Morgunblaðið - 17.10.1959, Síða 22

Morgunblaðið - 17.10.1959, Síða 22
22 MonnrMtLAÐiL Laugardagur 17. okt. 1959 íarour \ þri&jia 7/ð/ Arsenal á miðvikudag í GÆRDAG fékk Knattspyrnusamband Islands skeyti frá Arsenal í London þar sem farið var fram á að KSÍ leyfði Ríkharði Jónssyni að keppa með félaginu. Það leyfi var þegar veitt. Ekki fylgdi í skeytinu með hvaða' liði Arsenals félagsstjórnin hyggðist láta hann leika eða hvenær. Síðar í gær fékk KSÍ annað skeyti — nú frá enska knattspyrnusambandinu — þar sem spurt var um hið sama og í skeyti Arsenals. Þar var heldur ekki tekið fram neitt um það með hvaða liði félagsins Ríkharður ætti að leika. Morgunblaðið sneri sér því til íréttaritara síns í London og bað hann hafa samband við Arsenal. Talsmaður Arsenals svaraði: „Hugsanlegt er að Ríkharð- ur Jónsson verði látinn leika með liði Arsenal sem leika á í bænum Didcot í Berkshire næstkomandi miðvikudag. En ennþá höfum við ekki fengið svar ísl. knattspyrnusam- bandsins varðandi keppnis- leyfi hans.“ (Eins og fyrr segir svaraði KSÍ þegar játandi og hefur svarið borizt í gær til Arsen- al). „Metropolitan" lígan er deild I ensku knattspyrnunni, sem stóru atvinnuliðin í London og nágrenni taka þátt ásamt mörg- um smærri félögum. Hin stóru atvinnufélög senda ekki sína beztu liðsmenn í þessa keppni og Arsenal sendir sitt þriðja lið þangað. í því eru bæði ungir menn og gamlir menn. Þar eru „framtíðarmennirnir“ { félags- skap við þá sem kannski árum saman hafa verið í fyrstá liðinu. í Meitropolitan-deildinni eru 20 lið, m. a. frá Arsenal, Chelsea, West Ham, Fulham, Luton o. fl. Á sl. ári sigraði lið Arsenal í þessari deild, skoruðu 118 mörk gegn 51 og hlutu 56 stig. Næst kom Chelsea sem skoraði 109 mörk gegn 35 og hlaut 55 stig. Fyrsta lið Arsenal leikur í 1. deild ensku keppninnar. Annað lið félagsins leikur í „Football Combination", sem er deild fyrsta varaliðs félaganna i fyrstu deild. Þriðja liðið leikur svo í „Metropolitan“ deildinni og hefur það stundum komið fyr ir að leikmenn þriðja liðsins hafi farið þaðan til leiks í fyrsta lið- inu, án þess að leika í varalið- inu, og gleggsta dæmið um það er rúverandi markvörður Arsen- al Standen. Þriðja lið Arsenal hefur nú leikið 11 leiki það sem af er keppnistímabilsins nú. Sl. lauga- — Bændur þakka Framh. af bls. 6. Þá rannsakaði prófessor Dung- al fyrstur lungnapest í fé, og framleiddi bóluefni við þeirri veiði, en hún gekk oft yfir sem smitandi sjúkdómur frá einni hjörð til annarrar, og kom ott upp á nágrannabæjum veturinn eftir að hún hafði verið á öðr- um bæjum í sveitinni, og inátti þá með bólusetningu hefta frek- ari útbreiðslu veikinnar þar í sveit. Ýmsa fleiri búfjársjúkdóma rannsakaði Dungal og þó þessi starfsemi hafi nú að mestu færzt að Keldum, þá átti Dungal hér brautryðjendastarf, sem var ákaflega mikilsvert, og hefur forðað bændum frá tug milljóna tjóni á undanförnum árum. Þess vegna vil ég þakka Dungal störf hans á þessu sviði, og ég geri það fyrir hönd allra bænda landsins, þeir hafa allir notið þess, beint eða óbeint, og þakka allir. 23. ágúst 1959. Pali Zóphóníassor. ardag vann Arsenal lið Bedford með 7:0. Áður hefuf liðið tvíveg- is (keppnin er tvöföld umferð) tapað fyrir Fulham með 2:3 í hvort sinn. I enska blaðinu Daily Tele- graph er j fyrradag skýrt svo frá að enska landsliðið sem leika á landsleik við Wales í dag (laug- ardag) hafi leikið gegn blönduðu liði Arsenal á velli Arsenal Higbury á miðvikudag. Lið Arsenal vann 3 gegn 1 og þótti það tíðindum sæta. Mörk Arsen- al skoruðu að sögn blaðsins Bloomfield. John Smith (West Ham — varamaður í enska lands liðinu en lék með þessu glandaða liði Arsenal þennan leik) og Johannsson — segir blaðið. Eft- ir því sem bezt er vitað er eng- inn maður með þessu nafni hjá Arsenal um þessar mundir og þvj má ætla að blaðið hafi hér ritað föðurnafn Ríkharðs rang- lega. En um það verður ekki full yrt að sinni, hvort Ríkharður hafi leikið þennan leik eða ekki og skorað mark hjá enska lands- liðsmarkverðinum. Sigmar t Málverkasýning Jóns B. Jónassonar í Ásmundarhúsl við Freyju- götu hefur nú staðið í 10 daga. Hefur verið góð aðsókn og nokkr- ar myndir selzt. — Sýningunni lýkur á sunnudagskvöld, og er því hver síðastur að sjá hana. Á myndinni hér fyrir ofan er Jónas með eina af sýningarmyndum sínum. Dómur í Smart Kesion múlinu HINN 13. þ. m. var kveðinn upp í sjó- og verzlunardómi Reykja- víkur dómur í máli ákæruvalds- ins gegn Rolf Johansen, vegna karlmannapeysanna, sem auglýst- Góður fundur ungnnganerndar KSÍ á Selfossi SL. miðvikudagskvöld hélt Ungl- inganefnd KSÍ austur að Selfossi og hafði þar útbreiðslu- og fræðslufund um knattspyrnu með yfir 80 drengjum, í leikfimisal barnaskólans á staðnum. Þessi fundur var eins og áður hefur verið getið um í dagblöð- unum, einn liður í áætlun Ungl- inganefndarinnar um heimsókn til félaga í nágrenni við höfuð- staðinn, til þess að örfa hina | fallegum bikar, sem stjórn Knatt yngri til aukinnar kilattspyrnu- j spyrnusambandsins gefur Héraðs - Athugasemd Framh. af bls. 15. Að þessu athugniðu þykir því ekki unnt að fallast á það með stefnanda (frú Karolinu Jósefs- son) að heimilt sé að sniðganga ákvæði laga nr. 3 frá 1900 í máli þessu, en samkv. 11. gr. þeirra laga hefur maðurinn einn umráð félagsbúsins". í forsendum að dómi Hæsta- réttar segir orðrétt m.a. á þessa leið: „Gagnáfrýjandi (Jóhannes Jó- sefsson) hafði samkvæmt 11. gr. laga nr. 3 frá 1900 skýlausa heim- ild til að gera réttargæzlustefndu tilboð um sölu Hótel Borgar á- samt innanstokksmunum og á- höldum innanhúss, það er gremir í yfirlýsingu hans 4. júní 1958, og eigi er í ljós leiddur neinn sá ljóðttir á ráði hans, er valda eigi ógildingu tilboðsins“. Vissulega var mál þetta endan- lega afgreitt með dómi Hæstarétt ar og var því mjög óviðeigand'., að ræða dóm réttarins eftirá, sér- staklega á opinberum vettvangi. En þar sem M. Th. lét það eftir sér, að viðhafa" óviðeigandi og villandi ummæli um málsmeð- meðferð og rök að dómaniðurstöð um, varð ekki komist hjá því af mér, sem lögmanni Jóhannesar Jósefssonar að gera framan- greinda stutta athugasemd við grein M. Th. i gær. Með þökk fyrir birtinguna. Rvík, 16. okt. 1959. Gunnar Þorsteinsson. iðkunar og til almennari þátt- töku í hæfnisþrautum KSÍ. Dagskrá þessa fundar var svip- uð og dagskrá fyrri funda. Eftir að Karl Guðmundsson hafði kynnt unglinganefndina og hina þrjá Gulldrengi, sem með henni voru, talaði Frímann Helgason formaður Unglinganefndarinnar við drengina og sagði þeim m. a. frá því hvernig hann fyrir um 40 árum komst í kynni við knött- inn, þá lítill sveitadrengur austur í Mýrdal. Það var auðfundið, hve þessi frásögn féll í góðan jarðveg hjá drengjunum og sú stemnir.g sem Frímann skapaði þarna hélst út allan fundinn. Næst kom svo kvikmynd af spenandi knatt- spyrnukeppni, en síðan ræddi Karl Guðmundsson við „Gull- drengina" Þórólf Beck, Gunnar Felixson og Úlfar Guðmundsson, sem allir eru úr KR. Höfðu þeir margt að segja drengjunum af reynslu sinni fyrir ágæti hæfnis- þrauta KSÍ, svo og af þátttöku sinni í mörgum stórum kapp- leikum og utanferðum. Það er óhætt að fullyrða að drengirnir létu ekkert framhjá sér fara, af því sem Gulldrengirnir höfðu að segja. Nú var sýnd kvikmynd af því hvernig sænskir drengir leysa hæfnisþrautimar og var unun á að horfa, því svo frábær er hæfni þeirra og nákvæmni að undrum sætir. Þessu næst var spumingaþátt- ur, sem Karl Guðmundsson stjórn aði og kannaði hann þekkingu drengjanna á ýmsu varðandi knattspyrnu. Hlutskarpastur varð Sigmar Ólafsson, 11 ára gamall og afhenti Karl honum knatt- spyrnu-myndabók í verðlaun. Þá var enn sýnd kvikmynd af þátt- töku II. flokks KR í þjálfunar- námskeiði í Ðanmörku 1959. Og eru Þórólfur og Örn Steinsen aðalpersónur í þeirri mynd. Þá flutti Karl Guðmundsson kveðjur frá Stjórn Knattspyrnu- sambands Islands og bað Grim Thorarensen að veita viðtöku sambandinu Skarphéðni til < keppni í 4. fl. milli sambands- aðilana. Bað hann Grím að i koma bikarnum til réttra aðila,' með beztu kveðjum og óskum frá j stjórn Knattspyrnusambandsins. j Að síðustu var svo sýnd stutt i kvikmynd frá bikarkeppni í Eng- j landi. Þessi fundur sýnir að ekki skortir knattspyrnuáhugann hjá yngri kynslóðinni fyrir austan fjall, en þrátt fyrir það hefir ver- ið lítið um skipulagða knatt- spyrnukennslu og kappmót þar eystra. Vera má að skortur á knattspyrnukennurum eigi nokk- urn þátt í þessu, en manni finnst þó að hinir eldri, sem margir hverjir, á hinum ýmsu stöðum hafa haft þó nokkur kynni af knattspyrnuiþróttinni, geti kom- ið meir til móts við hinn mikla áhuga þeirra yngri fyrir þessari íþrótt, með því að reyna að halda uppi reglulegum æfingum fyrir þá og skipuleggja kappleiki. Samgöngur eru orðnar svo góð- ar milli staða austanfjalls að það ætti að vera í lófa lagið að koma á keppni í yngriflokkum milli drengja frá Selfossi, Hveragerði, Eyrarbakka, Stokkseyri, Hrepp- unum o. s. frv. Er þess að vænta að stjórn Skarphéðins komi nú skrið á þetta mál og undirbúi i tíma keppni næsta sumar. Síðastliðið sumar var háð knattspyrnukeppni austanfjalls milli 1. fl. liða frá Selfossi, Hvera gerði, Hellu og liðs austan undan Eyjafjöllum. Þetta er eftir því, sem bezt er vitað fyrsta skipu- lagða keppnin af því tagi þar eystra. Er vonandi að þetta haldi áfram næsta ár og væri þá ekki tilvalið fyrir hina eldri leikmenn að taka drengina með í bílinn og leyfa þeim einnig að reyna sig við sína jafnaldra? Varðandi þjálfara vandamálið, hefur það oft komið fram í sam- tölum við einstaka forustumenn iþróttanna fyrir austan, að nauð- synlegt væri fyrir Héraðssam- ar voru sem „ítalska peysuskyrt- an Smart Keston“, Var Rolf Jo» hanssen gert að greiða 1500 kr. sekt og komi 7 daga varðhald í stað sektarinnar, verði hún ekki greidd innan 4 vikna. Auk þess var ákærða gert að leiðrétta hin villandi auðkenni á vöru sinni og honum gert að greiða kostnað sakarinnar. Mál þetta var rannsakað fyrir sjó- og verzlunardómi að kröfu Neytendasamtakanna, er töldu, að orðalag í auglýsingum og á vöru. auðkennum gæfu villandi upp. lýsingar um framleiðslustað vör- unnar. í dómnum segir m. a.: Það er álit dómsins, að orðalag það, er notað var í auglýsingum, hafi gefið til kynna, að um fullunna vöru, innflutta og framleidda á Ítalíu væri að ræða. Telur dóm- urinn ög, að orðið „Italyan“, sem letrað var á borða og saumað á flíkina hlóti að vekja sömu hug- myndir um framleiðslustað vör- unnar. Þá er það og álit dómsins, að orðið „Pure Lambswool" svo og vöruheitið „Smart Keston“ geti bæði ein sér svo og í þvi sambandi, er þau voru notuð á umræddri flík, vakið þær hug- myndir að um erlenda fram- leiðslu sé að ræða, þegar fram- leiðslustaður er jafnframt ekki tilgreindur sérstaklega. bandsstjórnina að ráða einn fast- an knattspyrnukennara sem ferð- aðist milli hinna ýmsu félaga og þjálfaði. Þetta væri að vísu mjög æskilegt og mundi verða geysi stórt spor í áttina að öflugri knattspymustarfsemi. En slíkur maður, þótt duglegur væri kæm- ist aldrei yfir það mikla starf, sem þama þyrfti að vinna. Hann yrði að hafa menn sér til aðstoðar í hverju félagi sem gætu tekið að sér að leiða þær æfingar, sem hann ekki kemst yfir að stjórna. Þessir aðstoðarmenn gætu fengið góða undirstöðu þekkingu á í- þróttinni á helgar námskeiðum í knattspyrnu, sem stjórn Knatt- spyrnusambands Islands hefur gengist fyrir af og til og hyggst fjölga í framtíðinni fái þau þann hljómgrunn, sem þau eiga skilið. Það er ekki aðalatriðið að hafa svo mikla hæfni og þekkingu til þess að leiða hina yngri, þó hvorttveggja væri æskilegt, mest er um vert að þeir finni að hinir fullorðnu vilji eitthvað fyrir þá gera.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.