Morgunblaðið - 25.03.1959, Blaðsíða 19
Miðvik'udagur 25 marz 1959.
MORGinSBVAÐlB
19
Sumir eyða páskaieyfinu
á ísafirði — aðrir
*
á Mallorca!
Vísitala byggingarkostnaðar lækkar
um 1 % frá því í oktéber í haust.
í NÝÚTKOMNUM Hagtíðindum
er skýrt frá því, að Hagstofan
hafi reiknað út vísitölu bygging-
arkostnaðar eftir verðlagi í febrú
armánuði 1959, en hún gildir
fyrir tímabilið 1. marz til 30. júní
1959. Reyndist vísitalan vera
133 stig, miðað við grunntöluna
100 hinn 1. október 1955, en það
jafngildir 1289 stigum eftir eldri
grundvellinum (1939 — 100).
Vísitala byggingarkostnaðar í
október 1958 var, að því er snert-
ir launakostnað, miðuð við þá-
gildandi kaupgreiðsluvísitölu, 185
stig. Vísitala byggingarkostnaðar
í febrúar er miðuð við vísitölu
175 að því er snertir beinan
launakostnað í visitölunni. Hefði
því mátt vænta 5,4% lækkunar
á þeim liðum vísitölu byggingar-
kostnaðar, sem eru hreinir vinnu
Hðir. Svo fór þó ekki. Meðallækk-
un á mótauppslætti og trésmíði
utanhúss við þak, trésmíði innan
húss, múrvinnu og verkamanna-
vinnu er ekki nema 3,9%. Ástæða
+ KVIKMYNDIR *
Kópavcgs Bíó: FROU-FROU
SVO SEM kunnugt er, hóf Kópa-
vogs Bíó starfsemi sína sl. laugar-
dag í húsakynnum hins nýja fél.-
heimilis þar í bæ. Er áhorfenda-
salurinn allrúmgóður, tekur um
300 manns í sæti og er þar allt
smekklegt, en án íburðar. Stend-
ur félagsheimiUð hátt og er þaðan
útsýni fagurt í þrjár áttir. Er
^kemmtilegt, þegar dimma tekur,
að horfa út yfir hina breiðu
byggð með Ijós í hverju húsi og
reyndar ævintýri líkast, því að
svo skammt er síðan á þessum
slóðum var ekki annað að sjá en
nokkur dreifð smábýli, auk
Kópavogshælisins.
Kópavogs Bíó hóf starfsemina
með sýningu á frönsku kvikmynd
inni „Frou-Frou“, sem tekin er í
litum og Cinemascope Fjallar
myndin um þætti úr ævi „Frou-
Frou“, sem ung og fríð, gengur
milli borðanna í einum af dýr-
ustu veitingasölum Parísarborg-
ar, og selur blóm. I>arna sitja
glæstar konur og prúðbúnir
heimsmenn og kvennabósar,
kampavínið freyðir og hin taum-
lausa léttúð ræður þarna ríkjum.
Við eitt af borðunum situr rúss-
neski prinsinn, Wladimir ásamt
þremur félögum sinum og jafn-
mörgum glaðværum konum. —
Þeir f jórmenningarnir koma auga
á Frou-Frou og verða þegar heill-
aðir af yndisþokka hennar. Bind-
ast þeir samtökum um að taka
stúlkuna að sér og „mennta“
hana svo að .ún verði gjaldgeng
í hinu glæsilega en vafasama
samkvæmislífi heimsborgarinnar
eins og það var á árunum fyrir
heimsstyrjöldina fyrri. — Frou-
Frou kemst nú inn í hringiðu
skemmtanalífsins. Hún er dáð af
mörgum, býr í íburðarmiklum
húsakynnum og er búin falieguin
og dýrum klæðnaði. En gengi
hennar reynist fallvalt eins og tii
þess var stofnað og veltur á ýmsu
fyrir þessari yndislegu stúlku,
sem heldur hjarta sínu óspilltu
þrátt fyrir allt. Saga Frou-Frou
verður hér ekki rakin, enda yrði
það of langt mál, því að myndin
er mjög efnismikil, ágætlega sam-
in og prýðilega gerð. Hér við
bætist að leikurinn er afbragðs-
góður, en þau Dany Robin, Gino
Cervi og Philippe Lemaise fara
með aðalhlutverkin. Einkum er
Dany Robin heillandi í hlutverki
Frou-Frou og leikur hennar frá-
bær. — Enda þótt efni myndar-
innar sé í r;.un og veru harm.
saga, þá fer fjarri því að myndin
sé þung og drungaleg. Þvert á
móti. Hún ólgar af lífi og fjöri
og er bráðskemmtileg frá upphafi
til enda.
Mæli ég eindregið með þessari
ágætu mynd.
Kgo.
þessa misræmis er aðallega sú,
að meistaraálag á útselda vinnu
var frá 1. febrúar 1959 hækkað
til þess að jafna það, að verð á
útseldri vinnu var ekki hækkað
til samræmis við hækkun kaup-
greiðsluvísitölu 202 stig í desem-
ber og janúar.
Efnisliðir vísitölu byggingar-
kostnaðar breyttust tiltölulega
lítið, en þó varð nokkur hækk-
un á hurðum og gluggum og
fleiri liðum. Vegna verðhækk-
ana, sem koma til mótv'ægis lækk
un launakostnaðar í kjölfar nið-
urfærslu launa, er nettólækkun
vísitölunnar frá október 1958 til
febrúar 1959 ekki nema 1,3 stig
eða 1%.
Stjórn Félags ísl.
rafvirkja sjálf-
kjorm
FÉLAG íslenzkra rafvirkja hélt
aðalfund sinn sl. sunnudag 22.
þ.m. Á fundinum var lýst stjórnar
kjöri, sem fram átti að fara að
viðhafðri allsherjaratkvæða-
greiðslu, en þar sem aðeins einn
listi kom fram, urðu trúnaðar
menn félagsins sjálfkjörnir.
Stjórn félagsins er nú skipuð
þessum mönnum: Óskar Hall-
grímsson, formaður; Auðunn
Bergsveinsson, varaform.; Sveinn
V. Lýðsson, ritari; Magnús K.
Geirsson, gjaldkeri; Kristinn K.
Ólafsson, aðstoðargjaldkeri. —
Varastjóri: Sigurður Sigurjóns-
son og Kristján Benediktsson.
Á aðalfundinum flutti formað-
ur félagsins, Óskar Hallgríms-
son skýrslu um starfsemi þess á
liðnu starfsári, sem var mjög fjöl-
þætt. Stærsta viðfangsefnið var
bygging félagsheimilis, sem fé-
lagið hefir staðið að ásamt Múr-
arafélagi Reykjavíkur. Var félags
heimilið tekið til fullra nota á sl.
ári. Gjaldkeri félagsins, Magnús
K. Geirsson las og skýrði reikn-
inga félagsins og gerði grein fyr-
ir fjárhag þess, sem er góður.
Skuldlausar eignir nema nú kr.
1.233.830.05. Eignaaukning á ár-
inu hefir orðið kr. 235.443,53. Fé-
lagsmenn voru um sl. áramót 358.
Við nám í rafvirkjun og rafvéla-
virkjun á öllu landinu eru nú
128 nemendur.
FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD ÍR
efndi til innanfélagsmóts á mánu
dagskvöldið fyrir þá drengi sem
æft hafa með félaginu í vetur.
Ágætur árangur náðist í öllum
greinum. Keppendur voru marg-
ir, eða um 20, og bættu flestir
mjög árangur sinn. Enginn kepp-
andi á mótinu var eldri en 17
ára.
Úrslit urðu þessi:
Langstökk án atrennu:
1. Jón Þ. Ólafsson ........ 3,08
2. Kristján Eyjólfsson .... 3,00
3. Steindór Guðjónsson .. 2,78
3. Helgi Hólm ..............2,67
Hástökk án atrennu:
1. Jón Þ. Ólafsson ........ 1,54
2. Helgi Hólm ............. 1,40
3. Steindór Guðjónsson .. 1,35
4. Kristján Eyjólfsson .... 1,30
Þrístökk án atrennu:
1. Kristján Eyjólfsson .... 8,68
2. Jón Þ. Ólafsson ........ 8,63
3. Helgi Hólm ............. 8,21
4. Steindór Guðjónsson .... 8,11
Hástökk með atrennu:
1. Jón Þ. Ólafsson ........ 1,71
2. Helgi Hólm ............. 1,68
3. Kristján Eyjólfsson .... 1,68
4. Steindór Guðjónsson .... 1,63
Auk þessara greina fór fram
keppni í hástökki án atrennu fyr-
| ir fullorðna og í þeirri grein
Elías Jóhaimesson
85 ára
ELÍAS JÓHANNESSON, bóndi
að Melkoti í Stafholtstungum, er
85 ára í dag. Hann hefir búið
í Melkoti í 52 ár og frá því að
hann hóf fyrst búskap að Efra-
Nesi í sömu sveit, er nú senn
hálfur sjötti .tugur ára. Elías hef-
ir verið mikið snyrtimenni í allri
umgengni og ber ábýlisjörð hans
þess Ijóst vitni í ræktun og húsa
kosti. Elías er kvæntur Halldóru
Ólafsdóttur, sem var ljósmóðir í
Stafholtstungnahreppi um ára-
tuga skeið. Eiga þau nú á næst-
unni 60 ára hjúskapar afmæli.
Þau búa nú ásamt tveimur upp-
komnum börnum sínum, Jóhönnu
og Magnúsi, og er Melkotsheim-
ilið rómað fyrir gestrisni og
myndarbrag.
Margir munu verða til þess að
senda Eliasi kveðjur sinar í dag
og minnast góðra stunda í félags
skap hans.
Inflúensa
FRÉTTARITARI Mbl. á Siglu-
firði símaði blaðinu í gærkvöldi
leiðréttingu á frétt um inflúenzu
um borð í hinum nýja austur-
þýzka togbáti Margréti. Það var
í þriðju veiðiför skipsins en ekki
í fyrstu, eins og ranglega var
hermt í blaðinu, sem veikin gerði
vart við sig um borð í skipinu.
Vegna sögusagna um hingað-
komu veikinnar, sagði fréttarit-
arinn, er rétt að undirstrika það,
að um það er ekki vitað með
vissu, þótt Hkur bendi til, að hún
hafi borizt til bæjarins með
þýzku skipi, sem lestaði mjöl-
farm á Siglufirði.
sigraði Karl Hólm, náði öðrum
bezta árangri íslendings, og
stökk 1,62 mtr. Annar varð Val-
björn Þorláksson, stökk 1,60, og
þriðji varð Halldór Ingvarsson,
stökk 1,50 mtr.
Haiidknattleiks-
mót í Kef lavík
á morgim
KEFLAVÍK, 23. marz. — Mjög
mikill áhugi á handknattleik rík
ir hér í Keflavík. — Á skírdag
kl. 2 gengst Handknattleiksráð
Keflavíkur fyrir móti, sem háð
verður í íþróttahúsi skólanna
hér.
Upphaflega var ætlunin, að öll
2. deildar-liðin í meistaraflokki
tækju þátt í móti þessu, ásamt
1. flokki Hafnfirðinga, en þar
sem Akranesliðið forfallaðist var
Ármenningum boðin þátttaka,
hvað þeir þáðu. — Taka því eft-
irtalin lið þátt í mótiau: Ármann,
Víkingur, Þróttur, Afturelding,
F. H. (1. flokkur) og Keflvíking-
ar.
Hugmyndin er, að sHkt mót
verði síðan haldið árlega eftir-
leiðis. — Ingvar.
MENN eru nú farnir að hugsa iil
páskaleyfisins með tilhlökkun.
Sumir ætla að leggja land undir
fót og fara á skíðavikuna á ísa-
firði, til Akureyrar eða Vest-
mannaeyja, aðrir fara til Mall-
orca!
í gær voru farnar á vegum
Flugfélags íslands til Akureyrar
þrjár fertir og tvær til ísafjarðar
og var fullskipað í öllum þess-
Jóna Dósótheus-
dóttir áttræð í dag
ÞÚFUM, 24. marz. — Á morgun
þann 25. þ.m., verður Jóna Dósó-
theusdóttir, fyrrum húsfreyja að
Keldu hér í hreppi áttræð. Jóna
er dóttir merkishjónanna Dósó-
theusar Tímótheusarsonar á
Sveinhúsum og konu hans, Jón-
ínu Jóhannesdóttur. Jóna hefir
dvalizt allan sinn aldur hér í
sveit utan þess tíma, er hún leit-
aði sér menntunar í kvennaskóla.
Jóna var um skeið barnakenn-
ari í sveitinni. Hún er ágætlega
greind kona, hagmælt, vel minn-
ug og unnandi hvers konar fróð-
leiks, einkum þjóðlegra fræða og
lista.
Um langt skeið bjó hún með
manni sínum Halldóri hrepp-
stjóra á Keldu og hélt þar uppi
mikilli heimilisrisnu. Nutu þau
hjón mikillar vináttu sveitunga
og annarra, er þau höfðu kynni
af, enda bæði mikið mannkosta
fólk. Síðustu 20 árin hefir Jóna
verið í Reykjarfirði hér í sveit.
— P.P.
um ferðum. Áætlað er að farra
tvær ferðir til Akureyrar í dag,
og fer Skymastervél F.Í., Sól-
faxi, aðra ferðina. Er fullbókað
í báðar þessir ferðir, og einnig 1
tvær ferðir til Vestmannaeyja og
eina ferð til ísafjarðar. Á skír-
dag er áætlað að fara aukaferðir
til Akureyrar og Vestmanna-
eyja. Ekkert verður flogið innan-
lands á föstudaginn langa og
páskadag, en á annan í páskum
verða farnar aukaferðir eftir þörf
um til Akureyrar og Vestmanna-
eyja.
Sólfaxi leggur í kvöld upp £
mikla ís.'.u til Madorca með 60
manns. Hefur starfsfólk hjá ýms-
um fyrirtækjum tekið vélina á
leigu til þessarar ferðar. Sólfaxi
bíður eftir ferðalöngunum á Mall
orca um páskahelgina og er vænt
anlegur aftur hingað tu lands
nk. þriðjudag. Mun flugvéUn
hafa viðkomu í París á heimleíð-
inni. Færri en vildu munu hafa
komizt i þessa för.
í fyrradag fór Sólfaxi til Graen
lands, og var flugvélin væntan-
leg úr þeirri för í morgun.
★ ★
Strandferðaskipið Hekla fer I
dag vestur um land til ísafjarð-
ar, Akureyrar og Siglufjarðar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Skipaútgerð ríkisins höfðu i gær'
um 170 manns pantað far með
skipinu, og munu flestir farþeg-
anna ætla til ísafjarðar. Far-
þe'garými er því fullskipað, og
margir hafa orðið að taka sér far
í lest. — Hekla kemur við á heim-
leiðinni á ísafirði á annan í
páskum til að flytja ferðafólkið
aftur til Reykjavíkur.
SILFURTÚN
Frá 1. apríl n.k. annast frú Ingi-
björg Eyjólfsdóttir, Sveinatungu
útsölu og dreif ingu á Morgunblað-
inu í Silfurtúni og nágrenni þess.
Lokað í dag
vegna jarðarfarar.
Vélar og skip K.f
ÞORSTEINN LOFTSSON
frá Vestmannaeyjum andaðist í sjúkrahúsinu Sólvangi í
Hafnarfirði 24. þ.m.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Kristjana Einarsdóttir.
Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim, sem auð-
sýndu okkur samúð við fráfaU
stefAns íónssonar
Brimnesi.
Vandamenn.
Cóður árangur yngri
féiaga ÍR í frjálsíþróttum