Morgunblaðið - 29.08.1959, Page 9
Laugardagur 29. ágúst 1959
«iORCrnvm. 4Ð1Ð
9
Sveinn Þórarinsson
sextugur
listmálari
„portræt" og vefur skáldlegar
sýnii inn í myndir sínar. Það
sannar að fyrir honum, —
ÞEGAR ég var lítill drengur 1
foreldrahúsum á Húsavík, man
ég eftir því, að dag nokkurn drap
á dyr hjá okkur ungur Keldhverf
ingur, sem brosandi út undir eyru
spurði mig, er ég kom til dyra,
hvort sýlumaðurinn væri heima.
Að vísu var það að sjálfsögðu
daglegur viðburður að spurt
væri eftir sýslumanninum — en
þeir voru sjaldséðir slíkir „fugl-
ar“, sem þessi — rjóðir í vöng-
um, göngumóðir en geislandi af
fjöri með handapat og læti. Það
var einhver skemmtileg andstaða
við, hina ráðsettu og alvariega
þenkjandi hreppstjóra, sýlunefnd
armenn og oddvita, sem ætíð
voru þó aufúsugestir undir sama
þaki —
Þarna var kominn Sveinn mál-
ari í Kílakoti — hafði „brokkað“
yfir Tunguheiði á einni síðdegis-
sund, án þess að „blása úr nös“
-— eins og hann gerði svo oft
síðan.
Margar sólir hafa á lofti verið
og til viðar gengið síðan þelta
var.En enn er Sveinn málari sami
ungi förusveinninn, sama bros-
andi ungmennið og þá, og enginn
skyldi trúa því að han fyllti í dag
6. tug ævi sinnar.
Það væri að bera í bakkafull-
an lækinn að ætla sér í stutfrj
afmælisgrein að gera Sveini mál-
ara skil sem listamanni. Til
þess er hann of kunnur all.fi
þ’óðinni, að það er út af fyrir
sig óþarft. Hann hefur nú um
nokkra tugi ára skipað veglegan
sess meðal íslenzkra myndlistar-
manna og sumar hinar beztu
mynda hans eru meðal þess bezia
og stórbrotnasta, er gert hefur
%verið í íslenzkri myndlist. Má
í því sambandi nefna hinar mik!u
Dettifossmyndir, Lestaferð og
síðast en ekki sízt altaristöfluna
í Húsavíkurkirkju, svo ekki sé
gleymt hinum undurfögru Ás-
byrgis- og Axarfjarðarmyndum
hans, sem gerðar eru í næsta ná-
grenni við æskustöðvarnar, þar
sem rekja má til spor drengsms
á bökkum Víkingavatns.
En allt þetta væri þó ekki guils
ígildi, ef ekki stæði á bak við
maðurinn, persónuleikinn, sem i
Sveini málara býr. Því að vart
er hægt að hugsa sér hlýrri, glað-
ari, tryggari, fjörmeiri, duglegri
og elskulegri vin, samferðamann
og félaga en þennan síunga
Norður-Þingeying. Hann kemur
jafnan til dyranna eins og hann
er klæddur bæði hið ytra og
innra, alveg á sama hátt eins og
hann stöð göngumóður af Tungu
heiðinni í gamla daga við dyr
sýslumannsins í Húsavík. Hann
er trölltryggur, vinfastur og vin-
margur, enda býr hann yfir
óvenjulegu viðmóti, fjörmikilii
og litríkri frásagnargáfu, mann-
legum og viðkvæmum tilfinning-
um, sem bregða skjótt við til
hjálpar þeim, er þess þurfa og
síðast en ekki sízt á hann í fór-
um sínum óvenjulegan „humör“
sem því miður er alltof fáum
íslendingum gefið.
Sem betur hefur Sveinn málari
verið gæfumaður á lífsleiðinni.
Hann eignaðist hina ágætustu
konu, frú Karen Agnete, fram-
úrskarandi listakonu en engu
ssiður ágætiskonu á alla lund, svo
sem bezt má búa í merkingu
þess orðs. Sonur þeirra Kristján
Friðrik er mannvænlegur tann-
læknanemi, sem vel kann að
meta og þakka þá miklu lífsgjöf
í góðum og sérstæðum foreldr-
um.
Mér er það ljóst, að afmælis-
barninu fyndist fátt um þessi fá-
tæklegu orð, ef Karenar væri
ekki að meiru getið En sann-
leikurinn er sá, að ef ég á að gera
henni til þægðar — fremur en
Sveini — þó er hún þess háttar
kona, að hún kýs ekki mörg orð
nm sjálfa sig. En eitt get sagt
henni af hreinskilni og í ein-
lægni: Sveinn gat ekki eignazt
betri lífsförunaut en þig, svo dá-
samlega vel hefur þú skilið hann
og svo einlæglega hefur þú sam-
lagazt landi hans og þjóð :— ems
og reyndar svo margar kynsystur
þínar frá Danmörku, sem bundizt
hafa festarböndum við landa
okkar. Þinn er heiðurinn — oKk-
ar þökkin.
Sveinn málari geysist nú úm
gamla Frón í grænni gljáandi
bifreið. Stoppar í tíma og ótíma
— tekur til að mála og er svo þot-
inn aftur út í buskann. Það er
alltaf býsna mikill ys og þys
í kring um Svein. Vettvangur
hans í myndlistinni er hin ís-
lenzka stórbrotna náttúra — of'.
málar hann nokkurs konar
„----standa ætíð opnar dyr
og euðlegð náttúrunnar“.
Nú getur Sveinn bæði brunað
yfir Reykjaheiði og kring um
Tjörnes á fararskjóta sínum. En
á milli þessara leiða liggur
Tunguheiði. Hin er hár fjall-
garður með snarbröttu SpóagiU
og háum tindum, þar sem af
austurbrún er hið fegursta út-
sýni yfir Kelduhverfi og Axar-
fjörð. Mér kæmi ekki á óvart
þó að Sveinn gerði sér það til
gamans að „brokka“ yfir þessi
fjöll og fyrnindi nú, eins og fyrir
‘40 árum, án þess að blása úr
nös“. Rjóður í kinnum með bros
á vör, göngumaður en göngu-
glaður gæti hann þá í dag horft
af Spóagilsbrún yfir farinn veg
— austur og vestur— norður og
suður — gæfuríkan veg bæði fyr-
ir hann sjálfan og fyrir íslenzka
myndlist. Drepi hann í dag á
dyr hjá sýslumanni þeim, er hús-
um ræður hjá þeirri þokkagyðju
— er ég viss um að hann mun
verða boðinn velkominn í bæinr,.
Sextugur unglingur og síungur
listamaður mun í dag taká á móti
miklum fjölda árnaðaróska.
Mín ósk er sú, að þú verðir allt
af sami Sveinn málari í minni v'.t
und og hugskoti og við dyrnar
forðum — sami góði félaginn og
,,farfuglinn“' á fáki lista og skald
skapar — sami maðurinn.
Hafðu hjartans þökk og inni-
legustu afmælisóskir.
J. V. Hafstein.
Ceymsíuhús til sölu
Geymsluhús úr bárujárni á trégrind, 11x6 m er til
sölu til brottflutnings. Tilboð óskast.. Uppl. í síma
17866 og 22755.
V A N T A R
2 til 4 herb. íbúö
strax. Fernt í heimili. — Engin smábörn. Sími 11267
og 33508.
Verkamenn
Verkamenn óskast í handlang. hjá
trésmiðum.
Uppl. kl. 1—7 í síma 12551.
Glœsilegar íbúðir
til sölu
Til sölu í blokk á góðum stað eru 2ja
herbergja íbúðir. 71 ferm. og 3ja—4ra
herbergja íbúðir 105 ferm.
íbúðimar seljast fokheldar með tvö-
földu gleri, hita, vatns- og skólplögnum
og allri sameign pússaðri innanhúss.
íbúðirnar seljast á mjög hagkvæmu
verði.
Upplýsingar í Pípuverksmiðjunni h.f.
kl. 1—7 í dag.
Qrðsending frá Búlsturgerðinni
Skipholti 19
Eftirtalin húsgögn höfum við nú aftur á boðstólum:
Hringsófasett,
Utskorin sófasett,
Armstólasett stoppuð undir
arma,
Armstólasett með póleruð-
um örmum,
Létt armstólaáett,
Létt sett með póleruðum
sökkli,
2 gerðir af léttum nýtízku
settum
Svefnsófar eins og tveggja
manna.
Skrifborð fyrir herra,
Skrifborð fyrir dömur, með
spcgli.
Sófaborð,
Innskotsborð,
Rúmfatakassar,
Útvarpsborð,
Símaborð,
Smáborð.
3 gerðir af komm'óðum
hentugar til tækifærisgjafa
Öll okkar húsgögn eru fyrsta flokks og unnin af fær-
ustu fagmönnum.
Við bjóðum viðskiptamönnum okkar upp á beztu
fáanlega greiðsluskilmála þannig, að allt andvirði
húsgagnanna greiðist með jöfnum afborgunum mám-
aðarlega.
Sendum gegn póstkröfu.
Bólsturgerðin h.f.
Skipholti 19 (Nóatúnsmegin)
Sími 10388
Tilkynning
írá Laugarás s.f.
Mjög fáum 2ja herb. íbúðum er enn
óráðstafað í húsi félagsins að Austur-
brún 4. Það fólk. sem hefur áhuga fyrir
þessum hagkvæmu íbúðum, hafi sam-
band við skrifstofuna, sem fyrst. kl.
9—5 í dag og alla virka daga, sími
34471.