Morgunblaðið - 10.05.1959, Blaðsíða 23
Sunnudagur lO. 'ittáí 1959
MÖRGUNBLAÐIÖ
23
Glœsileg íþróttamiðsföð
hjá Val á Hiíðarenda
Efnt til happdrœttis
til að hraða fram-
kvœmdum
í DAG eru liðin 20 ár síðan knatt-
spyrnufélagið Valur eignaðist
jörð þá við Öskjuhlíð þar sem
félagsheimili og vellir félagsins
standa. Jarðakaupin voru á sín-
um tíma eitt mesta mál er félagið
hefur ráðist í og ullu tímamótum
í allri starfsemi þess. Minnast
Valsmenn í dag tveggja afmæla
— 20 ára afmælis Hlíðarenda í
þeirra eigu og 48 ára afmælis
félagsins sem er á morgun. El
opið hús í félagsheimili Vals í dag
milli kl. 3 og 5.
Mikið fyrirtæki
Sveinn Zoega núverandi form.
Vals skýrði Mbl. svo frá í gær að
það hafi kostað mikil átök innan
Vals þegar gera átti út um lóða-
kaupin. Nauðsynlegt var fyrir
félagið á þeim tíma að tryggja
sér samastað því félagið hafi
misst hvern völlinn af öðrum er
það hafði haslað sér. Hlíðarenda-
jörðin var þá föl af dánarbúi
Guðjóns Guðlaugssonar alþm. frá
Ljúfustöðum. Var kaupverðið 30
þús. krónur og skyldu 5 þús. kr.
greiðast út.
Samkvæmt þeirra tíma verð-
gildi var þetta mikil upphæð fyr-
ir févana félag og risu miklar
deilur um kaupin. Töldu sumir
þau glapræði. En þáverandi stjórn
Vals undir forystu Ólafs Sigurðs-
sonar fór með sigur af hólmi og
vegna trúar fjölmargra manna á
framtíð félagsins og síðar vegna
breyttra og bættra aðstöðu íþrótta
félaga á öllum sviðum m. a. vegna
styrkja frá ríki og bæ, fór svo
að Hlíðarendakaupin reyndust
Val eitthvert happadrýgsta fyrir-
tæki sem félagið hefur lagt í.
Framkvæmdir
En fátæktin var svo mikil að
leigja varð jörðina út fyrstu 5
árin sem félagið átti hana. En
1944 hófust Valsmenn handa
um að breyta hlöðu jarðarinn
ar í félagsheimiii og var því
lokið 1948. Sama ár var byrjað
á malárvallargerð og hann
vígður í sept. 1949. I*á hófst
undirbúningur grasvallargerð-
ar og var hann tilbúinn 1954.
Hefur Valsmönnum reynzt
grasvöllurinn sérlega vei og
gerð hans að öllu leyti tekizt
mjög vel. Síðar var byrjað á
byggingu íþróttahúss. I»að hef-
ur nú verið tekið í notkun en
smíði ekki að fullu lokið utan
salarins sjálfs sem er sá
stærsti í Reykjavík af íþrótta-
sölum.
Happdrætti
Þannig er að rísa glæsileg
íþróttamiðstöð að Hlíðarenda.
Hefur draumur brautryðjend-
anna fyrir 20 árum fagurlega
rætzt. Enn er þó margt ógert
og til að hraða fullkomnu
íþróttahúsi og til að ljúka
fleiri framkvæmdum að Hlíð-
arenda, efna Valsmenu nú til
happdrættis. Er það „Ferða-
happdrætti" — vinningar flug-
ferðir um allar jarðir, utan-
lands sem innan. Verður dreg-
ið 29. júni nk. Binda Valsmenn
miklar vonir við þetta happ-
drætti til stuðnings fram-
kvæmdum að Hlíðarenda.
Lokað
vegna jarðarfarar milli 12 og 4 mánudaginn
11. maí.
Bókaverzlun
Slgfúsar Eyintsndssonar h.f.
» Utan úr heimi
Framh. af bls. 12
og mjög fær skíðamaður —
vatnaskíði þar ekki undanskilin.
Árið 1954 hittust þeir Franco
og ríkisarfinn á landareign greif-
ans í Ruisenadas. Þar var gert
einhvers konar samkomulag um
það, að Franco viðurkenndi kon-
ungdæmið sem framtíðarstjórn-
skipulag Spánar, og að hann,
Franco, sæi um, að hinn ungi
Juan Carlos fengi „uppeldi" og
menntun til þess að gera hann
færan um að setjast í hásæti
Spánar „þegar tími væri ti kom-
inn“.
Svo hófst skólaganga prinsins,
en á skólaárunum hefir hann eign
azt marga vini, enda fær hann
orð fyrir að vera góður og
skemmtilegur félagi og ánægju-
legur og fjörmikill persónuleiki.
— Hann hefir lifað mjög reglu-
bundnu lífi — og allströngu. Dag
urinn byrjar kl. 7:45 með bæna-
stund á heimili hans (sem tveir
lögregluþj ónar standa vörð um
dag og nótt). Síðan má segja, að
liver stund dagsins sé fyrirfram
skipulögð — og í rúmið skal hann
vera kominn kl. 11 að kvöldi.
Prinsinn ungi hefir oft barmað
sér yfir því að fá aldrei tóm til
að fara á dansleik eða í kvik-
myndahús eins og annað ungt
fólk. En reglur eru reglur — ekki
sízt hjá konungsbörnum.
Hörmulegur atburður,
sem hafði þroskandi áhrif
Prinsinn hefir eytt öllum frí-
dögum sínum og leyfum hjá for-
eldrum sínum í Estroil. Eitt sinn,
er hann var staddur þar 1956,
varð hann vitni að hörmulegum
atburði, sem hafði djúp áhrif á
hann. Yngri bróðir hans beið
bana af voðaskoti — og lengi á
eftir var Juan Carlos ekki mönn-
um sinnandi. Sá orðrómur komst
jafnvel á kreik — og mun hafa
haft við rök að styðjast — aðhann
hyggðist ganga í klaustur — en
það hefði að sjálfsögðu eyðilagt
allar framtíðarfyrirætlanir Fran-
cos. Prinsinn náði sér þó um síðir
eftir þetta ófall, og svo virðist
sem hinn hörmulegi atburður
hafi haft þroskandi áhrif á hann,
þegar frá leið.
Að hinn ungi Juan Carlos var
hylltur nú á dögunum, svo sem
raun ber vitni, var vegna þess,
að Spánverjar fundu til þess í
hjörtum sínum, að þar færi fram
tíð þjóðarinnar.
Afmælisleikur K.H.
LISIN 1 DAG
í DAG kl. 4 verður afmælisleikur KR á Melavellinum. Báðir
aðilar, KR og Akranes, hafa valið liðin og verða þau þannig:
AKRANES:
Helgi Daníelsson
Guðmundur Sigurðsson Helgi Hannesson
Sveinn Teitsson Jón Leósson Hafsteinn Elíasson
Ríkharður Jónsson Helgi Björgvinsson
Ingi Elísson
Þórður Þórðarson
<a
KR:
Gunnar Guðmundsson Þórólfur Beck
Helgi Jónsson Hörður Felixson
Ellert Schram Sveinn Jónsson
Bjarni Felixson Hreiðar Ársælsson
Heimir Guðjóusson
Þórður Jónsson
Örn Steinsen
Garðar Árnason
Fyrir leikinn verður forleikur í
og hefst hann kl. 3.30.
4. flokki milli KR og Þróttar
Undirbúningur að vígslu
Laugardalsvallar
ÞESSA dagana er verið að hefja
undirbúning vígslumóts Laugar-
dalsvallarins, en hann verður
vígður með fjölbreyttum íþrótta-
sýningum og íþróttakeppnum í
sumar.
Æfingar skólanemenda fyrir
hópsýningar þeirra hefjast í
byrjun vikunnar og hefur undir-
búningsnefndin beðið blaðið fyr-
ir eftirfarandi orðsendingu til
þeirra:
Þátttakendur í leikfimisýning-
um vígsluhátíðarmóts Laugar-
dalsvallar mæti til viðtals og
fyrstu æfingar sem hér segir:
Stúlkur úr barnaskólum mæti í
leikfimisölum skóla sinna kh
5 n. k. mánudag 11. mai.
Ath.: Stúlkur úr Háagerðis-
skóla mæti í Hálogalandi.
Stúlkur úr gagnfræðaskólum
og öðrum framhaldsskólum mæti
í leikfimisölum viðkomandi skóla
kl. 8 n. k. mánudag 11. maí.
Piltar úr barnaskólum mæti I
leikfimisölum skóla sinna kl. 5
n. k. þriðjudag 12. maí.
Ath.: Piltar úr Háagerðisskóla
mæti í Hálogalandi.
Piltar úr gagnfræðaskólum,
framhaldsskólum og félögum
mæti í einhverjum eftirtalinna
sala kl. 8 þriðjudaginn 12. maí:
Hálogaland
Gagnfræðaskóli Austurbæjar
KR-húsið
Laugarnesskólinn
Miðbæ j arskólinn.
Fundur þjálfara félaganna
í dag, sunnudag, verður fund-
ur með þjálfurum íþróttafélag-
anna í íþróttahúsi Háskólans kl.
13.30. Mun Benedikt Jakobsson
íþróttakennari kynna þjálfurun-
um æfingaskrá hópfimleikasýn-
ingar íþróttafélaganna á mótinu.
Eru þjálfarar allra greina ein-
dregið beðnir að mæta. .
Nýkonmir.
Kiistján Siggeirsson
Laugavegi 13. Reykja*ík.
Sími 13879.
Faðir okkár, tengdafaðir og afi,
SIGFÚS VALDIMARSSON
prentari
andaðist föstudaginn 8. maí.
Börn, tengdabörn og barnabörn
Faðir okkar
JÖN JÓNSSON
verður jarðsunginn mánudaginn 11. maí frá Fríkirkj-
unni. Athöfnin hefst kl. 3.
Blóm og kransar afbeðnir, þeim, sem vilja minnast hins
látna er bent á líknarstofnanir.
Árni Jónsson, Guðmundur Jónsson,
Ellert Árnason.
Systir mín
SIGRÍÐUR ÁGÚSTA MAGNÚSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 11. maí
kl. 1,30 e.h.
Kristín Thorberg
Útför móður okkar
ÞURÍÐAR GUÐNADÓTTUR '
Þórisstöðum,
fer fram frá Hallgrímskirkju í Saurbæ þriðjudag 12. þ.m.
og hefst með húskveðju að heimili hinnar látnu kl. 12,30.
Blóm afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hennar er
bent á sjúkrahús Akraness eða krabbameinsfélagið.
Minningarsjöld sjúkrahússins fást í bókaverzlun Andrés-
ar Níelssonar, Akranesi.
Börnin
Útför
KRISTJÁNS Ö. KRISTJÁNSSON AR
fyrrv. skipstjóra og fornbóksala,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 12. maí kl. 2.
Þeir, sem vildu minnast hans, eru vinsamlega beðnir að
láta líknarstofnanir njóta þess.
Sigurlaug Traustadóttir, Rakel Kristjánsdóttir.
Móðir okkar
ELlSABET BENEDIKTSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 11.
þ.m. kl. 1,30.
Sigurður Ölafsson, Jón Ólafsson.
Öllum þeim sem sýnt hafa vináttu og samúð við andlát
og jarðarför eiginmanns míns og föður okkar
KRISTJÁNS ÞÖRÐARSONAR
stöðvarstjóra, Ólafsvík, flytjum við alúðar þakkir.
Ágústa I. Sigurðardóttir og börn.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför
BORGHILDAR MAGNÚSDÖTTUR
frá Arabæ
Magnús Jónsson, Magnea S. Magnúsdóttir,
Unnur Haraldsdóttir, Haraldur Magnússon,
Ásthildur Magnúsdóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og aðstoð við
andlát og jarðarför
SVEINBJARNAR SVEINSSONAR
frá Giljahlíð.
Aðstandendur
Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda samúð hjálpsemi
og vinarhug í veikindum við andlát og jarðarför kon-
unnar minnar og móður okkar
ÖNNU M. OLGEIRSDÓTTUR
Við biðjum að blessun guðs og verncThvíli yfir ykkur.
Karvel Ögmundsson og börn.
■SMal