Morgunblaðið - 25.03.1959, Side 20
VEDRID
Austankaldi. Úrkomulaust
að mestu.
70. tbl. — Miðvikudagur 25. marz 1959
Kjördœmamálið
Sjá grein á bls. 11.
Svartagilsmdlið dæmt í sakadómi:
Annar bræðranna hlaut tveggja
ára fangelsi en hinn 8 mánaða
Happdrætti Sjálfstæðisflokksins:
Dregið í kvöld kl. 23
Aðeins 300—400 miðar til sölu i dag
f SAKADÓMI Reykjavíkur var i
gærdag kveðinn upp dómur í svo-
nefndu Svartagils-máli, en að-
ilar að því eru ákæruvaldið og
bræðurnir Reynir og Sveinbjörn
Hjaltasynir, Suðurlandsbraut 9,
hér í bænum. Þeir bræður réð-
ust haustið 1957 inn á heimili
Markúsar bónda Jónssonar í
Svartagili í Þingvallasveit. Voru
þeir kærðir fyrir að hafa borið
eld að bæjarhúsinu og brennt það
til ösku ásamt áföstu fjósi og
hlöðu. Þórður Björnsson, rann-
sóknardómari í máli þessu,
dæmdi Reyni í tveggja ára
fangelsi, þar eð hann var talinn
hafa kveikt í bænum. Sveinbjörn
var aftur á móti sýknaður af
þeirri ákæru, en hlaut 8 mánaða
fangelsisdóm.
Þórður Björnsson skýrði blöð-
unum frá dómsniðurstöðum í gær
kvöldi. Gat hann þess, að með
dómnum hafi þeir bræður verið
sviptir kosningarétti og kjör-
gengi, og gert að greiða máls-
kostnað, en hvorum verjanda
þeirra voru dæmdar 4000 kr.
Einnig urðu þeir að greiða mál-
flutningslaun sækjanda. Reynir
hefur aldrei áður verið dæmdur
til refsivistar, en Sveinbjörn
hiaut nú fimmta refsidóminn.
Ákæruatriðin voru þrjú. Þeir
voru ákærðir fyrir að hafa gerzt
sekir um heimilisfriðarbrot í
Svartagili, — fyrir líkamsárás á
Markús bónda og í þriðja lagi
fyrir að hafa kveikt í bænum.
Bræðurnir voru báðir sekir
fundnir varðandi tvö fyrstu á-
kæruatriðin, en varðandi þriðja
ákæruatriðið var Sveinbjörn
sýknaður en Reynir aftur á móti
sakfelldur þótt hann játaði
aldrei á sig verknaðinn.
Við rannsókn málsins bar Svein
björn að Reynir hafi látið orð
falla um það í Svartagili að rétt-
ast væri að kveikja í „helvítis
kofanum", og var þeim fram-
burði ekki hnekkt. Ekkert kom
fram er bent gæti til að eldsupp-
tök hafi orðið út frá eldavélinni,
Ijósaútbúnaði eða reykingum.
Þegar Sveinbjörn heyrði Reyni
hóta að bera eld að húsinu var
AÐALFUNDUR Iðju, félags
verksmiðjufólks, var haldinn í
gærkveldi. Formaður, Guðjón
Sigurðsson, setti fundinn og
minntist í upphafi látinna félags-
manna og hinna hörmulegu sjó-
slysa, sem urðu í febrúar sl. —
Fundarmenn risu úr sætum til
að votta hinum látnu virðingu
sína. Var siðan samþykkt að gefa
kr. 5000,00 í söfnunarsjóðinn
vegna sjóslysanna.
Formaður flutti þar næst ýt-
arlega skýrslu félagsstjórnar,
sem sýndi glögglega að félags-
lífið hafði staðið með miklum
blóma sl. ár Þá lýsti hann úr-
slitum stjórnarkosninga, sem
fóru fram 7. og 8. febr. sl., þar
sem stjórnin var öll endurkjör-
in með 777 atkv., gegn 438 atkv.
kommúnista og félaga þeirra. Las
hann þar næst reikninga félags-
ins. Var tekjuafgangur rúmlega
57 þús. kr., og var af því lagt
48 þús. kr. í fræðslu- og vinnu-
deilusjóð. Eignir félagsins nema
nú rúmum 410 þús. kr. og hafa
þær aldrei í sögu félagsins verið
meiri. Litlar umræður urðu um
Reynir í forstofu og rétt á eftir
tók Sveinbjörn eftir því að eld-
ur var byrjaður að loga þar
frammi. Um þetta atriði lét
Reynir þau orð falla við réttar-
höldin, að hann myndi ekki
draga í efa framburð Sveinbjarn
ar bróður síns, en ekki kvaðst
Reynir muna neitt eftir þessu.
Rannsóknardómarinn sagði að
ekkert hefði komið fram um að
Sveinbjörn hefði borið svo fyrir
rétti sem hér hefur verið greint
frá til þess að koma sökinni yfir
á bróður sinn, heldur hafi ýmis-
legt komið fram þessu til stuðn-
ings. T.d. rannsókn geðveikra-
læknis, sem skýrir frá því í
skýrslu sinni til dómarans að
undir áhrifum áfengis verði
Reynir gripinn drykkjuæði, verði
viti sínu fjær og gæti eftir á
hvorki játað eða neitað og sé það
grunur sinn að hann hafi undir
slíkum kringumstæðum framið
óhappaverkið.
Það kom fram við rannsókn
málsins að í Svartagili var Reyn-
ir ölvaður og greip hann þar ofsa
leg reiði, er hann og Sveinbjörn
bróðir hans voru einir orðnir eft-
ir í bænum.
MÆÐIVEIKI er nú komin upp
í Reykhólasveit á Barðaströnd. —
Fyrir helginga fór Guðmundur
Gíslason, læknir á Keldum,
þangað vestur til að rannsaka
nokkrar kindur á Miðhúsum í
Reykhólasveit sem voru taldar
grunsamlegar. Voru tvær þeirra
drepnar og hafði Guðmundur
lungun úr þeim með sér suður
til rannsóknar . Kom í ljós við
rannsóknina, að að minnsta kosti
önnur kindin hafði þurramæði á
mjög háu stigi.
reikningana og voru þeir sam-
þykktir samhljóða.
Samþykkt var tillaga frá for-
manni um að stjórn félagsins
skipi nefnd til þess að endur-
skoða lög félagsins. Þá var kos-
inn í 1. maí-nefnd, Ingimundur
Erlendsson, varaformaður Iðju.
Að lokum var samþykkt tillaga
frá Birni Bjarnasyni, varðandi
efnahagsmálaráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar, efnislega sam-
hljóða tillögu, sem formaður
flutti og samþykkt var á síðasta
félagsfundi.
Á fundinum voru mættir um
90 félagsmenn.
Hjálparsveit skáta
AKRANESI, 24. marz. — Nýlega
hefir verið stofnuð hér í bænum
hjáparsveit skáta með 15—20 fé-
lögum. Formaður og stjórnandi
hjálparsveitarinnar er Þórarinn
Ólafsson, leikfimiskennari. Sveit-
in mun eftir föngum leitast við að
afla sér nauðsynlegra tækja og
útbúnaði til þess að geta gegnt
hlutverki sínu eftir því sem þörf
krefur. — Oddur.
Sveinbjörn hlaut átta mánaða
fangelsi. í ágúst mánuði 1958
framdi hann innbrotsþjófnað, en
stal aðeins smávægilegu. Þetta
afbrot hans varð til þess að
þyngja nokkuð dóminn yfir hon-
um.
Reynir var í gæzluvarðhaldi frá
25. okt. 1957 til 8. marz 1958, en
Sveinbjörp frá 25. okt. til 25.
nóv. Kemur gæzluvarðhaldsvist-
in til frádráttar með fullri daga
tölu, á refsivistardómum bræðr-
anna.
SPARISJÓÐUR Reykjavíkur og
nágrennis hélt aðalfund sinn síð-
astliðinn mánudag í Þjóðleikhús-
kjallaranum. Rekstrarafkoma
Sparisjóðsins var góð á árinu, sem
Svæði það, sem veikin er á nú,
takmarkast að austan af tvö-
faldri girðingu, sem liggur upp
úr Steingrímsfirði skammt frá
Hróbergi og niður í Berufjörð. Að
vestan takmarkast svæðið af
girðingu úr Kollafirði í ísafjarð-
ardjúp. Allmargt fé er í þessu
hólfi.
Fyrir átta árum var talið, að
mæðiveiki hefði komið upp á
Hólmavík, sem er í næsta hólfi
austan við hið umrædda. Hefur
því ekki verið selt neitt fé af
þessu svæði í fjárskiptunum og
fagna menn nú fyrirhyggju þeirr
ar ráðstöfunar.
Ekki er vitað hvernig veikin
hefur komið að Miðhúsum. Eins
og áður segir, var talið á Keld-
um, að veikin hefði verið komin
á hátt stig í annairi kindinni,
sem .lógað var á dögunum. Mbl.
átti í gær tal við Svein Guð-
mundsson, bónda á Miðhúsum, og
sagði hann, að enn sem komið
værit væri mönnum það ráðgáta,
hvernig féð hefði sýkzt. Þó kvað
hann féð hafa verið óhraust þau
þrjú ár, sem hann hefði átt heima
þar á Miðhúsum.
Guðmundur Gíslason, læknir,
fór aftur vestur í gær til frek-
ari rannsókna og var hans ekki
von til baka fyrr en á laugar-
dag. Mun hann hafa í hyggju að
grafast ýtarlega fyrir um hve
útbreidd veikin kann að vera,
og verður væntanlegum aðgerð-
um hagað í samræmi við niður-
stöður þeirrar rannsóknar.
Á sumrum mun vera einhver
samgangur milli fjárins í hólf-
inu, þar sem veikinnar hefur
nú orðið vart og fjárins austan
ísaf j arðar dj úps.
AKRANESI, 24. marz. — í dag
eru 20 bátar á sjó héðan í blíð-
skaparveðri. Nítján bátar reru
héðan í gær. Öfluðu þeir alls 342
lestir, og er það að meðaltali 18
lestir á bát. — Oddur.
f KVÖLD verður dregið í bíl-
happdrætti Sjálfstæðisflokksins.
Þá kemur í ljós, hver heppnina
hefur haft með sér og hlotið hinn
glæsilega vinning.
Vinningurinn er mjög glæsi-
leg og verðmæt Ford-Fair-
lane fólksbifreið, gerð 1959.
leið, og nýtur sparisjóðurinn sí-
vaxandi trausts og vinsælda.
Innstæður sparifjáreigenda í
sparisjóðnum námu tæpum 88
milljónum króna og varaspari-
sjóðurinn er kominn upp í rúmar
5 milljónir króna.
Af hálfu ábyrgðarmanna sjóðs
ins voru endurkosnir í stjórn
hans þeir Einar Erlendsson, Ás-
geir Bjarnason og Sigmundur
Halldórsson. Síðan mun bæjar-
stjórn Reykjavíkur kjósa tvo
menn til viðbótar í stjórnina og
tvo endurskoðendur.
6,500 kr. í söfn-
unarsjóðinn
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 24.
marz. — Hér í prestakallinu hef-
ir undanfarið staðið yfir fjársöfn
un vegna sjóslysanna miklu og
söfnuðust um 6.500 kr.
Undanfarna daga hefir náms-
stjóri Austurlands, Jóhannes Óli
Sæmundsson, verið hér á ferð
og heimsótt alla skólana í fræðslu
héruðunum „milli Sanda“.
— G. Br.
Fræðslufundur um
atvinnu- og verka-
lýðsmál i kvöld
NÆSTI fundur á fræðslunám-
skeiðinu um atvinnu- og verka-
lýðsmál verður í Valhöll við Suð-
urgötu í kvöld kl. 8,30. Rætt
verður um: einkarekstur, sam-
vinnurekstur og ríkisrekstur. —
Framsögumenn verða: Bjarni
Bentsson, Ólafur Kristjánsson og
Halldór Briem.
Nauðsynlegt að þátttakendur
mæti stundvíslega.
Kópavogur
ÁRSHÁTÍÐ Sjálfstæðisfélaganna
í Kópavogi verður haldin fimmtu
daginn 2. apríl í Sjálfstæðishús-
inu við Austurvöll og verður nán
ar tilkynnt síðar um hátíðina.
Mjög ánægjulegt er, hversu vel
happdrættið hefur gengið, þar
sem nú eru aðeins fáir miðar
óseldir, en sem vænta má, að
verði allir seldir að kvöldi.
Nú er því síðasta átakið í dag
til að tryggja 100% árangur af
happdrættinu, en sjálfum sér
glæsilegan vinningsmöguleika.
Ætla má, að Reykvíkingar
keppist um að kaupa síðustu
miðana.
★ K ' ígið eða komið í skrlf-
stofuna í Sjálfstæðishúsinu
og kaupið miða.
á: Takið eftir hinni glæst-
legu bifreið í Austurstræti og
þar eru miðar seldir.
★ Hver skylci að lokum
verða eigandi hennar?
★
Skrifstofa happdrættislns
verður opin t'; kl. 11 í kvöld
Nýr bátur
til Grindavíkur
GRINDAVÍK, 24. marz. — Nýr
73 lesta bátur kom hingaS að-
faranótt þriðjudagsins. Báturinn
heitir Áskell, og er eigandi báts-
ins Gjögur h.f., Grenivík. Bát-
urinn verður gerður út frá
Grindavík það sem eftir er af
vertíðinni, en heimahöfn hans
verður Grenivík. Björgvin Odd-
geirsson sigldi bátnum heim frá
Danmörku, en þar var hann smíð-
aður. Skipstjóri i Áskeli verður
Adolf Oddgeirsson.
Meðalganghraði bátsins á heim
leiðinni var 9,7 sjómílur, og er
aflvélin hátt á fjórða hundrað
hestöfl. Báturinn, sem er úr eik,
er búinn öllum nýjustu siglinga-
og öryggistækjun*.
Tilkynnt um verð
á II. flokks smjöri
f GÆR barst blaðinu tilkynning
frá Framleiðsluráði landbúnað-
arins um .smjörverð. Segir þar,
að vegna hins nýja gæðamats á
smjöri hafi verð á II. flokks
smjöri nú verið ákveðið 66.25 kr.
hvert kg. miðalaust og 36 kr.
gegn miðum. Gegn miðum er II.
flokks smjörið 6.80 kr. ódýrara
Hvert kg en gæðasmjörið, en
miðalaust 6,95 kr. ódýrara.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið leitaði sér í gærkvöldi,
mun annars flokks smjör enn
ekki hafa sézt í búðum.
Aðalfundur
Félags garðyrkju-
manna
SL. sunnudag var haldinn aðal-
fundur Félags garðyrkjumanna.
f stjórn félagsins voru kjörnir:
Agnar Gunnlaugsson, form., Bald
ur Mariasson, varaform., Einar I.
Sigurgeirsson, ritari, Fröde
Bunks gjaldkeri og Sigurður A.
Jónsson varagjaldkeií.
Blómlegt starf Iðju
Frá aðalfundi félagsins i gærkveldi
Mœðiveiki vart í Reyk-
hólasveit í Barðasfr.sýslu
Féð á Miðhúsum hefur verið óhraust
undanfarin þrjú ár
Aðalfundur Spari-
sjóðs Reykjavíkur
Innistæður nær 88 milljónir