Morgunblaðið - 17.10.1959, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.10.1959, Blaðsíða 17
Laugardagur 17. okt. 1959 MORCTlNTtLAÐIB 17 jV>. * v¥wxv* Xu Heyflutningar úr úteyjum, og eins og sést á myndinni er þetta mjösf seinlegt verk. Maðurinn með skeggiö er Jón Daníelsson, bóndi í Hvallátrum. hlutinn tekinn á ræktuðu landi og í Svefneyjum eingöngu en hitt er heyjað í úteyjum. Yið út- eyjaheyskapinn eru notaðar sömu aðferðir og tíðkast hafa í aldaraðir. Það er slegið með orfi og ljá og sáturnar síðan bornar til skips af konum sem i körlum og eru sáturnar 40 til 50 kg. Nú er hætt að bera sáturn ar frá skipi og eru þær fluttar á dráttarvélum. Túnið á Hvallátr- um ber vott um sérstaka um- önnun. enda er það oftast þrí- slegið. Sauðfjárrækt er nokkur og er um 200 fjár í þrem byggðu eyj- unum, en í hinni fjórðu er helm- ingi minna. Sauðfé verður að flytja í land á vorin og til baka á haustin og er það mikið verk. Það er ein- göngu í Gufudalssveitina, sem má flytja féð í, vegna sauðfjár- veikivarna. Sauðfé er mjög vænt og frjó- samt og mun láta nærri að helm ingur sé tvílembt. í fyrra var % tvílembt í Hvallátrum og 18 kg meðalþungi ,en { haust verður hann sennilega heldur minni, en slátrun var ekki lokið í Flatey en þar verður slátrað llver bóndi kó nciur í sínu ríki í FLATEYJARHREPPI eru nu 4 eyjar í byggð og eru það Flatey, Svefneyjar, Skáleyjar og Hvallátrar en { tveim síðast töldum eyjunum er tvíbýli og er búskapur allur til fyrirmyndar hjá eyjgbændum yfirleitt. Þrjár eyjar eru nú komnar í eyði og eru það Hergilsey, Bjarneyjar og Sviðnur. Eyjajarð irnar eru skýrt afmarkaðar og má segja að hver bóndi sé kóng- ur í ríki sínu og eru því landa- merkjadeilur og skærur óþekkt fyrirbrigði að minnsta kosti á síð ari árum. f eyjunum býr kjarni þess fólks sem dreifbýlið byggir, því að þær krefjast þrautseigju, kjarks, dugnaðar og hagsýni. En þær hafa líka margt uppá að bjóða og erfiðleikarnir gleym- ast á góðviðriskvöldum á vorin, þá vappar æðarkollan um í hlað- varpanum, selurinn liggur á skerjum við túnfótinn og ærnar með lömb sín, sem bíða þolin- móðar eftir þvf að verða fluttar til lands í sumardvöl sína, og ekki má gleyma hinu fagra út- sýni sem eyjarnar hafa uppá að bjóða. Fréttaritari Mbl. átti nýlega þess kost að koma að Hvallátr- um, en þar búa fyrirmyndar- búi Jón Daníelsson og kona hans Jóhanna Friðriksdóttir ásamt uppkomnum börnum sínum og hins vegar Aðalsteinn Aðalsteins son og kona hans Anna Pálsdótt- ir. Aðalsteinn er mikill atorku og dugnaðarmaður og leggur hann dverghaga hönd sina á margt og þar sem forvitni mín er vakin bið ég Aðalstein að svara nokkr- um spurningum mínum fyrir Mbl. og fer það samtal hér á eftir. Niður af bænum er vogur sem er ágætis höfn og í þessum vog eru bátar Hvallátra bænda og þar sem ég hef heyrt talað tun breiðfirzkt lag á bátum fer ég að spyrja um það og Aðal- steinn segir: Það var sérstakt lag á meðan árabátarnir voru og var það kall að breiðfirzkt bátalag. Síðan hefur þróazt nýtt lag sumt frá Breiðfirðingum og sumt annars staðar fengið, en ekkert sérstakt lag mun vera á mótorbátum. Breytingin er: Á seglbátum var áherzla lögð á miðju báts- ins. Undir þvf var notkun hans kominn. En með vélbátunum var lögð aðaláherzlan á endana og hver smiður reynir að túlka sínar skoðanir og því er ekki neitt heildarlag komið, sem kenna má við ákveðna byggð. Eyjarnar hafa löngum verið sjálfum sér nógar um báta og Aðalsteinn hefur nú í smiðum bát sem er 9 smálestir, sem þeir 'IWf' wm 'T" " Vogurinn sem Hvallátramenn geyma sína (höfnin . eiga sjálfir Hvallátrabændur, og Aðalsteinn segir að þessi bátur muni vera eini báturinn sinnar gerðar á landinu og er reynt að sameina f innréttingunni flutn- ing á dýrum, vörum og fólki. Þetta er stærsta vélskip sem smíðað hefux verið í eyjunum og þetta er tuttugasti báturinn sem Aðalsteinn smíðar. Þar sem eyjabúskapurinn bygg ist aðallega á, er selveiði og æðarvarp. Dúnninn stendur nokk uð í stað ; byggðu eyjunum, en minnkar í þeim eyjum sem farn ar eru í eyði og stafar það fyrst og fremst af því að meira er um varg { þessum eyjum og verri umhirða í varpinu. Nú er farið að nota nýjustu vélar við hreinsun á æðardúninum. Eigendur sumra jarðanna, sem eru búsettir víðs vegar um landið hafa ekki skilning á því að aðal framleiðslan eru hlunn- indavörur, en þeir taka t.d. oft allan dúninn í leigu eftir jörðina. Reglan um leiguna var, að greiða 1 kg af dún eftir jarðar- hundraðið og jarðirnar eru flest- ar um 40 hundruð og fasteigna- mat þeirra er um 30 til 40 þús- und kr. og leigan er þv{ rúmlega 100% og tekinn af þeirri vöru sem hlýtur að vera undirstaða eyjabænda. Sumir eigendur hafa lækkað lítisháttar leiguna og sérstaklega á þeim jörðum, sem farnar eru { eyði. Þess má geta segir Aðalsteinn að leiga eftir ríkisjarðir með svipuð hlunn- indi eru nú sem svara einu kg. Selveiðin er nokkuð svipuð að magni til og verið hefur og gefur hún miklar tekjur vegna þess hve hátt verð er á vorkópa- skinnum. Um Hergilsey sem nú er í eyði má segja ,að með núver- andi verðlagi gefi hún af sér um 100 þúsund { hlunnindavörum. Og nú snúum við okkur að ræktunarmálunum og Aðal- steinn segir: Þau eru í mesta ólestri hjá okkur og má þar um kenna erfiðleikum á flutningi vinnuvéla milli eyja og svo eru menn uppteknir á vorin í hlunn- indunum, en nú er hægt að flytja þungavinnuvélar á milli eyjanna á pramma, sem ég hef smíðað og við hér í Hvallátrum eigum t.d. 6 og má ætla að úr þessu rætist á næstu árum. í Svefneyjum hefur verið gerð tilraun með kartöflurækt { stór- um stíl í ár, en veðráttan hefur verið þeim þung í skauti. Eg spyr um kálmaðkinn, en hann er ekki kominn þangað og eru víst orðnir fáir staðir á land inu, sem eiga þv{ láni að fagna að vera lausir við hann. Um heyskapinn er það að segja að alls staðar er meiri- 8>ó er hætt við að byggð ieggist niður í Breiða- ffarðar- eyfum vegum Sigurðar Ágústssonar um 900 fjár. Flæðihætta er mikil í eyjun- um og þarf því vakandi auga, ef ekki illa á að fara. Þá eru það verzlunarmálin. Þau eru nú í mikilli niðurlæg- ingu. Samvinnufélög sem hafa haldið uppi opinni verzlun s.l. 30 ár hafa gefizt upp og er það von mín segir Aðalsteinn að ein- staklingsframtakið leysi þar vandan eins og oft áður. Samgöngur eru svipaðar við eyjarnar allt árið. Eru áætlunar ferðir við eyjarnar með flóabát frá Stykkishólmi einu sinni í viku og með strandferðaskipi í Flatey tvisvar í mánuði. Hvernig eru svo framtíðar- horfurnar? Full hætta er á því að byggð í eyjunum leggist niður vegna þess að Flatey sem innt hefur af hendi alla þjónustu fyrir all- ar eyjarnar helzt tæplega í byggð> nema sérstakar ráðstaf* anir verði gerðar og verzlun er þar lögð niður að mestu, segir Aðalsteinn á Hvallátrum að lok — Blóbbrul' iup Framhald af bls. 8. hann mun hafa haft til þess mjög nauman tíma, svo sem siður er hér. En það er með öllu ástæðu- laust að ergja sig þess vegna, með því að þýðingin er með snilldar- brag, eins og áður er vikið að. Ég kann ekki spænsku, og því ekki dómbær á nákvæmni henn- ar. Ekki er þó að efa að hún sé samvizkusamlega unnin. Hitt kom mér skemmtilega á óvart að Bjarni Thorarensen gæti orðið pródúkt af Hannesi Sigfússyni og Garcia Lorca: eltir bjarma af eldi um .auðnir fjalla og dala! Mig vill mjöllin bera á sínum marmaraherðum og drekkja í úfnum öldum ískaldra heiðastjarna. Þýðingin býr víða yfir miklum töfrum — og í lokin hrein snilld. Og samt sem áður er hún með öllu tilgerðarlaus og þjál í munni. Ég býst við að leikendunum finn- ist þeir hafa „blóm í munninum“ þegar þeir hafa yfir þennan gull- fallega texta. Og að síðustu þetta: hver sem ann sannri list ætti ekki að láta sýningu þessa framhjá sér fara. Þá er orðið lítið eftir að lyrikk- inni í íslenzku blóði, ef mönnum leikur ekki hugur. á að kynnast verki sem þessu! Oddur Björnsson. Ferming í Laugorneshirhju sunnudaginn 18. okt. kl. 11 fii. (Séra Gunnar Arnason) Stúlkur: Gyða Thorsteinsson, Kópavogsbr. 12. Hrafnhildur Jóna Gísladóttir, Alfhóls- vegi 30. Katrín Ragnheiður Hjálmarsdóttir, Réttarholtsvegi 59. Alfa Kolbrún Þorsteinsdóttir, Mos- gerði 15. Helga Magnúsdóttir, Hæðargarði 40. Hulda Guðbjartsdóttir, Hæðargarði 18. Drengir: Guðmundur í>ór Svavarsson, Skjólbr S. Stefán Rúnar Jónsson, Birkihvammi 20. Einar Kári Sigurðsson, Asgarði 165. Stefán Sigurðsson, Asgarði 165. Ingimar Halldórsson, Breiðagerði 2. Steingrímur Magnússon, Borgarholts* braut 48. Þórður Helgi Bergmann, Mosgerði 10. Jóhannes Tryggvason, Búðargerði 9. Oddur Gíslason, Asgerði 67. Stefán Guðbjartsson, Hæðargarði 18 Jón Vattnes, í*inghólsbraut 23. Guðmundur Baldursson, Kópavogs- braut 39. • -oa.ft.xx ... ....................................... <búða rhúsin á Ilvallátrum, og húsið næst sjónum er smíðahús Aðalsteins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.