Morgunblaðið - 10.05.1959, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.05.1959, Qupperneq 2
T2 MORCVNBLAÐIÐ Sunnudágur 10. mal 1059 Ánægjulegur sumarfagnaður SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN x Kópavogí efndu til sumarfagn- aðar í Félagsheimili Kópavogs síðastliðinn miðvikudag. Axel Jónsson, formaður full- trúaráðs Sjálfstseðisfélaganna í Kópavogi, setti samkomuna. Þá flutti Ólafur Thors ræðu og rakti sérstaklega gang kjör- dæmamálsins. Var Ólafi ákaft fagnað af samkomugestum. Síðan var spilað bingó og að lokum dansað. — Húsfyllir var og fór skemmtunin á alla staði mjög vel fram. Blíðviðri og ferðahugur f GÆRMORGUN var víða nokk- ur ös í búðum hér í bænum, enda voru margir að nesta sig til ferða laga um helgina. Mátti heyra á tali manna, að mikill ferðahugur var í mörgum, enda var veðrið í gær til þess fallið að vekja mönn um löngun til að draga sig út úr skarkala borgarinnar. Skafheiður himinn var hér strax snemma í gærmorgun, sólin hellti geislum sínum yfir borg og bæ, og hægur andvari lék um vanga. Að líkindum fá hinir mörgu ferðalangar gott ferðaveður — veðurstofan kvað í gær útlit fyr- ir áframhaldandi hægviðri og gerði ráð fyrir fremur hlýju veðri, en sagði jafnframt, að ekki væri ólíklegt að eitthvað þyngdi að, og gætu jafnvel orðið eitt- hvað um skúrir í dag. — Ahir vegir hér í nágrenninu munu greiðfærir. Afli Bíldudalsbáta BÍLDUDAL, 9. maí. — Sigurður Stefánsson, sem einn báta hér mun halda áfram róðrum eitt- hvað enn, aflaði í aprílmánuði s.l. 77 t. og 955 kg. í 16 sjóferðum. — Hannes Andrésson, sem fór sinn siðasta róður á vertíðinni í fyrrakvöld, fékk á sama tíma 110 lestir og 505 kg. í 18 sjóferðum. Báturinn fer næstu daga til Stykkishólms, en þar verður ný vél sett i hann. Hannes Andérs- son fór samtals 61 róður á ver- tíðinni, og er heildarafli hans 375 lestir og 735 kg. — Vélbát- urinn Geysir, sem einnig er hætt- ur róðrum, aflaði í apríl 148 1. og 825 kg. í 20 sjóferðum. Heildar- afli hans á vertíðinni nemur 366 lestum og 815 kg„ en róðrarnir voru samtals 60. Hafnarf jorður og Keflavík keppa í DAG kl. 3,30 fer fram bæjar- keppni í sundi milli Keflavíkur og Hafnarfjarðar í sxmdhöllinni í Keflavík. Þetta er fyrsta sund- keppnin milli þessara bæja og hefur Olíusamlag Keflavíkur gef- ið fagran bikar til keppninnar. Báðir eiga bæirnir á að skipa góðu sundmannaliði og má bú- ast við tvísýnni keppni. Aðalfundur Húsesgenda■ félags Reykjavíkur AÐALFUNDUR Húseigendafé- lags Reykjavíkur var haldinn föstudaginn 1. þ. m., en þar sem aðalfundarstörfum varð þá eigi lokið, var framhaldsaðalfundur haldinn sl. föstudag ,og fór þá fram stjórnarkjör. Fundurinn var mjög fjölmennur. Á fundinum 1. þ. m. las for- maður félagsins, Póll S. Pálsson hrl. skýrslu stjórnarinnar um fé- lagsstarfið á liðnu ári. Kom þar m. a. fram, að hagur félagsins er nú mjög góður og að nettótekj- ur voru meiri á liðnu starfsári en nokkru sinni fyrr í sögu fé- lagsins. — Þá skýrði formaður frá því, að félagið hefði nú feng- ið mjög bætta aðstöðu til starf- semi sinnar og ætti því fram- vegis að geta veitt meðlimum sínum enn aukna og bætta þjón- ustu. Hefir félagið fengið aðset- ur á 3. hæð hússins Austurstræti 14. Það mun nú m. a. stofna til fræðslu- og upplýsingastarfsemi um eldvarnir fyrir félaga sína, en bæjárstjórn hefir nýlega sam- þykkt að veita félaginu 120 þús. kr. framlag úr brunatrygginga- sjóði til slíkrar starfsemi. Þá ræddi formaður nokkuð ýmis löggjafarmál, sem nú eru á döfinni og snerta húseigendur, svo sem frumvarp til skipulags- laga, frv. um heimild til að inn- heimta fasteignagjald með álagi, lög um sameign í fjölbýlishúsum, lög um hámark húsaleigu, lög um skatt á stóreignir, lög um bann við því að breyta íbúðarhúsnæði í atvinnuhúsnæði o. fl. Undan- farna þrjá daga hafa um 150 manns gengið í félagið. Flóð í Venezúela CARACAS í Venezúela, 8. maí. Hætta er nú talin á því, að allur bærinn Cabimas í norðvestur hluta Venezúela verði umflotinn vatni. Um 12 þúsund íbúar eru í borginni, en vegna skorts á flutningatækjum hefur ekki ver- ið hægt að flytja nema 5 þúsund á brott. Flóðin í þessum hluta landsins fara enn vaxandi, en úr- hellisrigning hefur staðið þar í fjóra daga. Bærinn Cabimas ligg- ur við helzta olíusvæði Vene- zúela. Á framhaldsaðalfundi s.l. föstu dag var kosið í stjórn félagsins, sem fyrr segir. Þessir voru kjörn- ir: Formaður Páll S. Pálsson, hri, og meðstjórnendur Ólafur Jóhannesson, kaupmaður og Friðrik Þorsteinsson, en fyrir voru í stjórninni Jón Guðmunds- son, fulltrúi, og Jón G. Jónsson, gjaldkeri. — í varastjórn voru kjörnir: Valdimar Þórðarson, kaupmaður, Sighvatur Einars- son, . pípulagningameistari og Jens Guðbjörnsson, fulltrúi. Endurskoðendur voru endur- kjörnir þeir Hannes Jónsson, fyrrv. alþm., og Sigurður Hólm- steinn Jónsson, trésmíðameistari, og til vara Óli M. ísaksson, fram- kvæmdastjóri. Iðnaðarmannafélag Isafjarðar sjötugt INAÐARMANNAFÉLAG ísfirð- inga átti sjötugsafmæli 1. júní síðastliðinn. í gær, 9. maí, minnist félagið 70 ára afmælisins með veglegu hófi. í tiléfni afmælisins hefur félagið gefið út minningarrit, sem Arngr. Fr. Bjarnason hefir skráð. Stofnendur Iðnaðarmannafélags ísfirðinga voru 11 iðnaðarmenn: y Jóakim Jóakimsson snikkari, Árni Sveinsson snikkari, Jón Magnússon snikkari, Þorlákur Magnússon snlkkari, Ólafur Hall- dórsson snikkarí, Kristján Krist- jánsson skipasmiður, Guðmundur Guðmundsson, skipasmiður, Jó hannes Elíasson járnsmiður, Jó- hann Árnason skósmiður, Hélgi Sigurgeirsson gullsmiður, Jón Kærnested smiður. Myndir af öllum stofnendunum eru í afmælisritinu. Jóakim Jóakimsson var fyrsti formaður félagsins, en lengst hef- ir Bárður G. Tómasson skipaverk- fræðingur verið formaður. í tilefni afmælisins kaus Iðn- aðarmannafélagið nú sjöTieiðurs- félaga. Eru það þessir: Arngr. Fr. Bjarnason prentari, Marselíus Bernharðsson skipa- sm.m., Albert Kristjánsson húsa- sm.m., Þórður G. Jónsson múr- aram., Þórður Guðmundsson húsasm.m., Þórarinn Helgason, rafvirkjam., Páll Kristjánsson húsasm.m. Heiðursfélagar áður eru: Bárð- ur G. Tómasson og Bjarni H. Jónsson, Eins og að líkum lætur, hefur Iðnaðarmannaf. ísfirðinga, „Bigoletto" í Austurbæjorhíói FLUTNINGUR Sinfóníuhljóm- sveitar íslands á óperunni „Rigo- letto“ í Austurbæjarbíói vekur mikla athygli meðal bæjarbúa, enda er óperuflutningur hljóm- sveitarinnar áður að góðu kunn- ur. Er skemmst að minnast óper- unnar „Carrnen", sem á síðasta ári var flutt 11 sinnum fyrir troð- fullu húsi í Austurbæjarbíói. Því miður verður ekki unnt að flytja „Rigoletto“ oftar en fimm sinnum, vegna þess að hljómsveit arstjórinn, Rino Castagnino, og ítalski tenor-söngvarinn, Christi- ano Bischini, eru bundnir við önn ur störf og þurfa að hverfa héðan að stuttum tíma liðnum. Af óviðráðanlegum ástæðum hefir orðið að gera þær litlu breytingar á áður auglýstum tón- leikatímum, að tónleikarnir, sem áttu að vera á sunnudag kl. 14.00, verða kl. 13.30, og tónleikarnir, sem áttu að vera á þriðjudags- kvöld, flytjast fram á mánudags- kvöld kl. 21.15. Eftirspurn eftir aðgöngumiðum | hefir verið mjög mikil, og ber það I vott um mikla eftirvæntingu með al almennnings í sambandi við þennan óperuflutning. Má búast við að færri komist að en vilja, þar sem sýningar verða svo fáar. Sending Krúsjeffs til Genfarfund&rins: Vesturveldin mundu þurkuð úf af yfirhorði jarðar LONDON, 9. maí — f viðtali, sem Krúsjeff átti á dögunum við V-þýzka blaðamenn og ritstjóra, sagði hann, að Vesturveldin mundu bókstaflega þurrkuð út af yfirborði jarðar, ef styrjöld bryt- ist út. Kvað hann þau bandalags- ríki Breta og Bandarikjamanna, sem tekið hefðu við fjarstýrðum eldflaugum, mundu verða harð- Skurlgripum fyrir þúsundir krónu stolið í Aðnistræti AÐFARANÓTT fimmtudagsins lagði skartgripaþjófur leið sína um Aðalstræti og rændi tvær skartgripaverzlanir. Hafði hann á brott með sér ýmiskonar dýra gripi, sem eru mörg þúsund kr. virði. Kjartan Ásmundsson gullsmið- ur í Aðalstræti 8, hefur lítinn sýningarkassa utan á húsinu. Að- faranótt fimmtudagsins nokkru fyrir kl. þrjú veittu lögreglu- menn því eftirtekt að sýningar- kassinn var brotinn. Við athugun kom í ljós að þar hafði verið stolið vönduðu og dýru gullarm- bandi, einnig gullmeni. í skart- gripaverzlun Jóhanns Guðmunds sonar, sem er í Aðalstræti 18, hafði sýningargluggi verið brot- inn og þar stolið tveim gullhring- um settum dýrum steinum, silf- urnælum og fL ast úti. Viðtal þetta var birt í Pravda í dag, tveimur dögum áð- ur en utanríkisráðherrafundur- inn í Genf hefst. Krúsjeff hvatti þau ríki Vest- urálfu, sem hefðu erlenda heri staðsetta innan landamæra sinna, að vísa hernum þegar heim. Þá mundu Rússar flytja sinn her úr A-Þýzkalandi, Póllandi og Ung- verjalandi. Endurtók hann fyrri yfirlýsingar um að A- og V- Þýzkaland yrðu sjálf að semja um sameiningu Þýzkalands. Hann sagði, að hins vegar vildu Bretar, Bandaríkjamenn og Frakkar fyrir hvern mun koma í veg fyyrir sameiningu alls Þýzkalands, þeir óttuðust sam- einingu Þýzkalands. Varðandi V-Berlín sagði Krúsjeff , að Vesturveldin vildu hafa heri sína þar áfram í árás- arskyni á Rússa. A-Þjóðverjar hefðu heitið því að blanda sér ekki í málefni V-Berlínar, þegar áætlun Rússa um Berlín gengi í gildi. Ef Vesturveldin óttuð- ust eitthvað, þá væri hægt að ræða málið á þeim grundvelli, sagði Krúsjeff. sém er elzta starfandi félag í Vést fjörðum, beitt sér fyrir marg- háttuðum framkvæmdúm og fyr- irætlunum. Þáð slofnaði Bóka- safn ísafjarðar 1889; Kvöldskóla iðnaðarmanna 1905 og ánnaðist rekstur hans þar til á síðastl. ári, að ríkið og ísafj.kaupstaður tóku rekstur skólans í sínar hendur. 1911 stóð félagið að landssýn- ingu á iðnaði ásamt Iðnaðar- mannafélögunum í Reykjavik og á Akureyri. Þegar vélbátaöldin hófst á ísa- firði 1902 var Iðnaðarmannafélag ísfirðinga vel á verði. Vildi það koma upp hér innanlands mótor- verksmiðju og vélaverkstæðum. Sótti félagið um 1200 króna styrk til Alþingis í þessu skyni. Alþingi ákvað að veita 400 kr. til þessa. Var upphæð þessi svo lág, að ekk- ert gagn varð að henni. Frá því fyrsta lét Iðnaðar- mannafélag íirðinga sig miklu skipta, að ísafjörður yrði raflýst- ur. Kom það mál fyrst fram 1904 svo 1907 og 1912—14. Hafði fé- lagið alltaf miðað sína baráttu við vatnsaflsvirkjun, Sem fyrst komst til framkvæmda 1937, Foss árvirkjunin með drengilegum samtökum og samstarfiísfirðinga. 1912 kom fram ályktun um stofn- un Landssambands iðnaðar- manna. Um mál þetta var skrif- ast á við Iðnaðarmannafélögin í Reykjavík og á Akureyri. Málið fékk ekki hljómgrunn. Stofnun Eimskipafélagsins 1912 studdi Iðnaðarmannafélagið með þátttöku og söfnun hlutakaupa. Félagið hefur líka stutt útgerð togara og vélbáta, heima fyrir, þegar til þess hefir verið leitað. Það hefir rætt bæjarmál og landsmál af kappi og borið fram sérstakan lista til bæjarstjórnar- kosninga og sigrað. Það hefir einnig lagt grunn að framtíðaruppbyggingu iðnaðar á ísafirði með því að stofna menn- ingarsjóð iðnaðarmanna til fram- haldsnáms iðnaðarmanna. Sá sjóð ur er nú 40 þús. kr. Stjórn hans skipa Kristján Tryggvason klæð- sk.m., Marselíus Berhharðsson skipasm.m. og Helgi Þorbergsson vélsm.m. Núverandi stjórn og varastjórn skipa þessir: Daníel Sigmundsson húsasm.m., formaður, Kjartan Guðmundsson málaram., gjald- keri; Óskar Eggertsson rafvirki, ritari. Varastjórn: Óli Sigmunds- son húsasm.m. formaður; Júlíus Helgason rafv.m. gjaldkeri; Sam- úel Jónsson smjörlíkisgerðarm., ritari. Iðnaðarmannafélagi ísfirðinga bárust margar gjafir á sjötugs afmælinu. Frá landssambandi iðnaðarmanna fagur fundarham- ar. Frá iðnaðarmannafélagi Ak- ureyrar fagurt ávarp með nöfn- um allra stofnenda ritað á kálf- skinn með miklu listfengi. Frá iðnaðarmannafélagi Vestmanna- eyja lituð ljósmynd af Vestmanna eyingum. Fleiri afmælisgjafir frá félögum og einstaklingum bárust. Síðastliðið sumar var Iðnþingið háð á ísafirði í tilefni afmælis- ins. í sameiginlegu hófi að loknu þinghaldi voru flutt ávörp og margar ræður. Arngr. Fr. Bjarna- son rakti þar aðalatriði úr sjötíu ára sögu Iðnaðarmannafélagsins, sem vitnar um fjörugt starf og góðan þegnaskap ísfirzkra iðnað- armanna. A. Leiðrétting í ÚTDRÆTTI úr ræðu Gunnars Thoroddsen við 2. umr. um stjórn arskrárfrumvarpið, sem birtist í blaðinu í gær, hafði orðið sú prentvilla, að þar sem standa átti „Væri m.a. með henni óvirð- ing sýnd Alþingi .... “ stóð í blaðinu, „Væri m.a. með henni svívirðing sýnd Alþingi Leiðréttist þetta hér með.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.