Morgunblaðið - 11.11.1959, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 11. nóv. 1959
MORCVNBLAÐIÐ
Stærsti kjarn-
orkukaíbáturinn
New York, 10. nóv. (NTB/AFP)
BANDARÍSKA flotanum bættist
enn einn kjarnorkukafbáturinn í
dag. — Við liátíðlega athöfn í
Connecticut var flotanum afhent
ur stærsti kjarnorkukafbátur,
sem smíðaður hefir verið til
þessa, „Triton“ en hann er 5900
lestir að stærð.
Kafbátur þessi er 134 metra
langur og á honum verður 173
manna áhöfn. Hann er búinn
tveim vélasamstæðum, drifnum
kjarnorkiu. — Gert er ráð fyrir,
að „Triton“ verði m.a. notaður til
hafrannsókna.
Stórbruni
U M helgina kviknaði í
12.000 lesta olíuflutninga
skipi, „Amoco Virginia“,
þar sem það lá í höfninni
í Houston í Texas. Urðu
sprengingar miklar í skip
inu og eldhafið geysilegt.
Um tíma leit svo út sem
eldhafið mundi komast í
benzíngeyma í landi, en
þá eru öll líkindi til, að
stór borgarhluti hefði
brunnið til grunna. —
Ttuttugu og tveir menn
af áhöfn skipsins fórust
í bruna þessum og 21 var
fluttur í sjúkrahús með
meiri og minni brunasár.
Myndin hér að ofan
sýnir hið feiknlega eld-
og reykhaf, þegar brun-
inn stóð sem hæst.
Vinnuveifendasambandiíí rœðir v/ð-
horf í kaupgjaldsmálum
Athugun á vetrarorlofsferÖum
í SL. viku var haldinn fundur
í stjórn Vinnuveitendasambands
Islands til að ræða viðhorf það,
sem skapazt hefur í kaupgjalds-
málum við, að nær öll verkalýðs-
félög í landinu hafa nú sagt upp
kaup- og kjarasamningum sínum
við vinnuveitendur.
Formaður Vinnuveitendasam-
bandsins, Kjartan Thors, ræddi
mál þessi í framsöguræðu. Yfir-
leitt hafa enn ekki borizt kröfur
um breytingar á samningum og
kvað formaður ekki líkur á, að
þær bærust fyrr en í desember.
Björgvin Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins, skýrði frá fasta-
nefndafundi norrænu vinnuveit-
endasamtakanna, er haldinn var
í Kaupmannahöfn 27.—29. ágúst
sl. og hann og formaður Vinnu-
veitendasambandsins sóttu af
hálfu þess.
Þá flutti Björgvin erindi um
samninga og viðskipti vinnuveit-
endasambandanna í Noregi, Dan-
mörku, Finnlandi og Svíþjóð við
systurfélög Stefs hér.
íslenzka Stef leitar nú eftir
samningum við vinnuveitendur
um greiðslu fyrir útvarpstónlist
á vinnustöðum.
Hefur Vinnuveitendasamband-
ið kjörið þá Kjartan Thors,
Benedikt Gröndal og Björgvin
Sigurðsson til viðræðna við for-
svarsmenn Stefs.
Það skal þó tekið fram að
Vinnuveitendasamband íslands
hefur ekki viðurkennt greiðslu-
skyldu vegna tónlistarflutnings á
vinnustað.
Vetrarorlof
Árni Brynjólfsson, rafvirkja-
meistari, kvaddi sér hljóðs og
bar fram tillögu um það, að
Vinnuveitendasambandið beitti
sér fyrir því, að fram færi athug-
un á, hvort ekki væri framkvæm
anlegt að koma á skipulögðum
„Miss WorId“
’ LONDON, 10. nóv. NTB-Reut-3
J er: — Ungfrú Holland, CorineJ
Rottschafter, 21 árs gömul,
bláeygð og Ijóshærð, var!
[ kjörin „Miss World“ í feg-
■ urðarsamkeppni hér í borg í|
! dag. — Auk hennar komust'
1 ungfrú Bretland, ísrael, Dan-|
! mörk og Perú í úrslit. Ungfrúv
! Perú hlaut annað sætið, en'
vj ungfrú ísrael hið þriðja, en .
þær eru báðar dökkhærðar á '
brún og brá.
Ungfrú Holland, sem hefir'
hin glæsilegu „mál“ 37 — 22 ^
37, hlaut að verðlaunum 500;
sterlingspund og glæsilegaí
bifreið — fyrir utan gullsleg-.
ið viðurkenningarmerki.
orlofsferðum til suðlægari landa,
t. d. Miðjarðarhafslanda, mánuð-
ina desember, janúar og febrúar.
í greinargerð, sem fylgdi til-
lögunni, er m. a. bent á, að eins
og orlofum sé nú háttað, séu þau
tekin að sumrinu og því flytjist
mikið af útivinnu yfir á vetrar-
mánuðina, sem hagkvæmast sé
að vinna á sumrin. Þjóð, sem búi
við jafnárstíðabundið veðurfar
og íslendingar, hafi þó tæplega
efni á að binda orlof eingöngu
við þann tíma, sem hagkvæm-
astur sé til flestra framkvæmda
og því sé full ástæða til að at-
huga hvort ekki sé hægt að
finna leiðir til úrbóta, sem allir
geti vel við unað.
Þá er bent á, að orlofsferðir
til suðlægari landa að vetri til
muni ekki vera dýrari en það, að
flestir þeir, sem hafi efni á að
fara í orlofsferðir innanlands,
hafi ekki síður efni á að fara út
að vetri til. Með þessu ynnist það
tvennt, að fleiri yrðu til taks við
nauðsynlega útivinnu yfir sum-
arið og fleiri nytu sólar og sum-
ars yfir veturinn.
Þessi athyglisverða tillaga var
rædd á fundinum og vísað til
framkvæmdanefndar Vinnuveit-
endasambands íslands til nánari
athugunar.
RÓM, 9. nóv. — I-yrla eyðilagðist I dag,
er hún reyndi að nauðlenda hér í
miðri borginni. Flugmaðurinn og véla-
maður þyrlunnar særðust, svo og þrír
menn, sem voru á ferli á götunni.
19
Leitaði aðsto&ar
herskips vegna leka
í SÍÐASTA blaði Fishing
News er minnzt nokkuð á að-
stoð þá, sem herskipin veita
brezku togurunum hér við
land, t. d. þegar þeir verða
fyrir meiri háttar bilunum.
Er í greinarkorni þessu getið
um aðstoð, sem herskipið
Dunkirk veitti Hull-togaran-
um Cordella hér við land fyr-
ir nokkru.
★
Gerðist atburður þessi við suð-
austurströnd íslands. Kom leki
að togaranum og gátu skipsmenn
ekki af eigin rammleik sigrazt á
honum, enda voru þeir ekki ör-
uggir um hvar hann var, en
vissu þó að hann var niðri við
kjöl. Settu vélstjórarnir allar
dælur í gang, sem fyrir hendi
voru, en lekinn var það mikill,
að við ekkert var ráðið, og var
þá kallað á aðstoð Dunkirk, sem
kom von bráðar á vettvang.
Var sett stór dísel-dæla um
borð í togarann, en hún reyndist
ekki nógu öflug, og var þá sett
önnur rafmagnsdæla um borð, en
þar sem rafmagnsvél Cordella
var ekki nema 110 volta, en dæl-
an gerð fyrir 220 volt, varð að
tengja hana við rafmagnskerfi
herskipsins. Var lagður rafmagns
kapall um borð í togarann, sem
var um 50 fet frá Dunkirk, og
bæði skiþin! sigldu í þessari fjar-
læð með 11 hnúta hraða meðan
dælt var upp úr lestum togarans.
Tókst það greiðlega, og kom þá
í Ijós, að hnoðnaglar höfðu losn-
að í plötu. Var gert við skemmd-
irnar til bráðabirgða, en þegar
þetta gerðist, var myrkur.
Daginn eftir voru svo sendir
nokkrir kafarar frá herskipinu
yfir í togarann, og voru þeir látn
ir kafa niður í hinn ískalda sjó,
undir kjöl togarans, og koma þar
fyrir nýjum hnoðnöglum í stað
hinna gömlu, sem þeir fjarlægðu.
Þótti það vel af sér vikið miðað
við allar aðstæður.
Síðan er skýrt frá því, að Hull-
togarinn hafi haldið áfram veið-
um við ísland.
ÖRN CLAUSEN
heraðsd ómslögmað ur.
Málf'utningsskrifstofa.
Bankastræti 12 — Sírni 18499.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu mér vináttu og
tryggð á sjötíu ára afmæli mínu 28. okt. sl.
Anna Matthíassen, Vestmannaeyjum
Konan mín
FRIEDA G. BOLS JÚLÍUSSON
Skorhaga Kjós,
lézt á fæðingardeild Landsspítalans 9. þessa mánaðar.
Baldvin Júlíusson.
Útför
GUÐMUNDAR JÖNSSONAR
fyrrum baðvarðar,
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtud. 12. þ.m. kl. 2 e.h.
og hefst með bæn að Elli og hjúkrunarheimilinu Grund
kl. 1,15 e.h.
Oddný G. Jónsdóttir.
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma
GUÐBJÖRG KRISTJANSDÖTTIR
Laugaveg 58,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstud. 13. nóv.
kl. 1,30 eftir hádegi.
Kjartan Sigurðsson, Ingólfur Kjartansson,
Kelh Kjartansson, Svanhvít Ingjaldsdóttir,
Lilja Ingjaldsdóttir.
Faðir okkar
IVILHJALMUR GlSLASON
Ásabergi
verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn
14. nóvember. Athöfnin hefst með húskveðju frá heimili
hans kl. 2 e.h.
Börnin
Þakka innilega auðsýnda samúð við fráfall og út-
för eiginmanns míns,
GUÐJÓNS JÓNSSONAR
Oddsstöðum.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Guðrún Grímsdóttir.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim nær og f jær, sem
sýndu okkur samúð við fráfall og jarðarför
ASDlSAR JÓHANNSDÓTTUR
Hveragerði.
Jónína Benediktsdóttir,
Maria Jóhannsdóttir, Sigríður Jóhannsdóttir.,
Alfheiður Jóhannsdóttir, Armannn Jóhannsson,