Morgunblaðið - 25.03.1959, Blaðsíða 2
2
MORCTJNTtT 4 fíl Ð
Miðvikudagur 25 marz 1959
Þýzkur togarasjómaður bjargar
íslendingi úr höfninni
KLUKKAN 8 í gærkvöldi féll
ósyndur íslenzkur togarasjómað-
ur í höfnina við Ægisgarð, þegar
hann ætlaði úr skipi sínu í land.
Ungur þýzkur togarasjómaður sá,
þegar íslendingurinn féll í sjó-
inn og brá skjótt við. Hann kast-
aði sér í sjóinn og tókst að bjarga
íslendingnum. Þessi þýzki togara-
•jómaður er frá Bremerhaven.
Hann er tvítugur að aldri og heit-
ir Gerhard Jorezk. Hann er skip-
verji á togaranum Sagitta frá
Bremerhaven sem liggur við Æg_
isgarð. Var skipið að koma til
Reykjavíkur til viðgerðar.
Þjóðverjinn vildi lítið segja um
þessa dáð sína, þegar tíðinda-
maður Mbl. hitti hann sem snöggv
ast að ir.áli í gærkvöldi. Hann
hvíldi sig þá eftir volkió og rabb-
aði við félaga sína og ekki var
að sjá, að hann kenndi sér meins.
Hann var þó dúðaður í prjóna-
peysu.
Jorezk sagði, að þetta væri
fyrsta ferð hans á Sagitta, en
áður hefur hann verið á sænsku
skipi og kunni hann dálítið í
sænsku. Hann var ákaflega hlé-
drægur og vildi helzt ekkert láta
segja frá þessu „lítilræði".
Þegar tíðindamaður Mbl. spurði
íslendinginn, hvernig honum liði
eftir volkið, svaraði hann því til,
að sér liði vel.
— Var ekki sjórinn kaldur,
spurði fréttamaðurinn.
— Nei, en hann var mjög skít-
ugur, svaraði íslenzki sjómaður-
inn með hægð.
Fulhright-styrkir til
náms- og kynnisdvalar
í Bandaríkjunum
Nuuðsyn uð Beykjuvíkuibær geii
úi fleiri upplýsingurit en verið
hefur
Leikrit ef tir
Tennessee
Williams
I APRÍLHEFTI bandaríska mán-
aðarritsins Esquire birtist nú nýtt
leikrit eftir Tennessee Williams.
Leikritið heitir „Sweet Bird of
Youth“. Mun það jafnan viðburð
ur, er tímarit birta í heild leikrit
eftir rithöfunda sem Tennessee
Williams, en Esquire hefur haft
þann hátt á að undanförnu að
birta öðru hverju heil leikrit eft-
ir fremstu leikritahöfunda Banda
ríkjanna. Leikritið ,sem hér úm
ræðir, er frekar langt, í þremur
þáttum — og gerist allt á einum
degi. Heftið mun nú vera að
koma í bókaverzlanir hér.
Merkjasalan
fyrir Skálatún
í SAMBANDI við merkjasöluna
á vegum Skálatúnsheimilisins
síðasta sunnudag ,hefur blaðið
verið beðið að koma á framfæri
orðsendingu til tveggja drengja,
sem ekki enn hafa skilað af sér
fyrir seld merki. Hér er um að
ræða Óla Guðmundsson, en hann
var skrifaður til heimilis að Haga
mel 34, en er þar ekki. Hinn er
Sævar Oddsson, Langholtsvegi
112, en heimilisfang það er ekki
heldur rétt. Fyrri drengurinn
tók merki til sölu í Melaskólan-
um en sá síðari í Laugarnesskól- íHljði.
anum. Eru drengir þessir góð-
fúslega beðnir að hafa samband
við Pál Kolbeins, gjaldkera
Skálatúnsheimilisins, Túngötu
31.
Frá
bœjarstjórnarfundi
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI á
fimmtudaginn bar Alfreð Gísla-
son fram svohljóðandi tillögu:
Bæjarstjórnin felur bæjarráði
og borgarstjóra að undirbúa út-
gáfu árbókar Reykjavíkur og
skal miðað við, að útgáfan geti
hafizt eigi síðar en á næsta ári.
f árbókinni skulu vera upplýsing
ar um yfirstjórn bæjarins, stjórn
einstakra deilda bæjarrekstrar-
ins og framkvæmdir, allar stofn-
anir hans og starfandi nefndir.
Enn fremur skal að finna þar
gildandi samþykktir og reglu-
gerðir, hagskýrslur og annan
fróðleik, er bæjarfélagið varðar
sérstaklega.
Fylgdi flutningsmaður tillög-
unni úr hlaði með nokkrum orð-
um.
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri kvaðst sammála Alfreð
Gíslasyni um nauðsyn þess, að
bærinn gæfi út upplýsingarit í
ríkara mæli en verið hefði. Þess-
ari útgáfustarfsemi mætti haga
með ýmsu móti. f fyrsta lagi
kæmi til greina að gefa út rit
svipuð þeim sem Hagstofa Reykja
víkur hefði gefið út um eitt skeið.
Hefðu slík rit inni að halda hag-
fræðilegar tölur og töflur og gætu
verið mjög fróðleg á sínu sviði.
í öðru lagi kæmi til greina út-
gáfa á lögum og reglugerðum
varðandi bæinn. Hefði slík útgáfa
áður verið rædd hér í bæjar-
stjórninni, og þá talið rétt að
fresta henni um sinn. Hins vegar
gæti verið mjög gagnlegt að fá
lög bæjarins og reglugerðir í sér-
útgáfu.
Verkfalli lijá SAS
f þriðja lagi kæmi til greina
útgáfa á árbókum, eins og talað
væri um í tillögu Alfreðs Gísla-
sonar. Hefðu ýmsir bæir á Norð-
urlöndum, svo sem Ósló, Árósar
o. fl. gefið út slíkar árbækur.
í fjórða lagi kæmi til greina
útgáfa á myndablaði á vegum
bæjarins, en sumir bæir á Norð-
urlöndum, svo sem Stokkhólmur,
Björgvin o. fl. hefðu haldið út
slíku blaði um áratuga skeið. f
þessum blöðum væri sagt frá
helztu framkvæmdum er væru á
döfinni hjá viðkomandi bæjarfé-
lagi og jafnframt birtar frétta-
myndir af bæjarframkvæmdum.
Þessum blöðum væri dreift á
heimili borgarbúa, þeim að kostn
aðarlausu.
Auk þess minntist borgar-
stjóri á, að til greina kæmi að
bærinn gæfi út sérstök upplýs-
ingarit, ætluð fyrir ferðamenn.
Borgarstjóri sagði að lokum,
að hann teldi brýna nauðsyn bera
til að auka þá upplýsingastarf-
semi, er fólgin væri í útgáfu
slíkra rita á vegum bæjarins.
Hins vegar kvaðst hann telja
eðlilegt, að umræðum um þessa
tillögu yrði frestað og m.a. afl-
að upplýsinga frá hagfræðingi
bæjarins áður en ráðizt yrði í út-
gáfuna.
Magnús Ástmarsson tók næst-
ur til máls. Taldi hann að þess-
arri útgáfu mætti haga með
þrennu móti. Upplýsingar um
ýmsa starfsemi bæjarins, sem
tæki árlegum breytingum, þyrfti
að gefa út á hverju ári. Aðrar
upplýsingar um starfsemi á veg-
um bæjarins væri hins vegar nóg
að fá útgefnar á 5 ára fresti. í
þriðja lagi kæmi til greina útgáfa
á lögum og reglum varðandi bæ-
inn.
Fleiri tóku ekki til máls og
var samþykkt með samhljóða at-
kvæðum að fresta málinu og afla
upplýsinga um það hjá hagfræð
ingi bæjarins.
MENNTASTOFUN Bandaríkj-
anna (Fullbright-stofnunin) á ís-
landi mun veita tvo styrki til
sex mánaða náms og kynnisdval-
ar í Bandaríkjunum á þessu ári.
Styrkirnir eru ætlaðir starfandi
kennurum, skólastjórum, náms-
stjórum, og þeim, er starfa að
stjórn menntamála. Er hér með
óskað eftir umsóknum um styrk-
ina og þurfa þær að hafa borizt
stofnuninni fyrir 12. apríl nk. —
Umsóknareyðublöð fást hjá
menntastofnun Bandaríkjanna,
Laugavegi 13, Reykjavík og í
menntamálaráðuneytinu.
Styrkir þeir, sem hér um ræðir,
eru tólgnir í ókeypis ferð héðan
til Bandaríkjanna og heim aft-
ur, og dagpeningum, sem nægja
eiga til greiðslu dvalarkostnaðar
í sex mánuði. Einnig verður veitt
ur styrkur til að ferðast nokkuð
innan Bandaríkjanna. Þeir, sem
hljóta styrkinn þurfa að skuld-
binda sig til að dveljast vestan
hafs frá 1. sept. 1959 til 28. febr-
úar 1960. Menntamálaráðuneyti
Bandaríkjanna mun eins og áður
annast undirbúning og skipulagn
ingu þessara náms- og kynnis-
ferða.
Umsækjendur þurfa að hafa
góða kunnáttu í ensku og láta
fylgja um það vottorð eða ganga
undir próf því til staðfestingar.
Þá þarf að fylgja læknisvottorð
um að umsækjandi sé heilsu-
hraustur. Æskilegt er, að um-
sækjendur séu á aldrinum 25 til
40 ára, enda þótt styrkveitingar
séu ekki einskorðaðar við það
aldursskeið,. Þeir umsækjendur,
sem ekki hafa áður dvalizt í
Bandaríkjunum verða að öðru
jöfnu látnar ganga fyrir um styrk
veitingu.
Náms og kynnisdvöl þeirri,
sem hér ræðir um, verður þannig
háttað í aðalatriðum, að fyrstu
tvær vikurnar dveljast þátttak-
endur í Washington, þar sem þeim
gefst tækifæri til þess að ræða
við sérfræðinga um sérstök áhuga
mál sín og skipuleggja dvöl sína
í landinu enn frekar og kynnast
að nokkru Bandaríkjunum og
bandarísku þjóðlífi. Því næst
sækja þátttakendur sérstök nám-
skeið, sem haldin eru við ýmsa
háskóla og gefst m. a. kostur á
að hlýða á fyrirlestra og taka þátt
í umræðum um ýmsa þætti skóla
og uppeldismála. Venjulega eru
þátttakendur í þessum námskeið-
um 20-25 að tölu, frá ýmsumþjóð
um, en sérfróður háskólakennari
hefur á hendi yfirstjórn nám-
skeiðsins. Jafnframt þessu gefst
þátttakendum námskeiðanna tæki
færi til að kynnast héraði því,
er þeir dveljast í, heimsækja sögu
staði, söfn, skóla og aðrar
menntastofnanir, iðnfyrirtæki,
bændabýli o. s. frv. Þessi nám.
skeið standa venjulega í 3—4 mán
uði. Meðan á námskeiðinu stend-
ur fá þátttakendur einnig tæki-
færi til að dveljast á amerískum
heimilum. Að lokum fá þátttak-
endur að ferðast nokkuð um
Bandaríkin í mánaðartíma og
kynnast því, sem þeir helzt hafa
áhuga á.
í umsókn þarf að greifia: Nafn
og heimilisfang, fæðingarstað,
fæðingardag og ár, við hvaða
skóla eða menntastofnun umsækj
andi starfar og stutt yfirlit um
náms og starfsferil. Einnig þarf
að taka fram, hvaða líkur séu
fyrir því, að hann geti fengið
leyfi frá störfum þann tíma, sem
hann þarf að dveljast í Bandaríkj
unum. Þá þarf eins og áður segir
að láta fyllgja heilbrgðisvottorð
og vottorð um enskukunnáttu.
Umsóknir sendist
Menntastofnun Bandaríkjanna
á Íslandí,
(Fulbrightstofnuninni),
Pósthólf 1059,
Reykjavík,
fyrir 12. apríl nk.
Frá Skákþingi *
íslands
ÞRIÐJA umferð á Skákþingi ís-
lands, sem háð er í Breiðfirðinga
búð, var tefld í fyrrakvöld. í
landsliðsflokki vann Ingi R.
Jóhannsson, Jón Guðmundsson
og Halldór Jónsson vann Þóri
Sæmundsson. Aðrar skákir í
landsliðsflokki fóru í bið. Efstur
er eftir þriðju umferð í lands-
liðsflokki Ingi R. Jóhannsson með
3 v., í öðru og þriðja sæti eru
Ingvar Ásmundsson og Ingimar
Jónsson, báðir með tvo vinninga
og biðskákir, í fjórða sæti er
Halldór Jónsson með tvo vinn-
inga. Efstir í meistaraflokki eru
Jónas Þorvaldsson, Bragi Þor-
bergsson og Karl Þorleifsson með
2% v. hver.
Fjórða umferð var tefld £ gær-
kvöldi í Breiðfirðingabúð. Bið-
skákir úr þriðju og fjórðu um-
ferð verða tefldar í kvöld.
Kaupmannahöfn, 24. marz.
í DAG var aflýst verkfalli
sænskra flugmanna hjá SAS-
flugfélaginu. Verkfallið hefur
staðið yfir í 25 daga og haft mik-
ið fjárhagstjón í för með sér fyr-
ir félagið, Er búizt við, að það
verði langan tíma að vinna upp
tapið vegna verkfallsins.
Fundur Araba-
bandalagsins
KAIRÓ, 24. marz. — Hinn 31.
marz n.k. heldur Arababandalag
ið fund í Beirut til að fjalla um
deilumál Iraks og Egyptalands.
Ráðstefna þessi verður haldin að
frumkvæði stjórnar Súdans og
á hún að finna leiðir til þess að
jafna ágreininginn milli íraks og
Arabíska sambandslýðveldisins.
í Kairó segja fréttamenn, að
stjórn Nassers sé þess mjög fýs-
andi, að slík ráðstefna verði hald
in, því að hún geri því skóna, að
flest Arabalöndin vilji taka upp
andkommúnistíska stefnu í anda
Nassers.
í dag var öllum kommúnistum
vikið úr verkalýðsfélögum í Sýr-
landi.
Arnulf Överland:
Odœðisverk, sem gleym-
ast, eru endurtekin
t RÆÐH, sem Stavanger Aftenblad birtir úrdrátt úr 17. marz
sl. segir norska skáldið Arnulf 0verland, að hann hafi tillögu um
það, hvernig leysa beri það vandamál, hvar hýsa eigi Krúsjeff,
þegar hann kemur í heimsókn til Noregs: — Við skulum láta
hann búa í Mþllergata 19, segir skáldið, þar hef ég búið sjálfur
um eins árs skeið (í þessu húsi í Ósló var fangelsið, sem Kvisling
notaði óspart).
— Guðspjallið
Frh. af bls. 1.
Vizka hans veltir fyrir sér
merkingu orðsins,
lærdómur hans segir það,
játning hans opinberaði það,
heiður hans er eins og króna á
höfði þess,
gleði hans er menguð því,
heiður hans hækkaði það,
mynd hans opinberaði það,
hvíld hans drakk það í sig,
kærleikur hans varð limur á því,
trú hans umvafði það.
★
svo geta þess til
að ýmsar sagnir
og setningar í Tómasar guð-
spjalli eru eins og í öðrum
guðspjöllum, svo sem fyrr segir,-
t. d. sagan um blinda manninn,
sem leiðir blindan og spámann-
inn, sem ekki er viðurkenndur
í heimalandi sínu. En svo eru
líka hlutir í guðspjallinu, sem
hvergi þekkjast aiinars staðar frá
og til viðbótar dæmum um það
hér að framan, má benda á eftir-
farandi í lokin:
Loks má
viðbótar,
0verland flutti ræðu þessa á
Ungverjalandskvöldi í Ósló, sem
haldið var í tilefni af þjóðhátíð-
ardegi frjálsra Ungverja. Skáld-
ið lýsti hinum hörmulegu dögum,
þegar okióberbyltingin stóð sem
hæst í Ungverjalandi 1956 og
gagnrýndi á sinn háðska hátt hið
slæma minni skandínavísku rík-
isstjórnanna, þegar þær nú byðu
þeim manni í heimsókn, sem
lagði stærstan skerf til þjóðar-
morðsins á Ungverjum.
Þá benti skáldið á, að ekki
væri langt síðan Krúsjeff
boðið Krúsjeff heim í von um,
að honum líkí Garhardsen, sagði
0verland ennfremur og bætti
við þeirri spurningu, hvað
Krúsjeff vildi til Noregs. Hann
svaraði sér sjálfur: — Jú, hann
vill ganga úr skugga um, hvort
við séum nógu feitir til að vera
étnir! Þá benti skáldið á, að það
væri ekki aðeins hörmulegt gagn
vart undirokuðum þjóðum að
gleyma þjóðarmorðunum, heldur
væri það lífshættulegt, því að
ódæði, sem gleymdust, væru end-
urtekin.
Arnulf 0verland lauk ræðu
J
ésús sagði: „Ef þeir, sem veita
yður leiðsögn, segja við
yður: Sjá! konungdæmið er á
himnum, þá munu fuglar him-
insins leiða yður þangað, ef þeir
segja við yður, að það sé í haf-
inu, þá munu fiskarnir leiða yð-
ur þangað. En konungdæmið er
í yður og fyrir utan yður“.
Og ennfremur: •
,.E
lska þú bróður þinn eins og
sál þína“.
Og að lokum:
E*
hefði fellt finnsku stjórnina ; sinni með því, að ekki væri rétt
vegna þess að honum líkaði hún ' að bjóða þjóðarmorðingja í heim-
ekki. En nú hefur Gerhardsen sókn.
g stóð í miðju heimsins og
opinberaði mig fyrir þeim
í holdinu; ég fann ekki á meðal
þeirra neinn, sem þyrsti, og sál
mín var hrygg vegna mannanna
barna, því hjörtu þeirra eru blind
og þau sjá ekki, að þau komu
með tómið í heiminn og reyna
ekki að fylla tóm sitt, áður en
þau skilja við heiminn.
Nú eru þau drukkin, en þeg-
ar þau hafa kastað burt víninu,
munu þau iðrast.
Jesús sagði: „Ef holdið er til
vegna andans, þá eru það undur,
en ef andinn er til vegna holds-
ins, eru það undur undranna.
En það undrast ég mest, hvernig
hið mikla ríkidæmi getur hvílt
á þessarí fátækt“.