Morgunblaðið - 17.10.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.10.1959, Blaðsíða 24
229. tbl. — Laugardagur 17. október 1959 Útsvarsfrelsi SÍS gleymist ekki TÍMINN skýrði frá því í gær, aB skattstofan hafi lækkað skatta Hermanns Jónassonar eftir kæru hans. Alkunnugt er af gömlum og nýjum dæmum, að Hermann „kann“ flestum betur að telja fram. Samt fær hann nú verulega lækkun á sköttum, sem þó er sagt, að einfalt reikningsdæmi sé að ákveða. Sannleikurinn er sá, að allur þorri manna hefur engin skilyrði til að meta, hvort útreikningar skattstofunnar séu réttir. Menn spyrja t. d., hvernig vera megi, að Vilhjálmur Þór borgi engan tekjuskatt og Steingrímur Hermannsson einungis 246,00 krónur. Hins vegar er upplýst, að niðurjöfnunarnefnd breytti frá útsvarsstiganum í álagningu 6000—7000 gjaldenda strax í upphafi. Síðan hefur hún að sögn Tímans í gær tekið til endurmats, að fengnum nýjum upplýsingum í kærum fram- töl „þúsunda annarra manna“, að því er Tíminn sagði i gær. Á meðal þeirra, sem þá fengu lækkun voru Einar Ol- geirsson, Eysteinn Jónsson og Jóhannes Elíasson. Tíminn tók þá í gær til samanburðar við aðra, en gat ekki um breyt- inguna, sem búið var að gera eftir kæru þeirra. Útsvar Ey- steins var t. d. lækkað um 5.400,00 kr. Samanburður Tímans á nöfnum einstakra manna er þess vegna út í bláinn, og því fer fjarri, að það sé allsherjarregla, að tekjuskattur sé hærri en útsvar. Engir bera meiri ábyrgð á núgildandi skattakerfi en Framsóknarmenn. Vegna ofurvalds Framsóknar hefur ekki verið komandi við að gera breytingar á því. Eysteinn Jóns- son hefur hins vegar sett reglur um framkvæmd skattálagn- ingar og valið sína menn til að framkvæma hana af full- komnu handahófi. Tíminn tréystir því, að í öllu því myrkviði, sem Eysteinn skildi við, sé hægt að hylja það hneyksli, að stærsta atvinnu- fyrirtæki landsins, SÍS, skuli vera útsvarsfrjálst. Sú tilraun mun áreiðanlega ekki takast. h\íerzJundrs"téttin mnir af hendi þjónustu við þjócJarheildin'a, sem er alveq h/ífctæð siarfi þeirra stétta, sem venju/eqa eru 'A kenndar vici framleidcluna * , Jherzía ska! foýð é að yera verzlunma sem hagstadbarta neytendum oy -fram leiéendum. 1 þeccu skym ska/ sam - vmnuhreyfingunnt tryqqcf naucísynlecj -'aéstaéa." Onnur tilvitunin á myndinni er úr ræðu, sem Gylfi Þ. Gíslason hélt á nýafstöðnum aðalfundi Verzlunarráðs Islands. Hin er úr „Stefnuskrá umbótaflokkanna“, Alþýðuflokksins og Framsóknar, frá kosningunum 1956. — Það er undir úrslitum kosninganna komið hvorri tilvitnuninni verður haldið til haga hjá Alþýðuflokknum. Verkfalli fresfaö VERKFALLI því sem boðað hafði verið meðal yfirmanna á togaraflotanum, hefur verið frestað. Síðdegis í gær höfðu aðilar að deilunni Fél. ísl. botnvörpuskipa- eigenda og Farmanna- og fiski- mannasambandið orðið sammála um það, að fresta frekari samn- STEFNIR, félag ungra Sjálfstæð- ismanna í Hafnarfirði, heldur út- breiðslufund kl.' 4 á sunnudag. Þar munu 10 ungir Sjálfstæðis- menn halda ræður. Eru Hafnfirð- ingar hvattir til að fjölmenna á fundinn. Sjálfstæðisfélögin 1 Hafnar- firði boða til almenns kjósenda- fundar á mánudagskvöld kl. 8.30 í Hafnarfjarðarbíói. Fimm efstu menn D-listans í Reykjaneskjör- dæmi tala á fundinum. Fundar- stóri verður Stefán Jónsson, for- maður fulltrúaráðs Sjálfstæðis- félaganna í Hafnarfirði. Hafnfirðingar, fjölmennið á kjósendafund D-listans. ★ Stjórnmálaumræðunum á 'Sel- fossi kl. 8.30 í kvöld verður út- varpað á 213 m. ingsumleitunum um óákveðinn tima, og var þá jafnframt ákveð- ið að fresta skyldi um óákveð- inn tíma verkfalli því sem boðað hafði verið næstkomandi þriðju- dag. Af þeim sökum mun ekki koma til stöðvunar togaranna að sinni. Ga/lar á þýzku log- skipunum kannabir AKUREYRI, 16. okt. — Þrír austur-þýzkir togbátar, sem keyptir voru til Norðurlandsins fyrir síðustu áramót og á þessu ári, liggja hér í höfninni. Það er Margrét frá Siglufirði, Sigurður Bjarnasón frá Akureyri og Björg- vin frá Dalvík. Hafa komið fram gallar á þeim öllum, einkum lest- um þeirra, eða steypan í lestar- botni, hefir reynzt meyr og óþétt, og hefir orðið að mölva hana upp og steypa í að nýju með betra efni. Einnig er illa gengið frá aluminiumfóðri í lestinni. Loks reynist önnur ljósavélin illa, en hún er austur-þýzk. Fleiri gallar hafa komið í ljós á bátum þess- um. menn frá skipasmíða- sem framleiddi þessa Fimm stöðinni báta fyrir íslendinga, komu hing- að og athuguðu þá og kynna sér kvartanir eigenda ásamt 6 mönn- um frá Reykjavík, þ. á. m. skipa- skoðunarstjóra. — vig. Fanney fann síld w SÍLDARLEITARSKIPIÐ Fanney fann í fyrrinótt allstóra síldar torfu á 30 faðma dýpi um 12 mil- ur V-SV af Eldey. Að undan- förnu hefur verið heldur óhag- stætt veður á þessum slóðum til leitarinnar. Skipið hefur einnig fundið nokkrar smátorfur i Grindavíkurdjúpi og austur undir Selvogi. Fréttaritari blaðsins á Akranesi símaði í gær, að fjórir bátar það- an væru búnir að taka reknetin um borð, til að verða fljótari til, ef frekari síldarfréttir skyldu ber ast, og einn þessara báta væri far inn á veiðar. Sjálfboöaliðar HEIMDSiLLINGAR og aðrir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru minntir á, að undirbúningurinn fyrir kosningarnar er nú senn að ná hámarki. Þeir eru því eindregið hvattir til að koma í Sjálf- stæðishúsið í dag til aðstoðar við skriftir og önnur nauðsynleg störf. IIEIMDALLUR, F.U.S. Dr. Björn Sigurösson DR. BJORN Sigurðsson læknir, forstöðumaður tilraunastöðvarinn ar á Keldum, lézt í gær í Land- spítalanum eftir mikla vanheilsu á siðasta ári. Hann var sonur Sigurðar Björnssonar frá Veðra- móti og Sigurbjargar Guðmunds- dóttur. Dr. Björn var 46 ára að aldri, er hann lézt. Hann hafði veitt forstöðu tilraunastöðinni í meinafræði á Keldum frá því hún var sett á stofn árið 1947. Hann var kvæntur Unu Jóhannsdóttur og lætur eftir sig 3 börn. Hans verður getið nánar hér í blaðinu síðar. Lougarneshverfi Fundur umdæmafulltrúa Laug arneshverfis verður í kosninga- skrifstofu hverfisins — Sigtúni 23 laugardaginn 17. þ. m. kl. 5.30. Hverfisstjórnin. í gær voru opnaðir tveir nýir barnagæzluvellir í Reykjavík, við L jósheima og Kamsveg. Strax í gærmorgun streymdu mæðurnar að með börnin sin til að koma þeim í örugga gæzlu og krakkarnir undu sér vel í nýju leiktækjunum. 150 börn voru á Ljósheimavellin- um og um 70 á Kambsvegarvellinum. — Sjá blaðsíðu 2. Orðsending fró fjóiöflnnarnefnd FJÁRÖFLUNARNEFND Sjá« stæðisflokksins hefur nú geng- izt fyrir fjársöfnun vegna væntanlegra Alþingiskosninga og er það von nefndarinnar að allir leggi eitthvert fé af mörkum í þessu skyni. Þeir, sem fengið hafa söfn- unarlista og merki flokksins, eru hvattir til að vinna vel og ötullega að söfnuninni og gera skil svo fljótt, sem auðið er. — Einnig er tekið á móti fjár- framlögum í kosningasjóðinn á skrifstofu fjáröflunarnefnd- arinnar, sem er í Morgunblaðs- húsinu á II. hæð, símar 24059 og 10179. Sölu- börn SOLUBORN óskast til þ^ >., að selja „Kjósendahandbók Sjálf- stæðismanna". Bókin vtrður af- greidd í Valhöll við Suðurgötu daglega frá kl. 3. Góð sölulaun. HEIMDALLUR, F.U.S.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.