Morgunblaðið - 10.05.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.05.1959, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ Hægviðri — léttskýjað með köflum Reykjavíkurbréf Sjá bls. 13. 103. tbl. — Sunnudagur 10. maí 1959 Ólafur Pétur Kjartan ' jf Sigurður Eldhúsdagsumrœður á Alþingi mánudags- og þriðjudagskvöld ANNAÐ kvöld og á þriðjudags- kvöldið fara fram útvarpsumræð- Ur frá Alþingi. Eru það almenn- ar stjórnmálaumræður, eldlhús- dagsumræður. Hefjast unræðurn- ar kl. 20,10 þæði kvöldin og lýkur um miðnætti. Af hálfu Sjálfstæðisflokksins taka þátt í umræðunum ann-að kvöld, formaður flokksins, Ólafur Thors, þm. Gullbringu- og Kjósar sýslu Pétur Ottesen, þm. Borgfirð inga, Kjartan J. Jóhannsson, þm. Isfirðinga og Sigurður Ágústsson, þm. Snæfellinga. Síðara kvöldið t-ala af hálfu Sj álfstæðisfiokksins, Bj arni B ene- diktsson, 1. þm. Reykvíkinga, Sig- urður Óli Ólafsson, 2. þm. Árnes- inga, Friðjón Þórðarson, 11. land- kjörirm þingmaður og Sigurður Bjarnason, þm. Norður-lsfirðinga. Hver þingflokkur hefur til um- ráða 55 mínúiur hvort kvöldið. — 1390 leikíiúsgestir í Þjóðleikhúsinu á eimim degi SL. fimmtudag var barnaleikrit- ið „Undraglerin" sýnt í 20. sinn og var það næst síðasta sýning á leikritinu. Uppselt var á þá sýn- ingu. Um kvöldið var sýndur gamanleikurinn „Tengdasonur óskast“ og seldust allir miðar á þá sýningu á mjög skömmum tíma. Um 1300 leikhúsgestir voru því í Þjóðleikhúsinu á einum og sama degi, og má það kadast góð leikhúsaðsókn í bæ, sem er ekki stærri en Reykjavík er. Hvítasunnuferð Heimdallar svo sem áður hefur verið aug- lýst efnir Ferðadeild Heimdallar til ferðar vestur á Snæfellsnes um Hvítasunnuna og verður geng ið á Snæfellsjökul-ef veður leyfir. Þeir sem ætla sér að taka þátt í ferðinni eru vinsamlega beðnir að láta skrifstofu Heimdallar vita hið fyrsta og sækja farseðla eigi síðar en nk. fimmtudag. Skrifstof an er í Valhöll við Suðurgötu, sími 17102. Verð farmiða er kr. 300,00. 10 ára afmæli „lofthrúarinnar64 V-BERLÍN, 9. maí. — V-Berlín- arbúar minnast þess með hátíða- höldum um helgina, að 10 ár eru liðin frá því að Vesturveldin brutu á bak aftur með „loft- brúnni“ svonefndu 9 mánaða sam göngubannið við Berlín 1948— 1949. Aðalhátíðahöldin verða á mánudaginn, sama 9hg og utan- rikisráðherrar austurs og vest- urs koma saman í Genf til þess að ræða Berlínarmálið og önn- ur ágreiningsmál austurs og vest- urs. Fyrra kvöldið verða tvær u.mferð ir, 30 og 25 mín. Röð flokkanna verður þá þessi: Framsóknarflokk ur, Alþýðubandalag, Sjálfstæðis- flokkur og Alþýðuflokkur. Síðara kvöldið verða þrjár um- ferðir, tvisvar sinnum 20 mín. og 15 mín. Röð flokkanna verður þá: Framsóknarflokkur, Sjálfstæðis- flokkur, Alþýðuflokkur og Al- þýðubandalag. , f ráði að kaupa tvo stóra togara til Akraness AKRANESI, 9. maí — f ráði er, að Sildar. og fiskimjölsverk- smiðjan hér á Akranesi kaupi tvo nýja togara á næstunni, og munu þeir verða smíðaðir í Þýzkalandi. — Mun ríkisábyrgð þegar vera fengin fyrir skipunum, en tog- arar þessir munu eiga að verða þriðjungi stærri en togarar bæj- arútgerðarinnar. Stjórnarmenn Síldar- og fiski- mjölsverksmiðjunnar, þeir Stur- laugur Böðvarsson, Jón Árna- son og Guðmundur Sveinbjörns- son, eru nú á förum utan til undirbúnings og samningavið- ræðna í sambandi við hin vænt- anlegu togarakaup. Fóru þeir þremenningarnir suður til Reykjavíkur með vélbátnum Ver snemma í morgun og ætluðu að leggja af stað frá Reykjavík kl. 11 árd. með LoftleiðaflugvéL Minningarsjóður stofn- aður um Hauk Snorrason NOKKRIR VINIR og vandamenn Hauks Snorrasonar ritstjóra, sem lézt þennan dag fyrir ári síðan, hafa ákveðið að stofna sjóð, er beri nafn hans. Verði honum varið til styrktar ísl. blaðamönnum og í nánum tengslum við Blaðamannafélag íslands. Framlag í sjóðinn mun jafnan ur talið stofnfé hans. Eftir þann þakksamlega þegið, en það fé sem dag verður gengið frá stofnun safnast fram til 1. júlí n.k. verð- sjóðsins og honum settar reglur og stjórn. Þeim, sem vilja heiðra minn- ingu Hauks Snorrasonar með því að leggja skerf til þessarar sjóð- stofnunar, skal bent á, að fram til 15. júlí n.k. veita framlögum viðtöku í Reykjavík, ritstjórarn- ir Sigurður Bjarnason, Morgun- blaðinu og Þórarinn Þórarinsson, Tímanum. En á Akureyri, Erling- ur Davíðsson ritstjóri og Júlíus Jónsson bankastjóri. Sílcl til Akraness AKRANE.SI, 9. maí: — Rúmar 400 tunnur af síld bárust hing-að til Akraness í dag. — Herpinóta- báturinn Bjarni Jóhannesson land- aði hér í dag 143 tunnum síldar, og reknetjabátarnir báðir fengu síld í nótt, Svanur 200 tunnur og Sveinn Guðmundsson 75 tunnur. , — Oddur. Horfur á að vertíðin verði með fádœmum í Ólatsvík ÓLAFSVÍK, 9. maí — Hér hafa verið gífurlegar annir undanfar- ið, því bátarnir hafa dag hvern komið með 12—25 tonn af einnar náttar netafiski. Þó unnið hafi verið nótt með degi, hefur ekki tekist að hafa undan og sem dæmi má nefna að í dag hófst vinna hér kl. 7,20, en þá hafði verkafólkið unnið sleitulaust til kl. 5. Þetta er að verða skínandi ver- tíð hér í Ólafsvík og hér eru nú komin á land á áttunda þúsund tonn af fiski, miðað við óslægðan fisk. Um síðustu mánaðamót var heildaraflinn 6400 tonn, en síð- an hefur sem fyrr greinir verið mjög góður afli alla daga, en bát- arnir eru 14, sem héðan róa. Um síðustu mánaðamót voru hæstu bátarnir, Jökull með 713 tonn í 76 róðrum og Bjarni Ólafs- son með 707 tonn í 77 róðrum. Mjög erfitt er að koma fisk- inum undan vegna mikils skorts á vinnuafli og þá bætir það ekki úr skák að 40—50 Færeyingar, sem hér hafa verið á vertíð, eru nú á förum héðan. Undanfarna vikur hafa verka- menn sem við fiskframleiðsluna starfa haft 2500—3000 kr. á viku, en þeir hafa líka lagt hart að sér við vinnu. f dag er allt fullt af fiski í fiskmóttökusölum frysti húsanna og um þessa helgi verð- ur unnið eins lengi og fólkið sem í fiskinum starfar vill og getur. Myndin er af klukkunni, sem Johan Faye hefir gefið Skál- holts kirkju. Skálholtsdómkirkju berst gjöf frá Noregi BISKUPINN yfir íslandi, herra Ásmundur Guðmundsson, hefur veitt viðtöku fornri kirkju- klukku sem Norðmaður að nafni Johan Faye hefur gefið til Skál- holtsdómkirkju. Á stríðsárunum fann Johan Faye þessa klukku hjá manni, sem hafði hana til sölu og kvað hana komna frá ís- landi. Faye keypti klukkuna og fór síðan að leita fyrir sér um virðulegan stað fyrir þennan forna helgigrip._ Eftir að hafa rætt málið við Árna G. Eylands, sem dvelst í Noregi um þessar mundir, komst Faye að þeirri nið urstöðu, að bezt færi á að klukk- an yrði í framtíðinni í því landi, þar sem hún hefur lengst verið, og tók síðan þá ákvörðun að gefa hana Skálholtsdómkirkju. Klukka þessi er fremur lítil, 38 cm á hæð og 29 cm víð, með fallega lagaðri krónu á kollin- um. Á henni eru engar áletranir en til skrauts er einfalt tíglanet greypt í bolinn og ér þetta fá- gætt einkenni. Klukkan hefur fagran og einkennilegan hljóm. Af allri gerð klukkunnar verður ráðið, að hún sé frá síðari hluta 12. aldar, en svo gamlar kirkju- klukkur eru fágætar á Norður- löndum og þykja gersemar. Er það mikið vinarbragð og göfug- mennska af hálfu Johans Faye að géfa íslandi þennan fornhelga grip. SIGLFIRÐINGAR hér í Reykja- vík og þeir, sem nú eru búsettir hér á Suðurlandi, ætla að efna til mikils Siglfirðingamóts 20. þ.m. og verður það haldið í Sjálfstæð- ishúsinu. Kosningaskrifstofa Sjálfstœðisflokksins í Morgunblaðshúsinu, Aðalstræti 6 II. hæð, er opin alla virka daga frá kl. 10—6 e .h. Sjálfstæðisfólk, hafið samband við skrifstofuna og gefið henni upplýsingar um fólk, sem verður fjarverandi á kjör- dag innanlands og utan. Símar skrifstofunnar eru 12 7 5 7 og 13 5 6 0. Listkynning Mbl. Kristinn Jóhannsson LISTKYNNING Mbl. hóf um þessa helgi sýningu á málverk- um eftir Kristin Jóhannsson list- málara. Hann er Eyfirðingur að ætt lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri ár- ið 1956, en hefur síðan stundað myndlistarnám. Var hann um skeið í Handíða- og myndlistar- skólanum í Reykjavík en síðan í College of Art í Edinborg. Kristinn hefur haldið 3 sjálf- stæðar sýningar á Aknireyri og hafa verk hans vakið þar athygh. Myndirnar, sem hann sýnir nú á vegum listkynningar Mbl. eru allar málaðar tvo sl. vetur í Edinborg. Eru það allt vatnslita- myndir. Tvær þeirra eru til sölu hjá afgreiðslu blaðsins, en hinar eru í einkaeign.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.