Morgunblaðið - 25.03.1959, Síða 1
20 síður
M. árgangur
70. tbl. — Miðvikudagur 25. marz 1959
Prentsmiðja Morganblaðsina
Stórmerkur fundur i Egyptalandi:
Nýtt guðspjall, kennt við
Tómas, finnst í hellisskúta
Þar eru rituð áður óþekkt
ummæli Jesú
I^RANSKUR prófessor í trú-
1 arbragðasögu, Oscar Cull-
man frá Sorbonne, hefur
flutt fyrirlestur í New York
og skýrt frá afar merkilegum
fundi egypzkra bænda 1946.
Guðfræðingar um víða ver-
öld hafa vitað um fund þenn-
an, en þetta er í fyrsta skipti,
sem hann er ræddur á opin-
berum vettvangi.
Egypzkir bændur fundu 44
handrit ævagömul um það bil
90 km. frá bænum Luxor. Hand-
ritin voru í 13 papyrus-bókum,
sem bundnar voru í leðurband og
geymdar í leirkerjum. Krukkurn-
ar voru geymdar í hellisskúta á
fyrrnefndum stað. í handritun-
um eru 114 ummæli eða ræður,
sem álitið er, að séu eftir Krist
og ekki hafa verið þekktar ann-
ars staðar frá. Hér er dæmi:
merkileg, eru ekki í þeim nein-
ar nýjar upplýsingar um líf
Krists. En þau varpa nýju ljósi
á margt í verkum hans.
Þessi fundur þykir ekki ó-
merkari en handritafundurinn
við Dauðahaf fyrir ekki allmörg-
um árum og sumir halda því
fram, að hann sé jafnvel mun
merkilegri.
H'
„M'
Iaria spurði Jesúm: „Við
hvað á að líkja lærisvein-
um þínum?“ Jesús svaraði og
sagði: „Það á að líkja þeim við
lítil böm, sem hafa tekið sér
bólfestu á akri, sem þau eiga
ekki. Þegar eigandi akursins
kemur, munu þau segja: „Lát
þú oss halda akrinum“. Eigandi
akursins mun þá standa orðlaus
andspænis þeim og láta þeim
akurinn eftir“.
Samkvæmt handritum þessum,
sem nefnd hafa verið Tómasar
guðspjall, á Jesús einnig að hafa
sagt:
Vei yður farisear, því þér er-
uð sem hundar í fjárhús-
jötu. Þér etið eigi og leyfið fénu
eigi heldur að eta“.
Og ennfremur:
,R‘
andritin eru skrifuð á kopt-
ísku og má geta þess í því
sambandi, að Tómas postuli fór
í trúboðsferð til Afríku. Til þessa
trúboðs hans á koptíska kirkjan
x Abbesiníu rætur að rekja.
Fræðimenn segja, að þessi hand-
rit, sem skrifuð voru á þriðju
eða fjórðu öld, eins og fyrr seg-
ir, séu afskriftir. Frumhandritin
hafi verið rituð um það bil 125
eftir Kr. b. og freistandi er að
halda, að handritin séu í ein-
hverjum tengslum við fyrsta
kristna klaustrið Chenoboskion
(sem er skammt frá Luxor) og
danski fræðimaðurinn, Sþren
Giversen, telur ekki Jráleitt, að
þau hafi heyrt til bókasafni
klaustursins. Ekki er hægt að
segja neitt um, hvers vegna þau
hafa verið varðveitt í hellinum.
Hitt er rétt, að bændurnir, sem
fundu handritin, seldu þau fyrir
sem svarar 200—300 ísl. krónum
í næstu kornverzlun.
Giversen segir, að einnig hafi
fundizt svonefnt Guðspjall sann-
leikans og hefur hann nú þýtt
það á dönsku. í því er talsverð-
ur skáldskapur eins og þessi lof-
söngur um orðið:
Frh. á bls. 2.
Ólgaí Færeyjum út af ratsjár-
stöð á Straumey
Matthíus A. Mathiesen irambjóð-
andi Sjólistæðisflokhsins
í Hafnarfirði
HAMAR, blað Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, skýrði frá þvl i
gær, að á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði sL
laugardag hafi verið samþykkt einróma að óska eftir því við
Matthías Á. Mathiesen, sparisjóðsstjóra, að hann verði í kjöri fyrir
Sjálfstæðisflokkinn þar í bæ við næstu alþingiskosningar. Hefur
Matthías orðið við þeim tilmælum og er framboð hans því ákveðið.
Matthías er fæddur í Hafnar-
firði 6. ágúst 1931 og er því 27
ára gamall. Hann er sonur hjón-
anna Svövu Einarsdóttur og Árna
heitins Mathiesens verzlunar-
stjóra. Hann lauk embættisprófi
í lögfræði vorið 1957 og hóf þá
störf í atvinnumálaráðuneytinu.
Þar starfaði hann þar til sl. sum-
ar, að hann var ráðinn sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar.
Á námsárum sínum stundaði
Matthías alla algenga vinnu, þó
einkum sjómennsku á togurum
og bátum og kynntist þá vel
höfuðatvinnuvegi okkar í^end-
inga, sjávarútveginum, enda al-
inn upp í nánum tengslum við
atvinnuvegi þjóðarinnar.
Hann hefur um árabil verið
f forystu ungra Sjálfstæðis-
manna, m. a. sem formaður
Stefnis, FUS í Hafnarfirði og f
stjórn Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna. Á háskólaárum
Matthias Á. Mathiesen
ÞÓRSHÖFN, 24. marz. —
Þjóðveldisflokkurinn í Fær-
eyjum hefir lagt fram í Lög-
þinginu ályktun þess efnis, að
öllum fyrirhuguðum hernað- ® Þessar framkvæmdir,
raðherrann.
arframkvæmdum a eyjunum
>íki föður míns er eins og
maður, sem brann af löng-
un eftir að drepa valdamann.
Hann tók sverð sitt í eigin húsi
sinu og stakk því í gegnum vegg-
inn til að fullvissa sig um, að
hönd hans væri styrk. Að því
búnu vann hann á manninum.“
★
Allt bendir til þess, að hand-
ritin, sem í eru margar setn-
ingar samhljóða því sem er í
Matthíasar-, Markúsar- og Lúk-
asarguðspjalli, hafi verið skrifuð
á þriðju eða fjórðu öld eftir Kr.
b. Þó að þau þyki ákaflega
íiak úr Bagdad-
bandalaginu
BAGDAD, 24. marz. — í
kvöld tilkynnti útvarpið í
Bagdad, að ríkisstjórn Kass-
ems hefði sagt írak úr
Bagdad-bandalaginu svo-
nefnda.
Á fundi með fréttamönn-
um í kvöld ítrekaði Kassem,
forsætisráðherra, þessa á-
kvörðun íraksstjórnar.
verði frestað. Einnig hefir
flokkurinn krafizt þess, að
þjóðinni verði skýrt nákvæm-
lega frá því, hvaða aðstöðu
Atlantshafsbandalagið eigi að
fá á eyjunum og síðan sé
hægt að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um málið. For-
mælandi Þjóðveldisflokksins
sagði, að Lögþinginu hefðu
ekki verið gefnar nauðsynleg-
ar upplýsingar um þá ákvörð-
un að reisa ratsjárstöð í Fær-
eyjum.
Byrjað með vorinu.
í dag var allt með kyrrum
kjörum í Þórshöfn, en orðrómur
er á kreiki um það að Þjóðveld-
ismenn muni efna til allsherjar-
verkfalls í landinu. — Poul Han-
sen, landvarnaráðherra Dana-
veldis, skýrði frá því í Kaup-
mannahöfn í dag, að fyrirhugað
væri, að 150 manns störfuðu við
ratsjárstöðina. Ráðherrann sagði
ennfremur að byrjað yrði á
framkvæmdum við stöðina með
vorinu, enda er það staðreynd að
Lögþingið hefir lagt blessun sína
sagði
Pústrar.
Þegar lögmaður Færeyja, Pet-
er Mohr Dam, kom með skipinu
Tjaldi til Þórshafnar frá Khöfn
í fyrrakvöld og hugðist ganga á
land, gerðu Þjóðveldismenn, sem
höfðu safnazt saman á bryggj-
unni, aðsúg að lögmanninum,
svo að hann varð að fara um
borð aftur, en komst síðar í land
undir lögregluvernd. Áður hafði
lýðurinn barið hann og veitt
honum pústra allþunga. Skömmu
áður en lögmaðurinn kom heim
til Færeyja, hafði Þjóðveldis-
flokkurinn efnt til útifundar á
aðaltorgi Þórshafnar í mótmæla-
skyni við fyrirætlanir um bygg-
ingu ratsjárstöðvar á Straumey.
Berserksgangur.
Um það bil 200 hra^ður tóku
þátt í útifundi þessum, en að
honum loknum hlupu margar
þeirra berserksgang niður við
Vilja senija við
Egypta
KHARTÚM, 24. marz. Talsmaður
Súdansstjórnar skýrði frá því
í dag, að stjórn sín vildi fyrir
alla muni komast að samkomu-
lagi við Egypta um nýtingu vatns
úr Níl, en það mál hefur verið
deiluefni milli landanna undan-
farna mánuði. Talsmaðurinn
sagði, að Súdansstjórn gæti fall-
izt á tillögur Egypta um það,
hvar og hvenær ráðstefna um
málið færi fram.
höfnina, eins og fyrr segir. Með
al fundarboðenda var Heinesen
rithöfundur og borgarstjórinn í
Þórshöfn. Fundarboðendur af-
hentu Dam lögmanni mótmæli
fundarins um borð í Tjaldi, en
hann talaði af brúarvængnum
og vísaði mótmælunum á bug.
Ræða hans drukknaði í búkhljóð-
um Þjóðveldismanna. Og þegar
hann hugðist ganga í land, varð
hann fyrir fyrrnefndu hnjaski,
og meðal annars var hann barinn
í höfuðið með kröfuspjaldi. Lög
maðurinn komst þó inn í bíl sinn
og i þann mund, sem hann ók á
braut, fjölmenntu fylgismenn
hans, sósíaldemókratar, við
höfnina, foringja sínum til að-
aðstoðar.
sínum starfaði Matthías í fé-
lagssamtökum stúdenta m. a.
sem formaður Orators, félags
laganema.
Sjálfstæðisflokkurinn og
æskan
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ætíð talið sjálfsagt og eðlilegt að
velja frambjóðendur sína m. a.
úr hópi unga fólksins, enda hef-
ur enginn stjórnmálaflokkur sýnt
æsku þessa lands meira traust
en Sjálfstæðisflokkurinn. Svo er
einnig nú þegar valinn er fram-
bjóðandi fyrir flokkinn í Hafn-
arfirði.
Hafnfirðingar fagna mjög
framboði Matthíasar. Sjálfstæð-
ismenn munu einhuga vinna að
kosningu hans í næstu alþingis-
kosningum og Hafnfirðingar þá
eignast dugmikinn og glæsilegan
fulltrúa á Alþingi íslendinga.
Uppreisnin í Tíbet
breióist út,
Á heimleið
WASHINGTON, 24. marz. — For
sætisráðherra Breta, Macmillan
og Selwin Loyd utanríkisráð-
herra ,sem eru á heimleið til Bret
lands eftir viðræður við Eisen-
■hower forseta og aðra valdamenn
vestra, ræddu við fréttamenn,
áður en þeir stigu upp í flugvél-
ina, er flutti þá yfir hafið. Sagði
Macmillan að á meðan vestrænar
þjóðir vikju ekki hársbreidd frá
grundvallarsjónarmiðum sínum,
hefðu þær allt að vinna en engu
að tapa. Sagði hann að mjög
vandasamir samningar væru nú
framundan. Vestrænar þjóðir
yrðu að vera sanngjarnar og
samningafúsar, en einnig fastar
fyrir.
NÝJU DELHI, 24. marz. Frétta-
menn hér í borg segja, að kín-
verskir stórskotaliðar hafi marg
sinnis hæft höll Dalai Lama í
Lahsa í bardögunum, sem geis-
að hafa þar í borg undanfarna
daga. Þá herma fregnir frá Tíbet,
að leikurinn hafi nú borizt að
■höll Lama. Uppreisnarmenn hafa
hörfað í áttina að höllinni, en
verjast árásum kommúnistanna
með vélbyssum, sem þeir hafa
tekið að herfangi. Höllin er 300
metra löng, byggð á 17. öld og
stendur á hæð fyrir utan höfuð-
borgina.
Ekki er vitað um dvalarstað
Dalai Lama, en sumir halda því
fram, að hann sé í stofufangelsi
hjá kommúnistum. Ekki hefur
sú frétt verið staðfest.
Sjang-kai-sjekk, forseti þjóð-
ernissinnastjórnarinnar á For-
mósu ,skoraði í dag á allar þjóð-
ir að veita þeim 300 þús. uppreisn
armönnum, sem berjast gegn
smnar
kommúnistum í Tíbet, alla þá að-
stoð, sem þær mega. Þá sagði
háttsettur maður í stjórn þjóð-
ernissinna í dag, að uppreisnin í
Tíbet hefði breiðzt út til suðvest-
urhluta Kína. Hann sagði einnifc,
að hersveitir kommúnista mais-
éruðu nú 1 átt til Lahsa.
Miðvikudagur 25. marz.
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 6: Keisarinn af Persíu hryggbrot*
inn.
— 8: Ályktanir landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins um samgöngu-
mál.
— 10: Forystugreinin: — Þrengstu
flokkshagsmunir Framsóknar.
— 11: Þverpokareiðsla og þurradramb,
grein eftir Jón Sigurðsson,
Skollagróf.
Bókaþáttur: Ritdómarar. eftir
Jóhannes Helga.
— 18: Veðmál Mæru Lindar, leikdóm-
ur.