda sjó með föð- ur sínum, eins og altítt var um vestfirzka drengi á þeim árum, og árið 1911 lýkur hann bæði fiskimanna- og farmannaprófi við- Stýrimannaskólann í Reykjavík. Skipstjóri var hann á ýmsum skipum á árunum 1913—1929 og fórst það starf þannig úr hendi, að aldrei hlekktist honum á né missti af sér mann, í öll þau ár, sem hann fór með skipstjórn. Árið 1916 var Guðbjartur skip- stjóri ó kútter „Ester“ frá Reykja vík, og bar þá gæfu til að bjarga úr bráðum háska áhöfnum fjög- urra árskipa samt. 38 mönrium í norðan-áhlaupaveðri á vetrar vertíð suður í Grindavíkursjó. Er sú björgun fræg orðin, því að vafaiítið má telja, að aliir hefðu þessir sjómenn farizt, hefði „Est- er“ ekki borið þar að. Árið 1921 var Guðbjartur skipstjóri á tog- ara og bjargaði þá enskum tog- ara, sem var að Veka upp í Þrí- dranga við Vestmannaeyjar, hjálparlaus, með veiðarfærin í skrúfunni. Árið 1929 gerðist Guðbjartur hafnsögumaður í Reykjavík og gegndi því starfi til ársins 1955, er hann gerðist eftirlitsmaður með vínveitingastöðum hér í bæn um á vegum dómsmálaráðuneyt- isins. Um þessi störf hans þarf ekki að fjölyrða, þau hafa ver- ið unnin af þeim alkunna dugn- aði og skyldurækni, sem ein- kennt hefur ailt, sem hann hef- ur tekið sér fyrir hendur. Eins og nærri má geta, hefur Guðbjartur orðið að hafa á hendi margvísleg störf í íélagsmálum sjómanna, var t.d. formaður skipstjórafélagsins „Öldunnar" í 18 ár, í stjórn Farmanna- og fiskimannasambands íslands frá byrjun, varabæjarfulltrúi og varamaður í hafnarstjórn í nokk- ur ár auk annars, sem of langt mál yrði upp að teija. Þó býst ég við, að lengst muni halda nafni hans á lofti störf hans í þágu slysavarna, fyrr og síðar. Auk þess, sem áður er get- ið, átti hann sem hafnsögumað- ur þátt í björgun margra manna úr Reykjavíkurhöfn og umhverfi hennar, bæði á nótt sem degi, og forystu í málefnum Slysavarna- félags íslands hefur Guðbjartur nú haft um tveggja áratuga skeið. Hann var kosinn í aðalstjórn fé- iagsins árið 1938 og forseti þess árið 1940, og hefur gegnt for- setastörfunum óslitið síðan, eða Vesfurbœingar Ný verzlun opnar í dag að Framnesvegi 2. Þar verður á boðstólum • Vefnaðarvara — stykkjavara og smávara. Allt nýjar vörur — Eitthvað fyrir alla. Verzlunin Dalur Ungtemplarar ÁrsHátíðin verður haldín í GT-húsinu sunnudaginn 22. marz kl. 9. Góð skemmtiatriði Miðar afhentir laugardaginn 21. marz kl. 4—6 e.h. í GT-húsinu. Ungmannast. Andvari og Framtíðin. Hestamannafélagið Hörður Aöalfundur Haröar verður haldinn í Hlégarði sunnudaginn 22. marz og hefst kl. 2 e.h. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. nálega % þess tíma, sem félagið hefur starfað. Á þessu tímabili hefur Siysavarnaféiagið verið í örum vexti. Deildir þess hafa nær tvöfaidazt að tölu, meðiimatal- an 2-3-faldazt, og verkefni og vinna starfsmannanna aukizt að sama skapi. Má nærri geta, að ekki hefur þessi þróun dregið úr umsvifum forsetans, sem fylgist með öliu og oft verður að ráða málum til lykta milli stjórnar- funda. Traust það, sem Guðbjartur hefur áunnið sér með störfum sínum í þarfir Slysavarnafélags- ins má marka af því, að allt þetta tímabil hefur hann orðið sjálf- kjörinn forseti félagsins, þing eft ir þing. Þetta traust hefur hann einnig verðskuldað að dómi allra, sem til þekkja, því að umhyggja hans fyrir málefnum Slysavarna- félagsins og dagleg þátttaka í störfum þess er þannig, að hann hlýtur að fórna félaginu mestum tíma, sem hann getur séð af vegna atvinnu sinnar. Þó vita allir, að hér er ekki eftir öðrum launum að siægjast en ánægjunni af að leggja góðu málefni iið og eiga virkan þátt í vexti þess og viðgangi. Á þessum merku tímamótum í lífi hans vil ég fyrir hönd stjórn ar Slysavarnafél. fslands þakka Guðbjarti Ólafssyni hið mikla og óeigingjarna starf hans fyrr og síðar í þágu þeirra mála, sem félagið berst fyrir, óska honum iangra lífdaga og Siysavarnafé- laginu þess, að það megi sem lengst njóta farsællar forystu hans í málum sinum. Friðrik V. Ólafsson. ÞAÐ munu fáir ætla, sem mæta Guðbjarti Óiafssyni, for- seta Siysavarnaféiags íslands, á förnum vegi, að hann sé að verða sjötugur, en ekki mun þó þýða þar móti að mæla. Guðbjartur hefur unnið mikið og merkilegt starf í þágu þjóð- ar sinnar, bæði sem skipstjóri og hafnsögumaður í Reykjavík um mörg ár og með þátttöku sinni í félagsmálum sjómanna- stéttarinnar, en þó einkum slysa varnamálum, en fyrir það starf sitt er hann löngu þjóðkunnur. Hann var einn af stofnendum Slysavarnafélags íslands 1928 og forseti þess hefur hann'verið síðan 1940, lengur en nokkur annar. Hann hefur verið féiagi 1 Reykjavikurdeildinni „Ingólfi" og meðal fulltrúa þeirrar deild- ar á landsþingum Slysavarnafé- lagsins. Fiestir munu á einu máli um það, að Guðbjartur Ólafsson hafi rækt starf sitt sem forseti Slysa- varnafélagsins með ágætum, enda hefði verið auðvelt að skipta um forseta öll þessi ár, ef ástæða hefði þótt til. Kostir Guðbjarts sem forseta hafa jafnan verið, hinn brenn- andi áhugi á slysavarnamálum, reglusemi og lipurð og víðtæk þekking hans á öllu, sem lýtur að sjómennsku og siglingum. f svo fjölmennum félagssam- tökum §em Slysvarnafélagi fs- lands, er fólk ekki alltaf sam- mála um starfsaðferðir, en það sem sameinar það, er hinn mikli áhugi þess, að starfa fyrir þetta mikla velferðarmál og efla sem mest slysavarnastarfið í landinu yfirleitt. f þessum félagsskap hefur Guð bjartur Ólafsson reynzt hinn bezti forustumaður og svo mun verða, meðan hann heíur þetta mikilvæga starf á hendi. Slysavarnafólk um land allt mun hugsa hlýtt til hans í dag og þakka honum mikið og gott starf, og við félagar hans í „Ing- ólfi“ sendum honum, konu hans og fjölskyldu beztu kveðjur og árnaðaróskir. Ó. J. Þ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.