Morgunblaðið - 08.11.1959, Page 2
2
MORCVNBTADIÐ
Sunnudagur 8 .nðv. 1959
Um 1000 manns hafa komið á málverkasýningu Veturliða
Gunnarssonar í Listamannaskálanum. Hefur listamaðurinn nú
selt rúmlega 40 myndir. t kvöld kl. 11 lýkur sýningunni. —
Þessi mynd var tekin af Veturliða á sýningu sinni.
Frestskosningar
í Hornafirði
HÖFN, Hornafirði, 7. nóvember:
— Á morgun fara fram prests-
kosningar í Bjarnanespresta-
kalli í Hornafirði. Kosið verður
milli tveggja umsækjenda, guð-
fraeðikandidatanna, Odds Thorar
ensen og Skarphéðins Pétursson-
ar.
Kosið er í þremur sóknum,
Bjrananess-, Hafnar- og Stfafells
sókn. Á kjörskra eru 500 til 600
manns. — Gunnar.
Gabbaði maður
slökkviliðið?
LáUST fyrir klukkan 1 í nótt,
rufu „'sírenur" slökkviliðsbílanna
næturkyrrðina í norðanverðum
Vesturbænum. Kall hafði komið
frá brunaboðanum á horni Rán-
argötu og Framnesvegar.Þetta var
þegar til kom gabb. Lögreglan
var kvödd á staðinn og hóf hún
þegar leit. Sporrækt var. Eftir
nokkra stund hafði lögreglunni
tekist að finna á Vesturgötunni
ungan mann. Var hann handtek-
iim og fluttur á lögreglustöðina
og settur í samband við þetta
mál. Síðdegis í gær hafði rann-
sóknarlögreglan ekki fengið í
hendur skýrslu um handtöku
mannsins. Af þeim sökum lá það
ekki fyrir hvort tekizt hafi að
ná í mann þann, sem gabbaði
hafði slökkviliðið.
Bílastæði
ÞESS mun sksmmt að bíða að
lagt verði bann við því að
bílum sé lagt við Smiðjustíg-
inn, á milli Hverfisgötu og Lind-
argötu. Er stígur þessi mjög mjór,
en er óspart notaður sem bíla-
stæði. Samþykkti bæjarráð að
mæla með tillögu umferðarnefnd
ar að banna bílastöður á stígn-
um.
Veitingaleyfi
Á FUNDI bæjarráðs á föstu-
daginn, samþ. það að mæla með
því að veita tveim einstakling-
um veitingaleyfi hér í bænum.
Ingólfi Péturssyni og Jóhönnu B.
Sigurðardóttur. Hafði veitinga-
leyfisnefnd fjallað um málið og
jagt til að leyfið yrði veitt.
Tónleikar kamm-
ermúsíkklúbbsins
í DAG kl. 3, heldur Kammer-
músikklúbburinn sína 5. tónleika
í samkomusal Melaskólans. Leik-
ur þar strengjasveit undir for-
ystu Björns Ólafssonar.
Á efnisskránni eru: Concerto
Grosso No. 8 í G-moll, eftir A.
Corelli, jólakonsert fyrir 2 ein-
leiksfiðlur, einleikscelló, sembal
og strengjasveit . Þá verður
Brandenborgarconsert no. 4 í G-
dúr fyrir einleiksfiðlu, tvær
flautur, sembal og strengjasveit
eftir J. S. Bach.
Afvinna
Oss vantar lagtækan mann til að annast viðhald,
endurnýjun og eftirlit á farþegarými flugvéla félags-
ins. Væntanlegir umsækjendur sendi skriflegar um-
sóknir er greini aldur og fyrri störf, fyrir 15. nóv.
næst komandi.
Aðalfundur
Austfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldinn í
Breiðfirðingabúð sunnudaginn 15. nóv. kl. 2.30
Venjuleg aðalfun ^ s’-örf.
Stjórnin
Fiskaflinn meiri en í fyrra
í SKÝRSLU frá Fiskifélagi ís-
lands um fiskaflann segir, að
í septemberlok hafi heildaraflinn
verið rúmlega 487,600 tonn. Þar
af hafi samanlagður afli togar-
anna og bátanna verið orðinn
327.694 tonn, en sildaraflinn er
tæplega 160,000 tonn.
Miðað við aflann á sama tíma
í fyrra, er um að ræða aflaaukn-
ingu, er nemur um 6,300 tonnum
Við sundurliðun aflans kemur í
ljós, að mest hefur veiðzt af
þorski eða yfir 200 þúsund tonn.
Næst kemur karfinn, tæplega 86
þúsund tonn. Þorskaflinn er
nokkru minni í ár en í fyrra, en
karfaaflinn nokkru meiri.
Mest af fiskinum hefur farið
í hraðfrystingu, eða rúmlega 200
þúsund tonn. Til söltunar hafa
Hafsteinn Aust-
mann sýnir
að Týsgötu 1
LISTVERZLUN Guðmundar
Árnasonar, Týsgötu 1 sýnir um
þessar mundir listaverk eftir
Hafstein Austmann, listmálara í
húsakynnum sínum, en verzlunin
hefur tekið upp þá nýbreytni,
að hafa eingöngu til sýnis lista-
verk eftir einn listamann í senn.
Stendur hver sölusýning í 10
daga. Hafsteinn Austmann sýnir
að þessu sinni 20 vatnslitamynd-
ir, sem hann hefur unnið í sum-
ar. Hann hélt síðast sjálfstæða
sýningu í fyrra í Listamannaskál
anum, en tók aulj þess þátt í
Norrænu listasýningunni í
Odense í vor og samsýningu fé-
lags íslenzkra listamanna í Lista-
mannaskálanum nýverið.
í DAG er sjötugur Sveinn Þórð-
aarson, fyrrum bóndi og hótel-
eigandi.Hann er fæddur að Höfða
í Höfðahverfi og ólst þar «pp
í föðurgarði, en foreldrar hans
voru merkishjónin Guðrún
Sveinsdóttir og Þórður Gunnars-
son. Árið 1912 kvæntist Sveinn
Sigurlaugu Vilhjálmsdóttur frá
Nesi í Höfðahverfi. Hófu þau svo
búskap þar og bjuggu þar til
1928, að þau fluttust hingað til
bæjarins. Fyrstu árin vann
Sveinn við verzlunarstörf og
bankastarf, en 1935 keypti hann
Hótel Gullfoss og rak það í 8 ár.
Síðan hann hætti hótelrekstri
sínum, hefur hann unnið skrif-
stofustörf, bæði hjá bæjarfélag-
inu og hjá útgerðarfélagi Akur-
! eyringa hf. frá stofnun þess.
I Sveinn Þórðarson er vinsæll
maður, enda vinmargur. Hann
hefur verið góður og nýtur starfs
maður að hverju starfi, sem hann
hefur gengið, hvort heldur hann
hefur verið sjálfs sín húsbóndi,
eða unnið hjá öðrum. Hann er
traustur maður, árvakur, skap-
fastur og samvizkusamur. Heimili
þeirra hjóna hefur jafnan borið
1 af að glæsi- og myndarbrag. Er
farið tæplega 63 þúsund tonn,
og til herzlu tæp 40 þúsund tonn.
Bætt flugvéla-
afgreiðsla
í Straumfirði
KAUPMANNAHÖFN, 7. nóv. —
Að undanförnu hafa fulltrúar
dönsku og bandarísku stjórnar-
innar ræðzt við um framtíð flug
stöðvarinnar við Syðri-Straum-
fjörð á vesturströnd Grænlands.
— Þar hafa Bandaríkjamenn her
bækistöðvar, en flughöfnin er
einnig notuð af farþegaflugvélum
á leið frá N-Evrópu til N-Ame-
ríku. Þetta eru aðallega banda-
rískar flugvélar og vélar SAS.
Að þessu sinni var aðallega
fjallað um tilhögun í sambandi
við lendingar farþegaflugvéla á
flugvellinum, en engin breyting
gerð á samningi Bandaríkja-
manna og Dana frá 1951 um
bandarískar herstöðvar í Syðri-
Straumfirði. Mun ráðgert að
bæta sem bezt úr hvað afgreiðslu
farþegavéla snertir í samvinnu
við bandaríska herinn.
16. UMFERÐ ensku deildarkeppn
innar fór fram í gær og urðu
úrslit leikjanna þessi:
1. deild:
Birmingham — Luton ............ 1:1
Burnley — Woiverhampton ....... 4:1
Chelsea — Blackburn ........... 3:1
Leeds — Arsenal ................ 3:2
Leicester — Sheffield W....... 2:0
Manchester U. — Fuiham ........ 3:3
Newcastle — Everton ........... 8:2
Preston — N. Forest............ 1:0
Tottenham — Bolton ............ 0:2
W. B. A. — Blackpool .......... 2:1
West Ham — Manchester City .... 4:1
2. deild:
Bristol City — Portsmouth ..... 2:0
Cardiff — Swansea ............ 2:1
Charlton — Sunderland ......... 3:1
Derby — Leyton Orient ......... 1:1
Huli — Bristol Rovers ........ 3:1
Liverpool — Aston Villa ....... 2:1
Middlesborough — Huddersfield 1:0
Plymouth — Lincoln .......... 0:2
Rotterham — Brighton ....„..... 1:0
Scunthorpe — Stoke ............ 1:1
Sheffield U. — Ipswich ........ 1:0
Að 16 umferðum loknum er
staðan þessi:
1. deild (efstu og neSstu liSin)
Tottenham 16 8 6 2 36:19 22
West Ham 16 8 5 3 31:20 21
ekki vafi að margir muni hugsa
þangað með hlýhug á sjötugs-
afmæli húsbóndans. —vig.
Myndu fylla í
mar gar síður
Þ A Ð myndi fylla margar
síður í Dagbókinni, ef við
skrifuðum niður allar þær
kærur, sem okkur hafa bor-
izt í dag, vegna snjókasts
stráka og annara óláta
barna í snjónum. Eitthvað
á þessa leið fórust stöðvar-
manninum á lögreglustöð- L
inni orð í gær við Mbl.
En það voru einnig mikl-
ar annir hjá lögreglunni
vegna fjölda bílaárekstra á
hálkunni. Slys höfðu ekki
orðið á fólki.
Um fiádegisbilið var
fjögra ára snáði fluttur í |
slysavarðstofuna. Hafði i
hann verið á sleða og orðið J
fyrir bíl og hldtið höfuð- J
högg og áverka undan I
högginu. I
Á förum til
Bandaríkjanna
ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrir frá þvi
í gær, að Helgi Þorsteinsson, for-
maður stjórnar HÍS og Olíufé-
lagsins hf., og Vilhjálmur Jóns-
son, núverandi framkvæmda-
stjóri félaganna, séu á förum til
Bandaríkj anna.
Preston 16 9 3 4 34:27 21
W olverhampton 16 9 2 5 46:33 20
Burnley 16 9 2 5 35:30 20
Blackpool 16 4 4 8 21:28 12
Everton 16 4 4 8 26:33 12
Birmingham 16 3 5 8 21:29 11
Luton 16 2 5 9 13:29 9
2. deild (efstu og neðstu liðin)
Aston Villa 17 10 5 2 29:15 25
Cardiff 16 10 5 1 33:20 25
Rotherham 16 8 6 1 31:21 22
Middlesborough 16 8 4 4 34:?2 20
Bristol City 15 5 1 9 22:30 11
Derby 16 4 3 9 24:37 11
Plymouth 16 3 4 9 21:36 10
Hull 16 3 3 10 15:40 9
Portsmouth 16 2 4 10 17:33 8
Einmuna tíð
SEYÐISFIRÐI, 7. nóv. — Ein-
munatíð hefur verið hér undan-
farið, og er enn fært öllum bílum
yfir Fjarðarheiði, sem er alveg
snjólaus. Er það mjög óvenjulegt
um þetta leyti árs. Þrír bátar
hafa róið héðan með línu í haust,
og hafa þeir fiskað sæmilega, 10
—14 skippund í róðri. Saltsíldin
— um 4000 tunnur, sem salt-
aðar voru hér í sumar — er ekki
enn farin héðan, en búizt er við
að hún verði flutt til Rússland og
Finnlands fyrir mánaðamót
næstkomandi. Vegna þess hvað
tíðarfar hér hefur verið gott, er
enn unnið að húsbyggingum, og
atvinna af þeim sökum nægileg.
Sakamálaleikurinn „Músagildran“ hefur gengið mjög vel hjá
Leikfélagi Kópavogs og verður 10. sýning á leiknum nk. þriðju-
dag. — Agatha Christie er mjög vinsæll höfundur hér á landi
og er ekki að efa að aðdáendur hennar hafi hug á að sjá
„Músagildruna". — Myndin er af Birni Magnússyni og Arn-
hildi Jónsdóttur í hlutverkum sínum.
Sveinn Þórðarson 70 ára
Enska knattspyrnan