Morgunblaðið - 13.05.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.05.1959, Blaðsíða 24
VEÐRIÐ Sunnan- og suðaustan kaldi — þokuloft OT£iml»Xaíiiií> 105. tbl. — Miðvikudagur 13. maí 1959 Rceða Péfurs Ottesen Sjá bls. 13 Fulltrúaráð Sjálfsfœðisfélaganna í Rvík Fulltrúaráðsfundur í kvöld kl. 8.30 I KVÖLD klukkan 20.30 heldur Fulltrúaráð Sjálfstæðisfé- laganna í Reykjavík fund í Sjálfstæðishúsinu. Fundarefni er, að kjörnefnd Fulltrúaráðsins leggur fram tillögur sínar um framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík við næstu alþingiskosningar. Fulltrúaráðsmeðlimir eru minntir á að sýna fulltrúa- ráðsskírteini sín við innganginn. Skóræktoiiél. Eyíirðinga gróður- setti 80 þús. plöntur s.I. ór i AKUREYRI, 12. maí. — Aðal- fundur Skógræktarfélags Eyfirð- inga var haldinn 7. maí sl. Mættir voru 26 fulltrúar frá 8 félögum í sýslunni. — Formaður, Guðmund ur Karl Pétursson, yfirlæknir, stýrði fundi. Las hann skýrslu um störf félagsins á árinu. Höfðu þau að mestu farið fram eftir áætlun. Taldi formaður þau naumast mundu hafa tekizt vegna fjár- skorts, ef Kaupfélag Eyfirðinga hefði ekki veitt félaginu 20 þús. kr. styrk. Þakkaði formaður þann góða stuðning. Formaður kvað sjálfboðavinnu hafa verið með mesta móti, enda vel skipulagða. — Framkvæmda- stjóri félagsins, Ármann Dal- mannsson fór víða um héraðið, bæði einn og með erindreka Skóg ræktarfélags íslands. Gerðu þeii mælingar á árssprotum í skógar- reitum. Félagar voru um áramót 614, og hafði þeim fjölgað um 12 á árinu. Harmaði formaður, að félags- menn skyldu ekki vera orðnir fleiri. — Aðeins einn fulltrúi gat mætt á aðalfundi Skógræktarfé- lags Islands, enda var fundurinn haldinn á óhentugum stað, hvað samgöngur héðan snertir, á ísa- firði. Gróðursett hafa verið á félags- svæðinu samtals um 80 þús. plönt- ur á árinu. Úr gróðrarstöð félags- ins voru afhentar 36.783 plöntur. Sáð var í 524 ferm. lands. — Sú nýjung var upp tekin að potta plöntur til gróðursetningar. Var vél keypt til þess verks. Þá las framkvæmdastjóri reikn inga félagsins, sem samþykktir voru í einu hljóði. Hrein eign í árslok er kr. 82.887,70. Þá var lögð fram fjárhagsáætlun og hún samþykkt. Niðurstöðutölur henn- ar eru 266 þús. kr. Talsverðar umræður urðu um önnur mál, en að lokum fóru fram kosningar. Úr stjórn áttu að ganga Ármann Dalmannsson, Benjamín Kristjáns son og Helgi Eiríksson, en voru allir endurkjörnir. — Þá fór einn ig fram kosning fulltrúa á aðal- fund Skógræktarfélags íslands. Að síðustu voru sýndar skugga- myndir o. fl. — vig. Nœr 13 milljón lítrar af mjólk bárust til KEA 458 AKUREYRI, 12. maí. — Aðal- fundur Mjólkursamlags KEA var nýlega haldinn, og sóttu hann 240 fulltrúar og gestir. — Fram- kvæmdastjóri, Jónas Kristjáns- son, flutti ársskýrslu. Á árinu bárust samlaginu samtals 12.849,- 071 ltr. af mjólk. Meðalfitumagn mjólkurinnar var 3,6%. 97% af mjólkurmagninu fóru í fyrsta og annan gæðaflokk. Mjólkurframleiðsla í Eyjafirði er margfalt meiri en svo, að næg- ur markaður sé fyrir neyzlu- mjólk innanhéraðs, Seljast aðeins um 21% þannig. Hitt fer til vinnslu, smjör, skyr, ostar, kasein o. fl. Á sl. sumri hóf samlagið að blanda skyr með vítamíni, og á hvert kg. nú að innihalda um 4000 einingar af D-vítamínum. Samanlagður framleiðslu- og sölukostnaður hjá samlaginu jókst á árinu um ca. 15% og var 60 aurar á mjólkurlítra. Endan- legt verð til framleiðenda varð 348,6 aurar á lítra, mjólkin kom- in á vinnslustað. Sala fram- leiðslu samlagsins gekk vel á ár- inu. Talsverðar umræður urðu að lokinni skýrslu forstjórans, bæði um byggingarmál samlagsins og mjólkurflutningamálin. — Þá skýrði Ólafur Jónsson, nautgripa ræktarráðunautar, frá nautgi-ipa- ræktarstarfinu á samlagssvæð- inu og afkvæmatilraunum hjá búfjárræktarstöðinni að Lundi við Akureyri. — vig. Lokadagurinn á vetrarvertíðinni var á mánudagtnn. — Víða hefur vertíðin reynzt betri en i fyrra, þótt ilia horfði í fyrstu — þar á meðal í Vestmannaeyjum. Og aflakóngur vertíðarinnar varð enn einu sinni hinn fengsæli Benóný Friðriksson í Vestmannaeyjum — Binni í Gröf, eins og hann er nefndur í daglegu tali. — Myndin hér að ofan, af Benóný og skipshöfn hans á vélbátnum Gull- borgu, var tekin siðustu daga vertíðarinnar. „Eiturlyfjamál" hjá sóknarlögreglunni rann- í GÆR fékk rannsóknarlögreglan til meðferðar frá götulögregl- unni, „eiturlyfjamál“, en á laug- ardagskvöld og aftur á sunnudags kvöldið, hafði götulögreglan ver- ið kölluð til aðstoðar stúlkum tveim sem voru meira og minna ósjálfbjarga á götum úti. Rannsóknarlögreglan hafði í gærdag ekki yfirheyrt stúlkur þessar, og ekki heldur aðra þá að- Lœkka flugfarmgjöld verulega ? KAUPMANNAHÖFN — Fast- lega er búizt við því, að á næsta ári muni flugfarmgjöld lækka í Vesturálfu — og á næstu árum muni þau lækka verulega. Ástæð an er sú, að farþegaþotumar, sem stóru flugfélögin taka nú í notkun eitt af öðru, hafa meira burðarþol og eru fljótari í för- um. Flugfélögin munu því fús til þess að lækka farmgjöldin í Kosningaskrifstofa Sjálfstœðisflokksins i Morgunblaðshúsinu, Aðalstræti 6 II. hæð, er opin alla virka daga frá kl. 10—6 e .h. Sjálfstæðisfóik, hafið samband við skrifstofuna og gefið henni upplýsingar um fólk, sem verður fjarverandi á kjör- dag innanlands og utan. Símar skrifstofunnar eru 12757 og 1356 0. þeirri vissu, að flutningarnir aukist að sama skapi. Hefur þeg- ar komið til tals hjá SAS að lækka farmgjöld á þeim flug- leiðum, sem þotur félagsins fljúga nú á. Þá mun og vera í ráði að inn- rétta eitthvað af gömlu farþega- flugvélunum eingöngu til vöru- flutninga, en rekstur þeirra verð ur þá mun ódýrari. Þetta mun af sjálfsögðu hafa mikil áhrif á rekstur þeirra flug- félaga, sem einungis hefur byggzt á vöruflutningum, en þau eru fjölmörg, flest lítil félög. Gæti samkeppni sem þessi af hálfu stóru flugfélaganna orðið þessum fyrrgreindu flugfélögum hættuleg. AKRANESI, 12. maí — Herpi- nótabáturinn Bjarni Jóhannesson landaði hér í dag 260 tunnum síldar, og reknetjabátarnir tveir lönduðu samtals 100 tunnum. — Trillubátarnir fiskuðu lítið í dag. — Oddur ila, sem hér eiga hlut að máli. Það var á laugardagskvöldið milli klukkan 11 og 12, sem lög- reglumenn voru kallaðir vestur í Knoxbúðir við Kaplaskjólsveg. Var þar stúlka sem svo virtist í fyrstu vera ofurölvi. Lögreglan hafði flutt hana í læknavarðstof- una. Var það álit lækna þar, að ekki væri um ölvun að ræða, heldur afleiðing neyzlu eiturlyfja, að því er lögregluskýrslan herm- ir. Á sunnudagskvöldið laust eftir miðnætti, var lögreglan kvödd vestur á Hofsvallagötu. Þar lá stúlka ósjálfbjarga í götunni. Einnig var hún flutt í læknavarð stofuna. Að því er lögregluskýrsl- an hermir, þá hafði læknavarð- stofulænum þótt allar líkur benda til þess að stúlkan hefði neytt eiturs. í lögregluskýrslunni kemur það og fram, að þessar stúlkur báðar höfðu verið gestkomandi í skála einum í Knoxbúðum, þar sem ís lenzkt fólk eru húsráðendur. Af skýrslunni, virðist sem ráða megi að stúlkurnar hafi komizt í þetta rúsástand í skála þessum. Það er tekið fram, að meðal þeirra sem þarna voru hafi verið hermenn sunnan af Keflavíkurflugvelli, en ekki er þess getið að þeir hafi annazt veitingar. Sem fyrr greinir hafði rann- sóknarlögreglan ekki hafið rann sókn máls þessa í gær. Fundír Sjálfstæðis manna í Dalasýslu Fundur trúnaðarmanna Sjálf- stæðisflokksins í Dalasýslu verð- ur haldinn í Búðardal n.k. laug- ardag 16 maí kl. 2 sd. Á fund- inum verður tekin ákvörðun um framboð flokksins í höndfarandi alþingiskosningum. Sama dag verður haldinn al- mennur kjósendafundur Sjálf- stæðisftokksins í Dalasýsliiu og hefst hann í Búðardal kl. 4 sd. Á fundinum mæta, alþingismenn- irnir, Friðjón Þórðarson og Magnús Jónsson. s s s s s s s s s s s EFNT verður tii ferðar á Snæfellsnes um hvítasunnuna og ^ gengið á Snæfellsjökul. Lagt verður af stað á laugardag s kl. 2 e. h. og komið til baka á mánudagskvöld. Væntanlegir ■ þátttakendur hafi samband við skrifstofu félagsins í Valhöll S við Suðurgötu, sími 17102. Farseðlar óskast sóttir ekki síðar • en á fimmtudag. s Ferðadeild Heimdallar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.