Morgunblaðið - 29.08.1959, Blaðsíða 19
Laugardagur 29. ágúst 1959
MORCTJTSBL 4Ð1Ð
ið
Jóhanna Björnsdóttir
Minning
EKKI var mér að öllu leyti
ókunnugt um, að heilsa Jóhönnu
kynni að leika á völtum fæti.
Bjóst þó tæplega við, er ég leit
hana síðast, að svo stutt ætti
hún þá ólifað sem raun varð á.
Var hún þá að vísu á fótum, en
sárlasin. Nokkru áður en hún
var flutt að heiman, kom ég heim
til þeirra hjónanna. Leið svo ekki
langur tími, þar til ég kom þar
farardegi hennar, en af vissum
ástæðum gat það ekki orðið og
skiptir það að vísu litlu máli. Ég
sendi manni hennar og börnum
þeirra, og öllu nánasta skyldu-
liði innilega samúðarkveðju. Og
ég bið henni blessunar í hennar
nýju bústöðum, og bið Guð að
varðveita hana um alla eilifð.
„Þegar mig síðast klukkur
kalla heim, kom þú, ó, Guð, og
mig í faðmi geym. Fel mína sál
við föðurhjartað þitt, fegursta
og hinsta, það er athvarf mitt.“
— St. G.
80 ára í dag
Maghús Jörgensson
aftur, en kom þá að lokuðum
dyrum. Að vísu greip það hug
minn dálítið óþægilega að svo
var, flaug í hug að nokkúr alvara
kynni að vera hér á bak við, en
vonaði þó að svo væri ekki.
Hitti ég þá engan kunnugan, sem
upplýst gæti hið rétta, enda stutt
viðstaða hjá mér í bænum í það
sinn. Nokkru síðar kom svo til-
kynning um lát hennar á öldum
ljósvakans.
Jóhanna var fædd í Reykja-
vík 16. nóv. 1888. Og þar átti hún
heima æ síðan. Foreldrar hennar
voru þau hjónin Margrét Mark-
úsdóttir, og Björn Sveinsson
skipasmiður. Árið 1910 giftist
Jóhanna Eiriki Þorsteinssyni,
jttuðum ofan úr Kjós, og er
hann enn á lífi. Voru þau því bú-
in að vera nær 50 ár í hjóna-
bandi, og næstum alltaf búið
í sama húsinu, á Brunnstíg 10.
Þau eignuðust 2 syni og 2 dætur,
og eru þrjú þeirra á lífi, Guð-
laug, gift Kristni Ottasyni, skipa-
smið, Steinunn, gift Eiríki Ferd-
inandssyni, skósmíðameistara og
Markús Jóhannes, skrifstofumað-
ur hjá S.Í.B.S. Er hann ekkju-
maður og hefir hann hin síðari
ár búið hjá foreldrum sínum.
Einn son misstu þau um tvít-
tugsaldur. Veiktust báðir synir
þeirra hjóna af hinum skæða
sjúkdómi, er svo tilfinnanlega
herjaði á héT á landi, og lagði
margt ungmennið í gröfina fyrir
aldur fram. En sá, sem eftir lif-
ir, komst til sæmilegrar heilsu.
Jóhanna var þvj búin að finna
fyrir miklum veikindum á sínu
heimili auk heilsuleysis hennar
sjálfrar. En allt þetta bar hún
með einstakri stillingu og þol-
gæði, því ekki hyrðist hún kvarta
þó að erfiðleikar steðjuðu að. Og
áreiðanlega vildi hún annara böl
bæta, eftir því sem í hennar valdi
stóð. Hún var einstök gæðakona,
og sérstaklega dagfarsprúð.
í allmörg ár, stundaði Eiríkur
sjó. Varð þá Jóhanna að vera
bæði húsfreyja og húsbóndi, eins
og títt er um sjómannskonur.
Fórst henni þetta vel, eins og allt
annað. Jóhönnu var mjög eigin-
legt að laða fólk að sér með
framkomu sinni. Og það var sem
ylur streymdi á móti manni, þeg-
ar maður kom á heimili þeirra
bjóna. Það var ekki ætlun mín
að skrifa neina ýtarlega æfi-
minningu, heldur senda þessari
horfnu heiðurskonu einlæga
þakkarkveðju mina fyrir alla
velvild, sem hún hefir sýnt
mér fyrr og siðar.
Ætlun min var, að þessar lín-
ur gætu komið í blaðinu á út-
NÚ á höfuðdaginn er Magnús
Jörgensson 80 ára. Hann er kom-
inn að Múla í Hrútafirði eftir að
hafa verið í Reykjavík í mörg
ár, en í Hrútafirði eru margar
minningar Magnúsar frá lífi og
starfi yngri ára, við óblíð veður
og hörð störf. Ungur að árum hóf
hann búskap að Gilsstöðum með
móður sinni og systkinum, en
faðir hans, Jörgen Jörgensson
frá Elínarhöfða var þá að verða
blindur svo að búforráð lentu á
Magnúsi, sem þá tók að sér ferju
mannshlutverk yfir Hrútafjörð
að Borðeyri, sem var þá mikil
ferðaleið manna úr norðursveit-
um og oft var farið í slæmum
veðrum, en allt fór vel og mörg-
um þótti þá gptt að koma að Gils-
stöðum. Þaðan fór margur þakk-
látur með hlýjan huga. Magnús
tók líka að sér gæzlu og viðgerð
á lanssímalínunni um Holtavörðu
heiði og víðar og oft í hörðum
veðrum við .erfið skilyrði, en við
þeim störfum tók hann af Tómasi
bróður sínum, sem frá upphafi
hafði verið við byggingu og svo
gæzla hans um heiðar og hálsa,
heldur í köldu á stundum, en lífs
fjör og snarræði Magnúsar leysti
hvern vanda og raun.
Um fimmtugs aldur fór hann
með móður sinni, Dýrfinnu Helga
dóttur til Reykjavíkur. Þá var
faðir hans dáinn og farin systkim
einnig líka uppeldisbörn.
f Reykjavík stundaði hann
vöruflutninga á hestvögnum og
fleiri störf síðar, en alls staðar
vel þekktur, vinmargur, viðmóts
glaður, ríkur af lífsfjöri og góð-
vilja. Hann giftist góðri konu
í Reykjavík, Sesselju Guðlaugs-
dóttur, ættaðri úr Kjós. Eína
Fresta kjarnorku-
vopnatilraunum,
ef
Vy I • • • • •
LONDON, 28. ágúst. (Reuter). —
Rússneska stjórnin lýsti því yfir
í kvöld, að ekki mundu verða
teknar upp á ný kjarnorkuvopna-
tilraunir í Ráðstjórnarríkjunum,
að því tilskyldu, að Bretar og
Bandaríkjamenn gerðu það ekki
heldur.
Eins og kunnugt er, gaf banda-
ríska utanríkisráðuneytið út
yfirlýsingu um það s.l. miðviku-
dag, að Bandaríkjamenn mundu
fre 'rekari kjarnorkuvopnatil
•raunuti í tvo mánuði.
dóttur eignuðust þau, Aðalheiði,
sem nú er gift Einari húsasmíða-
meistara og þar varð hans heim-
ili eftir lát Sesselju konu sinnar;
en á þessu sumri fluttu þau að
Múla í Húnavatnssýslu og þar
koma vinir og frændur að fagna
löngum áfangá í ævi Magnúsar,
sem er sí-lífsglaður, fjörlegur
góðviljaður og vel séður af óll-
um, sem hann þekkja.
Minning björt er Magnús minn
um marga glaða daga,
sem ylja munu arinn þinn;
þin ævi er fögur saga.
E. H.
Forustumenn
austur fyrir ,tjald4
LONDON, 28. ágúst. (Reuter) —
tveir af forystumönnum Verka-
mannaflokksins, þeir Hugh Gait-
skell, formaður flokksins, og
Aneurin Bevan, fara á morgun í
flugvél til Moskvu í boði Krú-
sjeffs. Einnig munu þeir koma
til Varsjár.
Þeir Gaitskell og Bevan munu
ræða við rússneska og pólska leið
toga, og er gert ráð fyrir, að um-
ræðurnar snúist einkum um utan
ríkisstefnu Verkamannaflokksins,
og þá sérstaklega í málum
Evrópu. — Þeir munu dveljast
tíu daga í Sovétríkjunum sem
gestir rússneska þingsins.
Herter, utanríkisráðh. Banda-
ríkjanna, bauð þeim Gaitskell og
Bevan til miðdegisverðar í banda
ríska sendiréðinu í London í dag.
Talsmaður Herters sagði, að þetta
miðdegisverðarboð stæði ekki í
neinu sambandi við för þeirra
félaga til Moskvu og Varsjár.
$ l k«n‘ti wí»ni..
að auglýsing i stærsta
og útbreiddasta biaðinn
— eykor söluna mest —
Nýtízku falleg íbúð
Hef 3 herb, eldhús, bað, forstofu og geymslur.
Vil skipta á 1 eða 2 herb, eldhúsi og baði. Tilboð
merkt: „Vesturbær—313—4848“, sendist afgr. Mbl.
fyrir n.k. þriðjudag.
Verzlunarhúsnœöi
í Miðbænum til leigu nú þegar. Tilboð sendist afgr. Mbl.
merkt: „Miðbær—4852“.
Stúlka óskast
í ís- og sælgætisverzlun 5 tíma á dag (vaktavinna).
Uppl. í síma 50727.
STARFANDI FOLK
velur hinn
end i ngargóða
Pwket T-Bell
Skynsöm stúlka Hún notar
hin frábæra Parker T-Ball...
þessa nýju tegund kúlupenna
sem hefir allt að fimm sinnum
meira rit-þol, þökk sé hinni
stóru blekfyllingu. Löngu eft-
ir að venjulegir kúlupennar
hafa þornað, þá mun hinn á-
reiðanlegi Parker T-Ball rita
mjúklega, jafnt og hiklaust.
Poarous kúla einkaleyfi PARKERS
Blekið streymir um kúluna og matar
hina fjölmörgu blekholur . . . Þetta
fryggír að blekið er alltaf skrifhæft
í oddinum.
Parker 'fj&il kúlupenni
A PRODUCT OF
Ý
THE PARKER PEN COMPANY
94314
Eiginkona mín,
GUÐRlÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR
Stað, Grindavík
andaðist í sjúkrahúsi Keflavíkur, fimmtudaginn 27.þ.m.
Gamaliel Jónsson
Maðurinn minn,
BRYNJÓLFUR GUÐBRANDSSON
Hlöðutúni
verður jarðsett frá Stafholtskirkju, mánud. 31. ágúst
kl. 2 eJu
Jónína G. Jónsdóttir
Þökkum sýnda samúð og vinarkveðjur við andlát og
jarðarför,
GUÐMUNDAR STEFANSSONAR
frá Norðfirði
Börnin
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför systur okkar,
SIGURLAUGAR VIGFtjSDÓTTUR
frá Holti á Síðu
Fyrir hönd vandamanna:
Sigríður Vigfúsdóttir, Vigfúsína Vigfúsdóttir