Morgunblaðið - 30.10.1959, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.10.1959, Blaðsíða 20
V EÐRIÐ Suðvestan kaldi ,skúrir 241. tbl. — Föstudagur 30. október 1959 íþróttir Sjá bls. 18. Vöttur strandaði við Nýfundnaland IFylgir það skemmdirnar séu veruiegar. fregninni botni togarans Áhöfnin heil á húfi FREGNIR hafa borizt um það vestan frá Nýfundna- landi að Austfjarðatogarinn Vöttur hafi strandað við hafnarbæinn St. John. Skips- höfnin er heil á húfi. Togarinn Vöttur, sem nú er gerður út frá Hafnarfirði, undir skipstjórn Karls B. Magnússonar, hafði orðið að hætta veiðum vegna bilunar í spili. Vöttur leitaði þá inn til hafn- arbæjarins St. John á Xýfundna- landi og var þar gert við tog- vinduna. Togarinn hafi svo látið úr höfn í fyrradag. Hafði skipið verið rétt utan við hafnarbæinn, að því er fregnir herma, er ó- happið vildi til. Strandaði togar- inn þar. ★ DREGINN Á FLOT Að því er frétzt hefur, mun botn skipsins hafa laskazt all- verulega. Stórt og öflugt björg- unarskip hafði farið Vetti til bjargar og dregið hann á flot og inn til hafnarbæjarins. Þjálfun / blindflugi FLUGFÉLAG íslands hefur nú fest kaup á mjög fullkomn um blmdflugstækjum til þjálf unar fyrir flugmenn. Hér er um að ræða eftirlíkingu af flugstjórnarklefa og þar munu flugmenn félagsins verða þjálfaðir í öllu því, sem að blindflugi lýtur. Blindflugstæki Flugfélagsins eru brezk, af Link-gerð. í>au verða nú brátt sett upp úti á Reykjavíkurflugvelli og mun Jóhann Gíslason, forstöðumaður flugumsjónardeildar félagsins, annast alla umsjón þeirra og þjálfun. 0 ÍC Dýr tæki Tæki sem þessi eru mjög dýr í innkaupi. Á fyrstu árunum eft- ir styrjöldina var einn slíkur „flugstjórnarklefi" til hér og var hann í eigu flugmálastjómarinn- ar. Var hér þá Breti, sem kenndi nýliðum blindflug með aðstoð þessa útbúnaðar. Síðan hafa allir íslenzkir flug- menn orðið að sækja þjálfun sína í blindflugi til útlanda. Flug- menn Flugfélagsins hafa reglu- lega verið þjálfaðir í Evrópu, en flugmenn Loftleiða í Ameríku. Kvöldiagnoður Sjálfstæðisfélögin á Akureyri efna til kvöldfagnaðar á Hótel KEA á laugardagsk völdið kl. 9 eJi. fyrir þá sem störfuðu fyrir D-Iistann í alþingiskosningunum s.l. sunnudag. Aðgöngumiðar verða afhentir á skrifstofu fé- laganna á laugardaginn kl. 2—4. Vegna takmarkaðs húsrýmis er starfsmönnum bent á að vitja miða sinna í tíma. 18 manns farast í flugslysi AÞENU, 29. okt. Reuter. — Flug- vél með 18 manns innan borðs fórst í dag nálægt Tanagra fyrir norðan Aþenu. Lögreglan hefur fundið flakið. 1 flugvélinni voru 15 farþegar og 3 menn í áhöfn- inni. Vélin var á leið frá Aþenu til Þessalóníku. Flugvélin var af gerðinni DC-3 og var í eigu Olympic Airways. — Síðustu fregnir herma að enginn hafi I komizt af. ★ Öryggi Það er því mikill fengur að þessum tækjum fyrir íslenzka flugmenn og flugfélögin, því gamlir flugmenn jafnt sem ný- liðar verða reglulega að njóta þjálfunar í blindflugi. Þannig lítur brezkur teiknari á hlutleysisstefnu Nehrus. Engar viðræður hafnar um stjórnar- myndun AÐ því er Morgunblaðið frétti í gær hafði forseti íslands enn ekki haft viðræður við stjórn- væntanlega Seinagangur með talningu ÍSAFIRÐI, 29. okt. — Eftir hinn langa fund yfirkjörstjórnarinnar hér, urðu þau úrslit mála varð- andi vafaatkvæðin sex sem Með bátafisk til Aberdeen ÓLAFSVÍK, 29. okt.: — Héðan ganga nú á hverjum degi 10 línu- bátar og hafa þeir fiskað 3—6 tonn af fiski. Er þessi fiskur hið bezta hráefni til vinnslu í hrað- frystihúsunum, og ólíku saman að jafna, gæðum hans og netjafisks- ins. Einmitt svona fisk, einkum ýsu, 37 tonn lagði togskipið Stapafell af stað með til Aberdeen í nótt. Þar á að selja aflann á mánu- daginn kemur. Var fiskurinn, sem er að mestu leyti bátafiskur, eins og fyrr getur, ísaður í 15—20 tonn af ís, og standa vonir til þess að gott verð fáist fyrir slíkan úr- valsfarm. minnst hefur verið á í fréttum, að ákveðið var að skjóta ágrein- ingsmáli þessu til dómsmálaráðu neytisins og Alþingis, eins og bæj arfógetinn komst að orði. Voru atkvæðin, sem hér um ræðir sett í umslög og innsigluð. Á annað hundrað atkvæðaseðl- um hafi átt sér stað tilfærzlur á nöfnum frambjóðenda. Varðandi þann ótrúlega drátt, sem á því varð að talning at- kvæða úr kjördæminu hæfist, gat bæjarfógetinn þess, að það hefði stafað af því að í 9 kjör- deildum hafði gleymzt að setja kjörskrána með öðrum kjörgögn um. Varð því að síma til undir- kjörstjórnanna á þessum stöðum og fá öll nöfnin uppgefin í síma. Var þetta eðlilega mjög seinunn- ið verk. — Fréttaritari. MEXÍKÓBORG, 29. okt: — Full- trúadeild mexíkanska þingsins hefur -samþykkt frumvarp frá öldungadeildinni um að vikka landhelgina út í 9 sjómílur. Er hér um að ræða breytingu á 27. grein í stjórnarskrá Maxíkó. Osamkomulag um landanir í Grimsby Grimsby, 29. okt. Einkaskeyti til Mbl. SKIPSTJÓRAR og stýrimenn á brezkum togurum skýrðu í dag frá því á fundi með öll- um greinum fiskiðnaðarins í Bretlandi, að andstaða þeirra við landanir á íslenzkum fisk' hefði í engu breytzt. Fundinn sátu fulltrúar togaraeigenda, yfirmenn á skipum, vélstjórar og fulltrúar uppskipunar- manna. Fundinum lauk án þess að samkomulag yrði um sameig- inlega stefnu. t yfirlýsingu, sem gefin var út eftir fundinn, segir að frekari viðræður fari fram síðar. Togarinn Steingrímur trölli lagðist að bryggju í gærkvöldi með um 75 þúsund tonn af fiski. Búizt var við að land- að yrði.úr honum án nokk- urra erfiðleika, þannig, að fiskurinn komist á markaðinn á morgun. málaflokkana um st j ór na rmyndun. Að sögn Alþýðublaðsins mun ríkisstjórn Emils Jónssonar ekki segja af sér, heldur sitja eins og áður sem minnihlutastjórn, unz stjórnmálaflokkarnir hafa komið sér saman um myndun meiri- hlutastjórnar. Tíminn skýrir hins vegar svo frá í gær, að ríkisstjórnin muni biðjast lausnar þegar er yfirkjör- stjórn hafi lokið útreikningum á atkvæðatölum. Hvað sem því líður hvenær stjórnin segir af sér, munu nú vera að hefjast athuganir á mögu leikum nýrrar stjómarmyndun- ar, fyrst innan flokkanna, en síð- an milli flokka. Tal teflir við! Botvinnik TAL ávann sér í dag réttinn til að keppa við heimsmeistarann í skák, Boívinnik. Tal vann áskor- endamótið sem háð var í Júgó- slaviu. Hann hlaut 20 vinninga af 28 mögulegum. 1 siðustu umferð mætti Tal Benkö og gerði jafntefli við hann eftir að Benkö tókst að þráskáka. Aðrar skákir fóru þannig að Fischer vann Smyslov í 54 leikj- um. Biðskák varð hjá Friðrik Ól- afssyni og Keres og hefur Frið- rik vinningslíkur. Petrosjan á einnig vinningslíkur gegn Glig- Hneyksli við veit ingu embœttis M A G N Ú S Jochumsson, póstmeistari, hefur látið af embætti og við hefur tekið Matthías Guðmundsson, full- trúi í tollpóststofunni. — Hefur embættisveiting þessi vakið undrun innan póst- mannastéttarinnar, því að allir töldu að Sveinn Björns- son fulltrúi yrði valinn eftir- maður póstmeistara, énda hef ur hann tíðum gegnt embætti hans í fjarveru, og hinn hæf- asti maður til starfsins. ic Löng reynsla Embætti póstmeistara var í sumar slegið upp lausu til um- sóknar. Sóttu um það 4 menn. Skal fyrstan telja Svein Björns- son fulltrúa, sem verið hefur í þjónustu póstsins hér síðan 1920. Hefur hann gegnt embætti póst- meistara í forföllum og fjarver- um. Aðrir sem um embættið sóttu voru Helgi Björgvin Björnsson fulltrúi, sem á að baki sér jafn- langan starfsferil við póstinn og Sveinn. Þriðji maður er Þórður Halldórsson póstmeistari á Kefla- víkurflugvelli og Matthías Guð- mundsson við tollpóststofuna. Póstmálastjórnin mælti ein- dregið með því að embættið yrði veitt Sveini Björnssyni. Á Hneyksli í gærdag veitti ráðherra póst. mála, Emil Jónsson, forsætisráð- herra, embætti þetta Matthíasi Guðmundssyni. Hafði Matthíasi verið veitt embættið frá 1. janúar n.k. að telja og hafði ráðherrann með þessu virt að engu tillögur póst- málastjórnar. vegna Urðu þjóíar bíladellu RANNSÓKNARLÖGREGLAN í Reykjavík. hefur undanfarna daga verið að rannsaka mál tveggja bræðra, sem hafa verið haldnir ólæknandi bíladellu, en vegna hennar hafa þeir lent út á hálar brautir. Hafa bræðurnir haft þann hátt á að fara á milli bíilasala hér i bænum, kaupa bíla, án þess að greiða nokkurn hluta andvirðis- ins við afhendingu. Þegar greiða þurfti, hafa þeir talið sig blanka og þar með skilað bílunum aftur. Þetta hefur gengið þannig fyrir sig í þó nokkur skipti. Bílunum hafa þeir haldið gang andi með því að stela í þá benzíni og varahlutum. Þá hefur það dregizt inn í þetta mál, að þeir greiddu eigi leigu fyrir herbergi. sem þeir höfðu haft. Höfðu þeir sofið í bíl- um um nokkurt skeið, því það var eina þakið, sem þeir höfðu yfir höfuð sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.