Morgunblaðið - 01.05.1959, Blaðsíða 2
2
MORGUIVBLAÐIÐ
Föstudagur 1. maí 1959
Verzlunarskólanemendur
fá kennslu í sölutœkni
VERZLUNARDEILD Verzlunar-
skólans var sagt upp við hátíð-
lega athöfn í Austurbæjarbíói í
frammistöðu í íslenzku, Guðrún
Agnarsdóttir hlaut málabikarinn
fyrir bezta frammistöðu í erlend-
gær, að viðstöddum nemendum, um tungumálum, Þorkell Bjarna
----—*— 'son hlaut bókfærslubikarinn og
Guðmundur Agnarsson vélritun-
kennurum og nokkrum gestum.
Skólastjórinn flutti skýrslu
um starf skólans á sl. vetri. Skráð
ir nemendur í upphafi skólaárs
347 piltar 211 og stúlkur 136.
Starfað var | 14 bekkjardeild-
um. Voru allir bekkir i verzl-
unardeild þrískiptir og svo 5. og
6. bekkur ein deild hvor. Vorpróf
í verzlunardeild hófst 28. marz
og lauk 25. apríl. Prófið þreyttu
samtals 321 nemandi, þar af 23
utanskóla.
Verzlunarpróf, það er burtfar-
arpróf úr 4. bekk, þreyttu að
þessu sinni 83 nemendur. Stóðust
þeir allir prófið. Hlutu tveir ágæt
iseinkun, 40 hlutu 1. einkunn, 35
aðra einkun og 6 3. einkunn. Efst
á burtfararprófi að þessu sinni
sinni voru þau Brynjólfur Sig-
urðsson frá ísafirði og Guðrún
Agnarsdóttir, Reykjavík. Hlutu
þau jafnháa aðaleinkunn, 1.
égætiseinkunn 7,51 (notaður er
einkunnarstigi Örsteds). Aðrir
einkunnahæstu nemendur á
þessu prófi voru Bogi fsak Níls-
son frá Siglufirði, hlaut 1. eink.
7,31. Þriðja sæti skipar Eyjólfur
Martinsson 1. eink. 7,16.
í öðrum bekkjum verzlunar-
deildar voru þessir efstir: í 3.
bekk Erna Guðrún Franklín og
Ingibjörg Haraldsdóttir, sem
hlutu báðar 1. eink. 7,22. í öðr-
um bekk, Margeir Daníelsson frá
Akranesi með 1. eink. 7,12. Og
í fyrsta bekk Friðrik Gústaf
Friðriksson, með 1. eink. 7,07.
Allir nemendur, sem fram úr
höfðu skarað, voru sæmdir ýms-
um verðlaunum frá skólanum.
Farandbikara skólans hlutu
þessir nemendur. Brynjólfur
Sigurðsson hlaut Vilhjálmsbik-
arinn, sem veittur er fyrir bezta
arbikarinn.
Þegar skólastjóri hafði afhent
brautskráðum verzlunarprófs-
nemendum skírteini og sæmt þá
verðlaunum, sem fram úr höfðu
skarað, flutti hann ræðu og á-
varpaði s.'Vstaklega verzlunar-
prófsfólkið. Sérstaklega lét hann
þess getið, að á hausti komanda
mundi kennsla í 4. bekk skól-
ans hefjast hálfum mánuði fyrr
en vant er, eða 15. september.
Kvað hann verða efnt til nám-
skeiðs fyrir nemendur 4. bekkj-
ar í vörufræði, sölufræði og sölu-
mennsku, hagnýtum skrifstofu-
störfum og skipulagningu skrif-
stofustarfa. Mimdi enginn fá að
ganga undir burtfararpróf úr 4.
bekk, án þess að hafa sótt þetta
námskeið.
Heil skipshöfn
í inflúenzu
HAFNARFIRÐI — 1 gærkvöldi
kom togarinn Bjarni riddari af
veiðum eftir um viku útivist, en
hann varð að leita hafnar sökum
þess, að nær allir skipverjarnir
höfðu lagzt í inflúenzu. — Var
sjúkrabíllinn kominn niður á
bryggju, þegar togarinn kom, til
að flytja hina mest sjúku heim.
Bjarni riddari mun hafa verið
búinn að fiska rúmlega 100 tonn.
Inflúenzan hefur gengið hér
yfir undanfarið og lagzt bæði á
börn og fullorðna. Ekki hefur þó
orðið að grípa til þess ráðs að
Ioka skólum. — G. E.
Flóttafólkið júgóslavneska við komuna til Reykjavíkur í gær.
Flóttamenn
eignast nýft
frá Júgóslavíu
föðurland hér
27 manna hópur kom til Reykja-
vikur i gær
Hvernig verða áreksfr-
umferðinni ?
armr i
!ÍR skýrslum lögreglunnar um
Gatnamót Hverfisgötu og ItauSar-
árstígs: 5 árelestrar,
Þrisvar urðu árekstrar vegna
þess, að aðalbrautarréttur Hverfis-
Viðskiptasamning-
ur framlengdur
Samkomulag um viðskipti milli
íslands og Danmerkur, er falla
átti úr gildi hinn 14. marz s.l.,
hefur verið framlengt óbreytt
um eitt ár.
Bókun um vöruskipti milli fs-
lands og Danmerkur á tímabil-
inu frá 15. marz 1959 til 14. marz
1960 var undirrituð í Reykjavík
hinn 24. apríl af Guðmundi í.
Guðmundssyni, utanríkisráð-
herra, fyrir íslands hönd og E. A.
Knuth greifa, ambassador Dana
á fslandi, fyrir hönd Ðanmerkur.
Samkvæmt samkomulagi þessu
munu dönsk stjórnarvöld veita
innflutningsleyfi fyrir íslenzkum
vörum á sama hátt og síðastliðið
ár, og íslenzk stjórnarvöld munu
einnig heimila innflutning frá
Danmörku eins og að undanförnu
að svo miklu leyti sem gjaldeyris
ástand landsins leyfir.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 27. apríl 1959.
Dagskrá Alþingis
Á MORGUN er boðaður fundur í
efri deild Alþingis kl. 1,30 síð-
degis. Fjögur mál eru á dagskrá.
1. Stjórnarskrárbreyting, 1. umr.
2. Gjaldeyrissjóður og alþjóða-
banki, frv. 3. umr.
3. Gjaldeyrissamningur Evrópu,
frv. 3. umr.
4. Tekjuskattur og eignarskattur,
frv. Frh. einriar umr.
götu var ekki virtur. Einu ani
bifreið suður Ráuðarárstíg á
strætisvagn austur Hverfisgötu,
einu sinni bifreið norður Rauðarár
stíg á bifreið austur Hverfisgötu,
einu sinni kom bifreið Rauðarár-
stíg og rakst á skellinöðru, sem
kom austur Hverfisgötu.
Einn árekstur varð vegna fram-
úraksturs á gatnamótunum. Stræt-
isvagn fór af stað af stöðlinum og
beygði suður Rauðarárstíg, öku-
maður bifreiðar nokkurrar átti
sízt von á því og ætlaði fram hjá
á gatnamótunum.
Loks varð einn árekstur þarna,
er bifreið, seotn laigt hafði verið í
stæði austanvert á Rauðarárstíg
norðan við Hverfisgötu rann á bif-
reið, sem staðnæmzt hafði á Rauð-
arárst. vegna uinferðar um Hverf-
isgötu, en fyrmetfnda bifreiðin
rann afturábak um leið og öku-
í GÆR stigu á land í Reykja-
vík 27 landnemar, sem hér
ætla að reyna að byrja nýtt
iíf eftir flótta frá ógnarstjórn
kommúnismans. Þeir horfðu
spyrjandi í kringum sig, þeg-
ar þeir gengu stigann niður
úr flugvél Flugfélagsins, sem
hafði borið þá síðasta áfang-
ann hingað frá Kaupmanna-
höfn. Þcssa fólks beið óvissa
og ef til vill erfiðleikar í nýja
föðurlandinu, en flestir eru
flóttamennirnir ungir piltar
og menn, stæltir og karl-
mannlegir, sem ættu að geta
staðið sig vel í lífsharáttunni.
Flóttamenn þessir komu frá
Júgóslavíu. Þeir hafa flúið stjórn
kommúnista til Ítalíu og þar
hafa þeir orðið að dveljast mis-
jafnlega lengi í flóttamannabúð-
um. Islenzka ríkisstjórnin bauðst
til . þess í sambandi við Flótta-
mannaráðið, að taka við 20 flótta
mönnum, helzt mönnum, sem „, „ , . „ ,
vanir eru sjósókn. Beindist leitin stu“dum afla A£elr urtl 8 tonu af
þá fljótt að júgpslavneskum|sardimim 1 roðri °S sv0 aðrar
I fxsktegundir, sem ekki þekkjast
inga og urðu hann, kona hans og
þrjú börn eftir, en munu koma
síðar.
Fréttamaður Mbl. ræddi lítil-
lega við flóttamennina, er þeir
komu hingað. Elztur í hópnum
var Osman Djorilt, 39 ára en hann
og kona eru einu múhameðs-
trúarmennirnir í hópnum. Næst-
elztur í hópnum var maður að
nafni Veggina, sem var um þrít-
ugt og kemur hingað með konu
og bern. Hann hefur dvalizt í
flóttamannabúðum á Ítalíu í
meira en 10 ár. Eftir komuna
kynntist nann ítalskri stú.lku í
Napoli og giftist henni. Flutti hún
þá inn í flóttamannabúðirnar og
éiga þau fjögur börn, Francisco
sjö ára, Andrea sex ára, Maria
Christina fjögra ára og Gemina
þriggja ára og koma þau öxl hing-
að Þessi maður stundaði fisk-
veiðar, er hann lifði í bænum
Rovini í Júgóslavíu.
Flestir flóttamannanna hafa
stundað fiskveiðar, en meðal
þeirra eru þó fagmenn eins og
einn bifvélavirki og einn trésmið-
ur. Flestir hafa þeir róið á 12—13
metra vélknúnum dekkbátum
sem hafa 12—15 manna áhöfn.
flóttamönnum, sem margir hafa
stundað fiskveiðar í Adríahafi.
Á Ítalíu eru nú um 14 þúsund
júgóslavneskir flóttamenn, sem
hafast við atvinnulausir í flótta-
mannabúðum. 50 sóttu endanlega
um að fá að flytjast til íslands
og fór Hallgrímur Dalberg, skrif-
stofustjóri, til Rómaborgar til að
velja 20 úr þeim hópi. Sextán
þessara manna eru einhleypir, en
fjórir giftir og börn þeirra átta.
Samtals verður þetta því 32
manns. Á srðustu stundu fékk
einn fjölskyldumaðurinn misl-
hér. Þeir segja að einstakir menn
eigi þessa báta, en kjör sjómanna
hafi versnað, sérstaklega vegna
þess, að kommúnistastjórnin legg
ur gríðarþunga skatta á þessa
smáútgerðarmenn, svo að æ
minni aflahlutur kemur til skipta
milli sjómannanna. Pólitísk af-
skiptasemi kommúnistanna hefur
einnig orðið þessum mönnum,
einkum unga fólkinu mjög hvim-
leið og einn flóttamannanna
sagði m. a. að hann hefði orðið
fyrir ofsöknum vegna þess að
Bláa bandið tekur að sér að hýsa
og hjúkra heimilislausum drykkju.
sjúklingum
BISKUP landsins, sem veturinn
1957, gerðist talsmaður þess að
hér í bænum yrði komið á fót
hjálparstöð fyrir heimilislausa
áfengissjúklinga, hefur fyrir
nokkru afhent Bláa bandinu rúm
lega 100,000 krónur til sjóðsstofn-
unar, til hjálpar þessu fólki.
I fyrravetur var fyrir atbeina
biskups starfrækt hjálparstöð
fyrir heimilislaust diykkjufólk
hér í bænum og var stöðin í
Hjálpræðishernum. Þó húsnæði
væri í þrengra lagi, varð það
sjúklingunum verulega að gagni.
Af óviðráðanlegum orsökum var
eklfi hægt að reka þetta hjálpar-
starf í vetur er leið.
Þegar biskup landsins, dr. Ás-
mundur Guðmundsson, hreyfði
máli þessu, var jafnframt efnt
til fjársöfnunar til þess að koma
upp heimili fyrir heimilislausa
drykkjusjúklinga. Alls söfnuðust
í þessu skyni kr. 60,762,40. Það
er þetta söfnunarfé, sem myndar
kjarnann í sjóði þeim, er biskup-
inn hefur fyrir nokkru afhent
Bláa bandinu, ásamt því að
Reykjavíkurbær lagði fram til
sjóðsstofnunarinnar kr. 55,462,44.
Eru því í sjóðnum rúmar 100,000
krónur.
Það er hlutverk sjóðsins, í
höndum Bláa bandsins, að kosta
dvöl heimilislausra drykkju-
manna í hjúkrunar- og vistheim-
ilum Bláa bandsins. Ákveðnar
reglur gilda um dvöl sjúkling-
anna í vistheimilunum og einnig
um þá er næsturgistingar njóta,
en þar er t. d. ákvæði um að ef
drykkjusjúklingarnir strjúka, þá
geti þeir ekki vænzt frekari fyr-
irgreiðslu.
Það er gert ráð fyrir því að
Bláa bandið sjái að öllu leyti um
þessa aðstoð við hina húsnæðis-
lausu drykkjusjúklinga. Sjóðinn
má aldrei skerða svo, að höfuð-
stóllinn verði lægri en 80,000 kr.
Þó má veita Bláa bandinu lán úr
sjóðnum til nauðsynlegra fram-
kvæmda þess, gegn fullri trygg-
ingu og vaxtagreiðslum. Þá verð-
ur Bláa bandinu gert að gefa
biskupsskrifstofunni og Reykja-
víkurbæ, árlega grein fyrir fjár-
reiðum sj óðsin:
hann vildi halda fast við kristin-
dóminn. Vildu forustumenn
kommúnista í þorpinu þar sem
hann bjó, að hann hætti kirkju-
göngum og legði sig meira fram
í flokksstarfi. Hann sagði einnig,
að sér fyndist engin framtíð í því
fyrir sig að búa undir stjórn
kommúnismans. Flestir eru flótta
mennirnir grísk kaþólskrar trúar.
Nefnd frá Rauða krossinum
tók á móti flóttafólkinu á Reykja
víkurvelli, en sl. vetur skoraði
Rauði krossinn á ríkisstjórnina
að taka við flóttafólkinu og bauð
fram aðstoð í því sambandi. Var
fyrst farið með það í Melaskól-
ann, þar sem það baðaði sig,
skipti um föt og fékk kvöldverð.
Síðan var ekið með þau upp í
Hlégarð í Mosfellssveit, þar sem
þau áttu að hafa náttstað.
Hallgrímur Dalberg, sem fylgdi
flóttafólkinu heim sagði, að því
hefði þegar verið tryggð hér
vinna. 10 þeirra fá vinnu við
hraðfrystihús og á togurum
Tryggva Ófeigssonar, sem á sín-
um tíma reyndist ungversku
flóttafólki hjálparhella. Sjö fara
til Bæjarútgerðar Reykjavíkur og
2—3 fjölskyldur að Álafossi. þar
sem mennimir fá vinnu í ullar-
verksmiðjunni.
Fólk heldur énn áfram að flýja
hina kommúnísku Júgóslavíu. Á
árinu 1957 flúðu að jafnaði til
Xtalíu í hverjum mánuði um 1000
manns og enn koma um 700
flóttamenn í mánuði hverjum.
Enn er allmikill hluti þeirra fiski
menn, sem taka sig saman um
það að flýja af miðunum til ít-
alskrar strandar, oft að nætur-
lagi við miklar hættur, því að
júgóslavneskir varðbátar eru þar
á ferli og bíður þeirra þung refs-
íng, sem gripnir eru á fxóttanum.
Prófessorsembætti
í guðfræði auglýst
laust
AUGLÝST hefur verið laust til
umsóknar prófessorsembætti við
guðtræðideild Háúkóla íslands
og er umsóknarfrestur til 15. maí
n.k. Er þetta embætti það, sem
er hinn nýkjörni biskup, Sigur-
björn Einarsson, hefur gegnt.
Skulu umsækjendur um em-
bætti þetta láta fylgja umsókn
sinni ítarlega skýrslu um vís-
indastörf þau, er þeir hafa unn-
ið, ritsmíðar og rannsóknir, svo
og námsferil sinn og störf. Með
umsókninni skulu send eintök af
vísindalegum ritum og ritgerð-
um umsækjanda, prentuðum og
óprentuðum. ^ .