Morgunblaðið - 12.04.1959, Síða 10

Morgunblaðið - 12.04.1959, Síða 10
10 MORGUTS BL AÐÍÐ Sunnudagur 12. apríl 1959 Á páskunum fór fram í einni af kirkjunum í Palos Verdes í Kaliforníu mjög hátíðleg skírnarathöfn. Fjölmargt fólk var viðstatt, enda var verið að skíra frægt barn, sem þegar hafa birzt myndir af í blöðum víða um heim. Það var Miklos litli, þriggja mánaða gamall sonur leikkonunnar Jayne Mansfieid og Mickey Hargitay. Myndin var tekin við athöfnina. Leik- konan vildi, að skírnin færi fram í sömu kirkjunni og þau hjónin voru gefin saman í fyrir rúmu ári. Sagt er, að kvikmyndafrömuðir í Hollywood hafi í hyggju að gera kvikmynd eftir óperu Puccinis, Bohéme. Franska skáldkonan Francoise Sagan kvað eiga að semja handritið að kvikmyndinni. Ástarsöguna í kvikmyndinni á að færa í nútímabúning, en tónlist Puccinis verður sem sé notuð með textanum eftir Sagan. Textann að óperunni skrifaði á sínum tima rithöfundurinn Luigi Illica, sem einnig samdi að nokkru leyti textann við Manon Lescaut eftir Puccini. Illica byggði textann í Bohéme á skáld sögu Henry Murgers „Scénes de la Vie Boheme". Talið er, að annað hvort Illica eða tónskáldið Leoncavallo hafi bent Puccini á betta ágæta .óperuefni. Leonca- vallo hafði sjálfur gert óperu- texta eftir skáldsögu Murgers og bauð Puccini textann, en Puccini kvað hafa afþakkað hann og feng ið Illica til að semja textann. í fréttunum Það er kvikmyndafrömuðurinn Jerry Wald, sem nú hefir í hyggju að gera kvikmynd eftir Bohéme og mun ætla að kalla myndin The Bohemians. Búizt er við, að Juliette Greco fari með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Margir af eldri kynslóðinni hafa vafalaust oft varpað fram eftirfarandi spurningu: — Hvað skyldi hafa orðið af Pola Negri, sem á tímum þöglu kvikmyndanna heillaði alla með fegurð sinn og yndisleik? Fyrir nokkru birtist í banda- rísku blaði smá grein um Pola Negri, og af henni er Ijóst, að hún er ekki á flæðiskeri stödd. Hún lagði fé sitt í fasteignafyrir- tæki, sem gefur af sér mjög góðan arð. Pola Negri leggur nú aðallega stund á blóma rækt, sem hún hefir ætíð haft mikinn áhuga á. Hún hefir í þjón ustu sinni 14 garðyrkjumenn til að sjá um skrúðgarðinn sinn! Hinn sérvitri, ítalski rithöfund ur Marmioli er nú í ófriðarstjái á nýjan leik. Margir munu minn- ast þess, er hann fyrir nokkrum á r u m skoraði Altrincham lá- varð á hólm vegna hinna nær göngula skrifa lávarðarins um Elízabetu Eng'- landsdrottningu. — Ef enginn annar vill ganga fram fyrir skjöldu hennar vegna, þá geri ég það, sagði Marmiroli. Nú hefir Marmiroil skorað ír- anskeisara Reza Pahlevi, á hóim af því, að hann — Múhameðstrú armaðurinn— „hefir vogað sér að biðja kristinnar prinsessu". — Hafa krossferðirnar þá ver- ið farnar til einskis? spyr Marmir oli gramur. Ég hefi hugsað mér að gerast annar Ríkarður ljóns- hjarta. Svo bar við í Sankti Markúsarsjúkrahúsinu í Salt Lake City I Bandaríkjunum 22. marz s.l., að þrjár systur ólu frumburði sína svo að segja samtímis. Á myndinni eru þessar þrjár ungu mæður/með börn sín. Glen Brock (t.v.) og Merril Angelsey (t.h.) eru tvíburasystur, 19 ára að aldri. Þriðja systirin Kirt Larab, sem er tvítug, ól barn sitt rúmri klukkustund" á undan systrum sínum. Eins og menn munu minnast af fréttum, varð uppi fótur og fit í Aþenu, er Grivas uppreisn- arforingi kom til Aþenu frá Kýp ur fyrir nokkru. Meðal þeirra, sem tóku á móti honum, voru Karamanlis forsætisráðherra og Teoklitos erkibiskup. Alt lög- reglulið Aþenuborgar var kallað á vettvang til að halda uppi reglu við móttökuathöfnina. ■— Myndin, sem hér fylgir með, var tekin við móttökuathöfnina af Grivasi og konu hans. AB BJÖRNEBORGS BOMULL OY FINLAYSON FORSSA AB Fjölbreytt úrval af hinum vinsælu finnsku BÓMULLARE F N U M væntanleg á næstunni. Kaupmenn vinsamlega hafið samband við okkur sem fyrst. E inkaumboðsmenn: FRIÐRIK BERTELSEN & CO., H.F. SÍMI 16620 Mýrargötu 2.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.