Morgunblaðið - 25.03.1959, Síða 9
Miðvikudagw 25 marz 1959
MOROJTSHLAÐIÐ
9
Stefán Jónsson frá
Brimnesi — Minning
í ÞANN mund, er iandsfundur
Sjálístæðisfiokksins stóð yfir,
barst mér sú óvænta sorgarfregn,
að vinur minn, Stefán í Brimnesi,
væri látinn. Miklar annir hafa
vaidið því, að dregizt hefir lengur
en skyldi að rita þessi kveðjuorð
til mins horfna vinar.
Stefán Jónsson var fæddur í
Brimnesi 9. okt. 1884. Foreidrar
hans voru þau hjónin Jón Sig-
urðsson og Ragnheiður Baldvins-
dóttir. Jón var sonur Sigurðar
Gisiasonar, bónda á Göngustöðum
i Svarfaðardal, og siðari konu
hans, Ingibjargar Jónasdóttur fi<é
Brúnastöðum í Fljótum, bróður-
dóttur Steins skipstjóra Jónsson-
ar frá Vík í Héðinsfirði, alkunr.s
sægarps og aflamanns, sem fórst
með hákarlaskipinu Draupni frá
Bigiufirði 1875.
Ragnheiður, móðir Stefáns, var
settuð úr Fljótum, systir Baldvins
Baldvinssonar, er siðast var í
Hruna á Dalvik.
Stefán ólst upp í Brimnesi.
Ungur gekk hann í stýrimanna-
skóiann í Reykjavík og lauk það-
an skipstjóraprófi. Árið 1913
kvæntist hann Eyvöru Jónínu
Tímóteusdóttur, og settust þau að
á Dalvík. Sambúð þeirra var
stutt, þvi.að hún andaðist 1921.
í>au eignuðust tvo syni, Sverri
og Jón Ragnar, sem báðir eru nú
búsettir í Reykjavik.
Árið 1923 gekk Stefán að eiga
eftirlifandi konu sína, Önnu Ólafs
dóttur. Eignuðust þau eina dóttur,
Eyvöru Jónínu, sem búsett er 4
Dalvík, gift Haligrími Antonssyni
frá Hrísum.
Stefán í Brimnesi hefir fengizt
við margt á iangri og starfsamri
ævi. Hann hefir verið bóndi, verzl
unarstjóri, útgerðarmaður og
gegnt fjöida trúnaðarstarfa, enda
starfhæfur, traustur og samvizku-
samur með ágætum.
Snemma á árum vann Stefán
við síldarverkun hjá Birni Líndal
á Svalbarðseyri. Síðan varð hann
umboðsmaður og verzlunarstjóri
Höpfners-verzlunar á Dalvík. Um
sama ieyti rak hann eigin útgerð.
Forstjóri Sparisjóðs Svarfdæla
hefir Stefán verið um langt skeið.
Þá hefir hann verið gjaldkeri
sjúkrasamlags Dalvikur og um-
boðsmaður Brunabótafélags fs-
lands. Hann hefir unnið mikið að
sveitarmálum og átt sæti bæði í
hreppsnefnd, skóianefnd og sókn-
arnefnd.
Auk þessara starfa og margra
fleiri, hefir Stefán haft mikii af-
skipti af margvíslegri félagsmála-
starfsemi. Hann hefir verið mikill
áhugamaður um slysavarnir og
átti um skeið sæti í björgunar-
skúturáði Norðurlands. Á yngri
árum vann hann að leiklistarmál-
um og hefur verið starfandi í
ungmennafélagsskapnum. Stefán
var áhugamaður um eflingu
kilkjustarfs á Dalvík og gaf mynd
arlega ióð undir hina veglegu
kirkju, sem Dalvíkingar eru nú
að reisa.
Hér er aðeins fátt eitt talið af
því, sem Stefán í Brimnesi hefir
lagt gjörva hönd á um ævina.
Mun áreiðanlega ekki ofmælt að
roeð Stefáni í Brimnesi er horfinn
af sjónarsviðinu einn svipmesti
og merkasti borgari hins unga
sveitarfélags i mynni hins íagra
Svarfaðardals. Ættbyggð sinni
unni Stefán mjög, enda helgaði
hann henni alit sitt líf og starf.
Leiðir okkar Stefáns í Brimnesi
lágu saman á vettvangi stjórn-
málanna. Stefán var einiægur
Sjálfstæðismaður, enda trúði
hann á framtak og manndáð ein-
staklingsins sem sterkasta afi-
gjafa framfara í landinu. Skoð-
anir hans á stjórnmálum sem öðr-
um efnum voru heilsteyptar, og
hann var aldrei hikandi við að
berjast fyrir þeim málstað, er
hann taldi réttan. Kann að vera,
að ýmsum hafi á stundum fund-
izt hann harður í horn að taka,
en hann var hreinskiptinn, dreng-
lyndur og hjálpsamur, enda munu
sveitungar hans og margir aðrir
minnast hans með þakklæti og
söknuði.
Ég hygp, að ég hafi aldrei kom-
ið á Dalvík, án þess að heim-
sækja þau Brimneshjónin. Þang-
að var gott að koma. Á móti
manni streymdi vinarhugur og
hjartahiýja húsbóndans og hans
ágætu konu. Ekki kom mér það
í hug, er ég siðastiiðið haust heim
sótti Brimneshjónin, að það væri
í síðasta sinn, er ég sæi Stefán,
vin minn, í þessu lifi. Að vísu var
hann’ ekki heill heilsu, en hann
var glaðvær að venju og samur
áhuginn og eidmóðurinn að vinna
að eflingu þeirra hugsjóna, er
hann trúði á.
Stefán í Brimnesi var sérstæður
persónuleiki, sem lærdómsríkt
var að kynnast. íslendingseðlið
var ríkt í fari hans og hugsunar-
hætti. Hann var einn af þeim
mönnum, sem setja svip á um-
hverfi sitt. Það er hverju sveitar-
félagi mikill styrkur að eiga slíka
borgara. Það finna menn bezt,
þegar þeir eru horfnir af sjónar-
sviðinu.
Þegar ég nú kveð ’Stefán í
Brimnesi hinztu kveðju, hefi ég
honum margt að þakka. Minning-
arnar um samskipti okkar skuiu
hér ekki gerðar að umtalseíni, en
ailar eru þær minningar ánægju-
legar. Dýrmætust er mér hin ein-
læga vinátta hans og umhyggju-
semi, sem oft minnti mig á föður-
iega umönnun.
Ég sendi hinni ágætu húsfreyju
í Brimnesi einlæga samúðar-
kveðju og einnig börnum Stefáns,
tengdabörnum og barnabörnum.
Ég veit, að ljúfar minningar um
góðan eiginmann, föður, tengda-
föður og afa verða þeim huggun
á sorgarstundu.
Magnús Jónsson.
Giftist Soraya?
RÓMABORG, 23. marz — Aldrei
hafa jafnmargir ljósmyndarar
komið saman á einum stað síðan
Jóhannes páfi var krýndur og á
Rómarflugvelli í dag, er Soraya,
fyrrum keisaradrottning í Iran,
kom í stutta heimsókn með móð-
ur sinni til Ítalíu. Orðrómur er
á kreiki um að hún muni giftast
Raimondo Orsini, ítölskum prinsi.
Sú fregn hefur verið borin til
baka af móður Sorayu — og haft
er eftir góðum heimildum, að
Soraya vilji ekki giftast fyrr en
íranskeisari, fyrrum maður henn
ar, hafi sjálfur gengið að eiga
aðra konu.
I. O. G. T.
St. Einingin nr. 14
Fundur í kvöld kl. 8,30. Minn-
ingafundur. —— Æðstiteinplar.
St. Mínerva nr. 172
heldur fund í kvöld. Dagskró:
Kosning embætitismanna. — Hag-
nefndaratriði: Frú Liija Björns-
dóttir o. fl. Félagar, f jölnvennið.
— Æ.t.
fyrir hann að sjá og kynnast
helztu 1 'Muðbólum myndiistar-
innar í Þýzkalandi, ítaliu og víð-
ar.
Að loknu námi hófst hann
handa með sjáifstæðan atvinnu-
rekstur hér í bænum, *g vann sér
brátt hið bezta orð fyrir frábæran
dugnað, vandvirkni og smekkvisi,
hafði hann margt manna við nám
og í vinnu hjá sér.
Heimili Ludvigs var alltaf i
Vesturbænum og ieiddi það af
sjálfu sér, að þegar Knattspyrnu-
félag Reykjavíkur, K. R., var
stofnað, þá gerðist hann brátt ein
höfuðstoð og stytta þess, og þótti
ágætur knattspyrnumaður á sinni
tíð.
Ludvig Einarsson mál-
arameistari — Minning
F. 29. mai 1892 — D. 20. marz 1959
LUDVIG Einarsson var fæddur
í Reykjavik 29. maí 1892. For-
eldrar hans voru þau hjónin Ein-
ar Árnason, kaupmaður og kona
hans Guðrún Ludvigsdóttir Knud
sen. Voru þau þrjú systkihin.
Árni var e’.ztur, þá Rósa og Lud-
vig yngstur. Eru þau nú öll látin.
Snemma tók að bera á Jistræn-
um hæfileikum hjá Ludvig og
stundaði hann myndJist allt fram
á síðustu ár sín. Hjá vinum hans
og kunningjum hanga því all-
margar mynda hans og eru sumar
ágæt listaverk.
Eftir að foreldrar þeirra féllu
írá, héJdu systkinin heimilishald-
inu sameiginlega áfram, enda
giftist aldrei neitt þeirra.
Heimilisbragur og umgengni
var með óvenjulegri snyrti-
mennsku, jafnt utan húss sem
innan. Voru þau systkinin mjög
samhent um allt i því efni, enda
þurfti maður ekki annað en sjá
Ludvig aka bifreið sinni, sem allt-
af var gljáfægð, rétt eins og hún
væri að koma beint úr verk-
smiðjunni, og garðurinn á Vestur-
götu 45 bar þeim systkinunum
fagurt vitni um hvað hægt er að
gera mikið úr litJu, þegar hugur
og hönd eru samtaka.
Ludvig heitinn var hinn mestl
höfðingi og munu fáir hafa reynzt
honum fremri í þeim efnum.
Ég og kona mín færum honum
okkar alúðarfyllstu þakkir fyrir
allt sem hann var fyrir börnin
okkar, sem aldrei mun gleymast.
Að lokum flyt ég einkasyni
hans, Guðmundi, skrifstofustjóra
Kaupfélags ísfirðinga, ísafirði, og
konu hans og börnum, mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Hörður Þórðarson.
»ð anglýsing i stærsta
og útbreiddasta blaðinu
— eykur söluna mest —
Ludvig nam málaraiðn í æsku,
hélt hann að loknu námi utan og
vann fyrir sér með iðn sinni og
fór víða, eins og þá var titt um
unga iðnaðarmenn. Má nærri geta
hvílíkur fengur það hefir verið
F élagslíi
Ferðir hjá skíðaféJögunum
um páskana
Miðvikudag 25. 3. kl. 8 e.h. —-
Hebis-, Mosfellsheiði, Jósefsdalur.
Fimmtudag 26. 3. kl. 9 f.h. —
Hellis-, Mosfellsheiði, Jósefsdalur.
Föstudag 27. 3. kl. 5 e.h. Hellis-,
Mosfellsheiði, Jósefsdalur.
Laugardag 28. 3. kl. 3 e.h. Hell-
isheiði, Mosfeilsheiði, Jósefsdalur.
iSunnudag 29. 3. kl. 9 f.h. Hellis-
heiði, Mosfellsheiði, Jósefsdalur.
Mánudag 30. 3. kl.. 9 f.h. Hellis-
Iheiði, Mosfellsheiði, Jósefsdalur.
Farið vérður frá B. S. R. alla
dagana.
Skíðaráð Reykjavíkur.
Knattspyrnufélagið Fram
Skemmtifundur fyrir 3. og 4.
flokk verður í Fram-heimilinu í
kvöld, miðvikudag, kl. 8. Bingo. —
Kviikmynd. — Stjórnin.
FARFUGLAR
eldri sem yngri. - Dvalið verður
á Heiðarbóli um páskana. Skrif-
stofan að Lindargötu 50 mun því
verða opin í kvöld kl. 6,30—7,30.
Simi 15937 á sama tíma og eru
allar uppl. veittar varðandi hent-
ugar ferðir o. fl. Nýir félagar vel-
komnir. — Nefndin.
K.R. — Knattspyrnumenn
Skákmót verður í öllum aldurs-
flokkum á páskadag. Það hefst kl.
2 í félagsheimilinu. 3., 4. og 5. fl.
drengir keppa hver í sínum ald-
ursflikki og verður verðlaunabik-
ar fyrir hvern flokk. — Hróksmót
ið verður fyrir 2 .,1. og meistara-
flokk. — Knattspyrnumenn, fjöl-
mennið í öllum flokkum. Munið að
taka með ykkur töfl og mætið
stundvíslega. — Sljórnin.
K.R. — Knattspyrnumenn
Á morgun (fimmtudag), verður
innanhússmót í knattspyrnu fyr-
ir alla drengi í yngri flokkum fé-
lagsins. Það hetfst kl. 2 og verður
sem hér segir: — 5. flökkur kl. 2
—3,30. 3. flokkur kl. 3,39—5. 3.
flokkur kl. 5—6. 2. flokkur kl. 6—-
7,30. — Mætið allir stundvíslega.
— Sljórnin.
Knattspymufélagið Fram ---
Knatlspyrnumenn!
Æfingar um páskana:
Fimmtudag: M., og 1. fl. kl.
10,30; IV. fl. kl. 2; III. fl. kl. 3,15.
Laugardag: M., og 1. fl. kl. 5.
Mánudag: M., og 1. fl. kl 10,30.
IV. ÍL kl. 2; III. fl. kl. 3,15.
Bifreiðaeigendur
Athugið, að sumrstöðvar vorar við Reykja-
nes- og Suðurlandsbraut verða lokaðar
laugardaginn fyrir Páska.
Látið því smyrja bífreiðina í dag.
Opið til kl. 22,30
Ohuféíagib Skeljungur hf.
Wesfingliotise
ný, glæsileg samstæða, bakaraofn stærri gerðin og
4 hellna eldunarplata til sölu. Upplýsingar Eiríksg. 4
k. 5—7. Sími 24571.
Reiðhjól til sölu
Til sölu eru tvö reiðhjól telpu "og drengja. Hjólin eru
sérstaklega falleg með öllu tilheyrandi og alveg
sem ný. Til sýnis í kvöld kl. 7—9 á Laugavegi 19.
Ú fger&armenn
Stór hringnótabátur nýr, til sölu á Smábátaverk-
stæði Svavars Þorsteinssonar, Akureyri. Sími 1937.
Skrifstofustúlka
óskast. Vinnutími 1 til 5 fimm daga vikunnar. Um-
sóknir ásamt uppl. um fyrri störf, sendist afgr. Morg-
unblaðsins merkt: „Endurskoðun — 5454“.