Morgunblaðið - 08.11.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.11.1959, Blaðsíða 24
V EÐRID SV kaldi — él. Hvass Sunnan með morgninum. •249. tbl. — Sunnudagur 8. nóvember 1959 Reykjavíkurbréf er á blaðsíðu 13. Vafnabát- ur á tízku- sýningu BÁTASÝNINGAR og tízku- sýningar hafa tíðast verið aðskildar, en í Lido á föstu- dagskvöldið bar það til tíð- inda að Skipasmíðastöð Njarðvíkur sýndi þar vatnabát úr plasti og trefja- gleri, sem er svo léttur, að tvær smátelpur geta borið hann á milli sin. En því miður komst báturinn ekki inn um dyrnar á veitinga- salnum og urðu gestir að láta sér nægja að skoða hann í forstofunni. Mynd- in að ofan er af plastbátn- um og þeim, sem að tízku- kabarettinum standa og má segja að þar séu „allir í sama bát“. Nánar um yýn- inguna á KvennatV'u blaðsins. Holræsafram- kvæmdir ákveðnar A FUNDI bæjarráðs á föstudag- inn voru ákveðnar nokkrar fram kvæmdir við holræsagerð, og lán veiting til þessara framkvæmda. Fer hér á eftir yfirlit um þessar framkvæmdir og hvað varið verð ur miklu fé til hvers verks. Stigahlíð (austurhluti) 150 þús. kr., Hallarmúli 490 þús. kr., Suðurlandsbraut (Hallarmúli — Vegmúli) 1.400 þús. kr., Ármúli (Háaleitisbr. — austur fyrir Hall- armúla) 600 þús. kr., Háaleitis- braut 140 þús. kr., Austurbrún 290 þús kr. Hvorki Hafnfirðingurinn né „vinur44 hans finnast ENN hefur ekki tekizt að hafa upp á hinum týnda pilti úr Hafn- arfirði, Baldri Jafetssyni. Það er nú vika síðan hann fór að heim- an frá sér. Talið er að hann hafi sézt inni í Langholti á þriðju- daginn var. Þegar lögreglan i Hafnarfirði lýsti eftir piltinum, hafði hann á sunnudaginn var, sézt í fylgd með ungum togarasjómanni, ljós- um yfirlitum, suður i Hafnarfirði. Telur Hafnarfjarðarlögreglan sig hafa vitneskju um það, að þessi ungi sjómaður sé Gunnar S. Gunnarsson, er síðast var skip- verji á togaranum Þorkeli Mána frá Reykjavík. Hafði Gunnar þessi farið af skipinu fyrra laugardag. Hefur hans verið leitað árangurslaust. Hann virðist engan samastað eiga hér í bænum, og hefur ekkert samband haft við ættingja sína. Ekki er vitað til þess að Gunnar hafi verið skráður á annað skip eftir að hann fór af togaranum Þorkeli Mána. Hafnarfjarðarlögreglan hefur fengið upplýsingar um það frá konu einni við Langholtsveginn, að þangað muni Baldur hafa komið á þriðjudaginn var. Hafi hann beðið um að hringja fyrir sig á bíl. Hafði konan gert það. Ekki hafði Baldur komið inn. Hann var sýnilega undir áhrifum áfengis. Þegar leigubíllinn kom, var maðurinn horfinn. Konan gaf Hafnarfjarðarlög- reglunni þessar upplýsingar, er hún hafði séð mynd af piltinum, tveim dögum síðar. Ekki er talin ástæða til þess að draga í efa að hér hafi verið kominn Baldur Jafetsson. Um leið og lögreglan leitar nú upplýsinga um ferðir Baldurs, þá leitar hún og upplýsinga um ferðir Gunnars S. Gunnarssonar. Lögreglan telur að möguleiki sé á því, að þeir Gunnar og Baldur séu einhvers staðar saman. Mun sú skoðun vera ríkjandi hjá lög- reglu Hafnarfjarðar, því báðir eru piltarnir vínhneigðir nokkuð. Lögreglan í Hafnarfirði telur sig ekki geta hafið skipulega dauðaleit fyrr en henni hefur tek izt að hafa samband við Gunnar S. Gunnarsson eða að fengnum frekari upplýsingum um ferðir Baldurs. Eru allir, ■ sem aðstoð geta veitt í þessu máli, hvattir til samstarfs við lögregluna. Með hverjum deginum sem líð- ur verður málið alvarlegra. Segja má að í rauninni sé tveggja manna nú saknað. (jrafið úr ryki Hand- og fóthlekkir — hreinlætistæki úr konungsförinni 1907 LÁRUS Sigurbjörnsson, skjala- vörður hefur undanfarið unnið að því, að skrásetja ýmsa gamla og þjóðlega muni, sem hann hef- ur grafið úr ryki gleymskunnar. Kennir þar margra grasa. Má t. d. nefna hreinlætistæki úr konungs förinni 1907, handvaska og ferða servant í blikkumbúðum, sem ástæða er tii að ætla að hafi verið í tjaldi konungsins sjálfs, i för hans til Þingvaila og Geys- is. — Fundust þeir á háalofti í hús> =>inu hér ! bæ. Á háaioftinu 1 hegningarhús- inu, giuggaláusu skúmaskoti, fann Lárus með góðri hjálp fanga varðar ýmislegt dót, m.a. einn tví hjóla rokk, en þeir eru mjög sjald gæfir, og allmarga spunarokka og spólur, er Sigurður Jónsson, fangavörður, sonur Jóns Guð- mundssonar ritstjóra, lét fangana nota við teppagerð og spuna. Er eitt teppi, sem fangarnir unnu, til á safninu að Skúlagötu 2. Það er um 80 ára gamalt, unn- ið úr íslenzkri ull, mjög vand- virknislega gert, enn okkuð far- ið að láta ásjá. Það fannst í sjó- búðunum á Vesturgötu 7. — Þá fundu þeir, fangavörðurinn og Lárus, hand- og fóthlekki, sem notaðir voru á stórafbrotamenn. Pétur Benediktsson Pétur Benediktsson for- maður Stúdentafélagsins RáHhúsmáliii rœtt hjá Stúdentafélaginu STÚDENTAFÉLAG Reykjavík- ur efnir til umræðufundar í Sjálfstæðishúsinu kl. 3 e. h. í dag. Verður þar tekið fyrir hið mjög umdeilda ráðhúsmál, og verða frummælendur þeir Gunn- ar Thoroddsen borgarstjóri og Sigurður Þórarinsson jarðfræð- ingur. Má búast við fjörugum umræðum,. því fá mál vekja meiri hita í umræðum manna á meðal en einmitt ráðhúsmálið. Fundurinn í dag er opinn öll- um sem áhuga hafa á málinu, en fyrir þá sem ekki hafa félags- skírteini Stúdentafélagsins er að- gangseyrir 10 krónur. Menn geta fengið keyptar veitingar fyrir og eftir fundinn. AÐALFUNDUR Stúdentafélags Reykjavíkur var haldinn í Sjálf- stæðishúsinu. — Fundarstjóri var kosinn Barði Friðriksson, og gaf hann íráfarandi formanni, Eyjólfi K. Jónssyni, orðið. Flutti hann skýrslu stjórnarinnar og rakti í stuttu máli það sem gert hefur verið undanfarið ár. 1 stjórn félagsins voru auk hans Sigurður A. Magnússon varafor- maður, Gunnar Hólmsteinsson ritari, Helgi Hjálmsson gjald- keri og Helgi Þórðarson með- stjórnandi. Eyólfur sagði frá fullveldis- fagnaðinum í fyrra, áramóta- dansleiknum, tveimur fjölsóttum umræðufundum, þorrablóti, sum- arfagnaði og ýmsum öðrum skemmtunum. Einnig skýrði hann frá heimsókn Valdimars Björnssonar fjármálaráðherra, og fyrirhuguðum heimsóknum þeirra Tryggve Lie og Arthurs Millers, en báðir þessir menn urðu að afþakka boðin sökum anna. Þá gekkst félagið fyrir fyrirlestri menntamanns frá Indónesíu, dr. Alisjahbana, í sam- vinnu við PEN-félagið og Frjálsa 1 menningu. Loks kvað formaður inn fráfarandi stjórn hafa safn- að þeim gögnum félagsins frá fyrstu tíð, sem hægt var að finna, og komið þeim fyrir í háskólabókasafninu. Næst flutti gjaldkerinn, Helgi Hjálmsson, skýrslu sína og kom í ljós, að fráfarandi stjórn hefur lækkað skuldir félagsins um rúmar 18 þúsund krónur, þannig að þær eru nú rúmlega 20 þús- und krónur. Þá fór fram stjórnarkjör, og var Pétur Benediktsson banka- stjóri einróma kosinn formaður. Aðrir í stjórn voru kosnir Gunn- laugur Björnsson viðskiptafræð- ingur, Hrafn Þórisson bankamað- ur, Sigurður Guðmundsson blaða- maður og Tómas Karlsson stud. jur. I varastjórn voru kosnir Einar Arnason lögfræðingur, Árni Einarsson kennari, Stefanía Pétursdóttir skrifstofustúlka, Agnar Biering fulltrúi og Hauk- ur Pálmason verkfræðingur. Endurskoðendur voru endur- kjörnir þeir Sigurður Baldurs- son hdl. og Haraldur Árnason verkfræðingur, en til vara voru kosnir Kristinn Baldursson og Björn Arnason. Til viðbótar því, sem hér hefur verið nefnt, má og geta læknis- áhalda Björns Ólafssonar, falleg og „complet" tæki, eins og þau tíðkuðuzt um aldamótin. Margir munanna, sem fundizt hafa, eru komnir upp að Ártúni, og verða til sýnis næsta voor. Nj arð víki n gurirm er heiU á húfi ÞAD var skýrt fra því í blaðinu í gær, að menn væru farmr að undrast um Styrmi Proppé, Reykjanesbraut 8, í Ytri-Njarð- vík. Hafði ekkert spurzt til hans frá því nokkru eftir hádegi á sunnudaginn var. Ekki er ástæða til óttasl um afdrif mannsins. í gær fékk Mbl. vitneskju um að maðurinn hefði sézt í húsi Morgunblaðsins heill heilsu og hinn brattasti. Breiðadalsheiði enn fær ÍSAFIRÐI, 7. nóv.: — Róðrar eru enn ekki hafnir hér á ísafirði, en hefjast væntanlega á næst- unni. Verða gerðir út fleiri bát- ar en í fyrra, en illa mun ganga að fá mannskap á bátana. Togara útgerðin hefur gengið illa vegna aflatregðu. Hér er nú kominn snjór, en þó er enn fært yfir Breiðadals- heiði. Kom bíll yfir heiðina frá Reykjavík í fyrradag. Mun leið- inni væntanlega haldið lenegur opinni með ýtum en í fyrra. Ein allslierjar- bókhlaða á Melimum SVO sem kunnugt er, eru nú uppi ráðagerðir um það, að sameina í einni allsherjarbók- hlöðu Landsbókasafnið og Háskólabókasafnið. Hefur þetta mál verið á dagskrá í nokkur ár. Mun hvorttveggja koma til, að þrengsla gætir meir í báðum bókasafnsbygg- ingunum og að heppilegt er talið að hafa söfnin undir einu þak.i Á fundi bæjarráðs á föstu- daginn var, bar lítillega á góma bygging bókhlöðunnar. Henni er ætlað að rísa á Mel- unum og samþykkti bæjarráð að óska umsagnar samvinnu- nefndar um skipulagsmál um staðarvalið. Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt heldur fund í Sjálfstæðishúsinu kl. 8,30 annað kvöld, mánudags- kvöld. Þar tala hinar nýkjörnu alþingiskonur frú Auður Auðuns og frú Ragnhildur Helgadóttir. Þá syngur Kristinn Hallsson óperusöngvari með undirleik Fritz Weisshappel, og að lokum verður kaffidrykkja og dans. Allar Sjálfstæðiskonur vel- komnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.