Morgunblaðið - 01.05.1959, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.05.1959, Blaðsíða 14
14 MORGVHBL Afíirt Föstudagur 1. maí 1959 7. maí — hátíðisdagur verkalýðsins Framh .af bls. 13 einn máistað að verja, málstað sinna eigin félagsmanna, hvaða stjórnmálaskoðanir sem hver einstaklingur kann svo að hafa. Því miður hefir það komið fyrir, að slík eining, sem nú er, hefir ekki verið. Og hefir það að sjálfsögðu verið verklýðssamtök- unum í heild til skaða, en þeim mönnum einum til skammar, sem hafa talið sig svo kynborna til forustu í verkiýðshreyfingunni, að þeir hafa ekki hikað við að spiila á síðustu stundu samkomu lagí um hátíðarhöld dagsins. Jafnvel vegna einnar setningar í 1. maí ávarpinu, er ekki var eftir þeirra eigín ósk. Þessum mönnum væri holt að minnast þess nú í dag, að augu íslenzkrar alþýðu hafa á siðustu árum opnast fyrir þeirri stað- rejmd, að allt þeirra tal um ein- ingu og öll þeirra barátta í verk- lýðshreyfingunni, hefir miðazt við það eitt, að koma þeim sjálf- um og þeirra stjórnmálaflokki í valdaaðstöðu. Enda er nú svo komið, að íslenzk alþýða og alveg sérstaklega reykvísk alþýða hef- ir sýnt það í verki, að hún vill1 í DAG 1. maí, á hátíðfsdegi verka lýðsins, er minnst er unninna sigi'a í kjarabaráttunni og lagðar fram kröfurnar til úrbóta í helztu hagsmunamálum alþýðunnar, er frá sjónarmiði sjómannsins land. heigismálið og hvernig hægt sé að manna íslenzku fiskiskipin Kristján Guðmundsson íslenzkum sjómönnum ein helztu baráttumálin. Landhelgismálið er mjög við- kvæmt mál og rfkisstjórninni (fyrrverandi ríkisstjóm) orðið á mörg mistök. Rifust stjórnmála- flokkamir bæði leynt og opinber- lega um málið og var það not- að í hrossakaupum fyrrverandi ríkisstjórnar. Skömmu eftir að reglugerðin gekk í gildi og „Brezka ljónið“ hafði sýnt okk- ur vígtennurnar með ofbeldis- verkum innan íslenzkrar fisk- veiðilögsögu, báru sjálfstæðis- menn fram tillögu um að Bretar yrðu kærðir íyrir Atlantshafs bandalaginu og notað ákvæði i sáttmálanum um, að árás á eitt Á ÞESSUM degi, 1. maí, hátíðis- degi hinna íslenzku verkalýðs- samtaka, kastar hinn vinnandi maður sínum starfsstakki, og tek- ur sér fri irá önnum hins dag- lega starfs. ekki lengur hlíta „forustu" þess- ara „sjálfsögðu verklýðsforingja", og skiptir í því sambandi ekki máli, hvort þeir hafa nefnt sig „kommúnista", „sameinaða sósíal ista“ eða bara Alþýðubandalag“. í dag munu allar stéttir hins vinnandi fólks sameinast í bar- áttu sinni fyrir bættum kjörum, betra og heilbrigðara lífi, og um- fram allt munum við öll standa í einni órofa heild sameinuð, í frjálsri verklýðshreyfingu. Með því sýnum við í verki vilja okk- ar til þess að við, sem nú störfum og komandi kynslóðir geti lifað í landi okkar, sem frjálsir menn í frjálsu landi. 1. maí hefir alltaf verið sá dag ur, sem verkalýður landsins hefir litið til sem baráttudags, jafn- framt því að vera hátíðisdagur. Á þessum degi hafa oft komið fram þær kröfur, er barist hefir verið fyrir til sigurs. Og svo mun enn verða í dag. Jafnfamt því mun íslenzk al- þýða strengja þess heit að varð- veita og efla mátt samtaka sinna, fyrir sjálfa sig, fyrir land sitt 1 og fyrir lýðræði. aðildaríkjanna sé árás á öll. Þessu neitaði vinstristjórnin en hafði ekkert til málanna að leggja er gæti leyst deiluna, og því síður gerði neitt. Það er ský- laus krafa allra íslendinga til Al- þingis og ríkisstjórnar að gera allt hugsanlegt til lausnar þessu máJi, þannig að við förum út úr því með sæmd. I sambandi við þann skort á mönnum, sem á seinni árum hef- ur gert vart við sig á íslenzkum fiskiskipum er það helzt að segja Starf sjómannsins hefur aldrei verið virt sem skyldi og því síð- ur að hann hafi borið jafn mikið úr býtum og aðrir þegnar þjóð- félagsins. Sjómaðurinn, í flest- um tilfellum, dvelur langdvöl- um fjarri heimili sínu og fer þar af leiðandi á mis við margt, bæði í sambandi við heimili sitt og annað. Frístundir hans verða hon um ónýtar meðan hann er á sjó. Hin mikla atvinnuaukning í landi hefur orsakað óeðlilega eftir- spurn eftir mönnum í vinnu og í sumum tilfellum boðið margs konár fríðindi. Þetta hefur vald- ið því að margur sjómaðurinn hefur frekar kosið að vinna í landi. Afleiðingin hefur orðið sú að Færeyingar eru ráðnir til þess ara starfa svo hundruðum skipt- ir, og kostar okkur milljónir í erlendum gjaldeyri á ári og að auki eru þeir upp á betri kjör, þar sem þeir fá stóran hluta af launum sínum í erlendum gjald- eyri, sem íslenzkir fiskimenn fá ekki nema í sárafáum tilfellum. Fiskveiðar er ein helzta atvinnu- grein okkar, þar af leiðandi er þessi hörgull á íslenzkum fiski- mönnum svo stórkostlegt vanda- mál, sem krefst skjótrar og va'r- anlegrar lausnar. Að endingu vil ég óska ís- lenskri alþýðu til hamingju með daginn og vona að hinar vinnandi stéttir sameinist betur um bar- áttumál sín en hingað til hefur verið. Þegar við stöndum á sjónarhól þessa dags, þá er ástæða til þess að líta tii baka yfir troðna götu verkalýðssamtakanna á síðustu áratugum, og þó ber.okkur fyrst og fremst að hugsa með þakk- Pétur Guðfinnsson læti til þeirra manna, er ruddu hinn grýtta veg og auðnaðist með kjarki sínum og dugnaði, að sameina hina sundruðu einstakl- inga í samstillta heild, og lögðu þar með hornstein að verkalýðs- samtökum þessa lands. Það er ekki nóg að horfa til baka. Okkur ber einnig að líta fram á veginn. Og þó fyrst og fremst að íhuga upp í hvaða skörð samtökunum beri að hlaða á komandi tímum. Það eru staðreyndir, sem við getum verið sammála um í dag að mikið hefur áunnizt á liðnum tímum, og verklýðssamtökin eru orðin, sem betur fer, mjög sterk innan þjóðarheildarinnar. En öllu valdi fylgir mikil á- byrgð. Eitt er það, sem ég tel, að við ættum að víkja til hliðar inn- an samtakanna, það eru hin póli- tísku áhrif innan verkalýðsfélag anna. Því í eðli sinu ættu öll verklýðsfélögin að vera ópólitísk, því að meðlimir þeirra eru að sjálfsögðu úr öllum stjórnmála fiokkum þjóðfélagsins. Allir flokkar eiga nokkra sök í þessu efni. En þó virðizt manni, að kommúnistar gangi þar feti fram ar en aðrir flokkar, því að með því, að skoða verk þeirra innan verkalýðssamtakanna, virðist manni, að þeir meti flokkshags- muni meira en hag hins vinnandi manns. Til þess að lagfæra þessa á- galla, tel ég að upp ætti að taka hlutfallskosningar innan verk- lýðsfélaganna. Það er trú mín, að reynzlan myndi sanna réttmæti þess kosn ingafyrirkomulags. Félögin yrðu óefað miklu samstilltari í hinum margþættu hagsmunamálum sín- um, þegar hin pólitísku afskipti, yrðu utan dyra. Aðalágreiningur launþega og vinnuveitenda hefur frá fyrstu dögum verklýðssamtaka verið sá, að koma sér saman um, hver arðshlutur vinnuveitenda og hins vinnandi manns í framleiðslu þjóðarinnar skuli vera. Þetta stóra bil, sem skapazt hefur á milli þessara aðila, tel ég að beri og verði að brúa á komandi tlmum. En þá mun margur spyrja, hevrjar séu leiðir að því marki. Og því miður mun mörgum verða erfitt um svör, en persónulega er ég þeirrar skoð- unar, að forystumönnum stéttar- samtakanna, vinnuveibenda og ríkisvaldsins, beri sameiginlega að vinna að því að launþegar geti í framtíðinni á einhvern hátt orðið hlutdeildaraðilar í fram- leiðslutækjum þjóðarinnar, og myndu þá báðir aðilar stefna að sama marki, og yrði það án efa til varanlegra þjóðarheilla. Þótt verkalýðsfélögin séu orð in svo gömul, sem raun ber vitni og vinnandi menn yfirleitt félags þroskaðri en áður var. Enn er það þó svo í dag, að margir aðilar, bæði menn og kon- ur, virðast hvorki skilja mátt né gildi verklýðsfélaganna og skeyta því lítt um rétt sinn í þeim. Þeir menn, sem ekki eru fullgildir félagsmenn innan viðkomandi stéttarfélags, eru ekkert annað en gjaldendur með takmörkuð- um vinnurétti á meðan næg vinna býðst, en verða að sjálfsögðu aði Kiistjdn Guðmundsson í stjorn Sjómanna- félags Reykjavikur ÞjóðareÍBÍng um iondhe'glsmólið Pétur Guðfinnsson, ritari Landssambands sjdlfseignar vorabifreiðastjóra fluka þari samstari stéttonna víkja fyrir hinum rétthærri að- ilum. Þessi vanræksla hjá verka- mönnum ætti sér vart stað, ef að aðili gerði sér það Ijóst hversu áhættusamt það er, því að þeir glata fyrst og fremst kosninga- rétti sínum í viðkomandi félagi og þar með sínu áhrifavaldi um sinn eigin hag. Og þar að auki glata þeir eign- arhlutdeildarrétti sínum til millj- ónatuga sjóða, sem fullgildir félagsmenn eiga að sjálfsögðu fullan rétt til. Við óskum verklýðssamtökun- um til hamingju með það sem á- unnizt hefur á liðnum tímum. Og vonum að á næsta hátíðisdegi hins vinnandi manns, megi hann gleðjast yfir nýjum sigrum. Sigurður G. Sigurðsson murari Mínnihlutinn ó ehbi að róða EITT hið fyrsta verkfall, sem sögur fara af hér á landi, hófst við hafnargerðina í Reykjavík 28. apríl 1913. — Vérkamanna- félagið Dagsbrún hafði þá starf- að í 7 ár og beitt sér fyrir ýms- um hagsmunamálum verka- manna, svo sem styttri vinnu- tíma. Það hafði átt nokkur sam- skipti við atvinnurekendur og án þess, að til vinnustöðvunar kæmi, náðist samkomulag um 10 stunda vinnudag og hærra kaup, ef lengur var unnið. Kirk, danskur verkfræðingur, sem stóð fyrir hafnargerðinni, Sigurður G. Sigurðsson vildi ekki viðurkenna samninga Dagsbrúnar og krafðist 12 stunda vinnu með sama kaupi, sem þá var 30—35 aurar um klukkutímann. Verkamennirnir við hafnargerðina lögðu því nið- ur vinnu. Stóð verkfallið í 4 daga og lauk því með sigri Dagsbrúnar. Vinnulöggjöfin sett Þau 46 ár, sem síðan eru liðin, segja frá mörgum og löngum vinnudeilum og miklu þjóðfélags legu tjóni, sem þær hafa valdið. Verkfallsrétturinn er helgasti réttur launþeganna og oft þrauta leið þeirra til kjarabóta. Á sama hátt hafa atvinnurekendur gert verkbönn, að sínum rétti til þess, að knýja fram kjaraskerðingar hjá verkafólki og fá sinn hlut bættann af ríkisvaldinu. — En hinn frjálsi réttur, — sem báðir vilja nota sér til hagsbóta, — getur orðið afleiðingaríkur, því reynslan er sú, að við flestar vinnustöðvarnar glatast verð- mæti þjóðarinnar, efnahagslifið raskast og oftast tekur það lang- an tíma, að bæta tjónið. Það var því ekki að ástæðulausu, að Al- þingi setti lög um verkfalls- og verkbannsréttinn, til þess að draga úr því tjóni, sem af vinnu- stöðvunum leiðir. Fyrstu lagaákvæðin þar um, sem sett voru hér á landi, var bann við verkföllum opinberra starfsmanna, en árið 1925 af- greiddi Alþingi svo lög um sátta- tilraunir í vinnudeilum og er það að mestu sú sama löggjöf, sem enn gildir og almennt nefnist Vinnulöggjöfin. Þá höfðu verk- fallsmálin mikið verið rædd á Alþingi, enda skammt liðið frá mörgum vinnudeilum hér í bæ. A Alþingi kom fram frumvarp til laga um gerðardóm í vinnu- deilum, sem mætti allmiklum andmælum utan þings sem inn- an, en í sambandi við þær um- ræður komu fram tillögur til lausnar vinnudeilum, sem Al- þingi gat fellt sig við ,enda urðu þær að lögum nr. 55 fró 27. júní 1925, um sáttatilraunir í vinnu- deilum. Sameiginleg cndurskoðun í næsta mánuði eru því liðin 34 ár frá því að vinnulöggjöfin var staðfest og 21 ár síðan hún var að nokkru endurbætt, með lögum nr. 80, 11. júní 1938, um stéttafélög og vinnudeilur. Flestir virða þýðingu laganna og margar vinnudeilur hafa þau leyst, enda tekist vel um val sáttasemjara hverju sinni. Því er þó ekki að neita, að margar vinnudeilur síðari ára hafa orðið óeðlilega langar, eins og sjó- mannaverkfallið haustið 1950 og allsherjarverkfallið 18. marz 1955. Það er því að vonum, að rætt sé um endurskoðun vinnulög- gjafarinnar, með tilliti til breyttra aðstæðna og þeirrar reynslu, sem framkvæmdin hef- ur gefið. Færi vel á þvi, að full- trúar atvinnurekenda og laun- þega gætu sameinast um þá end- urskoðun og komið með tillögur, sem tryggðu varanlegan vinnu- frið í landinu. Uppsagnarfrestur og samningstími Þegar rætt er um endurskoðun vinnulöggjafarinnar, er vert að gera sér grein fyrir því, að at- vinnurekendur og launþegar gætu, — án afskipta löggjaf- ans, — gert meira til þess, að tryggja vinnufriðinn, en þeir oft virðast gera, enda þótt þeir kunni að deila um veigamikil atriði. í því sambandi má nefna: Að kaupgjalds- og kjarasamningar, séu gerðir til langs tíma. Með því væri tryggður varanlegur vinnufriður og meiri festa í efna- hagsmálum þjóðarinnar. Að því leyti gæti lengri samningstími orðið til hagsældar fyrir laun- þega sem aðra. En hitt er ekki síður, að sem flest verkalýðsfé- lög hafi sameiginlegt samnings- tímabil, svo að ekki komi til verkfalla einstakra stéttafélaga oft á ári. Uppsagnarfrestinn mætti líka nota betur til samningsumleit- ana og þegar um meiriháttar ágreining gæti verið að ræða, ættu aðilar að hefja viðræður áður en samningum ber að segja upp, sé um stuttan uppsagnar- frest að ræða. Sáttatilraunir og samningskröfur Meðal þýðingarmestu ákvæða vinnulöggjafarinnar er III. kafl- inn „um sáttatilraunir í vinnu- deilum". Enda þótt sá kafli lag- anna hafi — á sínum tíma — verið vandlega undirbúinn, hef- ur reynslan orðið sú, að sátta- tilraunir eru oft seinvirkar og stundum eru þær ekki hafnar fyrr en 'eftir að verkfall hefur verið boðað. Deiluaðilum er heldur ekki skylt, að leita til sáttasemjara fyrr en hálfur upp- sagnarfrestur er liðinn og hafi sáttaumleitanir sáttasemjara hætt án árangurs, geta nýjar sáttatilraunir dregist í allt að 14 daga. Starf sáttasemjara getur orðið erfitt og nokkurn tíma þarf hann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.