Morgunblaðið - 17.10.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.10.1959, Blaðsíða 2
4 2 MORCUNRLAÐ1Ð Laugardagur 17. okt. 1959 r* Tveir smábarnagæzluveHir opnaðir í gær Gæzluvellir eru nú reknir á 17 stöðum i bænum í GÆR voru opnaðir í Reykjavík tveir nýir smábarnagæzluvellir við Ljósheima og Kambsveg og eru þá gæzluvellir á 17 stöðum í bænum, auk tveggja þar sem er smábarnagæzla að sumarlagi. Jónas B. Jónsson, form. leikvalla r.efndar opnaði vellina að við- stöddum borgarstjóra, bæjar- ráði o. fl. gestum. Á seinni árum hefir einkum verið stefnt að því, að koma upp smábarnagæzluvöllum í hinum ýmsu hverfum bæjarins.. Liðin eru 6 ár síðan fyrsti smá- bamavöllurinn, þ. e. völlurinn við Skúlagötu, var opnaður, en nú eru smábarnagæzluvellirnir 14 að meðtöldum Grettisgötuleik vellinum, þar sem smábarna er gætt kl. 1,30—4 e.h. og tveimur sumarleikvöllum. Vellirnir eru ætlaðir börnum tveggja til fimm ára og geta mæður eða aðrir að- standendur barnanna haft þau á þessum völlum í öruggri gæzlu og komast börnin ekki út af vellinum sjálf. Börnin geta dvalizt þarna 2—3 stundir á dag, fyrir og eftir hádegi. Það er til. skilið, að börnin séu ekki send á leikvellina nema þau séu frisk og það verður að sækja þau, ef veður er mjög slæmt. Á leikvöll- unum eru tvær gæzlukonur og er ekkert gjald tekið fyrir gæzi- una. Aðsóknin að völlunum mjög góð Húsin á nýju gæzluvöllunum tveimur eru byggð eftir sömu teikningu og þau hin fyrri, og hafa þá alls verið byggð 7 skýli eins. Teikninguna gerði Skúli Norðdahl í samráði við leikvalla nefnd, en bygginguna annaðist Rósmundur Runólfsson, bygg- ingarmeistari. Stærð leiksvæðisins við Ljós- heima er um 1.900 m2 og mun það vera stærsti smábarnabæzlu völlurinn £ bænum. Völlurinn við Kambsveg er 800 m2 og er það helmingur hins fyrirhugaða leiksvæðis. Eru þessir vellir sem •ðrir búnir ýmsum tækjum, sem börnin una vel við og hefir ver- ið stefnt að því, að hafa þau sem fjölbreyttust. Vellirnir tveir voru mjög vel sóttir strax í gær. Á Ljósheimavöllinn komu 150 börn um morguninn og heldur fleiri síðdegis, og við Kambsveg komu um 70 börn bæði um morg uninn og síðdegis. Aðsókn barna á leikvelli bæj- •rins er hajög mikil. Tala heim- sókna á vellina fyrir og eftir hádegi var árið 1958 samtals 311, 319, en 9 fyrstu mánuði þessa árs (til septemberloka) 319, 946. Aðrir leikvellir en smábarna- gæzluvellirnir eru nú 6 í bænum og auk þess eru um 30 leiksvæði, þar sem engin gæzla er. KOSNIN GASKRIF- STOFA SJÁLF- STÆÐISFLOKKSINS í REYKJAVÍK er í Morgunblaðshús- inu, Aðalstræti 6, II. hæð. — Skrifstofan er opin alla daga frá kl. 10—22. — k ★ k Stuðningsfólk flokksirs Við gæzlu á leikvöllum starfa 34 gæzlukonur og á sumrin vinna þar einnig stúlkur úr Vinnuskóla Reykjavíkur. Umsjón með völl- unum annast Jens Guðbjörns- son og verkstjóri er Bjarnhéðinn Hallgrímsson. Rekstur lei#/all- anna kostaði árið 1958 tæpar 2,3 millj. króna, en 20 sept. sl. var reksturkostnaður 1959 orðinn 1,6 millj. kr. Næsta viðfangsefni — fjöruleik- vellir Jónas B. Jónsson form. leik- vallanefndar gat þess, er vell- irnir voru opnaðir í gær, að nefndin teldi þörf bæjarbúa e. t. v. ekki fullnægt fyrir smábarna- velli en komið væri það mikið net af slíkum völlum, að leik- vallanéfnd teldi tíma til kominn að snúa sér að öðrum almennum leikvöllum og skrautgörðum í sambandi við þá. Einnig mun leikvallanefnd leggja til að á næsta ári verði gerð tilraun með fjöruleikvelli, og hefur hún í^. unum. Einnig ber nokkuð á því að börn eru að leik á götum rétt hjá völlunum, en að sjálf- sögðu er æskilegra að vellirnir séu nytjaðir fyrir þessi börn. Á leikvöllunum eru skemmti- leg leiktæki, sem leikvallanefnd hefur látið gera. Eru þessi tæki framleidd f Smið h.f., sem einnig selur þau almenningi við vægu verði. Samkoma í Eyjum SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Vest- mannaeyjum halda samkomu i samkomuhúsi Vestmannaeyja, sunnudaginn 18. okt. kl. 4 sd. Ræður og ávörp flytja: Guð- laugur Gíslason, Ingólfur Jóns- son, Sigurður Ó. Ólafsson og Jón Kjartansson. Árni Jónsson, óperusöngvari syngur einsöng og leikararnir Haraldur Á. Sigurðsson og Ómar Ragnarsson skemmta með upp- lestri og gamanþáttum, að lokum verður dansað. Börnin una sér á nýja leikvellinum við Ljósheima. huga tvo staði, við Elliðaárvog®- og Skerjafjörð. Hann minntist á að algengt er að skemmdarverk séu unnið á leikvöllunum, og að æskilegt væri að fólk sem býr í nánd við þá og aðrir hefðu auga með völl- Drengur liljóp a bíl UM kl. htálffimm í gær meidd- ist lítill drengur á höfði er hann hljóp aftan til á bíl móts við Vesturgötu 21. Drengurinn heitir Karl Snorrason. Var hann fluttur í Slysavarðstofuna, og síðan heim til sín, þar eð hann reynd- ist ekki mikið meiddur. er beðið að hafa sam- band við skrifstofuna og gefa henni upplýs- ingar varðandi kosn- ingarnar. ~k ★ ~k Athugið hvort þér séuð á kjörskrá í síma 12757. ~k ★ ~k Gefið skrifstofunni upp- lýsingar um fólk sem verður fjarverandi á kjördag, innanlands og utan. k k k Símar skrifstofunnar eru 13560 og 10450. Lj ósiiiyndasýning FÉLAG áhugaljósmyndara opn- aði Ijósmyndasýningu í Mokka- kaffi við Skólavörðustíg, 13. þ. m. Þar sýna 9 félagsmenn 19 myndir. Viðfangsefnin eru fjölþætt, m. a. má nefna myndir eins og „1. maí“ (af skóladrengjum í kröfugöngu), „Eggert Gilfer við taflborðið", „ísaður reiði“, „í landhelgi", og „Hjól tímans". Sýningin verður opin í tvær vikur. Nýstárlegt tón- verk kynnt í há- skólanum TÓNLISTARKYNNING fer fram í hátíðasal Háskólans sunnudag- inn 18. þ.m. kl. 5 e. h. Verður þar flutt af hljómplötutækjum skól- ans verkið „Carmina Burana" eftir Carl Orff, fyrir kór, ein- söngvara og hljómsveit. Textarnir eru á latínu og þýzku úr kvæðaaafni frá 13. öld, sem geymir kveðskap flökku stúdenta frá miðöldum, veraldleg kvæði, sem lofa vorið, vínið og ástina. Verkið er samið 1937 og hefur síðan hlotið miklar vin- sældir víða um heim, enda fjarri því að vera tormelt, þótt nýstár- legt sé. Höfundurinn er einn af kunnustu tónskáldum Þjóðverja, sem nú eru uppi, pn eftir hann hefur ekkert verið flutt opinber- lega hér á landi, nema eitt kór- lag (úr Carmina Catulli), sem Polyfonkórinn söng í sl. vetri. Guðmundur Matthíasson tón- listarkennari mun kynna höf- undinn og verkið fyrir áheyr- endum Byggingarsamvinnufélag iðnverkafólks var stofnað fyr- ir rúmu ári. Var þá þegar hafizt handa um byggingu fjölbýlishússins á myndinni hér að ofan. I næsta mánuði munu íbúðirnar verða afhentar, fokheldar. Eru það 24 íbúðir 2—4 herbergja — Sjá bls. 12 og 13. Flugvallargerð á ísafirði miðar hægt ÍSAFIRÐI, 15. okt. — ísfirzku togararnir hafa nýlega land- að afla sínum hér á ísafirði. Sói- borg landaði í síðastliðinni viku tæpum 180 lestum af karfa, og Isborg landaði í gær um 150 .cst- um af karfa og þorski. Svo i'la gekk að fá fólk við löndun og hagnýtingu aflans að gefa varð leyfi nemendum í efri bekkjum Stjórnarkjör í Iðimemafélagi Hafnarfjarðar AÐALFUNDUR Iðnnemafélags Hafnarfjarðar var haldinn í gær- kvöldi. Var fundurinn ágætur og mikill áhugi á að efla félagsstarf- ið. — Á fundinum fór fram stjórnar- kjör. Formaður var kjörinn Vai- ur Guðmundsson, varaform. Jó- hannes Karlsson, gjaldkeri Barði Guðmundsson, ritari Baldur Sig- urðsson, meðstjórnandi Örlygur Benediktsson og varamenn Jó- hann Kárason, Sigurður Kristins- son og Ragnar Júlíusson. Fulltrúar á Iðnnemaþing voru kjörnir Valur Guðmundsson, Barði Guðmundsson og Jóhannes Karlsson. i De Gaulle ! ! s-graði, en... i I PARÍS 16. óktóber. \ i ÁÆTLUN de Gaulles um að s ^ veita Alsírbúum sjálfs- ) S ákvörðunarrétt var sam- ^ ) þykkt í fulltrúadeild s | franska þingsins með 441 ) S atkvæði gegn 23, en þing- ^ i menn Alsír, 60 talsins, tóku j \ hvorki þátt í umræöum né ) S atkvæðagreiðslu. í nótt, eft- | ) ir að þingfundi var lokið, ; • gerðu fjórir menn vélbyssu- s ( árás á Mitterand, fyrrum ) S ráðherra, er hann ók heim- j i leiðis um götur Parísar. — s S Mitterand, sem er úr hópi ) S stuðningsmanna de Gaulle, ; i forðaði sér út úr bílnum og s \ inn í skemmtigarð, sem var j S þar hjá — og sakaði ekki. • ) Mennirnir komust í brott, s ■ óttast er, að ofstækisfullir ) S hægrimenn ætli nú að hefja • S blóðuga baráttu gegn fylgis- s • mönnum de Gaulles og fraiu S S kvæmd Alsíráætlunarinnar. ■ j Hefur lögreglan gert ýmsar s • varúðarráðstafanir og býst s S nú við hinu versta. s ‘ Gagnfræðaskólans til að vinna að honum. Undanfarnar vikur hefur verið hér einmuna milt tíðarfar. I sið- ustu viku var 15—17 gráðu hiti dag eftir dag, en allúrkomusamt hefur verið og er enn. Vélfræðinámskeið er nýtekið til starfa hér á vegum Fiskifélags íslands. Nemendur eru 15 að tölu. Forstöðumaður námskeiðsins er Guðmundur Þorvaldsson. Vegna rigningarinnar hefur flugvallargerðinni hér miðað verr en ráð var fyrir gert. Eftir heimildum þeirra, sem bezt vita, eru engar líkur á að hægt veröi að taka flugvöllinn í notkun fyrr en á næsta vori. — GK. Marshall látinn WASHINGTON, 16. okt. Georg« Marshall, hershöfðingi, lézt i Walter Reed sjúkrahúsinu lauat eftir kl. 23 í kvöld. Hann var 78 ára að aldri. Marshall hafði ver- ið sjúkur síðan 15. janúar, er hann fékk hjartaslag. í marz var hann í skyndi lagður j sjúkra hús — og síðan hefur hann leg- ið þar nær algerlega lamaður. Það var hann, sem lagði frum- drógin að hinni geysivíðtæku að- stoð. sem Bandaríkin veittu Evrópulöndum eftir styrjöldina, hinni svonefndu Marshall-aðstoð. Marshall varð yfirmaður Banda- ríkjahers á styrjaldarárunum og hann átti mestan þátt í áætlun Bandamanna um töku Þýzka- lands með innrás í V.-Evrópu i stað innrásar frá Balkanskaga, eins og Churchill lagði til. Hann varð utanríkisráðherra Banda- ríkjanna 1947.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.