Morgunblaðið - 01.05.1959, Page 15
Föstudagur 1. maí 1959
MORGVNBLAÐIÐ
15
til þess að kynna sér ágreining-
inn, áður en hann kannar leiðir
til sátta. Ætti hann því að fá all-
ar þær kröfur, sem aðilar ættu
að gera, strax við samningsupp-
sögn, en nú er aðeins skylt að
senda þær þegar „þær hafa end-
anlega verið ákveðnar“, en tíma-
takmörk eru engin.
Minnihlutinn á ekki að ráða
Með vinnulöggjöfinni á að
vera tryggt, að minnihlutar í fé-
lögum atvinnurekenda og verka-
lýðsfélögum geti ekki ákveðið
verkföll né verkbönn, heldur að-
eins hreinn meirihluti félags-
manna. í lögunum ætti því að
vera fyllri ákvæði um þátttöku
í atkvæðagreiðslu, en nú er, þeg-
ar vinnustöðvun er ákveðin.
Ástæða væri til þess, að frek-
ari takmörk væru sett um út-
þenslu verkfalla, með samúðar-
verkföllum í algerlega óskyldum
starfsgreinum og í skjóli verk-
falla eða verkbanna ætti ekki að
vera unnt að framkvæma
skemmdarstarfsemi hjá þeim,
sem ekki eru beinir aðilar að við-
komandi vinnustöðvun.
í vinnulöggjöfinni segir: Stétta
félög skulu opin öllum í hlutað-
eigandi starfsgrein á félagssvæð-
inu, eftir nánari ákveðnum regl-
um í samþykktum féláganna“, en
engum er gert skylt, að vera í
stéttarfélagi. Virðist réttmætt,
að hér sé um gagnkvæmar skyld-
ur að ræða. Eru líka mörg dæmi
til þess, að utanfélagsmenn hafi
— vegna stundarhagnaðar —
misvirt rétt og samþykktir
stéttafélaganna og jafnvel — af
þeim sökum — valdið vinnu-
stöðvun á einstökum vinnustöð-
um.
Fordæmið gefið
Til þess, að tryggja varanlegan
vinnufrið virðist auðveldast, að
banna verkföll og verkbönn með
lögum. Þar hefur forseti Alþýðu-
sambandsins gefið fordæmið með
bráðabyrgðarlögunum frá 28.
ágúst 1956, um kaupgjald og
verðlag.
I>að bann mætti setja með sér-
stökum kaupgjaldslögum, sem
ákvæðu fast grunnkaup allra
launastétta háð kaupgjaldsvísi-
tölu, sem sýndi rétta breytingu
verðlags á ákveðnum fresti. En
þar til skipaður gerðardómur úr-
skurðaði aðrar kjarabætur og
allan ágreining. Þau lög ættu, að
geta skapað meira efnahagslegt
öryggi, en nú er. Framkvæmd
þeirra gæti þó orðið óvinsæl hjá
launþegum.
Ef til vill á slík löggjöf þó eftir
að koma og væri það kaldhæðni
örlaganna, ef kommúnistar bæru
hana fram á Alþingi.
En við hverju má búast, kom-
ist þeir aftur í ríkisstjórn?
S. G. S.
Trésmíðoiélag Reykjavikur
hvetur alla meðlimi sína að taka þátt
í hátíðahöldum dagsins.
Stjórnin.
Fyrirliggjandi:
Dyrasímar og tilheyrandi
IVIttrs Trading Company h.f.
Klapparstíg 20. — Sími 1-73-73.
Trésmiðir og verkamenn
Óska eftir trésmiðum og verkamönnum. — Löng vinna.
Upplýsingar í síma 22396, Kl. 8—10 í kvöld.
Til leigu
skrifstofuherbergi í Austurstræti 12.
Upplýsingar í síma 13851. —
Opnum aftur
laugardaginn 2. maí.
Höfum bæði geisla- og caoma-permane:...
Hárgreiðslustofan Perla
Vitastíg 18 A.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa nú þegar eða 15. maí í sérverzlun
(Va daginn). — Tilboð ásamt meðmælum leggist inn
á afgreiðslu Morgunbl. fyrir mánudaginn merkt:
„Áhugasöm“ — 9615.
Mótatimbur
Apríl-bók Almenna bókafélagsins
IVIaðurinn og lUáttarvöldin
TIL SÖLU
Vel með farið og hreinsað mótatimbur ca. 9—10 þús.
fet 1“—|—6“ og ca 4 þús. fet af l“x4“ til sölu.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir laugardag 2. maí.
merkt: Mótatimbur —4187.
Matreiðslukona
óskast. — Hátt kaup.
KJÖRBARINN, LÆKJARGÖTU 8.
Sími 15960.
(Sigurgeir Jónasson).
5 herb. íbuð óskast
til leigu. Fyrirframgreiðsla
ef óskað er.
PÉTUR PÉTURSSON
Sími 11219 og 17212.
Suðumes Suðurnes
Stjórnendur þungavinnuvéla á Suburnesjuni
eftir Olav Duun í þýðingu Guðm. G. Hagalín
Maðurinn og máttarvöldin er síðasta verk Olavs Duun, kom út ári fyrir dauða
hans og er eitt af heilsteyptustu verkum hans, Sagan gerist að mestu á lítilli
ey, sem á — samkvæmt gömlum spádómi' — að sökkva í sæ. Jafnframt því
sem skáldið gerir oss þátttakendúr í lífsbaráttunni á þessum stað, sýnir það
oss eftirminnilega sálir fólksins -þar, — barna og fullorðinna — grefur fyrir
dýpstu rætur. Og vér lifum með honum nóttina, þegar hafið tekur að stíga,
taugaspennuna, skeflinguna, en einnig baráttukjarkinn og lífsþrána. Og í gegnum
«llt hríslast hin ódreoandi kímni.
Maðurinn og máttarvöldin er mikið listaverk. Og þó að sögusviðið sé lítið og
■érstætt, varðar söguefnið allan heiminn.
Almenna ^ bókafélagið
halda fund mánudagskvöldið 4. maí nk. kl. 7,30
í Sjálfstæðishúsinu í Keflavík.
Fundarefni:
Tekin ákvörðun um stofnun félags.
Undirbúningsnefndin.
4ra herb. íbúð
Höfum til sölu góða 4ra herbergja íbúð 115 m2 í
fjölbýlishúsi við Laugarnesveg. Harðviðarhúrðir. —
Tvöfalt gler — Sérstaklega hagstæð lán áhvílandi.
FASTEIGNASALA & LÖGFRÆÐISKRIFSAOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hdl.
Agnar Gústafsson, hdl. Gísli G. Isleifsson, hdl.
Björn Pétursson: Fasteignasala.
VUSTURSTRÆTI 14, Il.hæð.
Símar: 2-28-70 og 1-94-78.