Morgunblaðið - 20.11.1959, Side 10

Morgunblaðið - 20.11.1959, Side 10
10 MORCinSfíLAÐIÐ Föstudagur 20. nóv. 1959 Samtal um vín- ið og bikarinn LJÓSMYNDARI Morgunblaðs- ins, Ólafur K. Magnússon, tók mynd þá af Elíasi Finnssyní Hólm, sem fylgir þessari grem. Blaðamennirnir voru sammála um að þetta væri fyrirtaks frétta- mynd og sumir þeirra þóttust nú sjá djarfa fyrir ábatasömum við- skiptum við Ella Hólm og sögð- ust mundu skruna sér á hans fund hið fyrsta. Er því líklegt, að flöskusaia Elíasar stóraukist á næstunni, með hástútuðum rauð vínsflöskum í bland. En nú kom upp dálítið vanda- mál. Átti jafnvirðulegt blað og Morgunblaðið að hitta að máli jafnóvirðulegan mann og Élias Finnsson Hólm, fyrrum tukthús- lim, og spyrja hann um flöskurn- ar á myndinni: — Hvað eruð þið að sniglast hér, hreytti Elías út úr sér, þegar við birtumst í dyrunum á lítilli kjallaraíbúð hans að Bergstaða stræti 19. Við mjökuðum ökkur innfyrir, og sem við stóðum þarna ráðvilltir á miðju gólfi, lausir við persónuleikann og þann hátíðlega góðborgara, sem við höldum svo fast í á hærri stöðum, spurði karlinn aftur, hvern fjandann við værum að gera. Hann lá á svörtum dívan- inum og ygldi sig framan í okkur í myrkrinu. Við ætluðum að kveikja Ijósið, en þá sagði hann okkur að snauta burt. — Ég hef ekkert með svona skítkokka að gera í mínum hús- um, sagði hann, reis upp við dogg, fékk sér góðan sopa úr glasi, sem stóð á borðinu og skolaði inni- haldi þess niður með molakaffi. Við þessar tilfæringar var eins og hann sefaðist heldur: — Já, hvern fjandann viljið þið eiginlega? spurði hann, og benti á svarta rúllugardínu sem var dregin nið- ur til hálfs. Ef þið þurfið endi- lega að kveikja ljós hér inni, pá verðið þið að draga niður fyrst, bætti hann við, ómjúkur á mann- inn að vísu, en ekki fjandsam- legur eins og í fyrstu. Svo hnipr- aði hann sig saman í kúrunni sinni, en við kveiktum ljósið og sýndum honum myndina, sem Ól- afur hafði tekið: — Við erurn hérna með ákaflega fallega mynd af þér, Elias Finnsson Hólm, sögð um við. Viltu ekki líta á hana? Við þau orð birti yfir þessu brennimerkta andliti, sem var hrjúft og skorið af þeim jökul- fljótum lífsins, sem ekkert stenzt, og hann strauk það ósjálf- rátt og við fundum að það var honum jafnframandi og ókunnur gestur, sem ber óforvarandis að garði: Elías Hólm: — Ég safna þjóðinni gjaldeyri. maður fær ekki lengur krakka vinnu, komið svartamyrkur, þegar skólinn er úti á daginn. Svo fékk hann sér sykurmola og beit hann í tvennt: — Já, það dugar ekki annað en safna saman því sem kemur upp í hendurnar á manni. Ég legg til hliðar hvern blaðsnepil, sem mörgu . . . ojæja, en látum það eiga sig. Og enn fékk hann sér sopa úr glasinu: — Þetta er annars meira gutlið, en það er samt al- veg nauðsynlegt, svona annað slagið. Ég bragða sjaldan vín nú orðið, það er kominn í mann þurrafúi, en samt er ég vel frísk Un* — Sjaldan verður tófa trygg, sagði hann, ónei. En þetta er fallegur maður, sem er á mynd- inni, já bara nokkuð góður. Á ég ekki að gefa ykkur svo sem eina flösku af rauðvíni? Það veit- ir ekki af í þessari bölvaðri nepju. Það er ekki hægt að fá nokkurn mann í vinnu í þessu veðri. Ég á 200 poka af flöskum ósorteraða og fór samt með 4125 flöskur niður í ríki í fyrradag. Magnús Sakaríasson tók líka 4000 flöskur og samt sér ekki högg á vatni, allir skúrar fullir og garðurinn líka. Þetta eru krakkar, sem vilja fá aura fyrir tyggigúmmíi, karlaræflar, sem hafa engar skruplur í þjóðfélag- inu og kerlingavargar, sem læð- ast hingað í myrkrinu með þetta einn og einn pela héðan og hand- an. Annars er þetta nú allt eins, ég fæ frá áfengisverzluninni og gríp til hans síðar, þegar á þai’f að halda. Og ég safna snærum líka, sjáið þið í þennan kassa hér. Ég tek þessa spotta og bind þá saman í snúru handa konunni Það sparar mér 15 krónur, þvi ég veit ekki til þess maður fái nýja snúru nú á dögum fyrir minna verð. Svona hefur þetta gengið til. Ég safna öllu mögu- legu. Ég veit að snæri, pappir og hvað það nú heitir er bein- harður gjaldeyrir. Það má því segja með nokkrum sanni, að ég sé í þeirri stétt manna, sem aflar þjóðinni gjaldeyris með þessari söfnun minni. Það er margt í // Sex persónur 44 ÞAÐ er árátta á ýmsum góð- um Reykvíkingum, sem sækja leikhús að einhverju ráði, að þeir draga í lengstu lög að sjá leiksýningar, sem þeir hafa áhuga á, oft með þeim afleið- ingum að þeir verða af þeim. Þetta fólk á sinn stóra þátt i því, hve mörg góð eða sæmi- leg verk „falla“ í íslenzkum leikhúsum. Ég er einn þess- ara hvimleiðu leikhúsgesta, svo kannski ætti ég að hafa hægt um mig, en eftir sýningu Leikfélags Reykjavíkur á sunnudaginn var get ég ekki orða bundizt. Sú sýning fór fram fyrir þunnskipuðu húsi, og eru allar horfur á að Leikfélagið verði að hætta sýningum á snilld- arverki Pirandellos. Nú tel ég mig engan veg- inn til þess kjörinn að segja mönnum, hvað þeir eigi að sjá á fjölum leikhúsanna hér, en stundum getur gengið svo fram af manni, að þessi köll- un sæki á mann. „Sex persón- ur leita höfundar“ eftir Luigi Pirandello er eitt af öndvegis- •verkum leikbókmenntanna á þessari öld, og ekki heiglum hent að ráðast í að færa það upp á svið. Margir hafa undr- azt ofdirfð Leikfélagsins í þessu efni og sumir legið því á hálsi fyrir framhleypnina, og ég skal játa að ég var mjög efins um að þetta yrði neitt annað en kák, enda kannski ekki við öðru að búast af hópi áhugamanna, sem sinnir leik- listinni aðeins í frístundum. En eftir sýninguna á sunnu- daginn skipti ég gagngert um skoðun. Leikfélagið getur ver ið fullsæmt af frammistöðu sinni, og við höfum ekki séð margar jafngóðar og heil- steyptar sýningar á undanförn um árum. Leikfélagið hefur enn skotið Þjóðleikhúsinu ref fyrir rass, að öllum góðum mönnum þar ólöstuðum. Sýn- ingin á „Sex persónum“ í Iðnó er t.d. miklu betri en sýningin á ,,Blóðbrullaupi“ í Þjóðleik- húsinu, enda þótt það kæmi hvergi fram í leikdómum. Ég ætla mér ekki að deila við leikdómarana eða bera brigður á sanngirni þeirra, en mér er satt að segja um megn að skilja, hvernig þeir dæmdu þetta verk flestir. Ég er dómurunum sammála um nokkur atriði: Guðmund- ur Pálsson gerir hlutverki Leik stjórans ófullnægjandi skil, hann er of hávær og úthverf- ur. Leikur Þóru Friðriksdótt- ur, já, alltaf vel frískur, því anda lækningarnar hafa gefizt vel. Það er hægt að gera allt fyrir peninga, sjaldan er tófa trygg .... Hann er svo sem nógu ómerkilegur þessi óstöðvandi þorsti, en hann fer nú með mann samt. Þið hefð- uð átt að sjá mig tvítugan á Eski- firði, þegar ég var upp á mitt bezta og umgekkst aðeins mennt- aða menn og lærði mitt bókhald af þeim. Ég hef staðið hverjum manni á sporði í bókhaldi, en samt fór þetta nú svona. Það var ekki bókhaldinu að kenna. Það er eins og maður sé dæmdur til að ráða ekki við þetta á vissum augnablikum og þá kemur ekk- ert að gagni, hversu veraldar- vanur sem maður er. Eskifjörður var stórbær á fyrsta tug þessarar aldar og þangað komu skipin fyrst frá kóngsins Kaupinhafn. Þar voru því mikil flottheit og Luigi Pirandello New York fyrir nokkrum ár- um með ýmsum kunnum leik- urum, og ég stend við það hvar sem er, að sú sýning var áhrifaminni og meira í mol- um en sýningin í Iðnó. Það er sannast sagt leitt til þess að vita úm jafnmenning- arlegt fólk og íslendingar telja sig vera, að leiksýning á borð við „Sex persónur leita höf- undar“ skuli ekki draga til sin í leit að áhorfendum ur er líka of úthverfur, þó hann sé tilþrifamikill með köflum. Ásgeir Friðsteinsson er of unglegur fyrir hlutverk Drengsins. En ég er á öndverð um meiði við flesta leikdóm- arana um Gísla Halldórsson: hann gerði hlutverki sínu mjög góð skil, og allt tal um að gervi hans geri hann of ellilegan finnst mér út í loft- ið. Ég deili sem sagt ekki við dómarana um ýmis smáatriði, meira eða minna mikilvæg, en mér virðist sem enginn þeirra sjái skóginn fyrir trjánum. Það sem mér finnst mest um vert við sýninguna í Iðnó er heildarsvipurinn. Hún er í heild dramatísk, tilþrifamikil og áhrifasterk. Hún hittir mann og stuggar við manni. Það verður ekki sagt um margar íslenzkar leiksýning- ar. Ég sá þetta sama verk í nema örfáar hræður, þegar ekki merkilegri verk en „Tengdasonur óskast" eða „Delerium búbónis" eru sýnd fyrir fullum húsum vikum og mánuðum saman. íslenzk leik- list lyftir aldrei neinu Grettis taki, ef fálætið um það sem vel er gert verður framvegis jafntakmarkalaust og hingað til. Allt snakk um fleiri gaman- leiki og færri harmleiki er íroða, því hér tröllríða lélegar kómedíur öllum húsum. Það sem vantar er skárri smekkur og meiri sanngirni. Það er nefnilega hægt að gera næst- um ótrúlega hluti af litlum efnum, ef vilji, alúð og hug- kvæmni er fyrir hendi, og ein mitt það virðist mér Leikfélag Reykjavíkur hafa sannað með síðasta viðfangsefni sínu. Sigurður A. Magnússon glæsibragur á öllu, smáu og stóru. Þar lærði ég að dansa, með þeirri reisn, sem vel hefði sómt rúss- neskum aðalsmanni á keisara- tímanum, og þar kynntist ég fyrst við konunnar eld og hef þótt góð- ur upp á þá sálma síðan. Þar drakk ég mig fullan í fyrsta skipti og auðvitað markaði sá at- burður tímamót í lífi þjóðarinnar. Þið viljið kannski heyra eitthvað um það? — Já, auðvitað. — Ég er ekkert feiminn við að tala um sjálfan mig. Mér finnst það bara gaman. Það er þá eitt- hvað að tala um. Ef þið haldið, að ég sé eins og móðursjúk og taugaveikluð kerling, þá er það mikill misskilningur. Haldið þið kannske að það sé leikur einn að taka milljón upp úr götustein- unum? Ónei, drengir, þetta er sko engin sæla. En ég ætlaði víst að segja ykkur frá fyrsta fylli- ríinu, já: Eitt sinn sem oftar stóð ég á þilfarinu á norskum fragt- dalli, sem kom til Eskifjarðar að sækja þorskhausa, og skrifaði niður, hversu mikið færi af þeim í skipið. Karlarnir voru að gauka að mér brennivíni allan dagmn og að því kom auðvitað að ég varð blindfullur, datt í sjóinn og var borinn upp í herbergi illa til reika. En þar var ég ekki búinn að vera nema svo sem klukku- tíma, þegar ráðskonan komst að þessu volki mínu og rak mig öf- ugan út aftur og niður í skip, og þá rann auðvitað af mér. Þá voru engin vettlingatök á hlut- unum, manni var kennt að verða karlmenni á Eskifirði. Þið getið líka séð, hve magnaður ég var á því, að þegar ég kom að austan 1913 fór ég á skútuna Ester, sem Guðbjartur Ólafsson var með, og var á henni um sumarið og fékk 75 krónur í hlut og fór með það í Verzlunarskólann. Þið þekkið Guðbjart, hann er ágætur maður og gat sér mikla frægð fyrir að bjarga um 200 mönnum í ofsa- veðri í stríðinu. Við höfum báðir haft atvinnu af því á undanförn- um árum að bjarga fólki, eins og þið vitið, en með ólíkum hætti þó. Við höfum verið miklir og góðir kunningjar, síðan við vor- um saman á Ester, ekki veit ég annað. Við lentum í mannskaða- veðri út af Jökli og tók út mann, en ég bjargaði lífi hans, þó hrædd ur væri. Ég stóð uppi í lúgugati, þegar ég sá hvar maðurinn datt útbyrðis: — Maður fyrir borð! hrópaði ég, og tveir eða þrír, sem voru aftur á, heyrðu þetta, hentu til hans kaðli og björguðu lífi hans á síðustu stundu. Hann hét víst Kristján og er lifandi enn, ég man það ekki og skiptir litlu máli, en hann hefði áreiðanlega drukknað, ef mér hefði ekki verið mál, einmitt á þessari stund. Svona getur nú lífið verið óör- uggt með köflum. Annars var gaman á Eskifirði og þar var margt brallað. Þá var það haft að orðtaki á Austfjörðum, þegar menn stældu um eitthvað: — Við sjáum nú til þegar Ceres kemur og Flóra fer. Með skipunum færð- ist nýtt líf í bæinn. Þau komu færandi varninginn heim, þ.e.a.s.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.