Morgunblaðið - 10.05.1959, Blaðsíða 8
8
MORCVNBLAÐIÐ
Sunmidagur 10. maí 1939
Kirkjuvígsla í Borgarnesi
Á UPPSTIGNINGARDAG var hin glæsilega kirkja í Borgarnesi
vígð, eins og frá var skýrt í blaðinu á miðvikudag. Biskup Islands,
herra Ásmundur Guðmundsson, vígði kirkjuna. Forseti íslands
og frú hans svo og margir prestar voru viðstaddir vígsluna, þar
á meðal prófastur Mýraprófastdæmis, séra Bergur Björnsson í
Stafholti. Haildór H. Jónsson arkitekt, teiknaði kirkjuna.
Vígsluathöfnin
Vígsluabhöfnin hófst klukk-an
tvö og stóð um það bil tvær stund- |
ir. Var athöfnin öll mjög hátíð-1
leg og kirkjan fullskipuð.
Sóknai'presturinn, séra Leó Júlí
Usson prédikaði, en þeir séra
Bergur Björnsson prófastur í Staf
holti, séra Einar Guðnason í Reyk
íholti, séra Björn Magnússon, séra
Þorsteinn L. Jónss., sr. Óskar Finn
bogason, séra Sigurjón Guðjóns-
son prófastur í Saurbæ, séra Jón
Guðjónsson, Akranesi og séra
Magnús Guðmunlsson í Ólafsvík,
aðstoðuðu við vígsluna.
Kirkjukór Borgarness söng
undir stjórn Stefaníu Þorbjarnar-
dóttur.
Kirkjusmíðin
Að vígsluathöfninni loikinni tók
Arinbjörn Magnússon sóknarnefnd
armaður til máls og gerði m. a.
grein fyrir gjöfum, sem borizt
ihöfðu til kirkjubyggingarinnar.
Sagði Arinbjörn að fyrsta gjöf
in, sem kirkjunni barzt hefði ver-
ið frá Thor heitnum Jensen og
konu hans, sem um all-langt skeið
bjuggu í Borgarnesi. ,
Þá sagði sóknarnefndí.rmaður-
inn að Þorbergur Þorbergsson,
veikamaður og Halldór Hallgríms
son klæðskerameistari í Borgar-
nesi hefði látið sér mjög annt um
kirkjubyggingamálið og lagt bygg
ingamálinu mjög mikið lið.
Mangir aðrir hafa gefið góðar
gjafir til kirkjunnar og bygging-
arsjóðs. —
Að lokum færði Arinbjöm Hall
dóri H. Jónssýni arkitekt, alúðar
þakkir fyrir frábært verk hans
við kirkjuteikninguna og alla
aðra aðstoð, sem hann hafði í té
látið.
Ræða formanns byggingar-
nefndar
Þá tók til máls Halldór Sigurðs
son sparisjóðsstjóri í Bo. garnesi.
Er hann formaður byggingar-
nefndar kirkjunnar. Sagði hann
meðal annars:
„Kvöld eitt seint í maí, eða nán
ar tiltekið þi'iðjudagskvöldið 26.
maí, árið 1953, safnaðist all-
margt fólk saman á hæðina vestan
Skallagrímsdals í Borgarnesi,
óbyggða og hrjóstruga hæð, sem
r c
1
m
Halldór Sigurðsson formaður
byggingarnefndar
valin hafði verið til þess að
byggja á kirkju. Sóknarprestur-
inn flutti ávarp. kirkjukórinn
söng, prófasturinn flutti bæn,
stakk svo eina skóflustungu og
lýsti yfir, að kirkjubygging væri
hafin í Borgarnesi. ,
í dag, h. u. b. 6 árum síðar
erurn við aftur stödd á þessum
sama stað, — ekki undir berum
himni eins og þá, heldur innan
veggja glæsilegrar kirkju, er bisk
up landsins hefur vígt í dag.
Milli þessara tveggja maí-daga
er sex ára byggingarsaga. Þá sögu
er ekki þörf að rekja til hlítar.
En aðalatriðum verða hér nokkur !
skil gerð.
Hvenær fyrst er rætt um kirkju
byggingu í Borgarnesi veit sjálf-
sagt enginn. En á árunum 1920
til 1930, er starfandi hér Fram-
farafélag Borgarness. Á fundum
þess er mál þetta rætt oftar en
Þessi mynd eraf bakhliðinni af hinum nýja hökli Borgarnes-
kirkju. Er hann teiknaður og saumaður af frú Sigrúnu Jóns-
dóttur kennara. Hökullinn er gerður úr handofnu ull og silki-
efni. Útsaumurinn er saumaður úr sama þræði. — Þegar
hreyting var gerð á Bessastaðakirkju fyrir nokkrum árum var
frú Sigrúnu falið að sjá um teikningar og viðbót á altaris-
kiæði og dúk fyrir kirkjuna. — í Borgarneskirkju saumaði
og teiknaði frá Sigrún einnig altarisklæði, altarisbrún og
dúk á altarið. —
einu sinni, og 4 fundi í félaginu
hinn 10. marz 1927, er Kirkju-
byggingarsjóður Borgarness stofn
aður mxð 22 króna framlagi
fjögurra manna: Ingólfs Gíslason
ar læknis, Magnúsar Jónssonar
gjaldkera. Gottskálks Björnssinar,
trésmiðs og Magnúsar Þorbjarnar
sonar söðlasmiðs. í árslok sama ár
er sjóðurinn orðinn 296 krónur og
í árslok 1930 eru þessar fyrstu 22
krónur orðnar 3.850,00.
,Vöxtur sjóðsins var ekki með
neinum ævintýrablæ fyrstu árin,
og raunar aldrei, en margir viku
honum þá þegar upphæðum, sem
þótt lágar finnist á nútíma mæli-
kvarða, voru ekki minna en hálf
og heil daglaun verkamanna.
Annan mann verður og að
nefna, er mjög kom við þessa sögu
nokkru eftir að Þorbergur féll
frá, en það er Halldór Hallgríms-
son klæðskerameistari. Bæði var
það, að hann gekk ötullega fram
í að safna fé til byggingarinnar
og svo hitt, að hann gaf til kirkj-
unnar ýmsa gripi, sem áður hef-
ur verið skýrt frá. Má segja, að
hann hafi komið af stað mikilli
hreyfingu í kirkjubyggingarmál-
inu, þótt ekki entist honum aldur
til að koma því í höfn. Hann var
fyrsti formaður kirkjubyggingar-
nefndar, er sett var á laggirnar
1942, og gegndi því starfi þar til
hann lézt í árslok 1946.
Á 1. fundi nefndarinrar, hinn
1. febr. 1942 eru lagðar fram
myndir af kirkjulíkönum, er Hall-
dór H. Jónsson, arkitekt, hafði
gert. Á 4. fundi nefndarinnar 10.
júní sama ár, er arkitektinn beð-
inn að gera uppdrætti eftir
ákveðnu líkani. Og á 5. fundi, sem
ekki er haldinn fyrr en 7. ág. ári'
síðar, var tillöguteikning Halllórs
samþykkt og honum falið að full-
gera hana. Byggingarnefnd var
þá skipuð þessum mönnum: Hall-
dóri Hallgrímssyni, sem var form.,
Jóni Björnssyni frá Bæ, Magnúsi
Jónssyni, Gottskálk Björnssyni,
Guðjóni Bachmann, Gísla Magnús
syni og Þorkeli Teitssyni. — Auk
þess starfaði sóknarpresturinn sr.
Björn Magnússon á Borg, alltaf
með nefndinni. Var hann mikill
áhugamaður um bygginguna og
mun hafa átt frumkvæðið að
myndun Borgarnesssóknar úr Börg
arsókn, nokkrum árum áður.
Fyrsta sumarið er grunnur
kirkjunnar steyptur og forkirkj-
an. Annað árið er hún gerð fok-
held. Þriðja árið er turnspíran
reist, en lítið annað aðhafst vegna
f járskorts. Fjórða og fimmta árið,
1956 og 1957 er einangrun lokið,
raflögn og málningu að mestu
leyti. Á síðastliðnu ári eru smíðað
ir bekkir og frá áramótum 1958—
’59 hefur svo verið lokið því er
eftir var. ,
Bæði áður en bygging hófst og
meðan hún stóð yfir, bárust kirkj
unni ýmsar góðar gjafir, munir
og peningar. Formaður sóknar-
nefndar hefur skýrt frá munum
þeim er gefnir hafa verið, en‘ hér
verður skýrt frá öðrum gjöfum,
mjög takmarkað þó.
Séð inn kirkjuna. Biskup fslands fyrir altari
Ber fyrst að nefna þau mörgu
gjafadagsverk er unnin voru að-
allega á fyrsta og öðru ári bygg-
ingarinnar, af fjölda manns, börn
um, unglingum, konum og körlum.
Þar að auki hafa ótal margir gef-
ið smærri og stærri upphæðir,
sumt minningargjafir, sumt áhait
ig sumt venjulegar gjafir, allt frá
fáeinum krónum til margra þús-
unda króna.
Hæstu upphæðina krónur 15
þús. gáfu þau hjónin Margrét og
Thor Jensen, Re.ykjavík, fyrir 20
árum og skal henni varið til orgel
kaupa. Nokkrum árum síðar gáfu
þau enn 10 þúsund kr. til kirkj-
unnar. Daníel Eyjólfsson í Borgar
nesi hefur gefið 10 þúsund kr. til
kirkjunnar til minningar um
látna eiginkonu sína, frú Þóru
Jónsdóttur. Skal fénu varið til
kaupa á altaristöflu. Hjónin Sig-
ríður Þorvaldsdóttir og Þórður
Jónsson hafa gefið 10 þúsund kr.
til minningar um látna ástvini
þeirra. Jón Guðmundsson gaf 10
þúsund krónur á sextugsafmæli
sínu og hafði áður gefið mörg
dagsverk. Frú Guðrún Jónsdótt-
ir rithöf. gaf 8 þús. krónur til
minningar um föður sinn Jón
Helgason úrsmið, og frú Júlíana
Sigurðai'dóttir hefur gefið 5 þús-
und krónur til minningar um eig-
inmann hennar Þorkel Teitsson,
símstjóra og son þeirra Jón Teit,
Einnig ber þess að geta, að ekkja
Jóns Björnssonar frá Bæ og af-
komendur þeirra hjóna haf-a gef-
ið andvirði eins bekkjar í kirkj-
Tvelr kirkjugestir, Magnús
Ólafsson og Albert Jónsson.
unni til minningar um hann, og
hið sama hefur gert Björn G.
Björnsson, forstj. til minningar j
um föður sinn ' Guðmund Björns-
son, sýslumann. |
,Þótt ekki verði tímans vegna tal- j
ið lengra, skal hinna minnst með j
jafmiklu þakklæti, er voru lægri j
að krónutölu, en stundum jafnstór
ar samt. Eftir er þó að geta þess t
að nokkrar konur í kauptúninu
hafa undanfarin 5 ár safnað fé j
með bazar. Almennt hafa konur
bæjarins tekið öflugan þátt í þess
I ari starfsemi og ber að þakka
þeim öllum. Fyrir það fé, er þann
ig hefur safnast hefur verið unnt
að kaupa: dregil á gólf, áklæði ;
og svampdýnur á bekki, rafhita-
ofna undir bekki og ljósakrónur í
kirkju og forkirkju.
Þá skal byggingu lýst nokkuð:
Teikningar að kirkjunni sjálfri,
bekkjum, alt-ari o. þ. h. gerði
Halldór H. Jónsson, arkitekt., eins
og fyrr hefur verið sagt. Eru
teikningar og öll vinna H. H. J.
og aðstoð, gjöf hans til kirkjunnar.
Yfirsmiður við bygginguna var
Sigurður Gíslason, húsasmíða
meistari í Borgarnesi. Rafiögn
teiknaði frk. Petrína Jakobsson,
Reykjavík. Einnig teiknaði hún
ljósakrónurnar, sem smíðaðar
voru hjá Fog og Mörup í Kaup-
, mannahöfn, en lampi í forkirkju
er smíðaður hjá Stálhúsgögn í
Reykjavík, eftir teikn. Petrínu.
Raftækjaverksmiðjan, Hafnar-,
smíðaði hitunartæki en Reynir
Ásberg rafvjmeistari í Borgarnesi
annaðist alla raflögn. Málningu
örnuðust Einar Ingimundarson
og Arinbjörn Magnússon málara-
meistarar Boi'garnesi. Ástráður
Proppe húsgagnasmíðameistari,
Akranesi, smíðaði bekki, altari og
innihurðir, en Ágúst Helgason
húsgagnabólstrari, s. st., sá um
bólstrun. Útihurð er smíðuð á
vinnustofu Hjálmars Þorsteins-
sonar í Re/kjavík en Bifi'eiða &
trésmiðja Borgarness h.f., smíðaði
alla glugga í bygginguna, handrið
á svalir o. fl. Nýja blikksmiðjan
í Reykjavík annaðist'lagningu eir
þaks á turnspíru og aluminium-
þaks á kór.
Enn vantar nokkuð á, að kirjan
sé fullbúin hið innra. Kirkjuklukk
u_- vantar og skírnarfont. Enn-
fremur prédikunarstól og altaris-
töflu, en úr því hefur verið bætt,
til bráðabirgða. Þá er ógerður
gar.gstígur heim að kirkjunni og
lóðin hefur ekki verið skipulögð.
,Að öðru leyti stendur kirkjan hér
tilbúin td notkunar og starfi bygg
ingarnefndar má því heita lokið.
Fyrir hönd nefndarinnar færi ég
öllum þakkir, sem hér hafa á ein
hvem hátt komið við sögu: Arki-
tekt, byggingarmeistara, íagmönn
um, verkamönnum og öllu aðstoð-
arfólki, unglingum og börnum, —
jafnt þeim er byggðu hina ramm
efldu steinboga, er bera bygg-
ing’una uppi, sem þeim er flfeygðu
til steinum í grunninum.
Nálega hver íbúi þessa bæjar
hefur á einhvern hátt gefið kirkj-
unni. Við metumst ekki á um gjaf
irnar eða dæmum um stærð þeirra
heldur þökkum þær allar jafnt og
af heilum huga, og trúun, því, að
kirkjan gefi öllum eitthvað í stað
inn. Við trúum því, að hinn mikli
höfuðsmiður hafi verið í verki
með okkur, eða öllu heldur, að við
höfum fengið að vera í verki með
honum, því að „ef Guð byggir
ekki húsið erfiða smiðirnir til
einskis“. „ ,
Megi svo kii'kjan verða okkur
og niðjum okkar til heilla og
blessunar".
Að vígslu lokinni, bauð sóknar
nefndin til 'kaffidrykkju að Hótel
Borgarness. Þar flutti séra Björn
Magnússon ræðu.
Síðar um daginn safnaðist fólk
kirkjunnar til þess að skoða hana
og umhverfi hennar.
Eru Borgnesingar að vonum
ánægðir með hina myndarlegu
kirkju sina og vænta þess að hún
verði grundvöllur að blómlegu
kirkjulífi í Borgarnesi.