Morgunblaðið - 25.03.1959, Side 8
8
MORGTJTSBLÁÐIÐ
Miðvikudagur 25 marc 1959
Ályktanir landsfundar Sjálfstœðismanna um samgöngumál:
Tœknilegar nýjungar verði hagnýttar
í þágu samgangna á landi og í lofti
Skipastóllinn verði efld-
ur þannig að siglingar
verði arðberandi at-
vinnuvegur
Athugaðir verði möguleikar á stofnun
fríhafnar
HÉR fara á eftir ályktanir landsfundar SjálfstæSisflokksins
uni samgöngumál:
1. Landsfundurinn telur, að góðar og öruggar samgöng-
ur sé eitt af frumskilyrðum þróttmikils og vaxandi atvinnu-
lífs til sjávar og sveita. Þess vegna beri að leggja höfuð-
áherzlu á, að akvegasambandi verði hið fyrsta komið á við þá
Tandshluta, sem ennþá eru ekki komnir í samband við megin
akvegakerfi landsins eða húa við ófullkomið akvegasamhand.
Ríka nauðsyn beri til þess, að hraðað verði svo sem mögu-
legt er brúa- og vegagerðum um land allt, um leið og eldri
og ófullkomnari þjóðvegir verði endurhættir.
í þessu sambandi vekur landsfundurinn athygli á nauð-
syn þess, að framkvæmd verði þingsályktunartillaga, sem
samþykkt var á síðasta Alþingi fyrir forystu Sjálfstæðis-
manna um heildaráætlun um framkvæmd vegagerðar í
landinu, með það fyrir augum, að þörfum alþjóðar fyrir góða
og fullkomna vegi verði fullnægt hið fyrsta.
VEGIR ÚR VARANLEGU EFNI —
STÓRVIRKAR VINNUVÉLAR
Þá telur fundurinn og að nauðsynlegt sé að hefjast á
öæstunni handa um að gera vegi úr varanlegu efni, og
þannig hæfari til þess að þola stóraukna umferð stöðugt
stækkandi ökutækja. Ennfremur heri hrýna nauðsyn til
þess, að stórvirkra vinnuvéla verði aflað til vegagerðar og
það tryggt að nægilegir varahlutir séu ávallt tiltækir í þessi
tæki. Telur fundurinn að mjög þýðingarmikið sé, að hvers
konar tæknilegar nýjungar séu hagnýttar, eins og frekast
er kostur, til þess að leggja vegina og gera þá sem endingar-
bezta og greiðfærasta.
Þá telur fundurinn að athuga beri, hvort ekki sé hag-
kvæmt að einstakar meiriháttar vega-, hrúa-, hafna- og flug-
vallaframkvæmdir séu unnar í ákvæðisvinnu, eins og Sjálf-
stæðismenn hafa lagt til í tillögu, sem nú liggur fyrir
Alþingi. Bendir fundurinn á nauðsyn þess að íslenzkum
verktakafyrirtækjum verði heimilað að afla nauðsynlegra
tækja til starfsemi sinnar.
BYGGING FLUGVALLA
2. Fundurinn telur, að halda beri áfram að hæta sem
mest skilyrði fyrir góðum og öruggum flugsamgöngum milli
allra landshluta. í því sambandi heri að leggja áherzlu á
byggingu flugvalla, sem búnir séu nægilegum öryggistækj-
um. Álítur fundurinn mikils um vert, að flugvallakerfið
verði nægilega fullkomið til þess að flugsamgöngum verði
haldið uppi við alla landshluta. Telur fundurinn nauðsyn-
Iegt, að fylgzt verði sem hezt með nýjungum á sviði flug-
vélagerða, og þær hagnýttar til hins ítrasta í þágu íslenzkra
ílugsamgangna.
Þá lýsir fundurinn yfir fullum stuðningi við millilanda-
flug hinna íslenzku flugfélaga og telur, að ríkisvaldinu beri
að styðja þau og efla eftir megni, til þess að annast þessar
þýðingarmiklu samgöngur með góðum og fullkomnum flug-
vélum.
Ennfremur lýsir fundurinn þeirri skoðun sinni að hraða
beri endurskoðun gildandi lagaákvæða um flugmál.
EFLING SKIPASTÓLSINS
3. Landsfundurinn telur, að nauðsynlegt sé að efla
skipastól íslendinga svo, að þeir geti eigi aðeins annað eigin
flutningaþörf, heldur flutt vörur fyrir aðrar þjóðir. IVÍeð þeim
hætti gætu siglingar orðið verulegri þáttur í atvinnulífi þjóð-
srinnar og gjaldeyrisöflun en þær eru nú. Það er skoðun
fiindarins, að Eimskipafélag íslands hafi unnið merkilegt og
þjóðnýtt starf á sviði siglingamála þjóðarinnar, og beri að
efla það til áframhaldandi sóknar á því sviði. Athuga beri,
hvort ekki sé hægt að draga úr hinum gífurlega rekstrarhalla
Skipaútgerðar ríkisins með hættu skipulagi á rekstri hennar.
INNFLUTNINGUR SAMGÖNGUTÆKJA
4. Fundurinn telur að tryggja verði jafnan nokkurn
árlegan innflutning bifreiða, þar sem þessi tæki eru aðal-
samgöngutæki landsmanna. Beri nauðsyn til þess að dreifing
þeirra verði sem réttlátust og sé þar gætt jafnt hagsmuna
allra landshluta. Stuðla beri að innflutningi stórvirkra flutn-
ingjatækja, er tryggi serrt lægst farmgjöld og skal þess gætt
að mismuna ekki mönnum um innflutning þeirra eftir því
hvar þeir eru búsettir á landinu. Jafnframt telur fundurinn
að halda beri áfram stuðningi við innflutning snjóbíla, og
Samgongumálanefnd landsfundar Sjálfstaeðisflokksins. — Á myndinni eru sltjandi frá vinstrl:
Jónas Magnússon, Stardal, frú Þórunn Sigurðardíttir, Patreksfirði, Sigurður Bjarnason, alþm., frá
Vigur, er var formaður nefndarinnar, frk. María Maack, Reykjavík, Brandur Stefánsson, Vík í
Mýrdal, Sigurður Ó. Ólafsson, alþm., Selfossi, og Pétur Guðfinnsson, Reykjavík. Standandi - frá
vinstri: Davið Pétursson, Grund, Kristján Björnsson, Steinum, Einar Ingimundarson, Siglufirði,
Bogi Þorsteinsson, Keflavík, Gunnar Sigurðsson, Rvík, Benedikt Guðmundsson, Staðarbakka, V-
Hún., Ágúst Hafberg, Reykjavík, Valgarð Briem, Reykjavík, Vernharður Bjarnason, Húsavík, of
Kristján Guðlaugsson, Reykjavík.
ynjósleða, til notkunar í þeim landshlutum, sem húa við sér-
staka samgönguerfiðleika á vetrum sökum snjóalaga.
5. Landsfundurinn ítrekar fyrri yfirlýsingar sínar um,
að það sé sanngirnismál, að ekki verði krafizt sérstaks gjalds
af útvarpstækjum í ökutækjum þeirra manna, sem greiða
gjald af slíkum tækjum á heimilum sínum.
Nýtt kvenfélag
stofnað
BÆTT SÍMASAMBAND
6. Landsfundurinn telur að halda beri áfram að bæta
f-ímasamband við einstaka landshluta og hagnýta nýjungar
tækninnar í þjónustu símans eftir fremsta megni. Telur
landsfundurinn að hvert byggt hól á íslandi eigi rétt á því
að fá afnot af síma. Fagnar fundurinn því, sem áunnizt hefur
í þessum efnum á undanförnum árum, en telur að halda heri
áfram að gera símasambandið sem öruggast og fullkomnast.
Þá telur fundurinn að vinna beri áfram að endurbótum á
póstþjónustu í sveitum landsins.
BYGGING GISTIHUSA
7. Fundurinn telur að ennþá sé stórfelldur skortur á
gistihúsum í landinu. Verði því að hefjast handa um bygg-
ingu nýrra gistihúsa, bæði í höfuðborginni og á ýmsum stöð-
um úti um land til þess að fullnægja í senn þörfum lands-
manna sjálfra og hins vaxandi ferðamannastraums til.lands-
ins. í þessu sambandi ítrekar fundurinn fyrri yfirlýsingar um
að athugaðir verði möguleikar á hagnýtingu jarðhita, einnig
í sambandi við rekstur gistihúsa og heilsuhæla. Telur lands-
fundurinn eðlilegast, að erlent fjármagn verði fengið til þess-
ara framkvæmda, eins og tíðkast í flestum ferðamannalönd-
um. Þá beri að leggja áherzlu á hætta umgengni, aðbúnað og
þrifnað á þeim gististöðum, sem nú eru til í landinu.
FERÐAMÁL OG LANDKYNNING
8. Fundurinn telur að setja beri nýja löggjöf um land-
kynningu og ferðamál í samræmi við tillögur Sjálfstæðis-
manna á Alþingi undanfarin ár. Afnema beri einkarétt
Ferðaskrifstofu ríkisins til móttöku erlendra ferðamanna og
sé sjálfsagt að aðrar ferðaskrifstofur hafi einnig heimild til
slíkrar fyrirgreiðslu. Landsfundurinn telur miður farið að
lítt hefur miðað áleiðis í gistihúsamálum þjóðarinnar undan-
tarin ár, um leið og hann lýsir yfir þeirri skoðun sinni, að
heimsóknir erlendra ferðamanna séu líklegar til þess að
skapa þjóðinni allverulegar gjaldeyristekjur, ef rétt er á
þessum málum haldið í framtíðinni.
9. Fundurinn telur að athuga beri möguleika á fríhöfn-
urn, bæði fyrir skip og flugvélar og skapa beri flutningafyr-
irtækjum að öðru leyti sem styrkasta aðstöðu til samkeppni
á alþjóðlegum flug- og siglingaleiðum.
BÆTT HAFNARSKILYRÐI
10. Fundurinn telur að góðar og fullkomnar hafnir í
öllum landshlutum hafi grundvallarþýðingu fyrir útflutn-
ingsframleiðslu og samgöngur þjóðarinnar. Þess vegna beri
að leggja áherzlu á skipulegar framkvæmdir á hafnarmál-
iim og stuðla að því eftir fremsta megni að Ijúka hafnargerð-
um á einstökum stöðum og skapa þar með grundvöll fyrir
aukna framleiðslu og útflutning. Telur fundurinn að rann-
saka beri hafnarstæði í þeim landshlutum, sem nú eiga við
mesta erfiðleika að stríða af völdum hafnleysis.
Þá tclur fundurinn að taka beri erlend lán til þess að
mögulegt sé að gera nú stórt átak í hafnarmálum lands-
manna. —
FYRIR nokkrum vikum var haf-
inn undirbúningur að stofnun fé-
lags eiginkvenna íslenzkra loft-
skeytamianna. Stofnfundir félags-
ins, er ber nafnið Kvenfélagið
Bylgjan, voru haldnir 12. og 26.
febrúar sl. Um 60 konur hafa þeg
ar gerzt félagar.
í lögum félagsins stendur m. a.:
„Tilgangur félagsins er að efla
samúð og vináttu meðal loft-
skeytamanna og fjölskyldna
þeirra. Einnig skal félagið vinna
að styrktar- og menningarstarf-
semi innan félagsins og út á
við. ... “
Formaður var kjörin Guðrún
Sigurðardóttir, en aðrar í stjórn
eru Laufey Guðbrandsdóttir,
Lilly Magnúsdóttir, Sigríður Guð
mundsdóttir og Anna B. Óskars-
dóttir, en til vara Gróa Finns-
dóttir og Hólmfríður Jensdóttir.
Félagsfundir verða haldnir
mánaðarlega á tímabilinu októ-
ber—maí. Næsti fundur er ákveð
inn 2. apríl að Garðastræti 8.
Ágæt skóla-
skemmtun
HAFNARFIRÐI — Á laugardag
og sunnudag héldu börn úr
Barnaskóla Hafnarfjarðar sína
árlegu skólaskemmtun, en allur
ágóðinn rennur í ferðasjóð barn-
anna. Var húsfyllir í hvert skipti,
en alls voru skemmtanirnar fjór-
ar. Skemmtu börnin með söng,
leikritum, ballett, þjóðdönsum og
fleiru, og skemmtu áhorfendur
sér mjög vel. Eins og fyrr að-
stoðuðu kennarar og skólastjóri
börnin með allan undirbúning og
hafa lagt mikla vinnu í það. Öll
skemmtiatriðin tókust ágætlega,
en einna mesta athygli vakti ball-
ettinn og leikrit, sem var í fjór-
um þáttum. Einnig var gaman
að hlusta á söng barnanna undir
stjórn Guðjóns Sigurjónssonar.
Var skemmtunin hin fjölbreyti-
legasta og börnunum og þeim,
sem að henni stóðu, til sóma. Eru
þessar skemmtanir skólabarn-
anna ákaflega vinsælar og jafn-
an húsfyllir á þeim. — G. E.