Morgunblaðið - 07.07.1959, Side 2
2
MORCVNBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 7. júlí 1959
Aðkomufólk á Siglufirði
er nú fleira en íbúar
hœjarins
Brœla á miðunum síðusfu 2 daga og
margir að verða uggandi um sinn hag
SIGLUFIRÐI, 6. júlí. — Undan-
farna 2 daga hefur verið bræla á
síldarmiðunum, austan stormur
og ekki gefið á sjó. Hafa hátt á
þriðja hundrað síldveiðiskip, er-
lend og innlend, legið í höfninni.
Síldveiðisjómenn og landverka-
fólk er nú orðið nokkru fleira
en íbúar Siglufjarðar og hefur
Stórílóð í Pakistan
KARACHI í Pakistan, 6. júií
(Reuter). — Vitað er um minnsta
kosti 70 manns, sem drukknuðu
í flóði ,er hljóp skyndilega í fljót-
ið Indus. Er þó líklegt að tala
drukknaðara sé miklu hærri, þar
sem enn vantar mikið á að björg-
unarstarfi sé lokið.
Flóðið hefur sjatnað aftur og
hafa 40 lik fundizt meðfram
fljótsbökkum nálægt höfuðborg
Pakistans, Karachi. Flóð þetta
átti upptök sín í miklum rigning-
um norður í Kasmír-fjöllum og
var það mest í tveimur þverám
Indus, sem þaðan renna Chenab
og Jhelum. Hefur höfuðborg
Kasmir, Shrinagar verið í hættu,
en alvarlegar skemmdir tókst að
hindra með hleðslu bráðabirgða-
varnargarða.
Það er mál manna, að hrís-
grjónauppskera Kasmír séaðlang
mestu eyðilögð. Hafði grjónum
verið sáð í síðasta mánuði og má
búast við að árflaumurinn hafi
víða skolað brott jarðveginum
með hinum óþroskuðu plöntum.
því verið mannmargt í bænum,
líf og fjör. Segja má að göturnar
séu fullar af fólki, er á daginn
líður. Þegar svo er ástatt er vín-
búðin lokuð.
Nokkur uggur er í mönnum, ef
ekki gefur senn á sjóinn. Undan-
farin ár hefur verið búið að salta
töluvert magn á þessum, tíma, en
hér hafa nú aðeins verið saltaðar
1764 tunnur, síðan sldarútvegs-
nefnd heimilaði söltun. Áður en
það varð, höfðu nokkrir saltend-
ur saltað nokkur hundruð tunnur
á eigin ábyrgð.
Síld fryst
á Akranesi
Christian Herter, sem tók við embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna í vor, sýndi það á Genf-
ar-ráðstefnunni, að hann er vel hæfur í sitt starf. Reyndist hann sáttfús, en þó ákveðinn talsmað-
ur lýðræðisþjóðanna. Hér sést hann ræða við Eisenhower forseta um árangur Genfarráðstefnunar.
Tveir
í dag,
AKRANESI, 6. júní. —
reknetabátar lönduðu hér
Sveinn Guðmundsson 90 tunnum
og Farsæll 50 tunnum. Sildin er
fryst.
Sex-sjö trillubátar réru héðan
í morgun ,allir með línu. Afli
mun hafa verið frekar tregur.
•— Oddur.
VALDASTÖÐUM í Kjós, 4. júlí.
Síðasta dag júnímánaðar voru
komnir á land í sjálfri Laxá í
Kjós 86 laxar. Það er léleg veiði.
Tveir laxar höfðu veiðzt í Bugðu
og loks einn lax í Meðalfelsvatni.
— St. G.
Vertíðarafli bátanna
meiri
'59
en i
fyrra
BLAÐINU hefur
skýrsla Fiskifélags íslands um
aflabrögðin á tímabilinu 1. jan.
til 31. maí sl., eða yfir vertíðina
á sl. vetri. Afli bátaflotans varð
þá nokkru meiri en á vetrarver-
tíð 1958. Þó skýrslan sé miðuð
við 31. maí, en vertíð lýkur um
miðjan maí sem kunnugt er, þá
er að jafnaði lítill afli sem berzt
að frá vertíðarlokum til mánað-
armóta.
Heildarafli bátaflotans var
170,992,1 tonn, á móti nær 160
þús. tonna afla á vetrarvertíð
1958. í mailok var afli togaranna
frá áramótum orðinn alls rúml.
66,000 tonn og er það 1859 tonn-
um minni en á sama tíma í fyrra.
Síldaraflinn var orðinn um 1890
tonn. Heildarfiskafli báta og tog-
arar var í maílok orðinn 239.042
tonn og er það rúmlega 9400 tonn
um meiri afli en í maílok 1958.
Síldaraflinn var, eins og fyrr seg
nú borizt ir, í maílok orðinn 1890 tonn á
móti rúmlega 32 tonnum á sama
tíma í fyrra.
Reykvíkingur
hlaut hálía mill jón
ónina í Happdrætti S.f.BS. .. 11
í GÆR var dregið í 7. flokki
Vöruhappdrættis S.Í.B.S. Dregið
var um 350 vinninga að fjárhæð
samtals 860 þúsund krónur.
Hæstu vinningarnir féllu á eft-
ritalin númer:
Kr. 500.000,00
10012
Miðinn seldur í Reykjavík.
Kr. 50.000,00
23952
Miðinn seldur á ísafirði.
Kr. 10.000,00
3596 11674 23222 43483
54830 62107 64326
47515
Leigubifreiðarstjóri kœrir
árás varnarliðsmanns
LEIGUBIFREIÐASTJÓRI hér í
bænum kærði í gær til rannsókn-
arlögreglunnar árás, er hann
varð fyrir austan fjalls um helg-
ina. Skýrði hann svo frá, að
bandarískur hermaður úr varnar
liðinu hefði slegið sig til jarðar
skammt frá Hveragerði, þar sem
hann var að gera við bifreið
sína, og hafi sér legið við öngviti
eftir höggið.
Leigubílstjórinn ók síðastliðið
föstudagskvöld austur fyrir fjail
með tvo Reykvkinga, sem voru
að skemmta sér ásamt tveim
stúlkum héðan. Við Selfoss hittu
þeir 3 varnarliðsmenn, og veittu
þeir síðastnefndu farþegunum
vín. Þegar haldið var áleiðis til
Reykjavíkur aftur voru 2 Banda-
ríkjamennirnar komnir yfir í
leigubifreiðina, en annar íslend-
ingurinn var aftur á móti í bif-
reið hermannanna, sem var
jeppi.
Á veginum móts við Hvera-
gerði bilaði leigubifreiðin og
var bifreiðarstjórinn að gera við
hana, þegar hann sá að í odda
ÞETTA er afsteypa af frægri
griskri höggmynd sem heitír
„Hinn hvílandi Hermes“. Hefur
Skjala- og minjasafn bæjarins
látið setja myndina upp rétt ofan
við aðalinnganginn í stórhýsi
bæjarins að Skúlatúni , þar sem
er fundarsalur bæjarstjórnar
Reykjavíkur. Frummyndin af
þessari mynd er á safni suður í
Napoii, en allvíða eru til afsteyp-
ur af myndinni sem þykir hið
mesta iistaverk. Fyrir nokkrum
árum keypti Skjala- og minja-
safnið þessa styttu af Haraldi
Ólafssyni skipstjóra. Hafði hann
keypt hana í Bretlandi á styrjald-
arárunum, á uppboði er haldið
var á ýmsum listmunum.
skarst með öðrum íslendingnum
og einum hermannanna. Lyktaði
viðureign þeirra með sigri hins
síðarnefnda, sem sló andstæðing-
inn í rot. Að því búnu krafðist
hann þess, að leigubifreiðarstjór
inn æki sér til Selfoss aftur, og
er bifreiðarstjórinn reyndi að
gera honum grein fyrir, að íslend
ingurinn hefði bílinn á leigu,
gerði hann sér lítið fyrir og sló
hann líka. Lýsti bifreiðarstjór-
inn viðureigninni svo, að hermað
urinn hafi þrifið í öxl sér, hrint
sér frá bifreiðinni en síðan sleg-
ið sig bylmingshögg á kjálkann,
með þeim afleiðingum, að sér
hafi legið við öngviti. Kvaðst
(bifreiðarstjórinn því hafa séð
þann kost vænstan að hafa sig á
brott, og hraðaði hann för sinni
til Reykjavíkur. í bifreiðinni með
honum voru þá stúlkurnar tvær
Stoklvseyringamót
EFNT verður til Stokkseyringa-
móts að Stokkseyri sunnudaginn
12. júlí næstkomandi. Hefst mótið
með guðsþjónustu kl. 1 e.h. Síðan
verður fjölbreytt dagskrá í til-
efni dagsins, söngur þeirra frú
Þuríðar Pálsdóttur og Guðmund-
ar Guðjónssonar, ávörp og fl. Um
kvöldið verður dansað í sam-
komuhúsinu. Farið verður úr
Reykjavík á sunnudagsmorgun
frá B.S.Í. Nánari upplýsingar
um mótið má fá hjá Guðrúnu Sig
urðardóttur, sími 18692 og Har-
aldi Bjarnasyni, sími 32296. Mót
þessi eru haldin á fimm ára fresti
og rennur allur ágóðinn að þessu
sinni í orgelskaupasjóð Stokks-
eyrarkirk j u.
ásamt öðrum íslendingnum, en
hinn varð eftir. Einkennisstafir
herbifreiðarinnar kvaðst bifreið-
arstjórinn ekki hafa tekið niður
né vissi hann deili á varnarliðs-
mönnum. Og íslendingarnir, sem
með þeim drukku og síðar lentu
í áðurlýstum útistöðum við þá,
töldu sig heldur ekki þekkja þá.
Rannsóknarlögreglan vinnur nú
að því að upplýsa málið.
Þýzki sendiherr-
ann heimsækir
sveitiraustaníjalls
ÞÝZKI sendiherrann hér á landi,
Hans Richard Hirschfeld, fór í
3 daga kynnisferð austur í sveitir
fyrir og um síðústu helgi. Kynnti
hann sér m. a. kartöflurækt í
Þykkvabæ, kynbætur í Gunnars-
holti, trjárækt á Tumastöðum og
sandgræðslu á Sámsstöðum, en
heimsótti auk þess mörg bænda-
býli eystra og skoðaði helztu sögu
staði. Lét sendiherrann mjög vel
yfir þeim kynnum, sem hann í
ferðinni öðlaðist af búskap sunn-
lenzkra bænda.
I síðdegisboði, sem þýzki ræðis-
maðurinn á Hellu, dr. Karl Korts- ■
son dýraiæknir, hélt á laugardag-
inn fyrir um 40 embættismenn o.
fl. úr sýslum þar eystra í tilefni
af heimsókninni lét sendiherrann
sem er bóndasonur frá Schleswig
Holstein, m. a. svo ummælt, að
hann fagnaði því mjög að fá tæki-
færi til að kynnast með eigin
augum, hvernig stéttabræður föð-
ur síns hér á landi leyslfli störf
sín af höndum. Lauk hann lofs-
orði á dugnað þeirra og þann ár-
angur er þeir hefðu náð. Ingólfur
Jónsson alþingismaður þakkaði
Hirschfeld sendiherra fyrir kom-
una með nokkrum vel völdum
orðflun.
Svertingjar mótmœla ai-
ómsprengingum Frakka
ACCRA höfuðborg Ghana, 6. júlí
(Reuter). — Um 3000 manns tóku
þátt í mótmælagöngu til sendi-
ráðs Frakka hér í borg í dag. Fyr-
ir göngunni fór einn af ráðherr-
unum í stjórn Ghana Krobo
Edusei samgöngumálaráðherra.
Mannfjöldinn safnaðist saman
fyrir framan franska sendiráðið
og barði n.efnd manna að dyrum
til þess að afhenda franska sendi-
herranum mótmæli vegna fyrir-
hugaðra kjarnsprengjutilrauna
Frakka í Sahara-eyðimörkinni.
Franski sendifulltrúinn Pierre
Justinard neitaði að ræða við
nefndina eða taka við mótmæla-
yfirlýsingunni, sem var undir-
rituð af foringjum þjóðflokksins
af forustumönnum verkalýðssam
taka og kristilegra samtaka.
Blaðafulltrúi sendiráðsins
Francois Poincaré kom fram og
flutti ávarp þar sem hann skýrði
mannfjöldanum frá því að sendi-
ráðið gæti ekki tekið við mót-
mælaorðsendingunni, þar sem
hún væri sama efnis og mótmæla
orðsending Ghanastjórnar til
Frakka, sem hefði þegar verið
hafnað.
Herferð Ghana-búa gegn
kjarnsprengingum Frakka hófst
upp fyrir nokkrum dögum, þegar
Guillaumat hermálaráðherra
Frakka skýrði frá því í útvarps-
ræðu, að fyrsta atómsprengja
Frakka yrði sprengd „bráðlega“.
Svertingjar Vestur Afríku óttast
geislavirk áhrif frá sprengingun-
um,