Morgunblaðið - 21.03.1959, Page 19

Morgunblaðið - 21.03.1959, Page 19
Laugardagur 21. marz 1959 MORGUNBLAÐIÐ 19 Leikfélag Akureyrar sýnir Delerium bubonis — Næsta skrefið Frh. af bls. 1. 3,300 mílur á klst. í meiri hæð en sú fyrrnefnda, sem í rauninni væri óþarfa millistig. ★ Reiknað hefur verið út, að ein- ungis þyrfti 80 þotur, sem flygju með þreföldum hraða hljóðsins, til þess að anna sömu flutningum og hinar 300 nútímaþotur, sem bandarísk flugfélög eru nú að fá. En þessar hraðfleygu þotur verða ekki teknar í notkun fyrr en 1970, segja sérfræðingar. — Ástæðan er sú, að flestöll flug- félögin eru nú að festa allt sitt fé og meira til í þotukaupum — og mundu ekki hafa fjárhagslegt bolmagn til þess að endurnýja flotann fyrr en í fyrsta lagi árið 1970. Hins vegar munu tæknileg- ar hliðar þessa máls að fullu leystar. ★ Stóru farþegaþoturnar kosta nú um 3 millj. sterlingspunda, en þota af svipaðri stærð, sem flygi með þreföldum hraða hljóðsins, yrði þrisvar eða fjór- um sinnum dýrari. Douglasverksmiðjurnar hafa varið sem svarar um 107 millj. punda til smíði farþegaþotunnar DC-8, en ef hefja ætti nú smíði fyrrgreindrar þotu, mundi fyrir- tækið kosta verksmiðjuna 357 millj. sterlingspunda að áliti sér- fræðinga. Eitt er athyglisvert í þessum niðurstöðum. Stórar farþegaþot- ur, sem fljúga með margföldum hraða hljóðsins, mega ekki brjóta hljóðmúrinn fyrr en þær eru komnar upp í 35,000 feta hæð. Ástæðan er sú, að þær valda miklum hávaða — og mundu að öðrum kosti geta valdið spjöllum bæði á lifandi og dauðu á jörðu niðri. ★ Þessar þotur munu hækka flugið mjög ört, með 12—20 gráða halla svo að ólíklegt er, að farþegar geti yfirgefið sæti sín fyrr en komið verður í „rétta“ hæð. Þá telja sérfróðir og, að með þessum þotum muni deilur um sætaskipun falla niður af sjálfu sér. Sumir telja öruggara að sætum farþega sé komið þann- ig fyrir í flugvélum, að farþeg- arnir horfi aftur eftir flugvélinni. En þegar haliinn verður orðinn svona mikill, þegar þotan hækk- ar og lækkar flugið, er þægilegra að horfa í hreyfiáttina. Búizt er við, að flestar þessar hraðfleygu forþegaþotur framtíð- arinnar verði smíðaðar fyrir 160 farþega, eða þ. u. b. Þoturnar verði sem sé eins litl- ar og hægt er að komast af með — miðað við 4.000 mílna flugþol — og er þar reyndar miðað við að þáer flytji með sér eldsneyti, svipað og þotur þarfnast nú, en kjarnorkuhreyflar geta auðvitað mörgu breytt. Búizt er við að þessar þotur, sem fljúga með 3— 5 földum hraða hljóðsins, vegi fullhlaðnar 240—300 tonn. Innbrot framið í Grimdarfirði GRUNDARFIRÐI, 20. marz. — í nótt var brotizt inn í kaup- félagið hér á staðnum. Hafði gluggi á bakhlið hússins verið brotinn og farið þannig inn í skrifstofurnar. Sáust þar merki þess, að brálað hefði verið við peningakassann, því brotin var af honum halda, en ekki hafði þó tekizt að brjóta hann upp. Ekki er heldur kunnugt um, að neinum öðrum verðmætum hafi verið stolið. Ekki er það ljóst, hvort hér hefur verið einn maður að verki eðafleiri, en hitt er sýnt, að ekki var „fagmannlega" að farið, því að eftir lágu á skrifstofunni í morgun húfa og vettlingar, ásamt vindlakveikjara. Hreppstjórinn hóf þegar byrj- unarrannsókn í málinu, en í kvöld er sýslumaðurinn í Stykk- ishólmi, eða fulltrúi hans, vænt- anlegur hingað og mun taka málið í sínar hendur. —E.M. AKUREYRI, 20. marz. — Næst- komandi þriðjudagskvöld hefir Leikfélag Akureyrar frumsýn- ingu á hinu vinsæla leikriti, „Del- erium bubonis", eftir þá bræður Jónas og Jón Múla Árnasyni, sem sýnt hefir verið í Reykjavík undanfarið. — Eins og frá hefir verið skýrt áður, hafa þeir bræð- ur breytt leikritinu allmikið frá því að það var flutt í útvarp fyrir nokkrum árum, og bætt inn í það söngvum og dönsum. Leikstjóri er Flosi Ólafsson, leikaii frá Reykjavík, en hann hefir dvalizt hér um skeið, bæði til þess að æfa þetta leikiit og sem kennari við leiklistarskóla ieikfélagsins. Hefir leikskólinn verið vel sóttur, en auk Flosa kennir Guðmundur Gunnarsson við skólann. Aðalhlutverkin í „Delerium bubonis" eru í höndum þessara leikenda: Eggert Ólafsson leikur forstjórann, Þórhalla Þorsteins- dóttir forstjórafrúna, Jóhann Ög- mundsson ráðherrann, Óðinn Valdemarsson fósturson ráðherr- ans og Þórey Guðmundsdóttir dóttur forstjórans. Er þetta frum- raun hennar á leiksviði. — Þeir Árni Ingimundarson, Sigurður Jóhannesson og Edvin Kaaber leika fyrir söng og dönsum. „Delerium bubonis er þriðja viðfangsefni Leikfélags Akur- eyrar í vetur — hin tvö voru „Gasljós" og „Forríkur fátækl- ingur. Bæði þessi leikrit voru vel sótt, t. d. voru hafðar 16 sýningar á hinu síðarnefnda og ávallt fyrir — Blóðugir bardagar Frh. af bls. 1. skipulag meðal frumbyggja Tíbets. ★ Kínverjar eru óvanir að berj- ast og ferðast í landsiagi sem í Tíbet — og hinir innfæddu voru þeim því skeinuhættir þrátt fyr- ir frumstæð vopn. Tókst Khamba mönnum að ná miklu herfangi strax árið 1950, bæði skotvopn- um og skotfærabirgðum. En þeir eyðilögðu öll þessi hergögn, því að þeir kunnu ekki að nota þau. Síðar tóku þeir marga Kínverja herfangi og létu þá kenna sér að nota hin nýtízku vopn, riffla og annað slíkt — og hófu svo að ræna Kínverja aftur. Öruggar fregnir eru af því, að sl. sumar hafi þúsundir Khamba haldið til Lhasa til þess að fá áheyrn hjá Dalai Lama og votta honum hollustu sína. Ekki er vit- að hvort einhverjir náðu fundi trúarleiðtogans, en hins vegar eru fregnir af því, að um 10 þús- undir Khaníba hafi flúið höfuð- borgina af ótta við að verða strá- felldir af kínverskum kommún- istum. Herjuðu Khamba-menn nærliggjandi héruð og tóku a. m. k. 14 herstöðvar Kínverja her- skildi. Stofnuðu þeir þar eigið riki — og snemma £ mánuðinum bárust fregnir af því, að þeir hefðu hrakið Kínverja frá bökk- um Bramaputra, aðeins fáeinar mílur frá Lhasa. ★ Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn, sem skerst í odda með Tíbet búum og hinum erlendu drottn- urum, enda þótt fréttir hafi ekki verið miklar af atburðum þar í landi. Al.lt frá því að kommún- istar þvinguðu forystumenn Tí- bets til þess að undirrita samning í Peking árið 1951, þar sem Kín- verjum voru falin utanríkis- og hermál Tíbets, hafa öðru hverju blossað upp smáskærur víða um landið — og fregnir af þeim bor- izt umheiminum, oft mánuðum síðar. Kínverjar hafa stöðugt styrkt her sinn og samgönguleiðir I Tíbet á undanförnum árum, en aðalbækistöðvar kínverska hers- ins í Tíbet eru í höfuðborginni Lhasa. fullu húsi. — Brátt munu hefjast æfingar á fjórða leikritinu, sem félagið sýnir á þessu leikári, en því mun ekki hafa verið gefið nafn enn. — Baldvin Halldórsson, leikari frá Reykjavík, er væntan- legur hingað til bæjarins innan skamms, en hann mun sijórna þessu leikriti. — Mag. SAINT Quentin (Frakklandi), 20. marz. — Bandaríski hermað- urinn, sem á stríðsárunum strauk úr hernum og faldist Frakklandi í 14 ár og giftist þar franskri stúlku, var í dag dæmdur í eins mánaðar fangelsi fyrir ölvun á almannafæri og óspektir. Einnig var hann sak- aður um að aka bíl undir áhrif- um og hafa m. a. ekið á brúarhand rið, sem skemmdist nokkuð. — Hann slapp þó ómeiddur. Wayne Powers, en svo heitir hinn fyrrverandi hermaður, hlaut 10 ára fangelsi í Banda- ríkjunum á sínum tíma fyrir liðhlaup, en síðan var þeim dómi breytt í 6 mánuði. Hann hélt að þeim tíma liðnum aftur til franska þorpsins, sem hann faldist í, og býr nú þar með konu sinni og fimm börnum. Félagsláf íþrótlafélag Kvenna Skíðafólk, sem ætlar að dvelja í skála félagsins um páskana, — vitji dvalarkorta í Hattabúðina Höddu, mánudag 23. þ.m., frá kl. 6 til 7 síðdegis. — Stjómin. Jazz-klúbbur Reykjavíkur! Klúbburinn opnar í Framsóknar húsinu í dag kl. 2,30. — Dagskrá: 1. Plötukynning Finnur Eydal. 2. Quartett Áma Scheving. 3. Jam Session (Reynir Sig- urðsson o. f 1.). — Stjórnin. Frjálsíþrótladeild K.R. Innanfélagsmót á laugardags- æfingunni í langstökki og þrí- stökki án atrennu og hástökki með atrennu. — Ferðir sktðafélaganna um helgina. — Laugardagur 21. þ.m. kl. 2 og kl. 6, ílellisheiði, kl. 2,30, Mosfells heiði. — Sunnudagur kl. 10, Hellis heiði, kl. 9,30 Mosfellsheiði. Farið verður frá B. S. R. Samæfingartími T B R í Valshúsinu fellur niður í dag vegna Reykjavíkurmóts í bad- minton. _____________________ Samkomur Samkoma verSur í samkomusal Hjálpræðisíhersins kl. 8,30. Talað verður um efnið: „En allt þetta kom yfir þá sem fyrirboði og það er ritað oss til viðvörunar sem endir aldanna er komið til“. Sjá 1. Kor. 10. kapt., 11. vers. — Allir velkomnir. SigurSur Jónsson, Bjarnastöðum. K. F. U. M. Kl. 10 f.h. Sunnudagaskólinn. Kl. 10„30 f.h. Kársnesdeild. Kl. 1,30 e.h. Drengir. Kl. 8,30 e.h. Kristnilboðssatn- koma. Felix Ölafsson kristniboði talar. Allir ve.lkomnir. Kristniboðshúsið Betanía, Laufásvegi 13, —— Á morgun: Sunnudagaskólinn kl. 2 e.h. öll böm velkomin. I. O. G. T. Baraastúkan Unnur Fundur á miorgun sunnudag, í G.T.-húsinu, kl. 10 f.h. Branastúkan Díana nr. 54 Fundur á morgun kl. 10. Leik- þættir og kappát. Mætið stundvís- lega. — Gæzlumenn. Öðagot á slysstað I FYRRADAG varð umferðar- slys vestur á Ránargötu. Tveggja ára telpa varð fyrir vörubíl, sem fór yfir annan fótlegg barnsins og braut hann. Svo mikið var óðagotið, að lög- reglan var ekki kölluð á slys- staðinn og heldur ekki sjúkralið- ið. Var barnið gripið upp af göt- unni og farið með það í skyndi á slysavarðstofna. Þar kom í ljós að litla telpan hafði fótbrotnað. Afli siðustu daga hefur verið fremur lélegur, þó hefur einn bátur haft sæmilegan afla. í gær fékk Reykjaröst t.d. 22 tonn. Afli bátanna í dag var fremur léleg- ur. Þegar þetta er skrifað er mestur afli hjá þeim sem komn- ir eru að landi um kl. 8, með rúmlega 8 tonn. Allar horfur eru á landlegu á morgun, föstudag. Talið að Langhelle verði forsætisráð- herra í Noregi OSLO, 19. marz. — Ýmislegt bendir til þess að verið sé að ræða endurskipulagningu ríkis- stjórnarinnar í norska verka- mannaflokknum. Það er vitað að nokkrir ráð- herranna óska lausnar eftir margra ára stjórnarstörf og m. a. er opinberlega vitað, að Gustav Sjaasted iðnaðarmálaráðherra á Hafði rannsóknarlögreglan orð á því hve hættulegir slíkir „sjúkra- flutningar“ sem þessir geti orðið. Beri fólki undantekningarlaust að láta sjúkraliðið annast flutn- ing slasaðra. Bílstjórinn á vörubílnum sagð- ist hafa séð hóp barna er hann kom eftir Ránargötui ni, einnig hafi drengir verið að leik úti á sjálfri götunni. Hafi hann ekkert vitað fyrr en kona kom hlaup- andi með bílnum og bankaði hún í bílinn. Þegar bílstjórinn kom út hafði hann séð að kona var búin að taka barnið upp af götunni og er skemmst frá því að segja, að farið var með það í leigubíl í slysavarðstofuna, sem fyrr grein- ir. Bílstjórinn hafði skilið bílinn eftir á þeim stað, sem slysið vildi til. Þegar hann kom aftur frá slysavarðstofunni, hafði einhver vegfarandi flutt bílinn tii á göt- unni. Rannsóknarlögreglan vill biðja alla þá er upplýsingar gætu gef- ið um aðdraganda slyssins, að gera sér viðvart hið fyrsta. Fót- brotna telpan heitir Guðleif H. Benediktsdóttir til heimilis að Ránargötu 31 og varð slysið þar við húsið. að taka við fylkismannsstöðunni í Norður-Þrændalögum innan skamms. Þá er sterkur orðrómur á sveími um það að Einar Gerhardsen for- sætisráðherra hafi i hyggju að skipta á embætti sínu við Nils Langhelle, forseta Stórþingsíns. Yrði Gerhardsen þá forseti þings- ins en Langhelle forsætisráð- herra. Að lokum er talað um það að Arne Skaug veizlunarmálaráð- herra og einn helzti foringi Verka mannaflokksins verði að víkja úr því embætti sínu vegna deilnanna um vopnasölur til Batista ein- ræðisherra Kúbu á síðasta ári. Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem minntust mín á 80 ára afmæli mínu 8. marz síðastliðinn. Guð blessi ykkur öll. Guðni Einarsson frá Strönd. Hjartanlegar þakkir sendi ég' öllum fjær og nær sem með heimsókn, gjöfum og skeytum sýndu mér vinsemd þann 13. þ.m. á 75 ára afmæli mínu. Halldór Jónsson Njörvasundi 5. Móðir okkar og tengdamóðir INGUNN BJÖRNSDÓTTIR verður jarðsungin frá Fríkirkjunni mánudaginn 23. marz kl. 2 e.h. Athöfninni verður útvarpað. Börn og tengdaböm. Faðir okkar VILHJÁLMUR KETILSSON frá Kirkjutorgi. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. marz kl. 13,30. Vilborg Vilhjálmsdóttír, Margrét Vilhjálmsdóttir. Innilega þökkum við auðsýnda samúð vinarhug og hjálp við andlát og jarðarför föður okkar ELIMUNDAR ÞORVARÐSSONAR Stakkabergi. Guð blessi ykkur öll. Börnin. Hjartans beztu þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð við fráfall ástkærs eiginmanns míns, föður okkar og sonar míns GUÐJÓNS SIGURJÓNSSONAR er fórst með Hermóði þann 18. febr. sl. Margrét Vestmann og dætur Magnúsína Magnúsdóttir. Strokuhermaðurinn í fangelsi Keflavik — Ingvar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.